Þjóðviljinn - 28.02.1981, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 28.02.1981, Blaðsíða 7
77/ umræðu á Norðurlandaráðsþingi: Helgin 28. febrúar til 1. mars 1981 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 7 NORDSAT og orkusamstarf Þrjár myndir eftir Gunnlaug Scheving. Ljésm: Ella Úr fórum Grethe og Ragnars Ásgeirssonar NORDSAT er meðal mikil- vægra mála á dagskrá 26. þings Norðurlandaráðs sem hefst i Kaupmannahöfn á mánudaginn, en mjög deildar skoðanir eru um hvort koma skuli á loft þeim gervihnetti til að útvarpa hljóð- og sjónvarpssendingum milli Norðurlandanna. Tilmæli til rikisstjórnanna um gagnkvæmar útvarps- og sjón- varpssendingar hafa verið sam- þykkt sextán sinnum af ráðinu, en ágreiningurinn snýst um hvort þær skuli framkvæmdar með gervihnetti eða með öðrum hætti. Tillaga sem ráðherranefndin hefur lagt fyrir þingið nú tekur ekki afstöðu til ágreiningsins, en þar er gert ráð fyrir, að samningsviðræður hefjist strax Leikarar: Styðja nú útvarpið Svofelld yfirlýsing var sam- þykkt einróma á fjölmennum að- alfundi Félags islenskra leikara:_ „Aðalfundur F.l.L. þ. 23. febr. 1981 lýsir undrun sinni á skiln- ingsleysi yfirvalda á fjárþörf Rikisútvarpsins. Fundurinn skorar á Alþingi að gera Rikisútvarpinu fært að sinna menningarlegum skyldum sinum við fólkið i landinu, með aukinni fjárveitingu i einhverri mynd. Fundurinn lýsir stuðningi við hverja tilraun Rikisútvarpsins til að fá hag sinn bættan.” um viss atriði varðandi Nordsat, en endanleg ákvörðun verði tekin af ráðherranefndinni fyrir lok þessa árs. Efnahagsnefnd leggur fram á þinginu kröfu um að orku- og iðnaðarsamstarf landanna verði styrkt, m.a. til að minnka hrá- efnainnflutning. Samningurinn frá 1956 um félagslegt öryggi verður nú endurskoðaður og samningur við þróunaraðstoð Norðurlanda verður undirritaður. Þriðjudags- kvöldið 3. mars verða Snorra Hjartarsyni afhent bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs. Að hálfu Alþingis sitja þingið Matthias A. Mathiesen, Arni Gunnarsson, Halldór Ásgrims- son, Páll Pétursson, Stefán Jónsson og Sverrir Hermannsson þingmenn og ritari Islands- deildarinnar, Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis. Aðhálfu rikisstjórnarinnar sitja þingið m.a. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, Ólafur Jó- hannesson utanrikisráðherra og Friðjón Þórðarson dómsmála- ráðherra, sem fer með sam- starfsmálefni Norðurlanda á vegum rikisstjórnarinnar. Einnig sækja þingið nokkrir embættis- menn. Forseti N orðurla nda rá ðs, Matthias Á. Mathiesen, mun setja þingið kl. 2 á mánudag, en þvi lýkur siðdegis á föstudag, 6. mars. Forsætisnefnd ráðsins skipa nú auk Matthiasar A. Mathiesen þingmennirnir Knud Enggaard, Danmörk, Elsi Hete- maki-Olander, Finnlandi, Lars Korvald Noregi og Olof Palme, Sviþjóð. —vh 1 dag hefst að Kjarvalsstöðum sýning sem kallast úr fórum Grethe og Ragnars Asgeirssonar. A veggjunum hanga myndir úr einkasafni þeirra hjóna sem þau eignuðust á árunum 1920—1960. Það var einkennileg tilfinning að ganga um Kjarvalssalinn og horfa á myndir helstu meistara islenskrar málaralistar, Kjarval, Asgrim, Gunnlaug Scheving og Höskuld Jónsson sem þvi miður er allt of fáum kunnugur. Á sýn- ingunni getur að lita lifsverk hjónanna Grethe og Ragnars og þegar maður litur yfir verkin og bréfin sem eru til sýnis þá verður skiljanlegt hvernig brautryðj- endum islenskrar málaralistar tókst að lifa og sinna list sinni. Þeir áttu að vini eins og Ragnar Asgeirsson og Grethe sem skutu yfir þá skjólshúsi, keyptu myndir þegar þröngt var i búi og reyndu að gera hvað þeir gátu til að vinna listinni brautargengi. Meðal bréfa sem eru á sýning- unni er eitt frá Tove Kjarval sem hún skrifaði árið 1931. Þá voru þau Kjarval skilin, en hún hélt áfram að styðja hann. Þegar bréfið var skrifað var hún að setja upp sýningu á verkum Kjarvals i Charlottenborg. Hún segir i bréfinu með sársauka að þegar margir þeir listamenn sem verið sé að hampa verði farnir að rotna i gröfum sinum, muni nafn Kjarvalslifa. Bréfið er innsýn i lif listamanna sem fórnuðu öllu fyrir listina, en jafnframt minnir það okkur á að ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Þær eru margar konurnar sem gerðu listamönnum kleift að vinna sitt verk. Elsta myndin á sýningunni er radering eftir Rembrandt sem Grethe kom með i búið frá Dan- mörku. Elsta islenska verkið er eftir Asgri'm Jónsson, litið oliu- málverk málað i Borgarfirði 1904. Alls eru 154 myndir á sýningunni að Kjarvalsstöðum. Nú hefur safni þeirra Grethe og Ragnars verið.skipt milli erfingja þeirra og þvi' verður þetta væntanlega i fyrsta og eina sinn sem verkin verða sýnd saman. Sýningin gefur hvort tveggja i senn mynd af eldri meisturum islenskrar málarlistar og þeirri ást sem hjónin báru til myndlistarinnar. Eva Ragnarsdóttir sem hefur unnið að sýningunni fyrir hönd erfingja þeirra hjóna sagði, að sagt hefði verið við sig að for- eldrar hennar hefðu verið á undan sinni samtið og haft vit á að „fjárfesta” i málverkum. Það hefði nú verið öðru nær. Það hefði miklu verið fórnað, málararnir voru heimilisvinir þau hjónin voru að styrkja þá, f járfestingar- sjónarmið voru fjarri lagi i þá daga. — ká >rsk VÍka B. lgarskur maiur rtlshWno.Wurey Gabrovo — Veliko — Turnevo — Ferðaáœtlun: Alla mánudaga frá og með 25. mai til og með 14. september — Þotuflug. Vikuferð: Sofia — Rila — Plovdiv Varna. Vikulega að eigin vali Baðstrendur: Drushba —Luxus hótelið Grand Hotel Varna. Zlatni Piatsatsi — Gullna ströndin, 1. flokks hótelin Ambassador, Preslav, Zlatna Kotva, Shipka. Öll herbergi með baði, WC, svölum. Hálft fæði, matarmiðar. Slanjev Brajg: Sólströndin, smáhýsi, ibúðir. Hálft fæði eða aðeins morgunmatur. Eigin matseld eftir vali. íslenskur leiðsögumaður á staðnum. Fjöldi skoðunarferða, þar á meðal með skipi til Istanbul, Yaita og Odessa. Ódýrasta land Evrópu 3 vikna ferðir frá kr. 6.190.- Hálft fæði: — og þá tölum við um raunverð þ.e. allt innifalið, sem nauðsynlegt má teljast til ferðalaga, flug — gisting — leiðsögn — en ekki flugvallaskattur, vasapeningar eða annað ótalið hér. 50% uppbót á allan ferðamannagjaldeyri Er hægt að bjóða betur? Feröaskritstota Tryggið ykkur far í tíma. KIARTANS Pantanir eru þegar HELGASONAR farnar að berast Gnoóavog 44 - Sfmi 86255

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.