Þjóðviljinn - 28.02.1981, Page 29

Þjóðviljinn - 28.02.1981, Page 29
um helgina Þessi mynd ólafs heitir Cul-du-sae II. Rauða húsið: Ólafur Lárusson sýnir i dag 28. febrúar, opnar Ölafur sýningar og tekið þátt i fjölda Larusson my ndlistasýningu i Kauða Húsinu á Akureyri. A sýn- ingunni verða myndverk unnin með blandaðri tækni og hafa myndirnar verið unnar á siðast- liðnum þrem árum. Ólafur hefur haldiö einka- Listasafn Einars opnað aftur Listasafn Einars Jónssonar hefur verið opnað að nýju, en safnið hefur verið lokað um skeið. Safnið er opið tvo daga i viku, sunnudaga og miðvikudaga frá kl. 13.30—16. Þá hefur safnið hafið útgáfu á ritgerðum um list Einars Jónssonar og er fyrsta ritgerðin eftir prófessor R. Pape Cowl, sem samsýninga, bæði hér heima og erlendis. Sýningin er opin frá klukkan 4 til klukkan 10 e.h. alla daga og stendur til 8. mars. 011 verkin eru til sölu. nefnist: ,,A Great Icelandic Sculptor: Einar Jónsson” og birt- ist upphaflega i breska timaritinu Reviw of Reviews árið 1922. Rit- gerðin er til sölu i Listasafni Einars Jónssonar. Djassað í Stúdenta- kjallaranum Djassunnendur fá i nógu að sinna um helgina þvi að á sunnudags- kvöldið ætlar Guðmundur Ingólfsson pianisti að safna um sig liði listavina og leika á létta strengi i Stúdentakjallaranum. Að sögn Guðmundar Steingrimssonar er fullvist að þeir nafnar ásamt Birni Thorodd- sen og Gunnari Hrafnssyni mæti, auk þess sem Rúnar Georgsson og Viðar Alfreðsson mæta sjálfsagt i leiknum. Tónleikararnir hefjast kl. 9 um kvöldið og verða eitthvað fram- eftir kvöldi. - lg- Guðmundur Ingólfsson mætir með fleirum i kjallarann á sunnu- daginn. Sjö stelpur í Breiðholtsskóla Leiklistarklúbburinn Aristofanes sem starfar i Fjölbrautarskólanum i Breiðholti frumsýnir á manudagskvöld kl. 20.30 sænska leikritið Sjö stelpur. Það var sýnt i Þjóðleikhúsinu fyr- ir nokkrum árum við góðar undir- tektir. Sjö stelpur segir frá stúlkum sem dvelja á upptöku- heimili og eiga við ýmis vandamál að striða. Það er Jón Júliusson sem leikstýrir, n leikarar taka þátt i Bílasýning: LADA- SAFÍR Bifreiðar & Landbúnaðarvélar h.f. halda bilasýningu að Suður- landsbraut 14, i dag og á morgun kl. 2—6 e.h., þar sem kynntur verður nýr Lada bill, LADA SAFÍR. LADA SAFIR 1981 er bill ársins frá Lada-verksmiðjunum og er talinn henda vel við sýningunni, en alls standa 18manns að uppsetningunni. Krakkarnir hafa sjálf gert leiktjöldin og séð um sýningar- skrána. Þau byrjuðu að æfa i janúar, en þetta er fimmta leikritið sem klúbburinn setur upp. Frumsýningin verður á . mánudag en önnur sýning á mið- vikudag. ,Sýnt verður i Breiðholtsskóla. — ká. islenskar aðstæður, en fyrstu bilarnir verða á kynningarverði. Auk Safirsins verða sýndar allar aðrar gerðir ai Lada bifreiðum, sendibilar, blæjujeppar og UA-452 með stálhúsi. Jazzleikarar í Lækjar- hvammi A mánudagskvöldið verða baldnir nýstárlegir jazz- tónleikar að Hótel Sögu, og nefnast jazzleikar. Þar koma fram stórhljómsveitin Big Band 81. Tradkompaniið, Básúnu- kvartettinn og Trió Kristjáns Magnússonar. Rúsina jazzleikanna veröur ,,eitt allsherjar djamm” einsog það heitir á máli atvinnumanna. Þá leiða saman hesta sina allir helstu jazzknapar landsins. Jazz- leikarnir hefjast kl. 21.00. — ih Aukasýn- ingar á Gum og Goo Vegna mikillar aðsóknar og góðra undirtekta hefur Talia, leiklistarsvið Menntaskólans við Sund, ákveðið að halda tvær auka-sýningar á einþáttungunum Gum og Goo. 10. sýning verður á mánudag- inn kl. 21, og 11. sýning n.k. fimmtudag kl. 21. Þetta eru allra siðustu forvöð! Miðaverðið er 5 kr. fyrir félaga i LMF, en 10 kr. fyrir aöra. Fyrirlestur um heimspeki Næsti fundur félags áhuga- manna um heimspeki veröur haidinn á morgun, sunnudag, kl. 14.30 i Lögbergi. Fyrirlesari verður Henry McGee, bandarisk- ur lögfræðingur og stjórnmála- fræðingur sem er prófessor i lög- fræði við Kaliforniuháskóla i Los Angeles. Fyrirlestur sinn kallar hann „Public Order versus Personal Rights”, og mun próíessor McGee gera grein fyrir heim- spekilegum og stjórnmálalegum skoðunum sem að baki liggur einu mjög umdeildu ákvæði i bandarisku réttarkerfi. Fyrirlestrar um þjóðmál Nú um helgina gengst Þjóðmálahrcyfing íslands fyrir opnum fyrirlestrum um þjóðmál að Aðalstræti 16, 2. hæö. Fjallað er um þjóðmálin i ljósi PROUT- hugmyndafræðinnar. Fyrirlestrarnir verða kl. 10—17 bæði laugardag og sunnudag. Þeir eru opnir og geta menn valið úr og sótt þá fyrirlestra sem þeir vilja. Nánari upplýsingar er hægt að fá i sima 23588. Aögangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. — ih Dersu Uzala endursýnd Margir muua eflaust eftir snilldarverkinu Kurosawa, „Dersu Uzala” sem Laugarásbió sýndi fyrir nokkrum árum. Þessi frábæra mynd verður sýnd i MIR- salnum við Lindargötu næsta laugardag, en i dag verður sýnd þar önnur, eldri mynd um sama efni: för rússneska land- könnuðsins Vladimir Arsenjev til (Jssúri i A-Síberiu og kynni hans af leiösögum anninum Dersu Uzala. Eldri myndin, sem sýnd verður kl. 15 i dag að Lindargötu 48, er sovésk, 30 ára gömul, og er hún sýnd með skýringartexta á ensku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Helgin Í8. febrúár til 1. mars 1981 ÞJóDVlLjlðiN — S'lÐA 29 Karl i Djúpinu. Ljósm.: — Ella. Finngálkn og flygildi Karl Júliusson opnar i dag sýningu i Djúpinu við Hafnar- stræti og nefnir hana ..Finngálkn og flygildi”. Karl er tæplega þritugur, sjálf- menntaður og hefur fengist við myndlist i u.þ.b. fjögur ár, en þetta er önnur einkasýning hans. A sýningunni eru 13 skúlptúrar, unnir á árunum 1979—81 úr bambus, hrispappir, roöi og tágum. Sýningin verður opin til 18. mars. — ih Messíana sýnir í Torfunni Nú stendur yfir i veitingahúsinu Torfunni við Lækjargötu sýning á leikmynda- og búningateikning- um eftir Messiönu Tómasdóttur. Þetta eru teikningar úr þremur barnasýningum. 1 veitingasalnum niðri eru teikningar úr oliver Twist, sem nú er verið að sýna i Þjóðleikhús- inu, og Sálinni hans Jóns inins, sem Leikbrúðuland sýnir um þessar mundir á Frikirkjuvegi 11. I veitingasalnum uppi eru svo teikningar úr öskubusku, sem var sýnd i Þjóðleikhúsinu vetur- inn 1978:' Torfan er opin frá kl. 10.00—23.30 daglega. Ingibjörg Pálsdóttir og Eske llolm i hlutverkum karlmannsins og kon- unnar, dansflokkurinn fylgist með þvi sem gerist. Ljósm : Ella. Frumsýning islenska dansflokksins: Hjartaknúsarinn og Vorblót tslenski dansflokkurinn frum- sýnir á þriðjudag 3. mars tvo balletta eftir Danann Eske Holm. Höfundurinn stjórnar sjálfur flutningnum og dansar ineð flokknum en gestir verða Auður Bjarnadóttir og Dinko Bogdanic. Railettarnir heita Vorblótið viö samnefnd tónverk eftir Stra- vinski og lljartaknúsarinn þar sem alls konar tónlist kemur við sögu. Eske Holm fer sinar eigin leiðir i túlkunum sinum á Vorblótinu og tengir verkið baráttu kynjanna. Hjartaknúsarinn er safn atriða sem lýsa kúgun i ýmsum mynd- um oft i gamansömum tón. Auður Bjarnadóttir starfar nú viö óperuna i M'únchen sem aðal- dansari og hefur ekki komið fram á sviði hér frá þvi að hún vann danskeppninni i Kuopio i Finn- landi árið 1979. Mótdansari hennar Dinko Bogdanic starfar einnig við Múnchenaróperuna. Þau munu dansa tvo tvidansa, „Paganini” við tónlist eftir Rach- maninoff og dans úr ballettinum „Le Corsair” við tónlist eftir Drige. Aðeins verða fjórar sýningar á ballettunum, á þriðjudag, mið- vikudag, föstudag og sunnudag 8. mars. Dags hríðar spor í 25. sinn A inorgun, sunnudag, veröur leikrit Valgarðs Egilssonar, Dags hriðar spor, sýnt i 25. sinn i Þjóð- leikhúsinu. Lcikritið hefur vakið mikl athvgli, enda er i þvi beitt skopádeilu á islcnskt samfélag. Leikstjórar eru Brynja Bene- diktsdóttir og Erlingur Gislason, en Sigurjón Jóhannsson gerði leikmynd og Jórunn Viðar samdi tónlistina. Með helstu hlutverk fara Herdis Þorvaldsdóttir, Rúrik Haraldsson, Þórir Steingrimsson, Flosi ólafsson og Arni Blandon. — ih

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.