Þjóðviljinn - 17.03.1981, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriftjudagur 17. mars 1981.
Dans
listin
Ijúfa
Sovéskur listdans
og Listdanssýning
tslenska dansflokksins
i Þjóftleikhúsinu.
Ballettunnendur hafa átt sælu-
daga undanfariö. Fyrst var sýn-
ing Islenska dansflokksins undir
stjórn Eske Holm frá Danmörku
og siftan heiftruöu sovétmenn
okkur meft heimsókn f tilefni þess
aö tuttugu ár eru liftin frá undir-
skrift gagnkvæms menningar-
sáttmála.
Ég var dálitift beggja blands i
afstööu til Eske Holm. Hann var
meft tvö verk, fyrst röft aöskilinna
atrifta sem hann kallar Hjarta-
knúsarann, lfklega vegna þeirrar
kabarettumgerftar sem hann
hefur um þaft, en síftan Vorblót
Stravinsky. Atriftin I Hjarta-
knúsaranum voru mjög misjöfn,
sýndu aö visu sum allmikift hug-
myndaflug en hugmyndunum var
illa fylgt eftir og úrvinnslan var
slakleg og sjúskuft. Best voru
fyrstu atriftin, skemmtilega hug-
kvæm túlkun á Bóleró Ravel þar
sem endurtekningar verksins
voru notaftar til þess aft sýna
okkur manneskjur innilokaftar i
sjálfum sér, og einkum og séri-
lagi Grand Pas de deux vift hift
yndislega Adagio Albinioni sem
Asdis Magnúsdóttir dansafti sér-
lega sannfærandi og sterkt iklædd
spennitreyju. Siftan fór allt niftur
á vift.
I Vorblótinu fengum viö aft sjá
hversu miklum framförum dans-
flokkurinn hefur tekift og hefur
reynslan af Blindisleik vafalaust
haft þar afgerandi áhrif.
Flokkurinn kom sterkt út sem
hópur og sýndi af sér nákvæmni
og dramatisk tilþrif. Kóreógrafia
Eske Holm er viöa kraftmikil en
varla nógu hrein i byggingu. Ball-
ett hans viö Vorbiótiö fjallar um
baráttu kynjanna og gengur
mikift á í henni aö vanda. Eske
Holm dansafti sjálfur i þessu
verki og er hinn liprasti dansari
en um of upptekinn af sjálfum
sér. Hefur þaft truflandi áhrif á
listtúlkun hans.
Siftan komu sovétmenn. Hvaft
þjálfun og tæknilega ögun dans-
ara snertir stendur sjálfsagt
enginn ballett i heimi þeim
sovéska á sporfti og dansarar
þeirra á þessari sýningu sýndu
aldeilis ótrúlega leikni bæfti sem
einstaklingar og i hópdansi. öllu
lengra verftur tæplega náft á
þessu sviöi.
Hitt er annaft mál aft sum atrift-
in verkuftu á mig fyrst og fremst
sem tæknisýning og skorti nokkuö
á tilfinningalegt innihald. Þetta
er sjálfsagt óhjákvæmilegt þegar
um er aö ræfta sýningu af þessu
tagi — þaö á aö sýna okkur eins
konar úrtak af þvi besta sem
finnst i Sovét af þessu tagi. Miklu
heffti verift skemmtilegra aft fá
heilan ballett meft leikmynd og
lifandi tónlist, en þaö er vist til of
mikils ætlast.
Sovétmenn virftast halda
nokkuft fast i hefftbundinn, klass-
Iskan ballettstll og þeir virftast
einnig hafa hóp af
Tjækovskiepógónum til aft semja
tónlist vift þessháttar ballett. Sú
tónlist er satt aö segja óttaleg
sætsúpa. En Tjækovski sjálfur
bregst ekki og þaft er eflaúst
engin tilviljun aft bestu atriftin I
klasslskum stil voru vift hans tón-
list, atriöi úr Svanavatninu og
Þyrnirós. I Svanavatninu heillaöi
Ljúbov Gersjúnova alla meö
yndisþokka sinum og ótrúlega
mjóum og liöugum handleggjum
sem virtust gerftir úr einhverju
allt öftru en beini.
En þaft atriöi sem hreif mig
mest var þaft eina sem mótaft var
aö marki af nútimastil, tvidans
Elitu Erkina og Tiit Harm frá
Eistli*ndi vift Adagio Albinioni
(sama verk og Eske Holm
notaöi), sem túlkaöi á næsta full-
kominn hátt þann djúpa og sára
trega og þá háleitu glefti og fegurft
sem tvinnast svo ótrúlega saman
i verki hins italska meistara.
Þarna var tæknin og ögunin tekin
i þjónustu hinnar sönnu listar.
Ahorfendur voru augljóslega
innilega hrifnir af þessum
frábæru listamönnum og sýndu
gleöi sina og þakklæti meö mjög
ótviræftum hætti og rikti sannur
andi vinsemdar og friftar meö
þjóftum þetta skemmtilega kvöld
i Þjóftleikhúsinu. Hafi Sovétmenn
heila þökk fyrir komuna.
Sverrir Hólmarsson J
MINNING
lónína Þóroddsdóttír
frá Víkurgerði, Fáskrúðsfirði
Fædd 7. maí 1927 — Dáin 5. mars 1981
Helfregn slær hugann óneitan-
lega harmi, þegar hún kemur svo
óvænt sem nú, er mágkona min
kvaddi svo langt um aldur fram.
Vanheilsa um nokkurt árabil
var aft visu staðreynd, en ein-
hvern veginn fannst mér aft Nina
yrfti sigurvegarinn enn um hrift,
óbilandi bjartsýni og trú á lifift,
löngunin til aft starfa áfram og
létta áfram lifsgönguna sinum
kærustu var svo sterk og þrungin
viljakrafti aft vift vildum ekki
trúa þvi, aft hún lyti þar i lægra
haldi, svo alltof fljótt, svo alltof
skyndilega. Siðast þegar við hitt-
umst var þaft enn sem fyrr lifs-
viljinn og hugarróin, sem öllu
öðru voru yfirsterkari.
Og svo er ósigurinn allt i einu
orftin hin myrkva staftreynd'og
fátækleg kveðjuorft megna litift aft
leiðarlokum. Efst hlýtur þó aft
vera i hug okkar, systur hennar
þó helzt og fremst, þökkin fyrir
allt i öllum samskiptum fyrr og
nú, þökkin fyrir aö hafa átt sam-
leið meft dugmikilli, heilsteyptri
og umfram allt hjartahlýrri á-
gætiskonu, þó sú samleift yrfti
alltof stutt.
Lifsstarf hennar allt var bundið
þjónustu vift sina og þar var
aldrei um tima né fyrirhöfn spurt,
aðeins sem ljúf skylda, sem sjálf-
sagt þótti aft inna af hendi eins og
þrek og kraftar frekast leyfðu.
Ég hefi oft dáftst aft þeirri fórn-
fúsu onn, er einkenndi öll hennar
störf og kom skýrast fram i um-
hyggjunni fyrir dóttursyninum,
en sem aðeins var sem lýsandi
dæmi um þá eftlisþætti, sem rik-
astir voru i fari Ninu, þar sem
kærleikurinn skipaði svo sannar-
lega æftsta öndvegi. Nina var ó-
venju indæl i allri viftkynningu,
glaftlegt viftmót réfti þar miklu,
hlýleiki og jafnlyndi, ásamt góðri
kimnigáfu löftuöu aft og eftir aft
verulega fór að bjáta á var þó
æðruleysift það einkenni sem ég
mat mest.
Náiö og gott samband þeirra
systra var slikt, aft þar naut ég
rikulega gófts af og þvi er mér
sannur söknuftur nú i sinni.
Þar fór góft kona, með heitt
hjarta og hugdirfsku þess sem
aldrei lætur bugast. Atakalaust
varð lifið henni ekki, ýmislegt fór
þar á annan veg en hún ætlaði, en
allt vil og vol var svo viðs fjarri
að svo var ævinlega sem allt léki
i lyndi.
Það er gott að eiga svo trausta
skapgerft og heilbrigða lifssýn og
þess naut hún á erfiftleikastund-
um.
Afteins skal að helstu æviatr-
iðum vikið. Jónina var fædd aft
Vikurgerfti i Fásrúftsfirfti 7. mai
1927 og var þvi aðeins 53 ára er
hún lést.
Foreldrar hennar voru hjónin
Anna Runólfsdóttir sem nú er
rúmlega áttræð að aldri og Þór-
oddur Magnússon, útvegsbóndi,
sem lézt fyrir nær aldarfjórftungi.
Systkinin sem upp komust
voru 6 og er hún annaft þeirra er
úr hópnum hverfur.
I Vikurgerði ólst hún upp við
hin algengustu verk, sem sveita-
störf og sjósókn kölluftu á.
Arið 1945 giftist Jónina Aðal-
steini Tryggvasyni frá Fáskrúðs-
firfti. Þau fluttu til Hafnarfjarftar
og bjuggu þar alla sina sambúð-
artift.
Þau hjón slitu samvistum fyrir
nokkrum árum.
Börn þeirra hjóna voru fimm:
Hilmar, bátsmaður, nú i
Reykjavik, Fjóla, húsmóftir á
Seyöisfirfti, Þórey, húsmóftir i
Reykjavik, Tryggvi, sjómaftur i
Reykjavik, og Unnar, sem var al-
inn upp sem kjörsonur hjá föftur-
systur sinni og manni hennar, en
drukknafti ungur maftur. Auk
þess var Aftalsteinn, sonur Þór-
eyjar, alinn upp hjá ömmu sinni,
eins og áftur er aft vikift.
Barnabörnin eru nú 9.
Siftustu árin bjó Jónina aö
Bergþórugötu 14 og hjá henni þeir
Tryggvi og Aftalsteinn. Þakklát-
um huga er kvatt og kynnin góðu
lifa i minningunni.
Heiðbjört er sú mynd i huga
okkar af hinni fórnfúsu, eljusömu
og vel gerftu konu, sem ævinlega
mat það æftst aft veita öftrum allt
það er hún átti að gefa og það svo
aft hvergi bar á skugga. Lifssaga
mágkonu minnar var alltof stutt,
en hún er vörðuft þvi, sem mikil-
vægast er i þessu lifi, vel unnum
verkum vammlausri starfsævi i
fórnfýsi þjónustunnar fyrir þá,
sem henni voru kærastir.
Systir hennar kveftur meft sér-
stakri þökk til kærrar systur og
öll tökum við undir þá þökk.
Sem mildur blær á björtu vori
eystra. fer lúfsár minning sem
leiftur um hugann.
Megi sú hugljúfa minning
milda söknuftinn sára.er sækir nú
að þeim er henni unnu heitast.
Einlægar samúðarkveftjur eru
þeim sendar.
• Blikkiðjan
Asgaröi 7. Garöabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI 53468
Góð var hin gengna ævi. Sem geislar á
vegi verma myndir frá horfinni tið og
ylja i þeim söknuði, er fylgir kveðjustund en
varpa ljósi á vegferð okkar með hugheilli þökk
fyrir samfylgd liðinna ára.
Blessuð sé sú bjarta minning Jóninu Þóroddsdótt-
ur.
Helgi Seljan.
íbúð tll sölu
Höfum til sölu 2ja herbergja ibúð i kjall-
ara við Gullteig i Reykiavik. íbúðin er ca
50 ferm, með Danfoss-hitalögn og tvöföldu
- gleri, litið niðurgrafin. íbúðin er til af-
hendingar núþegar, en þarfnast e.t.v. ein-
hverrar standsetningar. Verð áætlað kr.
250 þús.
Lögmannsskrifstofan
Klapparstig 27,
Reykjavik. Simar 18960 og 27060.
Sveinn Skúlason lögfræðingur