Þjóðviljinn - 17.03.1981, Page 16
MQBWIMN1 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Þriðjudagur 17. mars 1981. 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná iáfgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Nýju byggfngasvæðin samþykkt
í skipulagsnefnd:
Varað við
útþymungu
byggðar
Breytt nýting flugvallarsvæðisins athyglis-
verður kostur að mati nefndarinnar
Skipulagsnefnd samþykkti á
fundisfnum i gær tillögur Borgar-
skipulags að nýju aðalskipulagi
svonefndra Austursvæða, þar
sem m.a. er lagt tii að eftir að
byggt hefur verið i Selási og á
Ártúnsholti verði hafist handa á
svæðinu austan og norðan Kauða-
vatns eins og skýrt hefur verið frá
i Þjöðviljanum. Fjallar borgar-
ráð um tiliöguna i dag.
Meirihluti skipulagsnefndar
samþykkti fyrrgreinda tillögu en
fulltrdar ihaldsins voru henni
andvi'gir á þeim forsendum m.a.
að ekki væri óhætt að treysta
þeim niðurstöðum vatnsbóia-
sérfræðinga að létta megi vatns-
vernd af Bullaugum. Töldu þeir
vænlegri kost að næsta bygginga-
svæði væri á Keldnalandinu,
norðan Vesturlandsvegar.
I ályktun meirihluta skipulags-
nefndar er fjallað um fyrirséða
þróun i ibdafjölda borgarinnar og
vakin er athygli á nauðsynþess að
vandlega verði fylgst með henni
á komandi árum og farið varlega
i uppbyggingu nýrra svæða við
óbreytt ástand. Leggur nefndin til
að unnin verði sérstök fram-
kvæmdaáætlun um leiðir til að
sporna við núverandi ibúaþróun
og þeirri Utþynningu byggðar. 1
þvi sambandi leggur nefndin til
að áfram verði kannaðir mögu-
leikar á flutningi Reykjavikur-
flugvallar og hugsanlegri nýtingu
svæðisins undir aðra starfsemi og
telur nefndin hugmyndir Borgar-
skipulags 1 þessa átt verulega
athyglisverðan kost i byggða-
þróun borgarinnar i framtiðinni.
Þá var samþykkt að fela
Borgarskipulagi að kynna
almenningi og fjölmiðlum til-
löguna.
—AI
Fóstruderlan í Eyjum:
Túlkun skotið til
hlutlausra aðila
Fóstrur f Vestmannaeyjum
fellust á að fresta uppsögnum
sfnum um hálfan mánuð og
mættu til vinnu i gær. A laugar-
dag var haldinn fundur f bæjar-
stjórn og rætt við fóstrur. Aðilar
komust að samkomulagi um að fá
hlutlausan aðila til að gefa um-
sögn um deiluatriðið, sem er
tulkun á einu ákvæði kjarasamn-
ings fóstra. Að sögn Ragnars
Óskarssonar bæjarfulltrúa var
óljóst i gær hver sá hlutlausi aðili
yrði.
Túlkunaratriöið sem deilt er
um er á þann veg að fóstrur telja
að sama gildi um fóstrur i efri
launaflokkum og þær sem hefja
störf, að þær eigi að hækka um
einn launaflokk eftir eins árs
starf, en á það hefur bæjarstjórn
ekki viljað fallast.
Ragnar sagðist vona að málið
leystist farsællega fyrir alla aðila
og það væri vilji allra að fá sem
fyrst Ur þvi skorið hvor túlkunin
væri rétt. _
Alltsem við viljum er mötuneyti, sungu framhaidsskólanemarnir fyrir utan menntamálaráðuneytið. —
Ljósm.: Ella. ■
Við vðjum mötimeytí j
Afhentu
menntamálaráð-
herra 3853
undirskriftir
Framhaidsskólanemar I
Reykjavik héldu fylktu liði á
fund menntamáIaráðherra f
gær og afhcntu honum undir-
skriftir 3853 skólanema sem
krefjast þess að mötuneytum
verði komið á fót i framhalds-
skólunum.
Nemendur Fjölbrautaskólans
i Breiðholti hófu gönguna löngu
frá skóla sínum og niður að
Alþingishúsi, en siðan bættust
við nemendur Menntaskólanna
við Hamrahlið og við Sund auk
nemenda Ármúlaskólans.
Hersingin hélt niður i miðbæ að
Alþingishúsinu, en þar kom i
ljós að menntamálaráðherra
var staddur i ráðuneytinu við
Hverfisgötu, svo að þangað var
haldið.
Ingvar Gislason mennta-
málaráðherra kom út og tók við
undirskriftunum og mælti
nokkur orð. Hann sagðist
Ingvar Gisiason menntamálaráðherra tók við undirskriftalistunum
og iofaði að leggja málið fyrir alþingi og rikisstjórn. Ljósm.: Ella.
mundu leggja málið fyrir al-
þingi og rikisstjórnina.
Nemendur upphófu mikinn og
kröftugan kór sem hrópaði og
söng: við viljum mötuneyti,
rikisrekinn starfskraft, mötu-
neyti i alla skóla, jafnrétti til
náms, og allt sem við viljum er
mötuneyti, við alkunnan
baráttusöng.
Að svo búnu dreifðist
hópurinn sem sennilega hefur
talið mörg þúsund skólanema.
Krafan um mötuneyti i skóla
minnir á könnun þá sem nýlega
var kynnt af Landlæknis-
embættinu um mataræði skóla-
barna. Þar kom i ljós að sjoppu-
fæðið er um fjórðungur þeirrar
fæðu sem skólanemar neyta,
bæði næringarlaust og óhollt. 1
framhaldsskólunum er viðast
hvar selt einhvers konar snarl,
en nú vilja nemendur eiga kost á
almennilegum mat eins og flest-
ir þeir sem vinna i stofnunum
rikisins.
_ká ■
________________________,.J
I
i
■
I
■
I
i
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
Steingrimur Hermanns-
son samgönguráðherra
veitti danska flugfélaginu
Sterling leyfi fyrir 14 leigu-
fiugferðir hingað Jil lands
næsta suman Þetta leyfi cr
vcitt Sterling til að flytja
farþega Ferðaskrifstofunnar
Samvinnuferöir/Landsýn,
sent ætla aö dvelja i 2ja
vikna leyfi I dönskum
sumarhúsum næsta sumar.
Flugleiðir h.f. hafa lýst þvi
yfir, að Sterling sé með
undirboð i' þessu máli, en
Steingri'mur Hermannsson,
Flugráö og flugmálastjori
telja svo ekki vera. Eysteinn
Helgason forstjóri Sam-
vinnuferöa/Landsýn segist
hafa boöiðFlugleiðum h.f. að
ganga inni tilboð Sterling en
Flugleiðir hafriað þvi á þeim
forsendum að það væri ekki
samkeppnishæft, svo lágt
væri það. —S.ijór
UPPSAGNIRNAR HJA U.A.:
Engu spáð um endurráðiiingar
Það hefur komið fram
i fréttum að 40 manns
hefur verið sagt upp
störfum hjá útgerðar-
félagi Akureyringa, og
hefur þetta fólk ekki
verið i vinnu siðustu
viku að sögn Vilhelms
Þorsteinssonar, annars
af tveimur forstjórum
Ú.A.,og um endurráðn-
ingu sagði hann ekkert
vera hægt að fullyrða á
þessu stigi málsins.
Vilhelm sagði að ákvörðun
stjónvalda ylli þvi að hjá togurum
Ú.A. væru 750 skrapdagar á ári,
en togarar Ú.A. eru fimm talsins.
Uppistaðan i aflanum er karfi og
fer hann á Rússlandsmarkað,og
vinnsla fyrir þann markað er
miklu minni en fyrir Bandarikja-
markað vegna minni gæða-
krafna.og þvi færristörfum til að
dreifa en áður. Bandarikja-
markaður sem áður var
Nær allir sem
sagt var upp
eru konur
aðalmarkaðurinn er nú mjög
óhagsstæður að sögn Vilhelms.
Þetta þrennt: breytt samsetning
aflans, minni vinnsla og fjölgun
skrapdaganna orsakar sam
dráttinn. Vilhelm nefndi sem
dæmi að 9. mars i fyrra hefði
verið búið að landa 13000 tonnum
af þorski hjá Ú.A. en ásama tima
iár 1300 tonnum. Hliðstæar tölur
fyrir karfa eru 150 tonn i fyrra en
1800 tonn i ár. Vilhelm var þung-
orður um stefnu stjórnvalda i
sambandi við uppbyggingu
flotans og sagði að það væri
háskalegt ef leysa ætti atvinnu
mál eins staðar með þvi að auka
atvinnuleysi annars staðar.
Þjóðviljinn ræddi við Freyju
Eiriksdóttur, sem er Irúnaðar-
maður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar hjá Ú.A.,og hún sagði að
það hefði verið dapurlegt að sjá 40
vinnufélaga verða að ganga frá
vinnu i fullkominni óvissu um
hvað við tæki. Freyja hafði ekki
fengið i hendur lista yfir þá sem
sagt var upp, en hún taldi að
flestiref ekki allir væru konur og
kvaðst hún hafa vissu fyrir að 30
konur sem áður hefðu unnið hjá
Ú.A. hefðu skráð sig atvinnu-
lausar i siðustu viku. Hún kvaðst
vita til þess að margar af þessum
konum hefðu ekki bótarétt úr at-
vinnuleysissjóðnum. Hún nefndi
sem dæmi eina konu sem unnið
hefði i hálfu starfi hjá Ú.A. en
væri að hálfu leyti i' námi og hefði
stefnt að námslokum n.k. vor.
Samkvæmt lögum ætti þessi kona
ekki rétt á bótum. Maður hennar
væri hins vegar i fullu námi og er
þvi ekki hægt um vik hjá þessu
fólki. Lög um atvinnuleysisbætur
þegar námsfólk á i hlut mæla
fyrir um að viðkomandi skuli
hafa verið sex af siðustu tólf
mánuðum i námi, þrjá i vinnu og
hafa tekið lokapróf i viðkomandi
nami. Freyja sagðist telja að um
fjórði hluti kvenanna væru ein-
stæðar mæður: m.a. vissi hún til
þess að fimm barna móðir væri
meöal þeirra sem sagt var upp.
Freyja sagði starfsfólk Ú.A.
gera sér fulla grein fyrir þeim
erfiðleikum sem leitt hefðu til
uppsagnanna og það væri þess
fullvisstað fólkið yrði endurráðið
strax og aðstæður leyfðu. Hins
vegar hefði risið á vinnustaðnum
alda samúðar með þeim sem
misstu vinnuna og margt hefði
verið rætt um hvernig bregðast
mætti við. M.a.s. sagði hún að á
fjórða tug starfsmanna hefðu
boðist til að taka sér viku launa-
laust fri með þvi skilyrði að öll lög-
boðin réttindi, hvað varðaði
sumarfri og annað.héldust óskert.
Þannig hefði starfsfólkið viljað
gefa þeim sem verst urðu úti kost
á þvi að ganga á ný inn i störf.
Þessi úrlausn hefur ekki fengið
endanlega afgreiðslu.
Vinna hefur dregist saman hjá
þeim konum sem áður unnu frá
kl. 1-7, og vinna þær nú aðeins 4
tima á dag eða frá 1-5. Freyja
sagði að fáar krónur kæmu nú
upp úr launaumslögum þessara
kvenna,- tekjutapið næmi nær
helmingi og eftir sem áður yrðu
þær auðvitað að greiða af þvi
skatta af tekjum siðasta árs.
—j.