Þjóðviljinn - 20.03.1981, Side 3
Föstudagur 20. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Afnotagjöldin:
86% hækkun
var leyfð
Rikisstjórnin hefur sent frá sér
eftirfarandi athugasemd:
1 umræðum um fjárhag Rikis-
útvarpsins hefur þvi verið haldið
fram i fjölmiðlum, að stjórnvöld
hafi ekki leyft eðlilegar hækkanir
á afnotagjöldum stofnunarinnar.
Er þvirétt aðfram komi, að siðan
núverandi rikisstjórn tók til
starfa 8. febrúar 1980 hafa verið
heimilaðar hækkanir á afnota-
gjöldum sem nema 86%. Rikisút-
varpið hefur þvi fengið verulega
hækkuná afnotagjöldum umfram
hækkunlaunaog verðlags á sama
timabili.
Starfsmannafélags
sjónvarps:
Tek jumöguleikar
RUV ekki
skertir
Starfsmannafélag sjónvarpsins
samþykkti á aðalfundi sinum ný-
lega áskorun á stjórnvöld þess
efnis að tekjumöguleikar Rikisút-
varpsins verði ekki skertir og að
stofnuninni verði heimilað að
hækka afnotagjöldin i samræmi
við verðbólgu. Fundurinn vakti
athygli á þvi, ,,að tekjur stofn-
unarinnar eru takmarkaðar i
þeim tilgangi að halda niðri visi-
tölu og þykir fundarmönnum hart
að afleiðingar vanstjórnar i efna-
hagsmálum skuli bitna á veiga-
mestu menningarstofnun lands-
ins. Fjársvelti þetta hefur komið i
veg fyrir eðlilega endurnýjun
tækja og bitnar ennfremur illa á
dagskrárgerð”, segir i ályktun
fundarins.
Forsetinn
heimsækir
Norðmenn
Forseti islands, Vigdis Finn-
bogadóttir, fer i opinbera heim-
sókn til Noregs dagana 21.—23.
október i boði Noregskonungs. Að
afstaðinni hinni opinberu heim-
sókn mun forseti dveljast i einka-
erindum i Noregi dagana 24. og
25. október.
Borgara-
fundur hjá
Leigenda-
samtökunum
A morgun, laugardaginn 21.
mars, gengast Leigjendasamtök-
in fyrir opnum borgarafundi.
Hefst hann kl. 2 eftir hádegi og
verður að Hótei Borg. Ræðumenn
verða Sigurður E. Guðmundsson
forstjóri Húsnæðismálastofnunar
rikisins og Gunnar Þorláksson
fbrstöðumaður Húsnæðisdeildar
Reykjavikurborgar en fundar-
stjóri verður Haukur Már Har-
aidsson blaðafulltrúi ASl.
Siguröur E. Gunnar
Guömundsson Þorláksson
\
\
Unnið aö frágangi I húsnæöi SAA og áfengisvarnadeildar I Sföumúla.— Ljósm. Ella.
SÁA og áfengisvarnadeildin flytja í maí:
Stórbætt aðstaða
fyrir hópmeðferð
Nú er veriö aö vinna að innrétt-
ingu á 570 fermetra hæð i Siðu-
múla 3-5 sem SAA hefur fest kaup
á en sambandiö ásamt áfengis-
varnadeild Reykjavikurborgar er
nú i leiguhúsnæöi hjá Hjarta-
vernd i Lágmúlanum. Á þriöju-
dag gekk borgarráð frá leigu-
samningi viö SAA fyrir áfengis-
varnadeildina til 12 ára en á fjár-
hagsáætlun þessa árs er veitt 50
milljónum gamalla króna til inn-
réttingar hæöinni.
Eirikur Ragnarsson deildar-
stjóri áfengisvarnadeildar sagði i
samtali við Þjóðviljann i gær að
trúlega yrði starfsemin flutt i
Siðumúlann i maimánuði n.k.
Eirikur sagði að aðstaða áfengis-
varnadeildarinnar yrði geysjjega
góð i nýja húsnæðinu en hún
verður á 230 fermetrum. Nú býr
deildin við mjög þröngan kost og
sérstaklega háir það starfseminni
hvað fundaraðstaða er litil. Er nú
svo komið að biðtimi á kvöldnám-
skeið fyrir f jölskyldur alkóhólista
er nær eitt ár og 4-5 mánuðir eftir
dagnámskeiðum en á hverjum
mánuði eru um 40 þátttakendur i
þessum námskeiðum.
Eirikur sagði að áfengisvarna-
deildin fengi 50 fermetra fundar-
sal og sjö önnur herbergi á nýja
staðnum og eru tvö þeirra þannig
úr garði gerð að breyta má þeim i
stærrisal. Við getum þvi haft tvö
námskeið i einu sagði Eirikur, og
vonandi styttast biðiistarnir fljót-
lega eftir flutninginn.
Borgarstjórn sýndi mikinn
stórhug við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar fyrir þetta ár, sagði
Eirikur, og jók starfsmannafjöld-
ann hjá okkur um nær 100%
þannig að nú erum við með 6 og
hálft stöðugildi. Þörfin fyrir
þessa þjónustu er mjög brýn og
með þessari bættu aðstöðu og
fjölgun starfsmanna ættum við að
geta komið mun betur til móts við
hana.
—AI
Fulltrúar
flokkanna
ræða bráða-
birgðalögin
Félag viðskiptafræðinema i
Háskóla Islands gengst fyrir opn-
um fundi með fulltrúum stjórn-
málaflokkanna, laugardaginn 21.
mars kl. 14 i stofu 301, Arnagarði.
Fundarefni: Bráðabirgðalögin
og efnahagsáætlun rikisstjórnar-
innar. Fulltrúar flokkanna
munu kynna viðhorf sins flokks i
örstuttri framsögu. Eftir það
verða írjálsar umræður. Aætluð
fundarlok eru ki. 16,30.
Frummælendur verða frá: Al-
þýðubandalaginu: Einar Karl
Haraldsson ritstjóri. Alþýðu-
flokki: Eiður Guðnason alþingis-
maður. Framsóknarflokki: Guð-
mundur G. Þórarinsson alþingis-
maður. Sjálfstæðisflokki: Friðrik
Sophusson alþingismaður.
Opinn fundur
í Kópavogi:
Málefni
fatlaðra
Aðalfundur Kvenfélagasam-
bands Kópavogs verður haldinn
laugardaginn 21. mars i húsnæði
Félagsstarfs aldraðra að Hamra-
borg 1 og hefst kl. 10. fh.
t tilefni af Ari fatlaðra verður
opinn fundur að aðalfundi loknum
og hefst kl. 15. Dagskrá fundarins
er helguð fötluðum. Flutt verða
framsöguerindi og umræður
verða að þeim loknum.
Frummælendur á fundinum
verða Ragna Freyja Karlsdóttir,
formaður Sérkennslustöðvar
Kópavogs, Sigriður Ingimundar-
dóttir frá Styrktarfélagi vangef-
inna, Steinunn Finnbogadóttir,
forstöðumað.ur Dagvistunar-
heimilis Sjálfsbjargar, Asgeröur
Ingimarsdóttir, fulltrúi hjá
öryrkjabandalagi Islands, og
Asgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maöur H júkrunarheimilis
aldraðra i Kópavogi.
Kaffiveitingar eru á fundinum.
Allir Kópavogsbúar eru velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir.
Stjórn Verkfræöingafélagsins og nefnd utn epinberar fríjmkvæmdir á fundi meðblaðamönnum á Hótel E^jul gær. —Ljósm.: —eik—
Verkfmðinefnd um sKipun oþjnberra frumkxémdá: | 5
Oþurft að breyta lögunum og hóg að fytgja þeim?
Með þvieinu að fylgja lögum og
herða á framkvæmd ákvcðinna
greiningu á þörf jframkvæmd-
arinnar, bætta hönfiun, almenn-
atriða mætti spara amk. 10% i
fjárfestingu opinberra fram-
kvæmda án þess að breyta lögum
um skipan þeirra er mat nefndar
á vegum Verkfræðingafélagsins
sem unnið hefur aö umsögn og til-
lögum vegna endurskoöunar
þessara laga.
Þettafcom fram á blaðamanna-
fundi sem stjórn Verkfræðinga-
félags íslands boðaði til i gær, en
á honum voru nefndarmenn jafn-
framt viðstaddir. Samkvæmt áliti
eru lögin um skipan opinberra
framkvæmdanr. 63/1970 iraun og
veru vel samin i veigamestu
atriðum, en hinsvegar vantar á
að þeim sé fylgt sem skyldi.
t þessu sambandi nefndi for-
maður nefndarinnar, Guðmundur
Einarsson verkfræðingur,
einkum fjögur atriði, þe. skil-
ari útboð og skilanfat, fjárhags-
legt og tæknilegt. fjokkur atriði
laganna telur nefndjn að þurfi að
skilgreina betur ag einnig að
nokkur viðbótarákyæði vanti i
þau.
Meginsjónarmið nefndarinnar
er að skilja eigi sem mest á milli
fjögurra aðila opinberra fram-
kvæmda, þe. eiganda, hönnuðar,
eftirlits og verkframkvæmda og
að mjög glögg skil þurfi að vera
milli undirbúningsaðila og fram-
kvæmdaaðiia, þótt náið samstarf
milli eftirlits og hönnuðar sé
nauðsynlegt á framkvæmda-
stiginu. Vanti þessi skil getur svo
farið, aö allir fjórir séu sami
aðilinn og þarmeð dómari um
eigin framkvæmdir;
Lögin kveða á uúi könnun og
samanburb þeirra kosta sem til
greina komi við iausn þeirrá
þarfa sem framkvæmdin á að
fullnægja, en i lögin vantar hinar
vegar ákvæði um skilgreiningu
þarfanna.Leggurnefndin áherslu
á þetta atriði þar sem ella sé
hætta á að i ljós komi eftir að
framkvæmd lýkur, aö þörfin hafi
ekki verið sú sem reiknað var
með. Frægasta dæmi þessa héf-
lendis er liklega Krýsuvikur-
skólinn, framkvæmd sem reynd-
ist 100% óþörf er henni iauk.
Sömuleiðis þarf að endurskoða
markmiðið með framkvæmdinni,
þegar langur timi liður frá þvi að
hún er ákveðin þar til hún hefst og
bentu nefndarmenn i þessu tilliti
á sem dæmi hafnarmannvirki
sem kannski væru orðin úrelt er
fjárframlög loks kæmu til vegna
þess að fiskurinn hefði flutt sig
eða skipin breyst á timabilinu.
Nefndinni finnst eðlilegast að
áílar nýframkvæmdir séu boðnar
út og telur að taisvert megi spara
með þvi. Lögin segja að þetta
skuli ,,að jafnaði” gert, en langt
er frá að þvi sé fylgt, enda heim-
ild til undanþágu. Td. bjóða
•Vegageröinog Hafnamálastofnun
aðeins út um 13—14% af sinum
nýframkvæmdum, en hinsvegar
Hitaveita Reykjavikur td. og
Landsvirkjun allar sinar.
Fleiri atriði smærri er bent á i
áliti nefndarinnar, sem stjórn
Verkfræðingafélagsins hefur gert
að sinu og verður nú skilað til
fjármálaráðuneytisins. Nefndina
skipuðu auk formanns hennar,
Guðmundar Einarssonar, Baldur
Jóhannesson, Guðmundur
Gunnarsson, Páll Hannesson og
SkúliGuðmundsson, sem reyndar
skrifaði ekki undir álitið, vegna
stöðu sinnar sem forstöðumaður
framkvæmdadeildar Innkaupa-
stofnunarinnar.
—vh