Þjóðviljinn - 20.03.1981, Page 16
DWÐVIUINN
Föstudagur 20. mars 1981.
Nýr ís aö
myndast fyrir
norðan land
Undanfarnar vikur hefur haf-
isinn milli Islands og Grænlands
haldist nálægt meðallagi.
Isjaðarinn hefur verið nálægt
landgrunnsbrún út af Vest-
fjörðum Islandsmegin við mið-
linu. Þetta kemur fram i frétt frá
hafisrannsóknanefnd i gær.
Þar segir einnig að vegna þess
mikla kuldasem hefur verið rikj-
andi i norðan áttinni að undan-
förnu hafi átt sér stað nokkur
nýmyndun iss. Sovéskt rann-
sóknaskip sem statt var um 75
sjómilur norður af Kolbeinsey til
kynnti á miðvikudag um isrek
sem þakti 4—6/10 hafsyfirborðs.
Var þar um nýmyndaðan is að
ræða.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
sagði i gær að hann vildi ekki spá
þvi að svo stöddu hvað þetta
þyddi. Heldur er að draga úr
hæðinni yfir Grænlandi en hún
getur þó orðið við lýði nokkra
daga enn. Spáð er svipuðu frosti
næstu daga og það gæti þýtt að
stórt svæði á Islandshafi legði til-
tölulega fljótt. Það ræðst svo af
þvi hve frostið verður langvar-
andi og hvaðan vindar blása
hvort is tekur að reka upp að
ströndum Islands.
Loðna út af
Breiðafirði
gæti verið frá
aðalgöngunni fyrir
sunnan land segir
Hjálmar
Vilhjálmsson
Sjómenn á Snæfellsnesi telja
sig hafa orðið vara við loðnu á
miðum báta af nesinu, en það var
um siðustu helgi og siðan hefur
ekki gefið á sjó.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur sagöist bara hafa
heyrt um þetta eins og aðrir i
fréttum, en ekki hafa séð nein
. sýni af þessari loðnu. Og áður en
hann segði neitt um málið vildi
hannsjá þessa loðnu. Þó gat hann
þess,aðhugsanlegtværi aö þarna
væri á ferð torfa úr aðal göngunni
fyrir sunnan land. Það væri ekki
óalgengt að loðna úr þeirri göngu
kæmi á þessar slóðir til að
hrygna.
—S.dór
Aðalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn
blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö
ná I áfgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Tómas Arnason ávarpar kaupmenn: Viðramman reip aðdraga ef gefa á álagninguna frjálsa. Mynd: Ella
Viöskiptaráðherra á þingi Kaupmannasamtakanna:
„Er fylgjandí fiuJlu
álagningarfrelsi”
En ýmsir aöilar berjast gegn því
A aðaifundi Kaupmannasam-
taka islands i gær lýsti Tómas
Arnason viðskiptaráöherra sig
fylgjandi fullu álagningarfrelsi á
allar vörur. Taldi hann, að þannig
yrði best tryggt hið þriþætta hlut-
verk versiunarinnar: að tryggja
góða vöru, góða þjónustu og sann-
gjarnt verð. Þungur róður yrði þó
að hrinda slíkri stefnu i fram-
kvæmd innan rikisstjórarinnar,
áieit Tómas.
Þetta kom fram i svari við-
skiptaráðherra viö fyrirspurn-
um þingfulltrúa að loknu ávarpi.
Hann hóf mál sitt með þvi að
segja frá þvi að hann hefði komið
til Sovétríkjanna á siðast liðnu
sumri i fyrsta sinn, hefði það
veriö lærdómsrik för og heim
kominn hefði hann betur en
nokkru sinni fyrr gert sér grein
fyrir þýöingu smásöluverslunar-
innar, svo snar þáttur sem hún
væri i öllu þjóölifi.
Tómas ræddi siöan efnahags-
mál vitt og breytt. Hann sagði að
þótt efnahagsmál yllu Islend-
ingum þrálátum höfðuverk, þá
væru ýmsir þættir þeirra mála i
góðu horfi. Hann taldi fyrst upp
það sem vel færi og nefndi þar
rikisfjármál, en þar hefðu orðið
umskipti áriö 1979 en þá hefði
rikið i fyrsta sinn síöan 1972. átt
tekjuafgang hjá Seðlabankanum
og heföi svo haldist siðasta ár.
Utanrikisverslunin hefði staðið
Iðunn sendir frá sér nýjar bœkur
Bókaútgáfunni
dreit't á árið
Bókaútgáfan Iðunn ætlar að
gera tilraun nú á vormánuðum til
að dreifa útgáfu bóka á fieiri
mánuði en hingað til og rjúfa ein-
okun jólabókaflóðsins.
Eftir næstu mánaðamót eru
væntanlegar nokkrar bækur eftir
islenska og erlenda höfunda. Þar
er fyrst að telja barnabók eftir
Véstein Lúðviksson sem heitir
Sólarbliöan. Hún inniheldur
nokkrar smásögur glænýjar af
nálinni hans Vésteins. Þá koma
einnig út smásögur eftir
Steinunni Sigurðardóttur sem
nefnast: Sögur til næsta bæjar.
Steinunn hefur hingað tii aðeins
sent frá sér ljóðabækur og verður
forvitnilegt að sjá hvernig henni
semur við smásagnaformið. Ein-
ar Már Guðmundsson sendir frá
sér nýja ljóðabók: Róbinson
Krúsó snýr aftur.en á siðasta ári
gaf Einar sjálfur út fyrstu tvær
ljóðabækur sinar.
Astarsaga aldarinnar eftir
finnsku skáldkonuna Mörtu
Tikkainen kemur nú loks á mark-
að i þýðingu Kristinar Bjarna-
dóttur. Marta fékk bókmennta-
verðlaun kvenna árið 1978, þegar
konur vildu minna á að bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs höfðu ætið farið til karl-
manna. Þá var safnað saman
álitlegri peningaupphæð i verð-
laun og veitt Mörtu fyrir þessa
bók, en árið eftir sá Norðurlanda-
ráð sóma sinn i að veita Söru Lid-
mann verðlaunin svo að ekki hef-
ur oröið framhald á sérstökum
kvennaverðlaunum.
Slöasta bókin sem Iðunn gefur
út að þessu sinni er eftir þann al-
kunna Alister McLean, og með
honum I för er John Dennis, hún
nefnistá islensku: Svik að leiðar-
lokum.
—ká
sig vel, þjóðarframleiösla aukist
og staðan i peningamálum
styrkst, innlán hefðu orðið 5-10%
hærri hjá bönkunum en útlánin.
Þá nefndi hann einnig það að full
atvinna hefði haldist, atvinna
hefði verið svo mikil að það hefði
kallað á stöðuga þenslu. Þá sagði
Tómas að fjárfesting hefði verið
nálægt þvi sem hæfilegt mætti
kallast eða 27% af þjóðartekjum.
Agaleysi og þrýstihópar
Þá vék Tómas að þvi sem
miður færi i efnahagslifi Islend-
inga og nefndi fyrst verðbólguna.
Sagðist hann hafa haldið margar
ræður um þá leiðu bólgu en þær
yrðu seint of margar. Kvaðst
Tómas þeirrar skoðunar að
leiðandi menn i opinberu lifi ættu
að nota hvert tækifæri til að vekja
athygli á þvi hver skaðvaldur hún
væri i þjóðiifinu.
Þá sagöi Tómas aö afkoma,
fyrirtækja væri langt i frá nægi-
lega góö og taldi þá skoðun of út-
breidda "Sö það væri i lagi að
fyrirtæki beröust i bökkum.
Tvennt taldi Tómas enn upp af
hinu illa, en það var agaleysið i
þjóöfélaginu og uppivöðslusemi
þrýstihópa. „Við erum agalaus
þjóð”, sagði Tómas og lýsti eftir
meiri aga á öllum sviöum þjóð-
lifsins. Þá sagöi hann þrýsti-
hópana stóra, stælta og marga og
mætti vart svo hreyfa við máli að
ekki væri sprottinn upp þrýstu-
hópur. „Þrýstihóparnir valda þvi
að það er látið eftir þeim”, sagði
Tómas en sagði aö þrýstihópar
væru óhjákvæmilegir I okkar
þjóðfélagskerfi. Stundum væru
þeir llka til góðs eins og t.d. hefði
sannast I Póllandi.
Fylgja þarf eftir áramóta-
aðgerðum
Tómas sagði hækkanir grunn-
kaups á siðasta ári hafa komið I
veg fyrir að árangur hefði náðst
þá i baráttunni við verðbólguna.
Hann taldi aögerðirnar um
siðustu áramót spor i rétta átt en
þær myndu þó ekki ná tilgangi
sinum nema aðrar aðgerðir
fylgdu I kjölfarið. Hann gerði ekki
nána grein fyrir þvi hvaða að-
gerðir hann væri þá með i huga,
en sagði að skilyrði fyrir árangri
væri þjóðarsamstaða, þrýsti-
hópar yrðu aö lækka seglin, þá
ætti hann ekki einungis við launa-
fólk, heldur einnig þa sem stöðugt
kreföust aukinna framkvæmda.
Hækkun vörubirgða
Tómas sagði að, hann teldi stórt
skref stigið meö samþykkt
verðlagsráös frá 3. des. s.l. aö
hækka mætti vörur á lager til
samræmis viö gildandi verðlag á
hverjum tíma. Loks las hann upp
samþykkt ríkisstjórarinnar frá i
gærmorgun, þess efnis að inn-
flytjandi mætti hækka álagningu
ef hann felldi niður umboðslaun
erlendis og sýndi fram a lækkun
vöruverðs.
,/Ákveðnir aðilar" á móti
Að lokinni framsögu Tómasar
svaraði hann fyrirspurnum.
Harðindahljóð var i þingheimi
sem liki ástandinu I verslunar-
málum nú viö það sem gerist i
Sovét eða það sem rikti hér á
timum einokunarverslunar Dana.
Of langt mál er aö rekja mál
manna hér en helst brann
mönnum I huga álagningarmál,
þóknun verslunar fyrir innheimtu
• söluskatts og loks hvenær rikis-
stjórnin ætlaði að setja i gildi
áðurnefnda ályktun verðlags-
ráðs.
Tómas kvaöst oft hafa lýst vilja
sinum um fullt álagningarfrelsi,
en þungur róður yrði að hrinda
þessu I framkvæmd, ákveðnir
aðiiar innan rikisstjórarinnar og i
þjóðfélaginu væru þessu
andsnúnir. Hann lýsti sig einnig
samþykkan þvi að kaupmenn
fengju þóknum fyrir innheimtu
störf sin fyrir rikissjóð. Varðandi
Framhald á bls. 13
1980 gífurlegt
samdráttarár hjá
Flugleiðum:
Starfsfólki
fækkaði um
fjórðung
Yfir 40% fcerri
farþegar í
A tlantshafsflugi
A siðasta ári fækkaði starfsfólki
Flugleiða um 24.3% miðað við ár-
ið á undan eða úr 1480 starfs-
mönnum árið 1979 i 1120 við árs-
lok 1980.
Hlutfallslega mest fækkun varð
meðal starfsmanna Flugleiða
erlendis úr 399 I 191, en hér heima
fækkaði starfsmönnum úr 1981 i
928.
Farþegafjöldi i Atlantshafs-
flugi félagsins á milli tveggja sið-
ustu ára dróst saman um nærri
42% eða úr 258,671 i 150,369. I heild
fækkaði farþegum i millilanda-
flugi félagsins um 28%. Þeir voru
420,077 árið 1979 en einungis
302,631 á siðasta ári.
1 innanlandsflugi var mun
minni samdráttur i farþegaf jölda
eða 7,1% en þar fækkaði farþeg-
um milli ára um nærri 17 þús.
Samkvæmt upplýsingum Leifs
Magnussonar framkvæmdastjóra
hjá Flugleiðum, á félagiö nú sam-
tals 11 flugvélar eða jafnmargar
og við árslok 1979, en hins vegar
hefur sætafjöldinn minnkað úr
1370 sætum i 1162 sæti.
Þar munar mestu um söluna á
DC-10-30 þotunni en hún tók 380
farþega. Flugleiðir eiga nú 3
DC-8-63 vélar þar af ein eingöngu
i fraktflutningum. Þá eignaðist
félagið B-727-200 vél þegar DC-10
þotan var seld og ennþá á félagið
tvær B-727-100 vélar en önnur
þeirra hefur verið um nokkurt
skeið á söluskrá.
Þá eiga Flugleiðir nú 5 Fokker
Friendship vélar þar af eina
F-27-500 og fjórar F-27-200, en
þrjár F-27-100 fiugvélar voru
seldar á síðasta ári.
-lg
Útibússtjóri Útvegsbankans í Eyjum:
Engar fyrir-
skipanir gefið
en ég hef bent útgerðarmönnum og skip-
stjórum á hvar hæsta verðið fæst og hvaða
verksmiðjur gera fyrstar upp
Eins og skýrt var frá i Þjóðvilj-
anum i gær, skýrir blaðið „Aust-
urland” frá þvi 12.mars sl. að úti
bússtjóri Útvegsbankans i Vest-
mannaeyjum hefði komið i tal-
stöð og sagt ákveðnum bátum úr
Vestmannaeyjum að landa á
Eskifirði.
Útibústjórinn heitir Vilhjálmur
Bjarnason ogtókhann við þessari
stöðu um sl. áramót. 1 heldur
kaldranalegu samtali við Þjóð-
viljann I gær sagði hann fyrst að
þetta væri mál sem hann vildi
ekki ræða og svaraði þvi engu þar
um. Þjóðviljanum kæmi málið
ekki við og hefði engan rétt á að
yfirheyra sig um eitt eða neitt.
Eftir aðeins lengra samtai m.a.
um mannvonsku Bjarna Þórðar-
sonar ritstjóra Austurlands, kom
að þvi að útibústjórinn sagðist
aldrei hafa talað við skipstjórnar-
menn i talstöð og fyrirskipað
þeim aö landa á Eskifirði.
— Hitt er annað mál að ég hef
bent skipstjórnarmönnum óg eig-
endum bátanna á hvað verk-
smiðjur greiða hæsta verðið fyrir
loðnuna og hverjar þeirra eru
fyrstar til að gera upp reikninga
og tel mig gera þeim greiða með
þvi móti sagði Vilhjálmur.
Um þau ummæli Lúðviks
Jósepssonár formanns bankaráðs
Landsbankans i Þjóðviljanum i
gær að hann teldi ástæðu til að
kanna hvort það væri rétt að úti-
bústjórinn væri að skipta sér af
hvar skip lönduðu, sagði Vil-
hjálmur að þetta væri eins og
þegar Rússar og Kinverjar voru
að skammast forðum daga og
skömmuðu þá Albani. Þarna væri
um að ræða rig á milli Neskaup-
staðar og Eskifjarðar.
—S.dór