Þjóðviljinn - 07.04.1981, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 07.04.1981, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. april 1981 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjóðfrelsis Ótgefandi: Utgáfufélat' Þjóðviljans. Kramkvæmdastjóri: E-öur Bergmann. Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. Auglýsingastjóri: Þorgeir Ölafsson. Umsjónarmaður sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson. Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaðamenn: Alíheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son. iþróttafréttamaður: Ingóllur Hannesson. Þingfréttaritari: Þorsteinn Magnússon. Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. I.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröar^on. Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Iteykjavik, sími 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf.. Tölvan og tœknin 1 þágu hverra? • Ráðstefna Alþýðusambands íslands um tölvumál sem haldin var nú um helgina var hin merkasta. Það er fátt mikilvægara fyrir verkalýðshreyfinguna en að búa sig sem best í stakk til að mæta þeim gífurlegu breyt- ingum sem verða í atvinnulíf inu á næstu árum af völdum tölvuvæðingar, nýrrartækni og sjálfvirkni. • Tilkoma örtölvunnar hefur þegar leitt til atvinnu- byltingar í iðnvæddum ríkjum. Störfin hafa tekið stakkaskiptum og þeim fylgir oft mikið andlegt álag um leið og fólk einangrast á vinnustaðnum. Jaf nf ramt hef- ur atvinnuleysi aukist. Flest iðnfyrirtæki geta stóraukið framleiðslu sína þótt starfsliði fækki. Jafnvel heilar starfsstéttir verða óþarfar vegna nýrrar tækni. Það er Ijóst að þessi þróun mun halda áfram með vaxandi hraða. • Þess vegna er eðlilega spurt: Leiðir þessi nýja bylt- ing í atvinnulífinu til þess að mikill fjöldi vinnufærra manna verði atvinnulaus, en aðeins nokkrir útvaldir fái vinnu — eða geta verkalýðssamtökin haft áhrif á og stjórnað þróuninni þannig að tæknibyltingin leiði til styttri vinnutíma, jafnrar skiptingar vinnunnar og um leið aukinna tekna. Um þetta verða hörð pólitfsk átök. Krafa verkafólks hlýtur að vera sú að afrakstur nýrrar tækni komi öllum til góða. Aukin framleiðni skili sér til allra jafntog leiði til aukins frítíma. Að mannleg niður- læging atvinnuleysisog ótta um f ramtíðina verði af máð. 9 Tölvuvæðing og sjálfvirkni hefur þegar haldið inn- reið sina í íslenskt atvinnulíf. Reynslan hef ur því miður sýnt að verkafólk hér á landi hefur í fæstum tilfellum verið með í ráðum og áhrifa þess lítið gætt við skipulags- breytingar í fyrirtækjunum. Það er alltof algengt að tölvur séu fyrst og fremst notaðar í þeim tilgangi að fylgjast náið með afköstum hvers verkamanns eða vinnuhóps. • Hér verður að innleiða nýjar starfsvenjur. Það dett- ur víst fáum í hug að standa gegn því að taka upp tækni- nýjungar í atvinnurekstri. En þaðer lágmarksskilyrði að verkafólk sé með í ráðum og ný tækni og framleiðni- aukning verði i þágu f jöldans. • Á ráðstefnu Alþýðusambandsins sagði Asmundur Stefánsson, forseti ASI, í ræðusinni: • ,,Tölvutæknin getur orðið til f arsældar ef verkalýðs- samtökin beita sér á réttan hátt og ná að beina þróuninni i réttan farveg. Við verðum að tryggja samtökunum og starfsfólki fyrirtækjanna íhlutunarrétt og undirbúa okk- jr öll undir að nota okkur aðstöðuna og hagnýta tölvu- /æðinguna í okkar þágu, þannig að yfirsýn og áhrif á vinnustaðnum aukist, vinnuaðstaðan batni, heiIsuspiII- andi og þrúgandi störfum fækki og mannlífið blómstri." • Hér er hægt að taka undir hvert orð. Og það ber sér- staklega að þakka það f rumkvæði sem Alþýðusamband- iðhef ur tekið með þessari ráðstefnu um tölvumálin. Þar kom ma. fram að á Norðurlöndunum er þegar í gildi lög- gjöf og samningar sem tryggja verkafólki verulegan rétt viðhvers kyns breytingar á vinnustaðnum og skipu- lagningu vinnunnar. í rammasamningi norska alþýðu- sambandsins og vinnuveitendasambandsins um tölvu- kerfi frá árinu 1978 er td. sérstaklega kveðið á um að tölvukerfi séu ekki aðeins metin út frá tæknilegum og fjárhagslegum viðhorfum, heldur einnig félagslegum viðmiðunum. • Félagsmálaráðherra sagði í ræðu á ráðstefnunni að án tafar bæri að taka upp viðræður milli verkalýðshreyf- ingar, atvinnurekenda og stjórnvalda um tölvumálin í þeim tilgangi að gera samning um tölvunotkun og skipu- lagsbreytingar í atvinnulíf inu. Það má ekki dragast að ganga í það verkef ni og setja um leið löggjöf sem tryggi áhrif verkafólksá stjórnun fyrirtækjanna og rétt til end- urmenntunar, vegna breytinga á eðli starfa, án tekju- skerðingar. • Við verðum hér á landi að koma í veg fyrir þau slys sem orðið hafa af völdum örtölvubyltingarinnar í öðrum löndurrven stjórna f yrirtækjunum þess í stað með hags- muni f jöldans að leiðarljósi. Við verðum að hafa vilja og getu til að nýta hugvit og vélbúnað í þágu hinna vinnandi manna. f þessu efni verða verkalýðssamtökin að hafa frumkvæði og forystu. Ráðstefna ASf um tölvumálin er því sérstaktfagnaðarefni. —Bó. klippt. a Skoðanakúgun frá vinstri? Eins og menn vita er ekkert algengara en ab nafnkenndir dálkasmiöir eða huldumenn séu aö kvarta yfir þvi i hægriblöð- um, aö vinstrivillur hafi breiðst úr háskólanum út um allan fjöl- miðlaheiminn og haldi þaðan uppi einskonar skoðanakúgun, sem bitni á ærlegri ihaldssemi hins þögla meirihluta. Þær áhyggjur af málfrelsi sem þess- ir aðilar þykjast hafa eru einatt næsta undarlegar: i raun fela þær oftast I sér kröfu um rit- skoöun. Þessi skrif eru algeng jafnt hér á landi sem i grannlöndum. Morgunblaöiö var ekki alls fyr- ir löngu aö bera af sér óánægju sem ritstjórar höfðu bersýni- lega fengiö að kenna á, og sýnist hafa stafað af þvi einkum, að blaðiö heföi ekki nóga ritskoðun á ýmislegt efni sem lýtur að sundrungunni i Sjálfstæöis- flokknum. En oftar er, sem fyrr segir, talið, aö vinstrivillur geri sig mjög dirgar og beðið um kylfur til aö berja þær niður. Um þá hluti fjallar Olof Lager- crantz, sem lengi var ritstjóri sænska stórblaðsins Dagens Nyheter og haföi mikil áhrif á ritstjórnarstefnu sænskra blaða. Tilefniö var grein sem birtist i hægriblaðinu Svenska Dagbladet, þar sem Lager- crantz var sakaður um að hafa á sinni tiö kerfisbundið hafnað greinum sem honum voru ekki að skapi, til þess aö láta allskon- ar heilaspuna ( og vinstrivill- ur), sem hann sjálfur aöhylltist hafa forgang á þvi borgaralega en frjálslynda blaði, Dagens Nyheter, sem hann stjórnaöi. orkusprengjur, hann trúði heitt á kosti markaðslögmála, á það að Bandarikin væru sverð og skjöldur lýðræðis, hann var heitur fjandmaöur sósialisma og grimmur andkommúnisti — þá skilja menn lika á hvaða sviðum það var sem umræðan i Dagens Nyheter var mjög ein- hliöa. Og þegar viö (nýju rit- stjórarnir) reyndum að stækka umræöurammann, þá varð þaö svo I reynd, að fyrst og fremst var „opnaö til vinstri”. ösköp skeö: stórblað er þung skúta sem snarast ekki af leið sinni. : „Við sem stýrðum blaö- inu reyndum að átta okkur sem bestvið máttum iheimi sem var i örri breytingu, en það var ekki um neina stefnubreytingu að ræða. Það nærtækasta var að koma sér undan einföldunum, dómhörku, grunnmúraðri sjálf- umgleði og skorti á umburðar- lyndi”. Samt sem áður var i blööum sem voru lengra til hægri og viðar haldiö uppi mikl- Svint juvar, doktriner, tidninffspolitik s,=í&is M. i metod tiil trots. Nár jag 1960 tillsammans med Sven-Erik Larsson blev DN:s cheíredaktör var min första átgárd att láta de principer för debalten som jag hávdat under Tingsten gálla.” Olof Lagercrantz, i dag 70 ár, bemöter hár den kritik som framfördes nyligen mot honom i Svenska Dagbladet, dár det bl a pástods att Lagercrantz syn pá yttranderátten gav upphov till taiesátt som ”bara en ásikt i taget fár plats i ett litet land” eller "Lagercrantzdoktrinen”. Herbert Tinqstcn. onskaile debamnlágp ffír tidningens egen hnje (Hagar Olsson. r sknrn mot utombomben.) Iaits FnrseiL en nnnn ■• •< > </< •>/ xnm hjalpte uss sc tad som skedde i Vietnam. Pe imprenhsnsk i Victniim;":' nk s,un lethi ■ tillen aktion worn DX-bolc; rs sture's des .... . ......... Harður | hægrikarl • Þegar Olof Lagercrantz gerð- Iist menningarritstjóri Dagens Nyheter áriö 1950 var Herbert Tingsten aðalritstjóri. Þeim Ienti oft saman, vegna hinnar hörðu hægristefnu sem Herbert Tingsten fylgdi eftir I sinum rit- stjórastóli. Tingsten vildi yfir- leitt alls ekki taka við greinum sem væri andsnúnar nokkrum grundvallarsjónarmiöum hans (eða blaðsins eins og hann hafði mótað það), og ef slikt væri gert, þá ætti að mæta slikum greinum með hörku af hálfu rit- stjórnarinnar sama dag eða þann næsta. Að opna umræðuna Lagercrantz haföi hinsvegar I það sjónarmiö, aö Dagens Ny- I heter hefði, vegna mikillar út- ■. breiðslu og vegna þess að ýmis I smærri blöö voru þá að leggja I upp laupana vegna fátæktar, I ýmsum skyldum að gegna • gagnvart „öörum” sjónarmiö- I um. Það ætti ekki að reka svo I takmarkaða umræðu i blaðinu, I og ekki reyna að rota þá fáu sem * inni fengu meö önnur sjónarmið I meö heiftarlegum gagnárásum j — þeir fastráðnu ábyrgðarmenn I blaösins hefðu meira en nóg 1 vald fyrir. I Siöan tók Lagercrantz ásamt I Sven-Erik Larsson við Dagens I Nyheter árið 1960, og breytti þá I’ um ritstjórnaraðferðir. En eins og hann segir: „Ef menn minn- ast þess hver var stefna Ting- • stens: að Sviþjóð ætti aö ganga i I Nató, verða sér úti um kjarn- Sárt vein Og hvaö gerðist þá? Olof Lagercrantz rifjar það upp I stuttu máli hverskonar greinar það voru, sem nú gátu — við hlið annarra — komist inn í Dagens Nyheter: þar var efast um að markaösöflin gætu leyst hung- urvandann i heiminum, sett i fyrsta sinn spurningarmerki við stefnu israelskra stjórnvalda i Palestinumálum, dregiö i efa að þaö væri alltaf hægt að treysta Bandarikjunum i mannrétt- indamálum, endurskoðaðar fastar staðhæfingar um einhliða árásarhyggju fyrst Sovétmanna og svo Kinverja. Og svo komu skýrslur fréttaritara blaðsins frá Vietnam, sem opnuöu augu manna fyrir nýjum sannindum. Voru borgaralegir vinir frelsis- ins fegnir þessu aukna mál-, frelsi? ó ekkí. Olof Lagercrantz 1 segir: „Nú var rekið upp sárt vein um aö Dagens Nyheter hefði tekið upp skoöanaeinokun og að vinir lýðræðisins væru þar for- smáðir. Menn voru svo vanir þvi að ráða öllu, að minnsta tist sem var þeim andsnúið virkaði sem sá lúðrablástur sem steypti múrum Jerikóborgar”. Reynt að reka ritstjórana Semsagt: þeir eru rnargir Svarthausarnir. Olof Lager- crantz leggur einmitt áherslu á að það höföu svo sem engin I um kveinstöfum um vinstrifor- I skrúfun Dagens Nyheter. Ekki I nóg með það. Það vantaði held- 1 ur ekki áhrifamenn I stjórn blaðsins sem vildu snúa aftur til hinnar einstrengingslegu stefnu Tingstens. Til dæmis var gerð alvarlega tilraun til að steypa þeim Lagercrantz og Larsson úr ritstjórastólum eftir að þeir 1 birtu greinaflokk I blaðinu um I Vietnamstriöið eftir hinn I heimskunna þýsk-sænska rit- I höfund Peter Weiss. > Burt ! með asnana! Lagercrantz telur sig geta • horft um öxl meö góðri sam- I visku og hafi svo farið i reynd, I að sænsk stórblöð hafi siðan | orðiö opnari en áður og um * margt tekiö upp hans afstöðu til I aðsends efnis. En hann er, nota I bene, ekki á þvi að ritstjórar | eigi að birta hvaö sem er. Um • þá hluti segir hann i lok greinar I sinnar: „Stjórn blaðs veröur aö sjálf- | sögðu stöðugt aö hafna greinum • sem henni finnast rökleysur eða I byggöar á grófri einföldun. Slik I hegðun kemur ekki umburöar- | lyndi eða skorti á því við, heldur ■ fellur hún undir heilsugæslu. Ef I að ég hefi á ævinni aöhyllst I nokkra kenningu, þá ér best að | kenna hana við ódauðlega ■ frænku Davids Copperfields. | Betsy Trotwood-kenningin er I þá I þvi fólgin, að það á alltaf aö | reka burt asnana!”. ■ _»9 slcorið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.