Þjóðviljinn - 07.04.1981, Síða 5

Þjóðviljinn - 07.04.1981, Síða 5
Þriðjudagur 7. aprll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Fréttaskýring Forseta- kosningar í Frakklandi: Kommúnistar gegn sósíalistum svarar þá með því, að sá þrautsegi fallkandidat Mitterand komist fyrr eða síðar ekki hjá þvi að gera bandalag við kommúnista. Og Marchais, formaður kommiinista, tekur reyndar i sama streng þegar hann er að gera Mitterand erfitt fyrir: þú verður að stjörna með okkur eða ekki. Og þar er komið að þeirri afstöðu franska kommún- istaflokksins, að hann kýs heldur að hægriöflin sigri i forsetakosningunum en að sósialistinn Mitterand fari með sigur — m.a. vegna þess að þá yrðu kommúnistar kannski neyddir til einhverskonar stjórnardbyrgðar — um leið og vegur sósialista á vinstri armi franskra stjórnmála hefði auk- ist verulega. Vinstriraunir Kommúnistaflokkurinn franski hefur lengst af verið all- einangraður — og ekki aðeins vegna þess, að kalt strið og aðrar skyldar aðstæður fældu frá honum bandamenn, heldur og vegna þess, að hann hefur viljað leggja mikla rækt við þá sjálfsmynd sina, aðhann sé eina pólitiska aflið sem skipti franskan verkalýð verulegu máli. Timabil vinstrabanda- lagsins við sósialista og róttæka á árunum 1972—78 var fráhvarf frá fyrri stefnu. En þegar kommúnistar hófu á ný harðar árásir á sósialista rétt fyrir sið- ustu forsetakosningar og gáfu þeim að sök að þeir hefðu svikið vinstrasamstarfið, þá var allt komið á sinn stað aftur. Og að undanförnu hafa þeir lagt á það áherslu, að það breytiengu fyrir franska verkamann hvort for- setinn heiti Giscard eða Mitterand — en slik afstaða er i raun jafngild þvi að Giscard sé óskað sigurs. Þvi Mitterand mun aldrei fá sigrað i seinni umferð kosninganna, þegar kosið er um þá tvo frambjóð- endur, sem mestu fylgi hafa safnað i hinni fyrri, nema að at- kvæði kommúnista skili sér þá með honum. Stefna kommúnista Formaður flokksins Mar- chais, sem er um leið forseta- frambjóðandi hans, hefur i ný- legu sjónvarpsviðtali dregið upp stefnu flokksins með svofelldum hætti: 1) Það er aðeins sterkur kommúnistaflokkur sem getur hindrað Mitterand i þvi að reyna að stjórna með borgara- flokkunum. (Með öðrum orðum : það er sá stuðningur sem Marchais fær i fyrri umferð sem sker út um það hvort flokkur hans er „sterkur” — og þau úrslit skera úr um það, hvaðflokkurinn ráð- leggur stuðningsmönnum sinum að gera i seinni umferð.) 2) Ef Mitterand sigrar munu kommúnistar aðeins styðja stjörn sem þeir sjálfir eiga sæti i. 3) Ef að Mitterand sigrar mun á eftir fara verkfallaalda til að fylgja fram réttmætum kröfum verkamanna. Þessi málflutningur gerir Mitterand mjög erfitt fyrir. Samkvæmt nýlegum skoðana- könnunum hefur Giscard nokkra forystu i fylgi fram yfir sósialistaforingjann, en ekki meiri en svo, að hún bendir til þess að Giscard fengi 51% at- kvæða i seinni umferð en Mitterand 49%. 1 slagnum um þessi 2—3% miðjuatkvæða kemur krafan um kommúnista- ráðherra og boðun verkfalla sér afar illa fyrir Mitterand, eins og augljóst má vera. Fylgistap? Enað því ér varðar styrkleika kommúnistaflokksins þá hefur Jean Ellenstein: óánægja verkamanna á sér rödd i flokkn- um. hann komið sér i kreppu sem meðal annars kemur fram i þvi, að skoðanakannanir gefa Mar- chais ekki nema 15—17% at- kvæða i fyrri umferð kosning- anna, enda þótt flokkur hans hafi lengi getað gengið að um það bil 20% atkvæða visum. Kreppan kemur fram i þvi, að allmargir hafa sagt sig úr flokknum, bæði vegna þess að þeir eru óánægðir með hinn ein- dregna fjandskap forystunnar i garö sósialista (en árum saman rak flokkurinn þann áróður, að aðeins sameinaðir gætu franskir vinstrimenn náð ár- angri) — og svo hefur það vakið ugg ' margra að Marchais og hans menn hafa tekið með sin- um hætti undir ýmsa fordóma i garð erlendra farandverka- manna á atkvæðaveiðum sinum nú. Forysta kommúnista hafði fyrir nokkrum árum heitið þvi, að hún mundi að sinu leyti ekki gripa til brottrekstra gegn and- ófsmönnum i flokknum, en við þau fyrirheit hefur heldur ekki verið staðið. Tryggð verkamanna Einn þeirra manna sem rek- inn hefur verið úr kommúnista- flokknum er Jean Ellenstein, sérfræðingur i sögu Sovétrikj- anna og áður varaformaður Rannsóknastofnunar i marx- isma. Ellenstein telur að flokkurinn, sem nú hefur gert hann brottrækan, vilji ekki komast til valda, vegna þess að hann hafi komið sér tiltölulega þægilega fyrir i andstöðuhlut- verki og getiekki gert á sjálfum sér þær breytingar sem duga til að fara með nýtt hlutverk. 1 ný- legri bók sem Ellenstein hefur gefið út og heitir „Ils vous trom- pent, Camarades”(Þeir blekkja ykkur, félagar) reynir hann svo meðal annars að svara þeirri spurningu, hvernig á þvi standi að verkamenn haldi áfram að kjósa flokk, sem býr um margt við litt hæfa forystu og þröngar kreddur. Ellenstein segir: „Þrátt fyrir alla galla heldur Kommúnistaflokkurinn áfram að vera málpipa verkamanna, básúna þeirra óánægðu. Verka- mennirnir kjósa ekki til að flokkurinn stjórni landinu heldur til að leggja áherslu á kröfur um betri lifskjör. Þeir eru hvorki marxistar né kommúnistar, en þeir kjósa ■ þann flokk sem mun verja hags- I muni þeirra. Hér er ekki spurt "um að fara með vald heldur að láta i ljós ákveðið hugar- ástand...” Sósialistaflokkurinn franski er nokkuð öðruvisi samsettur en kommúnistaflokkuri nn-, þar kennir fleiri grasa; það sem sameinar menn um hann er ekki eins ljóst. En ef hann i fyrri um- ferð forsetakosninga nú reynist hafa aukið á það forskot fram yfir kommúnistaflokkinn, sem hann fékk i siðustu kosningum, þá gætiþaðm.a. þýtt, að verka- menn sem i raun gera það sjald- an upp við sig, hvort þeir heldur eru kommúnistar eða t.a.m. sósialistar, en leita fyrst og siðast að öflugum verkalýð- Hokki sér til trausts og halds — að þeir hafi I allveru- legum mæli skipt um flokk. áb. Það er kosningaslagur í Frakklandi. Andstæð- ingar Giscards forseta velta honum óspart upp úr demöntum sem Bo- kassa Miðaf ríkukeisari gaf honum. Mitterand, frambjóðandi sósialista, hnykkir á með því að saka Giscard um vald- hroka og svo það, að hann hafi verið i vafasömu snatti fyrir Brésjnéf Sovétforseta í fyrra skömmu eftir innrásina í Afganistan. Giscard Mitterand og Marchais á dögum vinstrabandalags: þá dugði ekkert til hagsbóta annað en sameining vinstri manna — nú er Giscard í raun tekinn fram yfir sósfalistann. Áttræður í dag Ingvar verkamaður Attræður er I dag Ingvar Brynjólfsson verkamaður, til heimilis að Lönguhlið 19 hér i borg. Ingvar er borgfirskrar ættar, Brynjólfsson en hefur búið i Reykjavik hálfa ævina. Ingvar á að baki mikinn starfsferil og langan; hann vann mikið viö smiðar og svo viö höfn- ina. Nú eru þau Auður Amfinns- dóttir, sem verið hefur honum ágætur förunautur, tvö ein eftir I heimili. En Ingvar hefur komið sér upp stofu til smiða heim^ þvi ekki vill hann verk fella, þótt hann sé hættur að vinna úti. Ingvar prýða margir þeir mannkostir sem eru aðalsmerki mætra manna, ,hvar i stétt sem þeir standa; drengur góöur, sem aldrei skuldar neinum neitt. Við árnum Ingvari allra heilla. V. Olíuvinnsla Norðmanna minnkar Norðmenn hafa óvænt orðiö fyrir miklum samdærtti I oliu- vinnslu á Ekofisksvæðinu i Norðursjó. 1 fyrra fengu þeir af svæðinu að meðaltali 400 þúsund tunnur af oliu á dag, en i ár er ekki gcrt ráð fyrir þvi að þeir fái meira en 320 þúsund tunnur. Þetta þýðir tekjutap sem nemur sex miljörðum norskra króna i ár. Gert er ráð fyrir að I ár náist 16 miljónir smálesta af oliu, en það er um 20% minna en i fyrra. Ekofisksvæðið hefur verið taliö illútreiknanlegt og áttu menn þvi á ýmsu von. Nú er undirbúningur hafinn að þvi að dæla vatni niður i oliulögin undir hafsbotni til að þrýsta oliunni upp og ætti þetta að geta bætt nýtingu þeirra um 50%. (Norinform). Erindi um plöntuvef og plöntu- frumur I kvöld, þriöjudaginn 7. aprfl heldur Sigurgeir Ólafsson erindi á vegum Liffræðifél ags lslands, sem hann nefnir „Ræktun á plöntufrumum og plöntuvef”. Erindið sem er öllum opið verður haldið i stofu 158 I húsi verkfræöi- og raunvisindadeildar, Hjaröar- haga 2—4, og hefst kl. 20.30. Ræktun á einstökum plöntu- hlutum, vefjum og frumum hefur hagnýtt gildi á ýmsum sviöum og má þar nefna lífefnafræði, erfða- fræði, plöntukynbætur og plöntu- heilbrigði. Slikræktun hefur m.a. verið notuö við lyfjaframleiðslu og framleiðslu á ýmsum öðrum efnasamböndum úr plöntum, við að flýta fjölgun á kynbættum plöntueinstaklingum og við aö losa plöntur við sjúkdóma, sem ekki var áður gerlegt. Hjá Rannsóknastofnun landbúnað- arins hefur þessari tækni verið beitt i fyrsta sinn hér á landi við að fá fram 100% heilbrigöar og smitfriar kartöfluplöntur og er það liður i að bæta heilbrigði i ræktun á islensku kartöfluútsæði. 1 erindinu verður einkum fjall- að um þýðingu ræktunar einstakra plöntuhluta fyrir rannsóknir á plöntusjúkdómum og aðgerðir til að auka plöntu- heilbrigði. Sagnfræði- nemar styðja kennara Félagsfundur sagnfræöinema sem haldinn var i Arnagarði 3. aprii lýsti eindregnum stuðningi við hverjar þær aðgerðir stunda- kennara við Ht sem miða að þvi að bæt'a aðstöðu þeirra til rann- sókna og kennslu og auka áhrif þeirra á stjórnsýslu skólans. 1 ályktun fundarins segir að réttindabarátta stundakennara sé sanngjörn og sjálfsögð og stúdentar standi einhuga að baki þeirra. Þá er bent á að þar sem kennsla í mörgum greinum heim- spekideildar sé að mestu leyti i höndum stundakennara sé það alvarlegt ef vinnustöðvun dregst á langinn. Krafðist fundurinn þess að full- trúar ri dsvaldsins gangi þegar til samninga og til ítrekunar þeirri samþykkt að stúdentar i sagn- fræði sæki ekki tima hjá föstum kennurum þar til deilan hefur verið leyst. Meginorsök þess ófremdarástands sem nú rikir telur fundurinn vera tregðu stjórnvalda undanfarin ár til að fjölga föstum stöðum kennara við Hl.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.