Þjóðviljinn - 07.04.1981, Síða 13
Þriöjudagur 7. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
ALÞÝÐUBANDALAGID
Alþýðubandalagið Borgarnesi og nærsveitum
Aðalfundur
verður haldinn I húsnæði félagsins að Kveldúlfs-
götu 25, miðvikudaginn 8. april og hefst kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf
2. Alit millifundanefndar um forvalsmálin
3. Onnur mál.
Skúli Alexandersson alþingismaður mun koma á
fundinn.
Stjórnin Skúli Alexand-
ersson
Alþýðubandalagið í Reykjavík
FÉLAGSFUNDUR UM HERSTÖÐVAMÁLIÐ
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til félagsfundar um herstöðva-
málið á Hótel Esju mánudaginn 13. april kl. 20:30. stiórn ABR
Nánar auglýst siðar. J
AÐALFUNDUR 1. DEILDAR ABR
Aðalfundur 1. deildar ABR verður haldinn miðvikudaginn 15. april á
Grettisgötu 3 kl. 20:30.
Stjórn 1. deildar ABR
Alþýðubandalagið i Reykjavik — 1. deild
Deildarfundur 1. deild (Miðbær — Vesturbær)
Guðmundur Þ.
Siguröur
Magnús
1. deild heldur fund að Grettisgötu 3 miðvikudaginn 8. april kl. 20.30
Guömundur Þ. Jónsson ræðir um atvinnumálin i borginni.
Siguröur Haröarson og Magnús Skúlason fjalla um skipulagsmálin og
um málefni Vesturbæjar.
Félagarfjölmennið. — Stjórn l.deildar.
Alþýðubandalagið í Reykjavik
INNHEIMTA FÉLAGSGJALDA
Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik skorar á þá félagsmenn sem
enn hafa ekki greitt gjaldfallin félagsgjöld að gera skil nú um mánaða-
mótin. Giróseðla má greiða i næsta banka eða póstútibúi. Einnig er
tekið við greiðslum á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 3.
Félagar ljúkiðgreiðslu félagsgjalda fyrir aðalfund, sem haldinn verður
i næsta mánuði. Sýnum samstöðu og tryggjum blómlegt starf Alþýöu-
bandalagsins i Reykjavik. Stjórn ABR.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi — Ráðstefna um forval og
lýðræðislegt flokksstarf.
Laugardaginn 11. april næstkomandi verður haldin i Rein á Akranesi
ráðstefna um forval og lýðræðislegt flokksstarf. Ráðstefnan hefst kl. 13
og stendur til kl. 17.30.
Fluttar verða stuttar framsöguræður, en siðan verður skipt i umræöu-
hópa, sem skila niðurstöðum ilokin. Fjallað verður um eftirtalin efni:
1. Forvalsreglur AB i kjördæminu.
Framsaga: Jónina Árnadóttir.
Umræðustjóri: Hallgrimur Hróðmarsson.
2. Samstarf sveitarstjórnarmanna á Vesturlandi.
Framsaga: Jóhann Arsælsson.
Umræðustjóri: Halldór Brynjúlfsson.
3. Landsmálastarf AB á Vesturlandi.
Fram^aga: Engilbert Guðmundsson.
Umræðustjóri: Þórunn Eiriksdóttir.
Fundarstjóri verður Gunnlaugur Haraldsson. Athuguð breyttan
fundartima. — Kjördæmisráö Alþýðubandalagsins á Vesturlandi.
Alþýðubandalagið Akranesi—Árshátið
Alþýðubandalagsfélagið á Akranesi heldur árshátið sina laugardaginn
11. april iRein oghefst hún með borðhaldi kl. 19.30.
Jenni R. Ólason og Halldór Backmann flytja á-vörp. Meðal skemmti-
atriða: Sveitin bak við hólinn, leikþáttur og fiðluleikur. Diskótekið Disa
örvar til dansa.
Glæsilegt háborö með heitum réttum og köldum. — Húsiö veröur opnaö
klukkan 19. — Miöasala og boröapantanir I Rein fimmtudaginn 10. aprll
kl. 20—21. — Skemmtinefndin.
Starfsmannafélagið
Sókn
Aðalfundur Starfsmannafélagsins Sóknar
verður að Hótel Esju fimmtudaginn 9.
april n.k. kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. —
önnur mál.
Sýnið skirteini.
Stjórnin.
Pæld’í ’ðí
síðasta
sýnlng
72. og sföasta sýning á vinsælu
og umdæidu verki Alþýöuleik-
hússins, „Pæld’i’ði” er I kvöld.
Ekkert leikrit á þessu leikári hef-
ur fengiö jafnmikla umræöu I
fjölmiölum og sýnist sitt hverj-
um. Ahorfendur eru nú orönir 14
þúsund, mestmegnis unglingar,
enda leikritiö skrifaö meö þá i
huga, en fróölegt gæti þó veriö
fyrir foreldra og aöra fulloröna aö
sjá hvaö þaö er sem unglingarnir
klappa fyrir.
„Pæld’i’ði” fjallar um
gleði, sorgir og spurningar ung
linga, sem verða ástfangnir i
fyrsta sinn. Það er upprunalega
skrifað i Vestur-Þýskalandi, en
Jórunn Sigurðardóttir þýddi það
og aðlagaði að islenskum
aðstæðum. Hlutverk eru fjölmörg
öll i höndum fimm leikara, þeirra
Bjarna Yngvarssonar, Guðlaugar
Bjarnadóttur, Margrétar ólafs-
dóttur, Sigfúsar M. Péturssonar
og Thomasar Ahrens, sem jafn-
framt leikstýrði verkinu.
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Ónnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Innheimta
félagsgjalda
Alþýðubandalagið i Reykjavik minnir þá
félagsmenn sem enn hafa ekki greitt útsenda
giróseðla að greiða gjaldfallin félagsgjöld
— Stjórn ABR
Hagsýslu-
stjórí á ný
Undanfarin tvö og hálft ár hef-
ur dr. Gfsli Blöndal verið vara-
fulltrúi Noröurlanda i stjórn
alþjóðagjaldeyrissjóðsins. A
meðan hefur Brynjólfur Sig-
urðsson, dósent, gegnt starfi hans
sem hagsýslustjóri rikisins. Frá
1. april tók Gisli Blöndal aftur við
starfi sinu sem hagsýslustjóri
rikisins, en Brynjólfur Sigurðsson
hvarf að fyrri störfum við
viðskiptadeild Háskóla Islands.
Sæmdur
Danne-
brogsorðu
Margrethe II Danadrottning
hefur sæmt hr. Jes Jessen, Borg,
Mosfellssveit, formann félagsins
„Dannebrog” riddarakrossi
Dannebrogsorðunnar. Sendiherra
Dana afhenti honum heiðurs-
merkið við hátiölega athöfn i
danska sendiráöinu þann 27. f.m.
V erkstæðisbruninn
í Borgartúni
Tveir hafa
játað
Nú er oröið ljóst, aö bruninn i
bifreiðaverkstæöinu viö Borgar-
tún i Reykjavik i siðustu viku er
af völdum tveggja pilta 16 og 17
ára gamalla, þeir hafa báöir ját-
að að bruninn sé af þeirra völd-
um.
Samt virðast ekki öll kurl kom-
in til grafar i málinu, þvi að
Arnar Guðmundsson deildar-
stjóri hjá rannsóknarlögreglunni
tjáði Þjóðviljanum i gær, að f jöldi
unglinga heföi veriö yfirheyrður
vegna málsins, meira vildi hann
ekki segja um málið, nema það að
verið væri að kanna hvort þessir
tveirsem játað hafa að eiga sök á
brunanum, hafi fleiri afbrot á
sam viskunni.
Arnar sagði að hann vildi ekki
greina frá þvi á þessu stigi máls-
ins hver ástæðan væri fyrir þvi að
piltarnir kveiktu i bifreiðaverk-
stæðinu, rannsaka þyrfti málið
betur.
— S.dór
Starfsmaður óskast
á auglýsingadeild Þjóðviljans. Þarf að
geta hafið störf strax.
Nánari upplýsingar gefur auglýsinga-
stjóriisima 81333.
DlOOVIUINN
Orðsending frá Hellusteypunni að Litla Hraunl Til þess að lengja dreifingartima okkar á gangstéttarhellum, höfum við ákveðið að selja þær með 10% staðgreiðsluafslætti allan aprilmánuð. Einnig bjóðum við greiðsluskilmála og akstur með vöruna á Stór-Rey k ja vikursvæðið. Allar upplýsingar i sima 99-3104.
| Æskulýðsfélag sósíalista
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Æskulýðsfélags sósíalista verður hald-
inn í kvöld þriðjudaginn 7. apríl, kl. 20.30.
Dagskrá:
a) skýrsla stjórnar
b) reikningar lagðir fram
c) starfsáætlunog f járhagsáætlun
d) st jórnmálaályktun
e) lagabreytingar
f) kosning stjórnar og endurskoðenda
g) önnurmál
Stjórnin
Herstöðvaandstæðingar
Fundaröð
um
þróunarlönd
Ingibjörg Olafur
Fimmtudaginn 9. apríl segja Ingibjörg Haralds-
dóttir og Ólaf ur Gíslason f rá Kúbu.
Húsið opnað kl.20.00, f undurinn hefst kl. 20.30
Sa mtök herstöðvaandstæðinga
Skólavörðustíg 1A.