Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 1
Bónus í saltfiski MOWIUINN Fimmtudagur 23. april 1981 92. tbl. 46. árg. Sæmileg reynsla segja formenn verkalýðsfélaga t nokkrum verstöðum hafa i vetur verið gerðar tilraunir meö bónusfvrirkomulag i saltfisk- verkun. Við hringdum i tvo for- menn verkalýðsfélaga á Snæfells- nesi aö spyrjast fyrir um reynslu þeirra af þessu launakerfi. Sigurður Lárusson, formaður Stjörnunnar á Grundarfirði, sagði að reynslan hefði verið sæmileg. Fyrst um sinn heföi hún verið misjöfn eftir verkþáttum, til að mynda komið illa út i umsöitun. En þetta færi batnandi og kaup- auki verkafólksins væri að meðaltali um 40—50%. Fólkiðer tiltölulega ánægt með fyrirkomulagið en þaö verður endurskoðað i vertiðarlok. Bárður Jensson, lormaður Jök- uls i Ólaísvik, taldi útkomuna nokkuð góða á þrem söltunar- stöðum af f jórum. T .d. hefði þetta gefið 17,45 kr. ofan á timakaupið i flatningu, en að væri nú 24,68 kr. Hins vegar sagði Bárður að mikillar óánægju gætti hjá fólki i Hraðfrystihúsi ólafsvikur, þar sem þetta hefði komiö mun ver út hjá fólkinu. Við munum að sjálf- sögðu fara ofan i saumana á þvi af hverju þetta staíar, en allt verður kerfið endurskoðað i ver- tiðarlok. Bó. -------------------i Kaldur vetur kveður þriðji kaldasti veturinn síðan 1920 Vorboðinn undanfarna daga hefur fengið fiesta til að gieyma þcim kaida og erfiða vetri sem við nú höfum kvatt, þvi i dag cr Sumar- dagurinn fyrsti. Sá vctur sem nú er að kveðja er þriðji kaldasti vetur sem komið helur hér á landi siðan 1920, aðeins 1951 og 1979 var kald- ara. Auk þess voru helmingi flciri alhvitir dagar i Keykjavik i vetur en i meðal- ári. 1 vctur voru 56 alhvitir dagar i Reykjavlk en ekki nema 28 i meðalári. Þessar upplýsingar feng- um við hjá Þórönnu Páls- dóttúr veðurfræðingi Hún sagði að hjá veöurfræðingum væri veturinn frá 1. desem- ber til 31. mars. Nú var veturinn 1.4 gráðum kaldari en i meðalári i lieykjavik og 3,4 gráðum kaldari en i meðalári á Akureyri. Árið 1951 var veturinn i Keykja- vik 1,7 gráðum undir meðal- lagi og 1970 lika 1,7 gráðum undir. Aftur á móti sagði Þór- anna að fyrir 1920 hefðu oft komið kaldari vetur en þetta og ekki þótt tiltöku mál. Loks sagði hún að þeir 20 dagar sem af eru april væru langt yfir meðallagi hvað hita snertir eða 1 gráðu, sem þykir mjög gott. — S.dór Félag ísl. atvinnuflugmanna: Sumarið Sumariö er komið sam- kvæmt almanakinu og þá verða menn oft skáldlegir í sér og sjá tilveruna i rómantísku Ijósi. Ljósmyndari Þjóðviljans qel og S.dór ortu i máli og myndum um vorkomuna,og er afraksturinn birtur með þess- ari mynd og fleiri myndum á bls. 11. « Öirnur yerkfallsboðun á næstumii? er komið Blaðafuiltrúar Félags isl. at- vinnuf lugmanná boðuðu frétta- mcnn a' sinn fund i gær til að kðma^ sinum sjónarmiðum á framfæri I þeirri dcilu sem staðið hefur yfir að undaniornu milii FlA óg Flugleiða og sem endaði með þvi að Alþingi bannaði verk- fail flugmanna og setti málið fyrst fyrir sáttanefnd en slðan til gerðardóms ef samkomulag næst ekki. Flugmenn sögðu i gær að starfsaldurslistamáliö, sem var það eina sem Alþingi setti til sáttanefndar væri nú úr sögunni. Aftur á móti væru flugmenn enn með lausa samninga og notfærðu Flugleiðir h.f. sér það til að brjóta á þeim samninga, en samkvæmt lögum á eldri samningur að gilda þar til nýr hefur verið gerður. Sögðu þeir málið nú komið á það stig að búast mætti við að þeir boðúðu verkfall að -nýj"u vegna þessara brota Flugleiða. Segja mætti að mælirinn hefði fyllst nú i gær þegar Flugleiðir létu Arnar- flugsflugmenn ganga með vélar Arnarflugs inn i þau verkefni sem FtA flugmenn sinna, en truflun hefði orðið á vegna þess að nú störfuðu FtA-menn algerlega eftir samningum án nokkurrar undantekninga eða undanþága. Samkvæmt lögum væri ekkert sem bannaði flugmönnum að boða verkfall þar eð kjarasamn- ingar þeirra væru lausir. Flugmenn FIA segja, að Flug- leiðir h.f. hafi brotið á sér samn- inga hvaö varðar þær 8 flugstjóra- stöður á F-27 vélar félagsins, en Loftleiðaflugmenn fengu þessar Þcir höföu orð fyrir flugmönnum i gær, f.v. Gylfi Þór Magnússon, Kjartan Norödai og Þór Sigurbjarnarson. (Ljósm. —eik—). stöður og hafa verið á námskeiði þess vegna. t kjara-og ráðninga- samningum flugmanna FtA við Flugleiðir er skýrt tekið fram að flugmenn FIA eigi allar stöður á F-27 vélarnar og Boeing-vél- arnar. Og samkvæmt lögum sem Alþingi setti vegna deilu við BSRB gilda útrunnir eldri samn- ingar þar til nýir hafa verið gerðir. Þetta ákvæði hafa Flug- leiðir h.f. brotiö, segja flugmenn FlA.,Þeir taka einnig fram að vniðurstaða sáttanefndar eða gerðardóms i starfsaldurslista- málinu skipti hér engu um og geti ekki haft áhrif á þetta. Hér sé um hreina kjarasamninga að ræða og þetta atriði breytist ekki nema i gerð nýrra kjarasamninga.-S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.