Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 24
DJODVHIINN Fimmtudagur 23. april 1981 Aöalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná i áfgreiðslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Heigarsími afgreiðslu 81663 Flugleidir hf Hefur veriö slakaö á öryggis- kröfunum? hver er orsök hinna tíðu bilanna á Fokkervélunum Hinar tíöu bilanir á Fokkervél- um Flugleiöa i innanlandsfluginu hafa vissuiega vakiö upp spurn- ingar um hvorteitthvaöhafi veriö slakaö á öryggiskröfum þeim sem Fiugfélag islands og siöar Flugleiðir h.f. voru fræg fyrir. Þeir flugmenn FÍA, sem boöuöu til fundar meö fréttamönnum i gær voru spurðir þessara spurn- inga I beinu framhaldi af spurn- ingu um orsakir hinna tiöu bilana. Þeir sögöust litiö vilja segja um þetta mál. Þó tóku þeir fram, aö þær Fokkervélar sem keyptar voru frá Kóreu á slnum tima heföu ekki veriö i jafn góöu ásig- komulagi og fyrri Fokkervélar Flugleiöa og aö þaö heföi enn ekki unnist timi til aö koma þeim i þaö horf. Tóku þeir fram aö einkan- lega væri önnur Kóreuvélin i lé- legu ástandi. Þær sögur hafa gengiö að litiö sé til af varahlutum I vélarnar, þeir hafi verið sendir utan til Lý- biu með þeim Fokkervélum sem þar eru i vinnu, aö hjólabUnaöur annarrar Kóreuvélarinnar sé kominn langt framúr tima- mörkum hvað endurnýjun viö- vikur o.fl. Flugmennirnir vildu ekki tjá sig um þetta, en þeir viöurkenndu aö hafa gagnrýnt ýmislegt varðandi vélarnar, annaö ekki. Hinar tiöu uppákomur hjá Fokkervélunum i innanlandsflug- inu, hjól fara ekki niöur, mótor stöövast o.s.frv. á sjálfsagt sök á þeim sögum, sem ganga um ástand vélanna, en óhöppin segja lika sina sögu. — S.dór. Styrkir úr Þjóðhátíð- argiof Norð- manna (Jthlutað hefur veriö fyrir 1981 styrkjum úr sjóönum Þjóöhá- tiöargjöf Norðmanna, sem gefin var 1974, en samkvæmt skipu- iagsskrá skal ráöstöfunarfénu, sem er vaxtatekjur af höfuöstól variö til styrktar hópferöum tslendinga til Noregs. Gjöfin var 1 miljón norskra króna og var ráö- stöfunarfé aö þessu sinni 170 þúsund krónur. Samþykkt var að styrkja tiu aöila, en alls bárust 40 umsóknir. Styrkina hljóta eftirtaldir: Nem- endur I sérkennslufræöi og kennslu þroskaheftra viö Kennaraháskóla tslands, Félag jarö- og landfræöinema viö Há- skóla tslands, Félag bókasafns- fræöinga, Bænda,deild Bænda- skólans á Hvanneyri, Orator felag laganema, Bergens Kunst- forening, Kristilega skólahreyf- ingin, Námsflokkar Reykjavikur, þátttaka Islendinga i listahátiö i Þrándheimi, Sjálfsbjörg, lands- samband fatlaðra. Náttúruverndar- þingi lýkur í dag Uppgræðsla lands og stóriðja Mikill fjöldi tillagna til umræðu Austurlandi. „Telur þingið að virkjunaraðilum beri skylda til að græða upp jafnmikið land og hverfur undir vatn”, segir i til- lögunni. Af öörum tillögum má nefna þá um stórvirkjanir og stóriðju frá Helgu Kristjánsdóttur úr Skagafirði. Þar er varað við stórvirkjunum og þeirri stóriðju sem þeim myndi fylgja. Er lagt til að þeirri meginstefnu verði fylgt i' virkjunarmálum að smærri virkjanir hafi forgang, til þess að fullnægja orkuþörf þjóðarinnar. Gjalda ber varhug við'allri stóriðju, m.a. vegna mengunarhættu og búseturösk- unar”, segir þar. Tillaga um auknar fjárveit- ingar til Náttúruverndarráðs og ráðningu starfsmanns til eftir- lits með mannvirkjagerð er frá Eyþóri Eijiarssyni formanni Náttúruverndarráðs, en til- gangur hennar er að stuðla að þvi að Náttúruverndarráð geti betur sinnt hlutverki sinu, þar á meðal að fylgjast með hvers- konar framkvæmdum og mann- virkjagerðj að veita handleiðslu og ráðleggingar við undirbúning framkvæmda. Félag leiðsögumanna leggur til að erlendum ferðamanna- hópum verði gert skylt að hafa islenskan leiðsögumann með i ferðum, en slikar reglur gilda viða erlendis. Þá má að lokum nefna tillögu þar sem skorað er á Náttúruverndarráð að herða eftirlit með brottför ferjunnar Smyrils, þar sem talið er að er- lendir ferðamenn hafi i fórum sinum ýmsa náttúrugripi sem óheimilt er að flytja úr landi. Sýndi könnun sem Náttúru- gripasafnið i Neskaupstað lét gera að umtalsvert magn stein- tegunda er flutt úr landi á ári hverju og er hætt við að sama gildi um egg og fuglsunga. Þinginu lýkur i dag, en þar hafa verið flutterindi og starfað i umræðuhópum um hin fjöl- mörgu mál sem fyrir liggja.-ká Náttiiruverndarþing hófst aö hótel Loftleiðum i fyrradag og sitja þaö um 120 fulltrúar alls staöaraö af landinu. Fyrir þing- inu liggur aragrúi tillagna, en eitt meginmáliö sem fjallaö verður um er endurskoðun náttiiruverndarlaganna, sem orðin eru 10 ára gömul. Meðal tillagna sem lagðar hafa verið fram er ein frá þeim Vilhjálmi Lúðvikssyni og Jó- hanni Má Mariussyni um upp- græðslu lands i stað gróður- lendis sem fer undir miðlunar- lón i landinu. Þar segir, aö þingið fagni þvi að samkomulag hafi náðst um friðun Þjórsár- vera, en harmi að nauðsynlegt verði að leggja viðáttumikil gróðurlendi undir vatn við virkjun Blöndu og Jökulsár á Myndin er af Þorleif iEinarssyni jaröfræöingi I ræöustól. — Mynd GEL- Stuðningsnefnd fjölskyldu Kortsnojs Herðlr róðurinn | Færum ekki á eigin spýtur I j i ■ I ■ I ■ I i ■ I i ■ L Eins og skýrt var frá i Þjóöviljanum i gær, hefur sjávarútvegsráðuneytið ákveö- iö að styrkja nokkur skip til kolmunnaveiöa og veita til þess 3,5 miljónum króna. Fjöldi skipanna liggur ekki fyrir en , þau veröa á bilinu 5 til 8. Þjóö- viljinn ræddi i gær viö tvo skip- stjóra, sem munu fara til þess- ara veiöa, þá Willard Ólafsson á Grinilvikingi GK og Þorstein Kjartansson á Jóni Kjartanssyni FU og spuröi þá álits á þessum veiöum. Willard sagði aö sér lit- ist vel á framtakið, en hann tók fram aö þeir heföu aldrei fariö til þessara veiða án styrks frá ráöuneytinu. Astæðan væri sú, aö kolmunnaveiðar væru svo Rætt við tvo skipstjóra um kolmunnaveið- arnar sem sjáv- arútvegsráðu- neytið styrkir oliufrekar og þar af leiðandi dýrar að vart væri gerlegt aö stunda þær miðað við það verö sem fæst fyrir aflann. Hann sagði að útkoman á kolmunna- veiðum hefði verið ágæt 1978 en eftir þvi sem verð á oliu hefði hækkað hefðu þær oröið óarðbærri. Hann sagði að skip eins og Grindvikingur GK færi meö 7—8 tonn af oliu á sólar- hring á kolmunnaveiðum en mun minna á loönu. Þá heföi þróun veiðarfæra til kolmunna- veiöa verið afar hröð sl. ár þannig að tf<S?*sem notað var 1978 væri orðið úrelt i dag. Will- ard sagðist hafa trú á þvi að kol- munnaveiðar ættu framtið fyrir sér hjá Islendingum, þótt þær væru óhagstæöar sem stendur, og þvi sagðist hann fagna þvi aö nú skuli eiga að styrkja veiöarnar. Þóröur Kristjánsson tók mjög I sama streng og Willard og sagðist fagna framtaki ráðuneytisins, enda væri allt betra en aö láta skipin liggja bundin við bryggju. Hann sagði | að tilraunin sem gerö var til kol- ■ munnaveiöa i fyrra hefði mis- I tekist fyrst og fremst vegna J þess hve litiö var af kolmunna ■ þá. Um það leyti sem veiðunum ' var að ljúka var afli að glæðast, 1 en þá hefði sjávarútvegs- | ráöuneytið hætt styrkveitingum ■ til veiöanna af þvi að loðnu- I veiðin var að hefjast og heföi * það verið bagalegt. Þórður sagði að þeir á Jóni I Kjartanssyni myndu halda út á j laugardaginn og fara á | Færeyjamið, nema ef það ■ reyndist rétt, sem haldið er nú | fram, aö kolmunni sé við , Vestmannaeyjar. A kolmunna- i veiöum er áhöfnin 11 manns en ■ 15 á loðnu, — S.dór. lslandsdeild stuöningsnefndar fjölskyldu Viktors Kortsnojs boö- aöi fréttamenn á sinn fund i gær og kynnti þar ávarp, þar sem til þess er mælst viö sovésk stjórn- völd aö frú Kortsnoj og syni þeirra hjóna, Igor, veröi leyft aö fara úr landi. Hafa fjölmargir aöilar aö þvi unniö undanfarin ár, en án árangurs til þessa. Aftur á móti hefur frúin veriö svipt borgaralegum réttindum og son- urinn dæmdur I þrælkunarvinnu, segir i ávarpinu, sem aö ööru leyti hljóöar svo: „Ýmsir aðilar á Vesturlöndum hafa lagt Kortsnoj lið i þessari mannréttindabaráttu. Islenska rikisstjórnin tók svari hans og beindi tilmælum til Sovétstjórnarinnar, en þeim var visaö á bug. Islenska rikisstjórnin lýsti þvi yfir að hún teldi þetta ekki lokasvar. Forseti FIDE, Friðrik ölafsson, stórmeistari, hefur gert Itrekaðar tilraunir til að fá fjölskyldu Kortsnojs leysta úr haldi. A siðasta ári var stofnuö stuðningsnefnd fjölskyldu Kortsnojs i Vestur-Evrópu og eru ýmsir kunnir skákmeistarar aðilar að henni, svo sem dr. Max Euwe, fyrrverandi forseti FIDE og heimsmeistari I skák. Islandsdeild stuðningsnefndar fjölskyldu Kortsnojs er nú stofnuö til þess að herða baráttuna fyrir þvi aö mál þetta verði leyst á farsællegan hátt. Viktor Kotsnoj á fyrir höndum að tefla erfitt einvigi um heimsmeistaratitilinn Korsnoj áritaöi i dag bók sina Fjandskák. Þýöandi bókarinnar Högni Torfason stendur honum viö hlið. —Ljósm Eik. I skák næsta haust. öllum má vera ljóst að ekkert jafnræöi er meö keppendum þegar rikis- stjórn annars heldur fjölskyldu hins nánast i gislingu. Nefndin hvetur skákhreyfing- una og allan almenning i landinu til að styðja viöleitni Alþjóöaskáksambandsins og rikisstjórnar Islands, til að tryggja fjölskyldu Kortsnojs ferðafrelsi”. Avarp þetta er undirritað af 100 mönnum þar á meðal þremur ráðherrum, alþingismönnum, formönnum stjórnmálaflokk- anna, ritstjórum dagblaðanna, biskupi, borgarfulltrúum, borgarstjóra og fjölmörgum öðrum mektarmönnum. Sovéska sendiráöið fékkstekki til þess að taka við ávarpinu. Veröur það afhent forsætis- ráðherra og hann beðinn að koma þvi á áfangastað. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.