Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Starfsaðstada fyrir listamenn
Starfandi islenskum myndlistarmönnum gefst á þessu ári
kustur á að sækja um til afnota ibúðir og vinnustofur á vegum
Norrænu listamiðstöðvarinnar i Sveaborg við Helsinki i Finn-
landi, sem jafnframt veitir nokkra ferðastyrki árlega og þá helst
þeim sem langt að koma.
Vinnustofurnar ásamt ibúðum eru i virkinu Palmstierna frá
1770 og verkstæðisviöbyggingu og er hvort tveggja með öllum
þægindum til heimilishalds og vinnu. hvort sem er fyrir málara,
myndhöggvara eða leirlistamenn. Auk einkavinnustofanna er i
sömubyggingu sameiginlegt verkstæði. Pot Viapori, sem hópur
finnskra keramik- og textillistamanna stendur fyrir.
Nánari upplýsingar um tilhögun og umsóknir veitir FIM eða
ritari félagsins, Valgerður Bergsdóttir, simi 77030, umsóknar-
eyðublöð fást hjá Norrænu listamiðstöðinni, en umsóknarfrestur
fyrir s.hl. þessa árs er til 8. mai og fyrir 1982 til 13. nóv. nk..
Utanáskrift listamiðstöövarinnar er: Nordisk Konstcentrum,
Sveaborg 00190, Helsinki 19, simi 90—668 554.
r
Námskeið KRFI í ræðumennsku
l>ar sem fullbókað var á námskeið i ræðumennsku og fundar-
sköpum sem Kvennréttindafélag tslands hélt nýlega og tókst
með ágætum hefur verið ákveðið að gefa fleirum tækifæri og
hefst annað námskeið 28. april nk. Markmiðið með námskeiðinu
er sem fyrr að hvetja konur til virkari þátttöku í félagsstörfum
og almennri umræðu um þjóðfélagsmál.
Námskeiðið fer l'ram að Hallveigarstöðum, TUngötu 15, stend-
ur yíir i f jögur kvöld og helst nk. þriðjudagskvöld kl. 20:30. Leið-
beinandi verður Friða Proppé, blaðamaður. bátttökugjald er kr.
150. Námskeiðið er öllum opiö og eru félagsmenn sérstaklega
hvattir til að mæta. Upplýsingar og innritun fer fram i sima
14406 eða 21294.
Um ensk-íslenska orðabók
Heimir Áskelsson, dósent I
ensku, flytur opinberan fyrir-
lestur á vegum heimspeki-
deildar Háskóla tslands
laugardaginn 25. april 1981 kl.
15:00 i stofu 101 i Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „Um
ensk-islenska orðabók” og er
hinn siðasti af fjórum fyrir-
lestrum, sem kennarar heim-
spekideildar flytja nU á vor-
misseri um rannsóknir og
fræöi i deildinni. öllum er
heimill aðgangur.
lleimir Askelsson
Vilja í sveitastörf hér
Árlcga berast bændasamtökunum mörg bréf frá ungu fólki er-
iendu, sem óskar eftir vinnu i sveit. Flestir vilja aðeins standa
við i 1—2 mánuði og i fæstum tilvikum eru gerðar kröfur um
kaup. Fólkið vill fá að dvelja á sveitaheimili og vinna fyrir fæði
og húsnæði.
Margir sem skrifa hafa ekki áður unnið i sveit, en hafa áhuga
á þvi að koma til Islands og kynnast landi og þjóð. Þá hafa borist
bréf frá nokkrum norskum og sænskum stUlkum, sem vanar eru
sveitastörfum. Sumar þeirra hafa unnið við afleysingar og
margar hverjar stundað nám i bændaskólum.
Þeir bændur og húsfreyjur, sem áhuga hafa á að fá erlend ung-
menni tilsumarstarfa, ættu sem fyrst að hafa samband við Gisla
Kristjánsson hjá BUnaðarfélagi Islands. — mhg
Stjórn Neytendasamtakanna
A aðalfundi Neytendasamtakanna 4. april sl. voru eftirtaldir
kosnir i aðalstjórn:
Reynir Ármannsson póstf. formaður, Gisli Jónsson prófessor
varaformaður, dr. Jónas Bjarnason, efnaverkfræðingur, Jón
Magndsson, lögfræðingur, Rafn Jónsson, skrifstofumaður, Stein-
unn Jónsdóttir, hUsmóðir, Úlfar Sigurmundsson, hagfræðingur.
Varastjórnina skipa nú:
Arni Bergur Eiriksson, framkvæmdastjóri, Dröfn Farestveit,
hUsmæðrakennari, Björn Skarphéðinsson, rafvirkjameistari,.
Jóhannes Gunnarsson, fulJLtrúí, Sigriður Friðriksdóttir, skrif-
stofustúlka, Höröur Þofbergsson, verkamaður,og Sigrún Gunn-
laugsdóttir, kennari.
Sama stjórn Lögfrœðingafélagsms
Stjórn Lögfræðingafélags
tslands var endurkjörin á
aðalfundi nýlega, en hana
skipa Gunnar G. Schram
prófessor, formaður,
Guömundur Vignir Jósefsson
hrl., varaformaður, Friðgeir
Björnsson borgardómari,
ritari, Pétur Hafstein
stjórnarráðsfulltrúi, gjald-
keri, Ingibjörg Rafnar lögfr.,
Skarphéðinn Þórisson hrl. og
Logi Guðbrandsson hrl..
A starfsárinu voru haldnir
sjö umræðufundir á vegum
félagsins um lögfræðileg efni,
sem ofarlega eru á dagskrá,
þ.á.m. sérstakt málþing um
eignarrétt og eignarnám, sótt
af u.þ.b.100 lögfræðingum!
Félagiö gefur út Timarit
lögfræðinga og er ritstjóri
þess Þór Vilhjálmsson hæsta-
réttardómari. Ot komu fjögur
hefti timaritsins á árinu.
Húsnæðisstofnun ríkisins:
22.765 mllj. Gkr.
til lánveitinga
A árinu 1980 námu lánveitingar
Húsnæðisstofnunar rikisins sam-
tals 22.765 miljónum króna til
byggingar og kaupa á 4756 ibúð-
um auk nokkurra vistheimila.
Var hér um að ræða lánveitingar
úr Byggingarsjóði rikisins og
Bvggingarsjóði verkamanna sem
og af hinu sérstaka framlagi
rikissjóðs til nýbvggingar ibúða i
stað heilsuspillandi húsnæðis.
1 fréttatilkynningu frá HUs-
næðismálastofnuninni kemur
fram, að lánveitingar Ur Bygg-
ingarsjóði rikisins námu á s.l. ári
samtals 20.954 milj. gkr. til bygg-
ingar og kaupa á 4401 ibuð. Var
bar um að ræða venjuleg ibuöar-
lán Ur Byggingarsjóöi, fram-
kvæmdalán erbreyttust i föst lán
á árinu og lán veitt af hinu sér-
staka framlagi rikissjóðs til ný-
byggingar ibUða i stað heilsuspill-
andi hUsnæðis, sem lagt er niður.
Einnig voru veitt lán til bygging-
ar vistheimila skv. nýjum lögum
nr. 51 1980. Lánveitingar þessar
skiptust þannig.
ÚrByggingarsjóði verkamanna
r.ámu lánveitingar 1980 1.811
miljónum króna. Þar af voru
1.643milj. kr. veittar til smiði 334
ibUðar i nýjum verkamannabU-
stöðum og 168 milj. kr. vegna
endurstölu 21 eldri ibUöar. Lánin
fóru til 16sveitaríélaga.
Frá þvi að lögin um Byggingar-
sjóð verkamanna og verka-
mannabUstaði tóku gildi vorið
1970 hefur verið hafin bygging á
samtals 917 ibUðum i verka-
mannabUstöðum i 27 byggðarlög-
um i landinu. Meirihluti þessara
ibUða er i notkun, um s.l. áramót
voru 133 ibúðir i byggingu i
verkamannabústöðum i landinu
44% aukning
Til Utborgunar Ur Byggingar-
sjóði rikisins komu á árinu 1980
lánveitingar að fjárhæð 21.552
miljónir króna. Árið 1979 komu til
útborgunar 14.939 miljónir króna,
þannig að aukningin nemur
44.3%. Lánveitingarnar á s.l. ári
skiptust þannig:
Astæðan fyrir þvi, að hærri
fjárhæð kom til greiðslu á siðasta
ári en veittu lánsfé nam, er sú, að
á árinu voru greidd lán, sem veitt
voru til greiðslu 1979, en voru ekki
hafin fyrr en á siðasta ári.
Ódýrar týputeikningar
Á vegum tæknideildar HUs-
næðisstofnunarinnar eru á boð-
stólum vandaðar, ódýrar og hag-
kvæmar teikningar íyrir almenn-
ar ibUðarhUsabyggingar i land-
inu. Svonefndar „týputeikning-
ar ". 1 „teikningapakka" stol'n-
unarinnar eru allar teikningar
sem nauðsynlegar eru vegna hUs-
byggingar. Byggingarnefndar-
teikningar, burðarþols-, lagna- og
innréttingateikningar.
Á árinu 1980 voru teiknaðar á
vegum stolnunarinnar 149 ibUðir
viðsvegar um land. Annar snar
þáttur i starísemi deildarinnar er
að aðstoða sveitarfélög i sam-
bandi við hönnun og Utboð íélags-
legra ibUða þ.e.a.s. leigu- og
söluibUða sveitarlélaga og verka-
mannabUstaða. Á s.l. ári voru
boðnar Ut ibUðir á vegum sveitar-
félaga al tæknideild 170 . idðir
samtals að verðmæti 3.757.877,00
Reynt hefur verið að staðla og
samhæfa teikningar og Utboðs-
gögn milli sveitarfélaga meö til-
svarandi lækkun á hönnunar-
kostnaði.auk þess sem mjög gott
aðhald fæst að framkvæmdum,
öll áætlanagerð varðandi fjár-
mögnun verður auðveldari og
samanburður tilboöa og bygg-
ingarkostnaður verður einfaldur
og aðgengilegur milli sveitarfé-
laga. Auk þess sem samanburður
á verði á mismunandi timum
verður auðveldur, þ.e.a.s. frá ári
til árs.
A seinni árum er i auknum
mæli óskað eftir sérhönnuðum
teikningum fyrir aldraða. A
tæknideild er nU unnið að hönnun
ibUða og iveruhUsnæðis fyrir
aldraða i all mörgum sveitar-
félögum, og all fast mótaðar hug-
myndir og teikningar af ýmsum
gerðum liggja nú frammi hjá
tæknideild til aínota fyrir sveitar-
félög og almenning.
Auk ofannefndra starfa eru
unnin fjölþætt störf viö upplýs-
ingaþjónustu, áætlanagerð og al-
menna tækniráðgjöf lyrir hús-
næðismálastjórn, stjórnvöld og
ailan almenning i landinu, sem
eftir leitar hjá stofnuninni.
14 málverk
seldust
hálftímann
Meðal þess, sem getur að
Hta á Húnavökunni, sem nú
stendur yfir á Blönduósi, er
málverkasýning Svein-
bjarnar Blöndals, en þar
sýnir hann 16 oliumálverk.
Fólk flykktist þegar á sýn-
inguna á fyrsta degi hennar
og viötökurnar má marka á
þvi að á fyrsta hálftimanum
seldust 14 myndir af þessum
16. Er slikt óefað með ein-
dæmum. Vegna mikillar að-
áóknar hefur verið ákveðiö
aö framlengja sýninguna og
lýkur henni ekki fyrr en á
laugardagskvöid.
Mikið fjölmenni er á Húna-
vöku enda margt að sjá og
heyra og veður og færi með
ágætum. -
—mhg
Vésteinn
Lúðvíksson
skrifar
barnasögu
Út er komín barnasagan
Sólarbliðan eftir, Véstein
Lúðviksson. Myndir f bókina
gerði Malin ,örlygsdóttir.
Útgefandi er ÍÐUNN.
Sólarblfðan er fyrsta
barnasaga Vésteins Lúð-
vikssonar, en hann er löngu
kunnur höfundur fyrir stóld-
sögur slnar og leikrit. Um
efni sögunnar segir svo á
kápubaki meöal annars:
„Sólarbliðan fjallar um
samskipti lltillar stúlku sem
kölluð er þessu nafni við yfir-
stjóra-sem settur er til að
gæta hennar. Hann vill hafa
strangan aga á stúlkunni en
hún reyr.ir að verja sjálfræði
sitt r g vera eins og henni er
eðli !g* Verður þvi spenn-
andi v '.outíignin milli þeirra.
En Sólarbliöan stendur ekki
ein I striðinu: hún á vini sem
sitthvað kunna fyrir sér.
Fara brátt óvæntir og undar-
legir atburðir aö gerast sem
koma yfirvöldum úr jafn-
vægi.”
M.kr. Fjöldi
(G.kr.) ibúöa
Veitt F-lán (írumlán og viðbótarlán) . . 9.616 1665
Veitt G-lán til kaupa á eldri ibúðum Veitt C-lán til Utrýmingar heilsu- .. 5.148 2044
spillandi hUsnæðis Framkvæmdalán, sem breytt var i föst lán á árinu 1980: 46
LeiguibUðir fyrir aldraða og öryrkja . . 304 57
Leigu- og söluibUöir sveitarf élaga . . 2.747 145
VerkamannabUstaðir 202
Ýmsir framkvæmdaaðilar .... .. 1.450 242
Veitt lán til byggingar vistheimila fyrir aldrað fólk . ... 109
Veitt lán til byggingar dag- *
vistarheimila fyrir börn 96
Veitt lán(til félags einstæðra foreldra ... 30
Samtals 20.954 4401
M.kr. (G.kr.)
F-lán,til ibúðabygginga (frumlánogviðbótarlán)........... 9.551
G-lán, til kaupa á eldri ibúðum.......................... 4.705
Lán til byggingar á leiguibúðum sveitarfélaga ........... 3.989
Lán til byggingar á ibUðum i dvalar
heimilum aldraðra og öryrkja............................... 197
Lán til byggingar verkamannabústaða...................... 1.048
Lántilframkvæmdaaðila ................................... 1.373
Lán til byggingar FB-ibúða................................. 339
Lán til útrýmingar heilsuspillandi ibúða .................. 213
Vistheimili fyrir aldrað fólk .............................. 77
Dagvistarheimilifyrir börn.................................. 60
kr 21.552