Þjóðviljinn - 23.04.1981, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. aprll 1981
RÆTT VIÐ FULLTRÚA Á NÁTTÚRUVERNDARÞINGI
Rætt við ÆVAR
PETERSEN líffræðing
Stjórnun á
fjölda vllltra
dýrategunda
ÆvarPetersen liffræðingur er
fulitriii liffræðistofnunar Há-
skólans á náttúruverndarþingi.
Hann stjðrnar umræðuhóp um
stjórnun á viðhaldi tegunda,
fækkun þeirra cða fjölgun.
— Eru einhverjar sérstakar
tegundir sem þið eruð að f jalla
um ?
— „Nei, i rauninni fjallar
þetta um heildarstjórnun þess-
ara mála, en einstakar tegundir
koma þar auðvitað viö sögu. Við
munum t.d. fjalla um hvalamál-
in og nýtingu selastofna.
Ef við tölum aðeins um selinn
þá vitum við að hann er mikil-
vægur hýsill fyrir hringorma.
Lffskeðja hringormsins er
þannig að eggin þroskast i seln-
um og berast frá honum með
saur, en lirfan kemur sér fyrir i
krabbadýrum sem siðan er
fiskafæða. Það er milljónum
varið til aö hreinsa hringorma
úr fiski og hringormurinn
veldur markaðsvandræðum.
Þetta vekur spurninguna um
hvort við eigum að vinna að þvi
að fækka i selastofninum, en
það er talið að selum hafi fjölg-
aö siðustu áratugi. Raunar vit-
um við ekki nóg um liffræði sela
og hringorma.
Þá vantar grundvallarrann-
sóknir varðandi æðarfuglinn, en
dúntekja hefur minnkað um
helming siðustu áratugina. Það
Ævar Petersen
eru uppi raddir um að varg-
fuglar valdi þar mestu, en
annað getur komið til, búsetu-
röskun svo að dæmi sé nefnt.
Við þurfum að fjalla um
stjórnun i fækkun refa og
minka. Þau mál eru i höndum
veiðistjöra Búnaðarfélagsins,
en visindalegar rannsóknir
vantar algerlega varðandi
þessar tegundir. Minkur hefur
breiðast út um allt land, en ref
hefur hins vegar fækkað, senni-
lega fyrir áhrif af veiði.
Það standa deilur um raun-
hæfni aðgerða og um skaðann
sem einstakar tegundir valda.
Það þyrfti lika að koma á raun-
hæfri stjórnun i sambandi við
veiðidýr eins og gæsir, svartfugl
og rjúpur. Finnur heitinn Guð- I
mundsson fuglafræðingur vann
að mikilli rannsókn á rjúpunni,
en honum entist ekki aldur til að
vinna úr þeim gögnum sem
hann safnaði. Þar biða staflar af
gögnum úrvinnslu. Honum var
legið á hálsi fyrir að hafa ein-
ungis rannsakað rjúpuna i Hris-
ey en það er ekki rétt. Hann
rannsakaði rjúpuna á fjórum
stöðum á landinu, Þingeyjar-
sýslu, Oræfum og Heiðmörk auk
Hriseyjar og það kom m.a.
annars i ljós að sveiflurnar i
stofnunum fylgdust að á öllum
þessum stöðum.
— Er fyrirhuguð friðun á
Þjórsárvcrum fullnægjandi?
— Það er erfitt að segja.
Mestur hluti veranna verður
friðaður en neðsti hlutinn fer i
kaf. Spurningin er um það hvort
vatnssveiflum i lóninu sjálfu
hefur verið nægur gaumur gef-
inn. Þar gætu áhrifin orðið við-
tækari heldur en nemur þvi
svæði sem fer undir vatn.
Bakkar verða vatnsósa, klaka-
stig getur haft áhrif, svo og
breytingar á grunnvatni. Ég er
ekki viss um að þessu hafi verið
nægur gaumur gefinn.
En stærsti hluti Þjórsárvera
hefur nú verið friðaður og þar
með stærsta byggð heiðar-
gæsarinnar i heiminum.
— j
Rætt við EINAR ÞÓRARINSSON líffræðing
Mikilvægast að
Þjórsárverum
verði þyrmt
Einar Þórarinsson liffræð-
ingur er fulltrúi NAUST
náttúrverndarsamtaka Austur-
lands á þinginu. Hann var
spurður um sjónarmið austan-
manna vegna fyrirhugaörar
Fljótsdalsvirkjunar.
„Það má segja að það hafi
verið nokkuð hljótt um þau mál
af okkar hálfu og það á sinar
skýringar. Það var farið af stað
meðliffræðirannsóknirárið 1975
og þá var ekki fyrirséð með
hvaða hætti yrði virkjað ef af
yrði. Við biðum eftir þeim
niðurstöðum og þær eru að
koma núna þessa daga. Málið
hefur verið keyrt áfram. Sam-
komulag hefur náöst milli virkj-
unaraðila og bænda og við urð-
um á eftir með að gefa út okkar
álit”.
— Hvað um þau landspjöll
sem myndu leiða af virkjun-
inni?
— Þær rannsóknir sem gerðar
hafa verið við Eyjabakkana
gefa ekki til kynna að lífrikið sé
einstakt á nokkurn hátt.
Verndun barna er aðallega
spurning um landslagsvernd.
Þetta er að visu lika spurning
Einar Þórarinsson
um land upp á 2800 ærgildi, þar
er raunar ekki Eyjabakkarnir
sem mest munar um, gróður
þar er ekki mikið nýttur af
sauðfé, heldur skurð- og lóna-
stæðin á Fljótsheiði.
Við höfum þess vegna tekið þá
afstöðu að ef litið er á þá virkj-
anakosti sem fyrir eru i sam-
hengi að þá sé mest um vert að
Þjórsárverum verði algerlega
þyrmt og á grundvelli þess
munum við ekki berjast gegn
Fljótsdalsvirkjun. Um þetta eru
öll náttúruverndarsamtök sam-
mála. En okkur er þetta auð-
vitað ekki sársaukalaust. Það er
gífurlega gróskumikið svæði
miðað við hæð sem fer undir
vatn, og það er auðvitað eftirsjá
að þvi.
— Hvað um stóriöjuhug-
myndir í tengslum við virkjun-
ina?
— Það höfum við ekkert
fjallað um. Menn eru uggandi
en það skiptir öllu máli hvers
eðlis sú stóriðja væri. —j
Rætt við LÁRU ODDSDÓTTUR, formann Vestfirskra náttúrusamtaka
Nauðsynlegt að
sameina kraftana
Lára Oddsdóttir frá tsaf irði er
varaformaður sambands is-
lenskra náttúruverndarfélaga,
SIN og formaður Vestfirskra
náttúruverndarsamtaka. Hún
sagði að hjá SIN væri nú unnið
að því að efla landshlutafclögin.
Virkni væri góð fyrir vestan,
norðan og austan, en minni á
suöur og suðvesturlandi, en það
sörti 61 Ub. Þá sagði hún að
unnið vaeri aé auknu samstarfi
St/V og Landverndar og væri
sameiginlegur tillöguflutningur
þessara aðila á þinginu til
marks um aukin tengsl þeirra.
„Þaö eru svo fáir aöilar sem
sinna náttúruverndarmálum
he'r aö við verðum aö sameina
kraftana I staö þess aö dreifa
þeim”, sagöi I.ára.
— Hvað er helst á döfinni fyrir
vestan?
— „Það er verið að vinna að
náttúruminjaskrá fyrir Vest-
firði. Þá er mikið baráttumál
hjá okkur á Isafirði að vernda
þau fjörusvæði, sem enn eru lltt
snortin. Það er raunar mál sem
snertir öll þéttbýlissvæði og SIN
flytur hér á þinginu ásamt
Landvernd tillögu um það efni.
Það má líka geta þess aö við
höfum farið fram á aö gerö
verði liffræöileg rannsókn á
Pollinum okkar á Isafirði og hún
mun hefjast i vor, sú fyrsta sem
gerö er. Efnistökumálin eru lika
mjög á dagskrá hjá okkur á
Vestfjörðum. Vestfirsku fjöllin
eru gróðurlítil og það eru viða
ljót sár i landslaginu eftir efnis-
tökur.
Náttúruverndarnefnd ísa-
fjarðar og bæjarstjornin eru
núna að vinna aö stofnun
fólkvangs i Tungudal og Selja-
landsdal. Það er annars
Lára Oddsdóttir
athyglisvert að samstarf
náttúruverndarfólks á ísafirði
og bæjarstjórnarinnar hefur
farið mjög batnandi að undan-
förnu og það hefur orðið mikil
hugarfarsbreyting hjá þeim
siðarnefndu siðan ég fór að
vinna að náttúruverndarmál-
um .
— Hvað um málefni Horn-
stranda?
— „Vestfirsku náttúru-
verndarsamtökin hafa náið
samstarf við náttúruverndarráð
um friðlandið á Hornströndum.
Við erum að reyna að koma
okkur niður á stefnu i sambandi
við verndun þessa svæðis. Núna
hefur verið friðlýst svæðið frá
botni Hrafnsf jarðar yfir
Skorrarheiði i botn Tungu-
fjarðar, og þaö eru uppi hug-
myndir um stækkun þessa
svæðis.
Viö höfum verið aö vinna að
þvi að fá landeigendur á Horn-
ströndum til liös viö okkur varð-
andi viðhald gönguleiða og
varða. Það er lika mikilvægt að
kynna fyrir fólki þann ferða-
máta sem þarf aö viöhafa þegar
farið er þarna um. Menn geta
ekki og eiga ekki að lifa af land-
inu.þaðmá ekkieiga sérstaöað
fólk fari þarna um vopnað með
blankskó á fótunum eins og nú
vill brenna viö. Þegar farið er
um Hornstrandir þurfa menn
eiginlega að vera með heilt
hótel á bakinu, taka með sér það
fæöi sem þarf og tjald aö auki”.
— j
Hátíðar-
samkoma í
Háskótanum
1 tilefni af þvi að 10 ár eru liðin
frá þvi að fyrstu Islensku hand-
ritin, Flateyjarbók og Konungs-
bók eddukvæða, komu heim frá
Danmörku efnir Háskóli islands
til hátiðarsamkomu i dag
(sumardaginn fyrsta).
Prófessor Jónas Kristjánsson
flyturerindi um heimkomu hand-
ritanna. Handritafræðingarnir
Ólafur Halldórsson og Stefán
Karlsson lesa valda kafla úr Flat-
eyjarbók og eddukvæðum.
Camilla Söderberg, Helga
Ingólfsdóttir og Ólöf Sessilja
Oskarsdóttir leika franska og
italska tónlist frá barokktimabil-
inu.
Samkoman fer fram i hátiðar-
sal háskólans og hefst hún kl.
16:00. öllum er heimill aðgangur.
Vélstjórafélag
Suðurnesja:
Fellið frum-
varpið um
dragnóta-
veiðar
Vélstjórafélag Suðurnesja
hefur sent frá sér samþykkt þar
sem segir að félagið vari alvar-
lega við samþykkt frumvarps til
laga um dragnótaveiðar i Faxa-
flóa. Faxaflói er uppeldisstöð
helstu nytjafiska okkar, segir i
samþykktinni, og ber að haga
veiðum I Flóanum i samræmi við
það. Árangur sá sem náðst heíur
með friðun flóans undanfarin 10
ár má ekki aðengu verða, „vegna
sérgæðisviðhoría fárra manna
sem engu eira, ef hagnaðar er
von, þó um timabundin gæði sé að
ræða”, segir i samþykkt vél-
stjórafélagsins.
Grohe-
skákmótið
Magnús Sólmundarson bar
sigur úr býtum á Grohe skákmót-
inu sem haldið var i Borgarnesi i
byrjun april. Þátttakendur voru
36 á aldrinum 7—70 ára, flestir úr
Borgarnesi og nærsveitum.
Magnús hlaut 11 vinninga af n
mögulegum, og hlaut veglegan
bikar i verðlaun. I öðru sæti varð
með 9 1/2 vinning. Unglingaverð-
laun hlutu Agnar Hansson Búðar-
dal með 6 1/2 vinning. Bjarni Sæ-
mundsson Borgarnesi með 6
vinninga og Guðjón Rúnarsson
með 5 1/2 vinning. Kvennaverð-
laun hlaut Anna Sigriður Einars-
dóttir Snæfellsnesi með 5 vinn-
inga.
Helgi
gegn
lesendum
I gær vildu flestir lesendur
leika 9....-He8og þvi svarar Helgi
meö 10. 0-0, stutt hrókun.
Heldur finnst okkur nata aregió
úr þátttökunni eftir að liöið hefur
á skákina, og skorum þvi á les-
endur að taka betur við sér,
þannig að hver leikur sé mark-
tækari.
Hringið svo á milli 9 og 18 á
föstudagi sima 81333.