Þjóðviljinn - 06.05.1981, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6. mai 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
vidtalid
Mamma setti nýjan hatt á blýantinn minn.
Skallinn
skorinn
burt
Eins og menn vita hefur
margt verið reynt sem mótleik-
ur við skalla. Hárkollum fyrir
karla hefur verið komið i tisku
fyrir þá sem liður illa með
skalia. Þeir sem næga peninga
hafa láta t.d. gróðursetja hár-
brúska,sem teknir eru úr þvi
sem eftir er af hnakkahári, á
skallann.
Aöeins þurfum við að
skammasti ykkur lesendur góðir.
þar sem töluverður öldugangur er
i þátttöku ykkar. Þið verðið endi-
lega að hringja daglega, öll sem i
ieiknum takið þátt.
Leikirnir i dag eru 16. He7
og 17. a4
''John Terry heitir bisness-1
| maður sem rekur fimm skalla-
! stofur i Bretlandi og Banda-
! rikjunum og græðir morð fjár á
j þeirri aðferð sem sýnd er á
j myndinni. Hún er fólgin i þvi, að
skallinn er skorinn burt.
Aðgerðin fer fram i einum eða
fleiri áföngum eftir þvi hve
j skallinn er stór. 1 þessu dæmi er
I dreginn sporaskjaá skallann, 15
! cm á lengd og 7 cm á breidd.
| Húðin á þessum fleti er numin á
! brott og kantarnir dregnir sam-
an og saumaðir af mikilli kúnst.
Hárkraginn hefur færst góðan
spöl uppávið. Svo þegar allt er
gróið og hæfilegur strekkingur
kominn á húðina, þá má byrja
aftur, og flytja hárkragann
endanlega upp á hvirfil.
Gaman þetta kostar um 30
þúsundir króna.
Rætt við Bárð
Jensson, form.
verkalýðsfélagsins
Jökull í Ólafsvík
Hönnunar-
galla voru
orsökin
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hér i blaðinU voru I vetur
gerðar tilraunir með bónuskerfi
i saltfiskverkun, m.a. á
Snæfellsnesi. Yfirleitt virðist
fólk tiltölulega ánægt með þetta
fyrirkomulag, sem ætla mætti
að tæki framförum með aukinni
reynslu og kaupauki verkafólks,
t.d. á Grundarfirði, væri 40-50%.
Um Ólafsvik gegndi þó öðru
máli. Á þremur söltunar-
stöðvum þar var útkoman að
sönnu all góð, en starfsfólkiö i
Hraðfrystihúsi Ólafsvikur var
mjög óánægt með sinn hlut. Við
spurðum Bárð Jónsson,
formann verkalýðsfélagsins
Jökuls, hverju þetta sætti.
— Það er rétt, sagði Bárður
Jensson, að fram hefur komið i
fjölmiölum, að fólk i Hraðfrysti-
húsi Ólafsvlkur sé óánægt meö
bónuskerfið, en annarsstaðar
hér gæti óánægjunnar ekki.
Jafnframt var fram tekið að at-
hugun yrði á þvi gerð, hvað að
væri. Og nú hefur þetta veriö
gert.
— Og hvað leiddi sú athugun i
ljós?
— Ég hélt fund með starfs-
fólkinu. Þa komu i ljós
hönnunargallar i sambandi við
ýmsa aðstööu i húsinu. Meira
samstarf þurfti aö vera á milli
vinnuhópa i ákveðnum
greinum. Ég treysti þvi, að viö-
ræöur minar viö verkafólkið og
verkstjóra muni leiða til þess,
aö þeir ágallar, sem i ljós komu,
verði lagfærðir, jafnframt sem
fólkið fékk skýringu á þvi, hvað
að var. Með öðrum orðum: Sú
óánægja, sem þarna gætti, staf-
aði af þvi, að húsið sjálft var
ekki þannig úr garði gert, að
bónusfyrirkomulagið gæti notiö
Aumingja Geir með efna-
hagsaðhaldið. Vissi ekkert hvað
hann átti að segja þegar hann
stóð upp. Hafði ekki hugmynd
um hvað hann sagði meðan
hann talaði og enn siður hvað
hann hafði sagt þegar hann sett-
ist niður aftur!
Bárður Jensson
sin og þvi varð árangurinn ekki
eins góður og i húsum annars-
staðar.
Inn i þetta blönduðust svo taf-
atimar. Vegna þess hve stuttir
þeir voru, féllu þeir niður, og við
þaö rýrnuðu auðvitað tekjur
fólksins.
— Er verið aö vinna að endur-
bótum?
— Já, veittur var þriggja
mánaða frestur til þess að bæta
úr þessum ágöllum og vonandi
nægir það.
— Nóg að gera?
— Já, núna var t.d. unnið alla
daga nema páskadagana og
föstudaginn langa.
— Og aflabrögöin hjá bát-
unum?
-- Þau mega heita alveg
sæmileg þegar á allt er litið.
— Þegar á allt er litiö, seg-
irðu, áttu þá við veðráttuna,
hún hefur auðvitað verið stirð?
— Já, hún hefur verið alveg
^framúrskarandi leiðinleg i
vetur. Ég hef oft verið dauö-
hræddur um smærri bátana.
Það er nú svo, að eftir þvi sem
veðráttan er verri sækja menn
gjarna stífar á sjóinn til þess að
hafa þá eitthvað. Þetta hefur
verið með allra erfiðustu vertið-
um hvað veðurfar snertir, segja
eldri menn hér.
— Og bátarnir hafa fiskað
sæmilega, já, en nú hafið þið tvo
togara. Hvernig hefur þeim
gengið?
— Þeim hefur gengiö vel.
Lárus Sveinsson fékk t.d. nú I
siöasta mánuði yfir 500 tonn.
Már fór fyrir helgina inn á
Norðfjörð vegna bilunar og var
þá með 170 tonn. Hann kom svo
hér inn i gær með 240 tonn. Að
undanförnu hafa togararnir
verið að veiðum úti fyrir Aust-
fjörðum.
Eftir páskana kippti dálitið úr
hjá bátunum. Fóru þá einir
fjórir eða fimm þeirra suður
fyrir land og eru þar núna. Þeir
hafa aflað þar svona sæmilega
en núna allra siðustu daga hefur
þó aflinn hjá bátunum verið
fremur tregur.
— En þó næjanleg vinna?
— Já, já, það var t.d. unniö
núna á laugadaginn og á sunnu-
daginn var unniö við löndun úr
Má, sagði Bárður Jensson.
—mhg
Hver þekkir Biblíuna?
Um árabil hafa Israelar
haldið alþjóðlega keppni annað
hvert ár í ýmsum ritum Gamla
Testamentisins og hefur þátt-
tökuþjóðum fjölgað ár frá ári.
Sendiherra ísraels á tslandi,
Hava Hareli hefur haft mikinn
áhuga á að koma slikri keppni á
laggirnar hér og hefur nú verið
skipuð undirbúningsnefnd og er
ætlunin að forkeppni verði hald-
in30. mai n.k. Keppendur þurfa
þá að svara skriflegum spurn-
ingum og geta gert það á heima-
slóðum — þar er átt við kepp-
endur utan Reykjavikur —
undir forsjá ábyrgðarmanna,
sem nefndin fengi til starfa.
Þeir sem hafa hug á að taka þátt
i keppninni tilkynni það til sr.
Bernharðs Guðmundssonar hjá
Biskupsstofu fyrir 15. mai og
geta þar fengið að vita nánar
um tilhögun keppninnar ofl.
Það skal tekið fram, að allir
sem eru 18 ára og eldri geta
verið með. 1 keppninni er lögð
áherzla á ákveðin efni, frið,
félagslegt réttlæti og jafnrétti
og einingu meðal mannanna.
Bækurnar sem spurt verður Ur
eru Mósebækurnar fimm,
Jósúabók, Spámennirnir,
Dómarabókin, Fyrsta og Onnur
Konungabók, Sálmarnir og
Rutarbók. Dómari er Þórir Kr.
Þórðarson.
Sá sem ber sigur af hólmi i
keppninni i hverju landi, heldur
siðan til Israels i byrjun
september og standa Israelar |
straum af öllum kostnaði.
m m
i±i mtrnt
abcdefgh
Þið eigið leikinn og siminn er
81333, milli kl. 9 og 18 i dag.
—eik—