Þjóðviljinn - 06.05.1981, Síða 12
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Miövikudagur 6. mai 1981
Murasaki Shikibu: The
tale of Genji.
Translated with an Introduction
by Edward G. Seidensticker.
Penguin Books 1981.
Bók þessi er fimmtiu og fjórir
kapitular um 1090 blaösíður i
stóru broti. Hún er talin hafa ver-
iö skrifuö á 11. öld viö keisara-
hiröina i Japan af hirödömu, sem
hélt einnig dagbækur, Murasaki
Shikibu. Sögusviöiö er hiröin og
atburðarásin gerist við hirðina.
Skáldsaga þessi kom fyrst út i
þessu formi 1976, þýdd af prófess-
or Seidensticker viö Columbiahá-
skólann. Hann er merkur fræöi-
maöur um japönsk efni og tungu
og er talinn hafa unniö þetta verk,
þ.e. þýöinguna af stakri vand-
virkni.
Sumir vilja telja þessa bók
fyrstu skáldsöguna, en þaö fer
eftir þvi hvernig og hversu mikiö
hugtakið skáldsaga er teygt. Saga
þessi er annarleg viö fyrstu skoö-
un, persónur og viöbrögö þeirra
eru bundin mati og andrúmslofti
11. aldar við keisarahiröina i Jap-
an. Mikiir lestrarhestar eiga
áreiöanlega eftir aö lesa þessa
bók spjaldanna á milli og hún er
reyndar ekki lengri en ýmsar þær
skáidsögur sem Bandarikjamenn
setja saman nú á dögum, og virö-
ist viö flettingu ekkert leiöinlegri.
Þetta er aöeins tii þess skrifaö, aö
vekja athygli á bókinni, og hof-
dömunni, sem setti hana saman.
I auglýsingu frá Penguin er
fjallaö um brot þessa rits, sem er
talsvert óvenjulegt og þvi jafn-
framtheitiöaö útgáfan muni gefa
út fleiri rit i þessu broti.
Tréstungur fylgja texta teknar
úr japanskri gerö sögunnar frá
1650.
Eflum
framfarir
fatlaðra
Gíróreikningur 506000-1
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboð
SÍMI53468
Arkitekt
Byggingarstofnun landbúnaðarins vill
ráða arkitekt. Æskilegt er að hann geti
hafið störf sem f'yrst. Upplýsingar i sima
26030
LAUGAVEGI 120 REYKJAVÍK SÍMl 254Aa
BYGGINGASTOFNUNLANDBÚNAÐARINS
Reykjavíkurhöfn
Reykjavikurhöfn vinnur að þvi að gera
byggingarhæfar lóðir á tveim athafna-
svæðum við höfnina: •
I. A fyllingu utan Grandagarðs.
Lóðir þarna eru ætlaðar fyrir fyrirtæki
sem tengd eru sjávarútvegi, fisk-
vinnslu og þjónustu við Utgerð
II. Svæði við Skútuvog við Kleppsvík:
Þar eru lóðir hugsaðar fyrir fyrirtæki,
sem áherslu leggja á skipaviðgerðir.
Þeir sem áhuga hafa á að koma til greina
við lóðaúthlutanir á svæðum þessum,
sendi skriflegar umsóknir til Hafnar-
skrifstofunnar Hafnarhúsinu v/Tryggva-
götu fyrir 20. mai n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirrit-
aður.
Hafnarstjórinn i Reykjavik
Úr sýningu Héraðsmanna á Dr. Jóni Gálgan
Leikið á Héraði:
Félagi Gálgan
Leikfélag Fljótsdalshérðas
sýnir um þessar mundir ,,Dr. Jón
Gálgan” eftir Odd Björnsson,
undir leikstjórn Einars Rafns
II aral dssonar. Leikurinn er
ætlaður okkur til áminningar og
viðvörunar. Við vissum það
reyndar fyrir sem höfundur vill
scgja okkur en það er gott að lita i
spegil svona við og við.
Þeirfélagar hjá LF. skiluðu þvi
prýðilega til okkar að flest erum
við efnishyggjufólk og idjótar, þó
ekki öll, svo sem gamla konan
leikin af Guðlaugu ólafsdóttur, er
fellur látlaus og eðlileg inn i
myndina. Hreyfingar leikkon-
unnar (ég leyfi mér að kalla hana
það) eru hnitmiðaðar og það
besta sem fram kemur i þessari
sýningu. Þá skemmti skrattinn,
leikinn af Gunnari Jónssyni,
okkur prýðilega og lagahöfundar
þeir Einar Rafn, Stefán, Guðgeir,
Gunnlaugur, Kristján og Friðrik.
HUrra fyrir þeim !
Að lokum- bestu þakkir til
Félaga Ga'lgan og co fyrir
ánægjulega kvöldstund. Sjá færri
en þyrftu.— SVB.
Brúðubíllinn
farinn af stað
Þetta er hann Grimur i stiganum sínum og þorpið hans á bak viö.
1 fyrradag hófust sýningar
bruðubilsins, en það cr brúðuleik-
hús sem ferðast á milli gæslu-
valla borgarinnar.
Þetta er fimmta sumarið, sem
leikhúsið starfar. Keyrt er milli
allra gæsluvalla Reykjavikur-
borgar, en þeir eru 35 talsins.
Komið er fjórum sinnum á hvern
völl og með nýja dagskrá i hvert
sinn. Bruðubillinn starfar i tvo
mánuði ár hvert, i mai og júni, og
eru sýningar alls 140. Hver sýning
tekur 1/2 klukkustund. Þær Helga
Steffensen, sem býr til
brúðurnar, og Sigriður Hannesd.
sjá urW sýningarnar. Handrit
eru eftir þær og einnig stjórna
þær brUðunum og ljá þeim raddir
sinar. 'Á undan hverri sýningu
talar Sigriður við börnin og
syngur með þeim.
Þessi starfsemi, sem er á
vegum Reykjavikurborgar, er
orðin fastur liður ár hvert.
Sýningarnar eru miðaðar viö
börn á aldrinum 2—6 ára og er
þar ýmislegt til fróðleiks og
skemmtunar.
Efni fyrstu dagskrár brúðu-
bilsins er um hann Grim og
þorpið hans. Grimur er alltaf á
vakt i stiganum sinum, þá getur
hann fylgst með öllu sem gerist.
Hann segir krökkunum frá h'finu i
þorpinu og ibúum þess, og þar
skeður nU margt skritið og
skemrrftilegt.
Allir eru velkomnir á þessar
sýningar . .1
Islendingar kynna sér
nýsjálenskan kjötíðnað
Fyrir nokkru sendi Sambandið
og Markaðsnefnd landbúnaöarins
tvo menn til Nýja-Sjálands og
Ástralfu og skyldu þeir kynna sér
stykkjun og pökkun á dilkakjöti,
slátrun og rekstur sláturhúsa á
Nýja-Sjálandi.
Feröalangarnir voru þeir
Siguröur Orn Hansson, forstööu-
maöur Rannsóknarstofu Búvöru-
deildar, og Siguröur Einarsson,
hjá Teiknistofu Sambandsins.
Sögöu þeir félagar móttökurnar
hafa veriö meö afbrigöum góöar
og feröir allar vel skipulagöar.
Þeir hefðu fengiö allar umbeönar
upplýsingar og I heild fengið mjög
góöan þverskuröaf nýsjálenskum
kjötiönaöi.
— mhg
Netaveiðin
háð leyfi
frá 21. mai
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur nýlega sett reglugerð
þar sem á U'mabilinu 21. mai
til 31. desember 1981 eru
bannaðar allar veiðar i
þorskfisknet án levfLs ráðu-
neytisins.
Ráðuneytið getur bundið
leyfi og úthlutun þeirra þeim
skilyrðum, sem nauðsynleg
þykja m.a. i þvi skyni að
stuðla að auknum gæðum
afla og takmarka f jölda eða
veiðar einstakra gerða
skipa.
Fáum við
moklarljanka?
Skorað hefur verið á yfir-
völd Reykjavikurborgar að
koma upp moldarbanka fyrir
garðeigendur og að hlutast
til um, að gróðurmold verði
alls ekki ekið á hauga.
Það er Garðyrkjufélag
Islands sem samþykkti
þessa áskorun á aðalfundi
sinum vegna þess að jarð-
vegur er viða snauður af lif-
rænum efnum i görðum
borgarbúa og óhægt um vik
að nálgast gróðurmold i
borgarlandinu.
Fundurinn ræddi einnig
áskorun til sjónvarpsins að
sýna fræðslumyndir um
blóm og aðra garðrækt, enda
hafa ekki verið þar slikir
þættir siðan farið var að
senda út i lit. Er jafnframt
bentá, að garðvinna er engu
siður holl fyrir likamlegt at-
gervi en trimm og bolta-
leikir, en skilur eftir fal-
legra umhverfi, sem hlýtur
aö gera öllum gott.
5510 félagar eru nú i Garð-
yrkjufélaginu, sem eignaðist
húsnæði fyrir skrifstofu-
starfsemina á sl. ári.
Formaður er Jón Pálsson
póstfulltrúi, en aðrir i stjórn
Ólafur B. Guðmundsson,
Agústa Björnsdóttir, Berg-
lind Bragadóttir og Einar I.
Siggeirsson.
Stimpil-
gjöld lækki
Bændur telja, að stimpil-
gjöld af afurða- og rekstrar-
lánum landbúnaðarins séu
orðin öheyrilega há. Af þvi
tilefni samþykkti nýafstað-
inn aðalfundur Samstarfs-
nefndar Búvörudeildar og
afuröasölufélaganna tillögu,
þar sem segir að fundurinn
telji ,,að ranglátt sé að inn-
heimta af afuröasölufélögum
bænda svo há stimpilgjöld,
sem raun hefur verið á
undanfarin ár af afurða- og
rekstrarlánum landbúnaðar-
ins. Er nú svo komið að þessi
kostnaður er orðinn mörg
hundruð miljónir gkr.
Vegna þess hve fram-
leiðsla sauðfjárafuröa er
árstiðabundin kemur þetta
gjald hlutfallslega verr niður
á sauðf járframleiðslunni
heldur en öðrum atvinnuveg-
um, sem afuröalánafyrir-
greiðslu njóta.
Beinir fundurinn þvi 'til~
fjármálaráðherra, að hann
láti kanna þetta mál og af-
létta. þessum tilfinnanlega
kostnaði af sauðfjárfram-
leiðendum” — mhg
Tvö ný
frimerki
Mánudaginn 4. mai komu
út tvö ný E vrópufrimerki að
verðgildi 180 og 220 aurar.
Myndefni þeirra er sótt i
þjóðsögur, annars vegar i
þjóðsöguna um Galdra-Loft
og hins vegar i „Djúpir eru
íslands álar”.
Þröstur Magnússon teikn-
aði merkin sem prentuð eru i
Sviss.