Þjóðviljinn - 06.05.1981, Síða 13
Miftvikudagur B. mai 1981
ÞJÓÐVILJINN — SIDA 13
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Aðalfundur VI. deildar ABR (Arbær)
Aðalfundur VI. deildar Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður haldinn
fimmtudaginn 7. mai kl. 20:30 að Grettisgötu 3.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Svavar Gestsson mætir á íundinn.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Fundur Verkalýðsmálaráðs AB Alþýðubandalags-
ins
Fundi Verkalýðsráðs Alþýðubandalagsins sem auglýstur var 10. mai
verður frestað þar til 16. og 17. mai. Nánar auglýst i blaðinu á morgun.
Aðalfundur ABR — Félagsgjöld
Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik hvetur þá félagsmenn sem enn
hafa ekki greitt gjaldfallin árgjöld að gera það nú um mánaðarmótin.
Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 23. mai i Lindarbæ.
Verum skuldlaus við félagið á aðalfundi.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur um skipulagsmál.
AB á Akranesi heldur félagsfund sunnudaginn 10. mai nk. i Rein og
hefst hann kl. 16.00
Fundarefni:
Aðalskipulag bæjarins.
Félagar fjöimennið.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Baknefnd fræðslu-, iþrótta- og æskulýðsmála
Baknefnd fræðslu-, iþrótta- og æskulýðsmála heldur sinn næsta fund
mánudaginn 11. mai kl. 17 á Grettisgötu 3.
Dagskrá:
1) Nýting húsnæðis i hverfum borgarinnar til félags-, tómstunda- og
iþróttaiðkana.
2) Ahersluatriði i fræðslu-, iþrótta- og æskulýðsmálum til loka kjör-
timabils borgarstjórnar.
Fundir baknefnda eru opnir öllum félagsmönnum.
Alþýðubandalagið á Grundarfirði
heldur almennan félagsfund, sunnudaginn 10. mai kl. 14.00 i húsi
Verkalýðsfélagsins við Borgarbraut.
Fundarefni: Framhald blaðaútgáfu
Framsögu flytur Ingi Hans.
Skorað er á alla félagsmenn að fjölmenna og taka þátt i mörkun stefnu
á útgáfubirtingar blaðs félagsins.
Stjórnin.
/ kvöld
Undirbúningur borgarstjórnar-
kosninga 1982.
Fulltrúaráð Alþýðubandalagsins i
Reykjavik
Fundur i kvöld
Fulltrúaráð ABR er boðað til
fundar i kvöld 6. mai kl. 20:30 i
fundarsal Sóknar að Freyjugötu 27.
Dagskrá:
l) Undirbúningur Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar 1982.
Frummælendur:
Margrét S. Björnsdóttir
Einar Karl Haraldsson
Sigurjón Pétursson
Fulltrúar félagsdeilda ABR
Stjórnin.
Herstödvaandstæðingar
Samtök herstöðvaandstæðinga gangast fyrir bók-
menntadagskrá sem haldin verður í Hafnarbíó, Al-
þýðuleikhúsinu, laugardaginn 9. maí kl. 14.00.
Dagskrá:
Rithöfundar lesa úr eigin verkum.
Vísnasöngur.
Auglýsinga- og áskriftarsími
81333 DJODVIUINN
Kinar
Akureyri:
V ortónleikar
Allt í strand
Framhald af 1. siðu.
fetað I fótspor fóstra, sem hann
sagði þó hafa algera sérstööu
þar sem ekki hefði verið gengið
frá sérkjarasamningum við
þær, einar allra starfshópa
rlkisins.
Þessi deila, sem þegar er
farin aö valda vandkvæðum i
rekstri sjúkrahúsanna var til
umræðu á rikisstjórnarfundi i
gærmorgun. Engin tilkynning
var gefin út að honum loknum
en menntamálaráðuneytið sem
hefur lagaheimild til þess að
opna dagheimili án þess að fag-
lært fólk sé þar viö við störf,
mun hvorki hafa gefið ádrátt
um slika heimild né hafnað
henni. Fjármálaráöuneytið
mun óttast að launakerfið
hrynji til grunna ef samiö
verður við fóstrur — á eftir
þeim komi þroskaþjálfar,
hjúkrunarfræðingar, sjúkra-
þjálfar og fleiri, en heilbrigðis-
ráðuneytið mun leggja áherslu
á að halda starfsemi sjúkrahús-
anna ótruflaðri. — AI
Siguröur
Framhald af bls 8.
hefur þvl sérstaklega vakið at-
hygliá nauðsyn þess að vandlega
verði fylgst með ibúaþróun
borgarinnar og farið varlega i
uppbyggingu nýrra og fjarlægari
byggingarsvæða við óbreytt
ástand um leið og bent er á að
sporna þurfi við frekari útþynn-
ingu borgarinnar vestan Elliða-
áa. Nefndin hefur einnig i þvi
sambandi vakið athygli á þeim
athyglisverða kosti sem felst i
uppbyggingu flugvallarsvæðisins
og nauðsyn þess að það mál verði
kannað áfram.
Gott stjórntæki
Ég itreka það að aðalskipulag
Fassiukórinn heldur fyrri vor-
tónleika sina fimmtudaginn 7.
mai kl. 20:30 i Akureyrarkirkju.
Flutt verður Messa i D-dúr nr. 2
eftir Antonin Dvorák. Einsöngv-
ari með kórnum verður Þuriður
Baidursdóttir og orgelleikari
Gigja Kjartansdóttir.
Þetta er niunda starfsár kórs-
ins, sem hefur á þessum árum
flutt ýmis stórverk, m.a. Messias
eftir Hítndel, Arstiðirnar eftir
Haydn, Gloriu Vivaldis, Páska-
óratoriu Bachs og fleiri.
er stjórntæki, ekki óskalisti; ef
það er ekki i samræmi við grund-
vallarforsendur eins og mann-
fjöldaþróun er mikil hætta á
röngum og ótimabærum ákvörð-
unum . Það skipulag sem hér er til
umræðu er vel undirbúið og vel
unnið,— allir möguleikar hafa
verið kannaðir og metnir og gerð
hefur verið grein fyrir öllum tak-
mörkunum. Sem stjórntæki er
þetta skipulag gott tæki til að
stýra þróun borgarinnar inn á þá
braut sem hagkvæmust og skyn-
samlegust er miðað við aðstæður
á hverjum tima”. —AI
Eykon
Framhald af bls. 6
ræðumanns, að hvert fyrirtæki i
landinu þurfi a.m.k. 8% hækkun
og flest meira. Þessar verðbólgu-
skoðanir og veröbolgukenningar
— það er full ástæða til að mót-
mæla þeim harðleg, þetta er svo
fjarri öllu lagi.
Með þessu er búið að svara þvi
sem unnt er að svara á þessu
stigi. Eins og i lögunum segir
verða sett almenn viðmiðunar-
mörk til leiöbeiningar fyrir verð-
Síðari vortónleikar Passiukórs-
ins verða i byrjun júni. Þá er
ætlunin að flytja oratoriuna
Carmina Burana éftir Carl Orff.
Kórinn fær þá til liðs við sig 2 ein-
söngvara, 2 pianóleikara og
slagverksleikara. Þessi oratoria
Orffs hefur náð geysilegum vin-
sældum um allan heim.
Aögöngumiðasala að tónleikum
kórsins er við innganginn.
Stjórnandi Passiukórsins er
Roar Kvam.
iagsyfirvöld. Þau meta það svo
hvort tiltekið fyrirtæki þarf minni
hækkun, hver þurfa meiri, og i
samræmi við bað verða auðvitað
ákvarðanir verðl agsyfirvald-
anna.
Eyjólfur Konráð sté aftur i
pontueftir ádrepuna fra forsætis-
ráðherra og sagði þá m.a.:
,,Það var skiljanlegt að bæði
Framsóknarmönnum og Alþýðu-
bandalagsm önnum þætti það
girnilegt að geta klofið Sjálf-
stæðisflokkinn og komið af stað
öllum þeim óþverra sem þjóðin
hefur orðið að búa við. En þeir fá
bara þennan óþverra sjálfir inn i
sál sina. Þessi stjórn er dauð-
vona. Þetta hefur aldrei verið
rikisstjórn. Ég sagði það tveimur
dögum áður en hún var mynduð,
að þetta yrði versta rikisstjórn i
sögu lýðveldisins. Og ég hef lika
sagt það reyndar að Gunnar
Thoroddsen hafi aldrei myndað
neina rikisstjórn, vegna þess að
þetta hefur aldrei verið rikis-
stjórn. Þetta er uppákoma,
hörmuleg uppákoma og ég vor-
kenni öllum þeim sem eru að-
standendur þessarar uppá-
komu".
Svo mörg voru þau orð. — Þig
VORHAPP
VORHAPPDRÆTTI
Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
Nú eru aöeins
fáir dagar þar til dregiö verður í
vorhappdrætti Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Gerum skil fyrir helgi og tryggjum öflugt starf
Alþýðubandalagsins í Reykjavík á komandi ári.
Stjórn ABR
tnf i