Þjóðviljinn - 22.05.1981, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. inai 1981
DJOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóöfrelsis
l Igeíandi: Utgáluiélag Þjóöviljans.
l'ramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ititstjórar: Arni Bergmann. Einar Kari Haraldsson, Kjartan
Olafssoii.
Auglvsingastjóri: Þorgeir olaisson
l msjónarmaöur suuniidagsblaös: Guöjón Kriöriksson.
Afgreiöslusljóri: Valjior Hlööversson
Klaóumenn: Allheiftur Ingadóttir, Ingibjörg Haraidsdóttir,
Kristin Aslgeirsdottir, Magnus H. Gislason. Sigurdór Sigurdórs-
son.
iþróttalréttamaöur: Ingoliur Hannesson
i tlit og liönniin: Guöjon Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson.
l.jósmvndir: Einar Karlsson. Gunnar Eliasson.
Ilandrita- og prólarkalestur: Andrea .Jonsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Svanhtldur Bjarnadóttir
Skrifstofa: Guðrun Guövaröardóttir. Jóhannes Harðarson.
Algreiösla: Kristin Fétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Simavarsla: olól Halldorsdottir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Baröardóttir.
Fökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Fálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, algreiðsla og auglýsingar: Síöumúla (i,
Keykjavik. simi 8 13 iiii.
Frentun: Blaðaprent hf..
Út úr
vítahringnum
• Opinber bandarísk stofnun, I nternational
Communications Agency hefur nýlega gert könnun á
skoðunum íbúa Vestur-Evrópu á öryggis- og varnarmál-
um. Niðurstaðan er í stórum dráttum sú, að Vestur -
Evrópumenn séu i vaxandi mæli að snúa baki við þeirri
stefnu sem nú ræður húsum Washington: en hún er,
eins og kunnugt er, fólgin í þvf að mæta sambúðarvanda
við austurblökkina með stóraukinni hervæðingu og þeirri
hörku í samskiptum, sem i raun gerir allt tal um slökun
og samvinnu yfir landamerki tvískiptrar álfu mark-
leysu.
• Vinir Natógeta huggaðsig við það, að drjúgur meiri-
hluti íbúa Vestur-Evrópu telur hernaðarbandalagið
nauðsyniegt. Þeir geta einnig vísað til þess, að sam-
kvæmt könnun I CA er andúð á Sovétríkjunum jaf nvel
enn útbreiddari en stuðningur við Natóaðild. Mjög fáir
hafa trú á friðartilboðum sovéskra ráðamanna, þeim
hefur f jölgað stórlega og eru nú í algjörum meirihluta í
flestum löndum sem könnunin nær til, sem telja Sovét-
ríkin háskasamleg heimsfriði. Er þá vitnað til hernaðar
þeirra í Afganistaa tvísýnu um framtíð Póllands og
einnig það, hve nálægt sovésk hernaðarmaskína er olfu-
lindum Persaflóans. Það kemur einnig fram, að aldrei
hafa Sovétríkin verið jafnf jarri því og nú, að vera
pólitísk f yrirmynd verulegum hluta íbúa Vestur-Evrópu.
• En um leið leiðir þessi bandaríska könnun það
greinilega í Ijós, að þeirri hreyfingu er mjög ört að vaxa
fiskur um hrygg, sem gengur gegn vilja þeirra sem ráða
ferðinni í Nató og Bandaríkjunum. Það er aðeins lítill
minnihluti sem vill fara að óskum þessara aðila um-auk-
inn vígbúnað, meiri útgjöld til hermála, ný vopnakerfi.
Þessi minnihluti er stærstur í Bretlandi járnfrúarinnar,
— þar vilja um 33% efla herinn. I öðrum löndum eru
slíkir menn sýnu færri. Yf irgnæfandi meirihluti vill ann-
aðhvort óbreyttan vígbúnað (en það finnst Nató hvergi
nærri nóg) eða frumkvæði til niðurskurðar. Þessir
skoðanahópar eru 72% Vestur-Þjóðverja og 82%
Hollendinga, svo dæmi séu nefnd.
• Þetta finnst mönnum Reagans forseta óskiljanlegt.
Af hverju, spyrja þeir hvað eftir annað, vilja Evrópu-
mennekki mæta þeim Sovétrfkjum sem þeim í mörgum
greinum stendur stuggur af með hervaldi? Eru þeir
svona hræddir? Ætlaþeirað„f innlandísera sig" eins og
það heitir?
• Aðrar skýringar eru þó nærtækari. Og verður sú efst
á blaði sem segir, aðeftirmeira en þrjátíu ára vígbúnað-
arkapphlaup við austurblökkina hafi Evrópumenn týnt
trúnni á að vígbúnaður geti nokkurn vanda leyst. Þvert á
móti: menn gera sér, ekki síst þeir sem taldir eru f ylgj-
ast best með, betur grein f yrir því en oftast áður, að víg-
búnaður er kominn á það stig, að þær hindranir sem
reynt hefur verið að byggja upp til að draga úr líkum á
kjarnorkustyrjöld fara ört lækkandi.
• Breska blaðið Guardian vék einmitt að því f leiðara
fyrir skömmu, að bresk samtök, sem hafa lengi barist
yfir einhliða frumkvæði Breta um kjarnorkuafvopnun,
CND, hafi fengiðnýjan byr í vængi. Blaðið minnir á það,
að lengi haf i menn sagt sem svo, að slík f rumkvæði væru
einungistil skaða — árangur gæti ekki náðst nema með
tvíhliða samkomulagi milli risanna tveggja sem um
kjarnorkugikkina halda. En, segir biaðið: þessi kenning
hefur verið ráðandi í heila kynslóð, og hún hefur ekki
skilað neinum árangri: vopnabúrin hafa aldrei verið
stærri, viðræður um niðurskurð á þeim aldrei árangurs-
minni. Ef aðkenningin um „tvíhliða samkomulag" ber
ekki árangur, segir Guardian, ef Evrópumenn geta ekki
þvingað risanna til að koma sér að samningaborði, þá
getur sú hreyf ing að Vestur-Evrópa fari eigin leiðir í af-
vopnunarmálum orðið ómótstæðileg.
• Vestur-Evrópumenn trúa hvorki á vopnaskak
Reagans né fagurgala Brésjnéfs, þeim finnst stríðs-
hætta vofa yfir en hafa tapað trúnni á hefðbundin víg-
búnaðarsvör Nató viðslíkum háska. Allt bendir þetta til
merkilegrar hugmyndagerjunar, sem vonandi hjálpar
mönnum til að móta þá kosti fyrir álfuna sem dugi til að
koma henni út úr þeirri stöðu að vera einskonar gfsl á
milli tveggja risa og fyrsti vettvangur gjöreyðingartóla
þeirra.
— áb
klippt
I Bolabrögð
j ihaldsins
\ i félagsstatfi
IÞað eru einkenni á ihalds-
mönnum að beita bolabrögðum i
félagsstarfsemi. Þetta þarf svo
Isem engum að koma á óvart.
Þeir sem vilja byggja þjóðfélag
á þeim grunni að fáir útvaldir
geti arðrænt allan hinn vinnandi
J fjölda, þeir sem leggja þann
I skilning i frelsi að það eigi að
INafn Matthiasar Johannessen
falsaft á félagaskrá Taflfélags
■ Seltjarnarness.
Ivera frelsið til að græða, þeir
eru lika reiðubúnir að nota
• hvaða meðöl sem vera skal i
Ipólitisku félagsstarfi.
Morgunblaðinu finnst það til
marks um þróttmikið starf
■ ungra sjálfstæðismanna, þegar
Inokkur hundruð ungmennum er
smalað á fund til þess eins að
kjósa ákveðinn formann. Fæst
• af þessu fólki er i Heimdalli eða
Ikærir sig um það. Og þess eru
dæmi að borið er fé á unglinga
til að taka þátt i þessum hana-
* slag i Heimdalli.
I" Guftný Jónsdóttir:
Skipta þarf um alla forystu
Sjálfstæftisflokksins.
j Falsaðar
! félagaskrár
IEnginn hefur út af fyrir sig
verið að fárast út af þessu. Það
dettur nefnilega engum i hug að
■ gera félagslegar siðgæðiskröfur
Itil ihaldsins. Þeir um það hvort
þeir t.d. nota þá aöferð aö fá
Pétur og Pál út i bæ til að raða
* hjá sér á framboðslista. En
1 þegar þeir flytja með sér félags-
legan óþverraskap i samtök
sem eru ekki stiórnmálafélöe.
eins og til dæmis taflfélögin i
landinu, þá er það mál sem alla
varðar. Auðvitað hafa ýmsir
forkólfar ihaldsins misnotað
iþróttahreyfinguna i eigin
framapotsþágu, t.d. i próf-
kjörum og til auglýsinga á sjálf-
um sér. En út yfir gengur þegar
farið er að innleiða þau vinnu-
brögð ihaldsins i taflfélög að
falsa félagaskrár. Matthias Jo-
hannessen segir i Morgun-
blaðinu i fyrradag að fréttir um
að nöfn hans og fleiri hafi að
þeim óforspurðum verið færð á
félagaskrá Taflfélagsins á Sel-
tjarnarnesi flokkist undir
skrýtlur með morgunkaffinu.
Vinnubrögð
sem Matthias
kannast við
Og vafalaust er Matthias svo
vanur þessum vinnubrögðum úr
völundarhúsi Geirsarmsins að
hann kippir sér ekki mikið upp
við það þótt farið sé frjálslega
með nafn hans. En þeir sem af
alúð og umhyggju vilja byggja
upp heilbrigt skáklif á tslandi
lita þetta tiltæki ihaldssmal-
anna alvarlegum augum. Sú
krafa hlýtur þvi að vera gerð til
forráðamanna Taflfélagsins á
Seltjarnarnesi að þeir upplýsi
hverjir standi að slikum föls-
unum.
Matthiasar-
armurinn
Innanflokksátökin i Sjálf-
stæðisflokknum eru sifellt að
færast i aukana,enda styttist nú
i landsfund, ef menn gefast þá
ekki alveg upp á þvi að koma
fundinum á. Nýlega var haldið
landsþing Landssambands
sjálfstæðiskvenna i Reykjavik.
Á þinginu kom greinilega fram
að konurnar skiptust i hina
ýmsu arma eftir þvi hvern þær
styðja til formanns. Ekki var þó
ljóst hvaða armur átti mest
fylgi sjálfstæðiskvenna, en
hugmyndin um Matthias A. ,
Mathiesen sem næsta formann
átti þar mikinn hljómgrunn.
Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá
þvi að Matthias eigi mikið fylgi i
Borgarfirði, en þar dvelur hann
löngum á sumrin. Enda er lik-
legtað Guðný Jónsdóttir fulltrúi
frá Akranesi sé i Matthiasar-
arminum, en samkvæmt frá-
sögn Morgunblaðsins hefur hún
þetta að segja um forystu
Sjálfstæðisflokksins:
„Skipta þarf um
alla forystuna,y
,,Min skoðun er sú, að skipta
þurfi um alla forystuna i flokkn-
um, ef á að reyna aö sameina
hann á ný”. Rér er talað tæpi-
tungulaust. Það á sem sagt að
reka alla forystuna, hvorki
meira né minna. Það er ekki
von að hin almenni kjósandi i
landinu ljái fylgi sitt við menn
sem flokksbundnir menn i trún-
aðarstöðum flokksins telji að
eigi að reka alla á einu bretti.
----------------------------1
En kunnugir telja þó að með {
þessu sé Guðný að taka afstöðu ,
með Matthiasi i formannskjör- |
inu.
En það voru fleiri á fundinum
sem lögðu áherslu á að „skipta ,
um alla forystuna i flokknum”. i
Einstaka raddir komu fram um
það að konurnar ættu að taka
þar öll völd. Unnur Benedikts- ■
dóttir frá Sjálfstæðiskvenna- |
félagi Árnessýslu benti til
dæmis á það hversu miklu úrval* I
ágætiskvenna flokkurinn hefði á
að skipa, sem gætu tekið við for- ,
ystunni. Skv. frásögn Morgun-
blaðsins segir Unnur:
Unnur Benediktsdóttir:
Sjálfstæðisfiokkurinn á fjöl
margar úrvalskonur brenn-
andi af sjálfstæftisáhuga!!
Matthiasararmurinn I Sjálf-
stæðisflokknum eflist.
,Brennandi af
sjálfstæðisáhuga ”\
,,Við eigum fjölda kvenna
sem eru mjög frambærilegar til
forystu á ýmsum sviðum og
standa þær karlmönnunum ekk-
ert að baki nema siður sé. Tök- !
um t.d. þessar glæsilegu konur
sem voru með framsöguerindi
hér á þinginu. Þær fluttu fram-
úrskarandi og ógleymanlegar !
ræður sem voru ekkert þvöglu-
mælt fagurgalaskvaldur. Ragn-
hildur Helgadóttir og Sigurlaug ]
Bjarnadóttir eru þekktar fyrir !
að vera aldrei með neitt öfund- J
sýkismærðartal. Svanhildur I
Björgvinsdóttir frá Dalvik, I
mikil hugsjónakona, og Sigriður J
Þórðardóttir, hinn ungi og ■
glæsilegi oddviti Grundar- I
fjarðar, allar voru ræður þeirra I
rökfastar, og fluttar á kjarn- ,
góðu og þróttmiklu máli. Slikar ■
konur þurfa að vera i forystu, að I
ég tali nú ekki um formann I
okkar, Margréti S. Einars- ,
dóttur, sem mér finnst sköru- ■
legur og traustvekjandi forystu- I
maður og svo hinn ötula for- I
mann Hvatar, Björgu Einars- ,
dóttur, sem er alveg brennandi ■
af sjálfstæðisáhuga”.
Bó
og skorio
Samdráttur í bílainnf lu tningi
Samkvæmt skýrslu frá Hagstofu
islands, hefur orftift samdráttur i
bílainnflutningi tslendinga fyrstu
þrjá mánuði ársins, ef miftaft er
vift innflutning á biium á sama
tima i fyrra. t skýrslu þessari
kemur fram aft i fyrra voru fluttir
inn 2.035 nýir fóíksbilar á tima-
bilinu jan. -mars, en nú nær tala
þeirra afteins 1.307 þaft sem af er
árinu.
Mest er flutt inn af bilum frá
Japan, Sovétrikjunum og Frakk-
landi.
Vert er aö geta þess við þennan
samanburð aö bilainnflutningur
tslendinga var óvenjumikill á
fyrstu 6 mánuðum ársins i fyrra.