Þjóðviljinn - 22.05.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 22.05.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. mal 1981 Umbætur í 1------1 vegamálum nauð- synlegustu og arð- bærustu fjárfesting- ar í þjóðfélaginu Eins og greint hefur veriö frá hér á þingsíðunni þá var vega- áætiunin til afgreiðslu á Alþingi nylega. Geir Gunnarsson, (AB), formaður fjárveitingarnefndar mælti fyrir nefndaráliti meiri- hluta nefndarinnar þar sem hann greindi helstu atriði vegaáætlun- arinnar. Hér fer á eftir hluti af ræöu hans sem hann flutti við þetta tækifæri. Eitt af viðkvœm- ustu þingmálunum Það er jafnan svo við afgreiðslu vegáætlunar að glöggt kemur i Ijós, að þar er f jallað um það mál- efni sem hvað viðkvæmast er þingmönnum. Ég hefi þá reynslu, að enda þótt afgreiösla fjárlaga sé að sjálfsögðu umfangsmeiri og spanniyfirfjölþættara svið en af- greiðsla vegáætlunar, þá sé af- greiðsla vegáætiunar þó að ýmsu leytierfiðariog vandrataðri leiðir til þess samkomulags um skipt- ingu fjármagns og heildaraf- greiðslur, sem jafnan er leitað eftir. Enda taka allir háttvirtir alþingismenn þátt i þeirri skipt- ingu fjármagns innan einstakra kjördæma sem f járveitinga- nefndin leggur siðan fram sem sinar tillögur, og nákvæmlega er vegið og metið hvert hver einasta króna fer. í greinargerð með þeirri þings- ályktunartillögu um vegáætlun, sem hér er til afgreiðslu, var tdc- ið fram að nauðsynlegt kynni að reynast að taka rammaskiptingu vegáætlunarinnar til endurskoð- unar ef verðlagsforsendur rösk- uðust. Þjóðhagsstofnun hefir nii sent frá sér nýja spá um þróun ( verðlags 1981 og er samkv. henni talið að meðalhækkun verðlags milli áranna 1980 og 1981 verði 52% f stað 42%, sem var forsenda i þingsályktunartillögunni. Jafn- framt er nií viö það miðað að meðalverðlagshækkun frá 1981—1982 verf* 35% i stað 30% i þingsályktunartill. Þessar breytingar á forsendum valda 7% hækkun á grunni áætl- unarinnar fyrir árið 1981 og 15.2% hækkun árin 1982—1984. Afleiðingar þessara breyttu verðlagsforsend na koma óhjákvæmilega fram i bundnum liðum vegáætlunarinnar og myndu valda skerðingu á fram- kvæmdaliðum áætlunarinnar ef ekki væri séð fyrir hliðstæðri hækkun tekna frá þvi sem gert er ráð fyrir i þingsályktunartill. Breytingartillögur nefndarinn- ar eru miðaðar við þessar breyttu verðlagsforsendur, og ennfremur er nii gert ráð fyrir greiðsluhalla á vegáætlun frá 1980 sem reyndist 3.300 þUs. I vetrarviðhaldi og 1.350 þUs. kr vegna lakari innheimtu markaöra tdcna en gert hafði verið ráð fyrir eða samtals 4.650 þús. kr. Útgjöldin 2,1 % þjóðarframleiðslu Til þess að mæta þessum út- gjaldaauka jafnframt þvi sem miðað er við aö heildarUtgjöld til vegamála nemi 2.1% af vergri þjóðarframleiðslu og vöxtur hennar verði 2.5% á ári, er i til- lögum nefndarinnar gert ráð fyrir aukningu tekna frá þvi sem greinir i þingsályktunart illögunni með þeim hætti, að bensingjald verði hækkað einu sinni á þessu ári, þ.e. upp Ur miðjum mai, i þeim mæli sem lagaheimildir leyfa, og að þungaskattur hækki 1. jUnf n.k. i' samræmi við hækkun byggingavisitölu frá 1. jan. — 1. april á þessu ári. Hækka þá markaðir tekjustofnar Vegasjóðs um 13.5 milj. kr 1981, en lántökur munu hækka um 10.1 milj. kr. frá þvi sem greinir i þingsályktunar- tillögunni vegna aukinna lánveit- inga frá Framkvæmdastofnun rikisins og lánveitinga frá heima- aðilum i' Eyjafirði. Lánveitingar frá Framkvæmdastofnun rikisins munu þá nema 25.8 milj. kr. i ár, og gert er ráð fyrir hliðstæðum lánveitingum á siöari árum veg- áætlunarinnar. Vegna breyttra verðlagsfor- sendna og þeirrar auknu tekjuöfl- unar sem fyrr er getið hækka markaðir tekjustofnar frá áætlun i þingsályktunartillögunni, svo sem fyrr er sagt, um 13.5 milj. kr. 1981. Arið 1982 hækka þessir tekjuliðir um 30.8 milj. kr., árið 1983 um 32.2 milj. kr. og 1984 um 33.3 milj. kr., en i þvi sambandi er þess að geta, að verðlagsforsend- ur eru þær varðandi árin 1982—’83 og '84, að gert er ráð fyrir 35% meðaltals veröhækkun milli ár- anna 1981 og 1982, en útgjalda- og tekjutölur fyrir árin 1983 og 1984 eru settar fram á sama verð- grunni og 1982, enda kemur veg- áætlun til endurskoðunar á árinu 1983. Þegar verðlagsforsendur hafa verið endurmetnar nema heildar- útgjöld til vegamála skv. till. fjárvn. á árinu 1981 411 milj.460 þús.kr. á árinu 1982 582 milj. 300 þús.kr. á árinu 1983 597 milj. 350 þús.kr. á árinu 1984 612 milj. 500 þús.kr. Nýmœli i tillögunum Það er nýmæli i tillögum fjár- veitinganefndar að lagt er til að halda eftir óskiptu fjármagni til nýframkværiTda á siðari árum áætlunarinnar, þ.e. 10% fjár- magnsins á árinu 1982 og 20% á árinu 1983, en fjárveiting á síð- astaári er öll óskipt að öðru leyti en þvi að framlagi til sérverkefna er skipt á einstakar framkvæmd- ir einnig á árinu 1984. Þessi tillaga að skipta ekki öllu fjármagni til nýframkvæmda á árunum 1982 og 1983 er gerð i þvi skyni að draga úr llkum á þvi að endurskoða þurfi vegáætlun ár- lega eins og þurft hefir að gera undanfarin ár, auk þess sem auð- veldara ætti að vera ef þessi regla er notuð að standa aö reglubund- inni endurskoðun annað hvert ár. Gert er ráð fyrir þvi að þvi óskipta fjármagni til fram- kvæmdaþátta, sem ekki er bundið við ákveðin kjördæmi verði ráð- stafað i samráði við fjárveitinga- nefnd, en óskiptu fjármagni til stofnbrauta og þjóðbrauta verði ráðstafað til almennra verkefna i hverju kjördæmi samkvæmt ákvörðunum þingmanna viðkom- andi kjördæmis. Við gerð siðustu vegáætlana hafa verið notaðar ákveðnar hlut- fallstölur tilað ákvarða skiptingu fjármagns milli kjördæma, ann- ars vegar i stofnbrautir og hins vegar i þjóðbrautir og var þá miðað við umferðog ástand vega- kerfis eins og það var 1976. Fjár- veitinganefnd endurskoðaði þær reglur sem lágu til grundvallar þessum hlutfallstölum bæði út frá þvi sjónarmiði að umferð og ástand vegakerfis innan ein- stakra kjördæma hefir breyst, og hins vegar var endurskoðað gildi einstakra þátta sem áhrif hafa á hlutfallstölur. Niðurstaðan var sú að sam- þykkt var i nefndinni með öllum atkvæðum gegn einu að breyta þessum hlutfallstölum nokkuð og nota einn aukastaf i útreikningum hlutfallstölunnar en áður höfðu verið notaðar heilar tölur. Vegna þess að fyrir árið I ár er um að ræða endurskoðun fjár- veitinga, sem þegar hafði verið skipt i fyrri vegáætlun er eldri hlutfallstala látin gilda áfram i ár, og ákveöið var að fyrir árið 1982 gilti meðaltal fyrri hlutfalls- tölu og nýrrar, en síðan ný hlut- fallstala Ur þvi. Hér er um að ræða eitt við- kvæmnismálið við skiptingu vegafjár, en þess ber að geta, aö þessar hlutfallstölur ráða þó ekki skiptingu nema hluta fram- kvæmdafjárins, þvi að fjárveit- ingar til bundinna slitlaga, sér- verkefna og brúa nema talsvert hærri upphæðum en fjárveitingar til stofnbrauta og þjóðbrauta. Brýnustu verkefnin Þegar rætt var i fjárveitinga- nefnd um brýnustu verkefni i vegamálum komu óhjákvæmi- lega til sérstakrar athugunar þeir hlutar vegakerfisins þar sem vegfarendum stafar tiðum lifs- hættaaf skriðuföllum, grjóthruni og snjóflóðum en þar er einkum um að ræöa ólafsfjaröarmúla, Ólafsvíkurrenni og Óshlið milli Bolungarvíkur og Isafjarðar. Á öllum þessum stöðum standa nú yfirathuganir og rannsóknir á þeim valkostum sem til greina koma til úrbóta og kostnaði við þá. Meðan þessum störfum er ólokið er ekki unnt að gera neinar raunhæfar tillögur um fram- kvæmdir eða röðun þeirra, en ljóst er að um er að ræða mjög kostnaðarsamar framkvæmdir. Lausleg ágiskun bendir til að heildarkostnaður yrði um 200 milj. kr. á verðlagi i ár, eða um 20 miljarðar gamalla króna. Umbœtur í vegamálum arðbœrustu fjárfestingarnar Óhætt er að fullyrða að sam- staða er meðal þingmanna um, að varanlegar úrbætur i vegamálum eru einhverjar nauðsynlegustu og arðbærustu framkvæmdir sem þjóðin getur staðið að, og er þá ekki einungis um að ræða kalda arðsemisútreikninga heldur eru áhrif bættra samgangna mikil- væg I félagslegum efnum og geta fremur en flest annað skipt sköp- um um byggðajafnvægi og fé- lagslegt jafnrétti meðal ibúa landsins. Ýmsar aðstæður geta valdið þvi að ekki reynist unnt að leggja fé til þessara nauðsynlegu fram- kvæmda i' þeim mæli sem al- mennt er sóst eftir, enda er i mörg horn að líta um fram- kvæmdir j heilbrigðismálum orkumálum, skólamálum og öðr- um þáttum samgöngumála en vegamálum, og til skamms tima hafði sú þróun staðið um alllangl árabil, að fjárveitingar til ný framkvæmda i vegamálum rýrn uðu að raungildi ár frá ári. Á þessu varð mjög veruleg breyting meö samþykkt vegáætl unar 23. mai 1979, þegar fjárveit ingar til nýbygginga vega voru auknar svo, að á sl. ári jukust ný framkvæmdir að raungildi um 52% frá næsta ári á undan.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.