Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. júnl 1981 Frá F ramhaldsskólanum í Neskaupstað Nú i haust tekur til starfa i Neskaupstað nýr framhaldsskóli, sem tekur við hlut- verki Gagnfræðaskólans og Iðnskóla Austurlands. Skólinn heitir Framhaldsskólinn i Nes- kaupstað (F.Í.N.). Innritun nemenda á haustönn stendur nú yfir. Hægt er að hefja nám á eftirtöldum brautum: Iðnbraut málmiðna (fyrsta önn) Iðnbraut rafiðna (fyrsta önn) Iðnbraut tréiðna (fyrsta önn) Verknámsbraut tréiðna Heilsugæslubraut 2 íþróttabraut 2 Sjávarútvegsbraut 2 Viðskiptabraut 2 Almennar bóknámsbrautir — Grunnnám. Fornám (ath. aðeins á haustönn) Lýst er eftir nemendum i þriðja áfanga iðnbrauta (samkvæmt námsskrá Iðn- fræðsluráðs). Heimavistarhúsnæði fyrir hendi. Upplýs- ingar veita skólastjóri Gagnfræðaskólans i sima 7285 eða 7698 og skólafulltrúi i 7147 og skal umsóknum skilað til þeirra. Umsóknarfrestur um skólavist er til 1. júlí. Skólanefnd Neskaupstaðar. Laus staða Staöa kennara i eðlis- og eínafræði á framhaldsskólastigi við Kvennaskólann i Reykjavik er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt itarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist skólastjóra fyrir 10. júli nk. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytiö, 10. júni 1981. Laus staða. Staöa lektors i félagsfræði i Kennaraháskóla Islands er laus til umsóknar. Lektornum er ætlað að kenna bæði í kjarna og valgrein kennaranámsins. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 10. júii n.k. Menntamálaráðuneytið, 10. júni 1981. AUGLÝSING UM UNDANÞÁGU FRÁ ÁKVÆÐUM 5. gr. laga nr. 85/1968, um eiturefni og hættuleg efni varðandi innflutning og sölu á blöndum ricinusoliu (laxeroliu) og metanóls. Með stoð i 21. gr. laga nr. 85/1968 um eitur- efni og hættuleg efni hefur ráðuneytið með reglugerð, útgefinni i dag, veitt verslun- um, sem til þess hafa fengið sérstakt leyfi ráðherra, heimild til þess, að fengnum meðmælum eiturefnanefndar, að flytja inn og selja sem eldsneyti á módelmótora blöndur ricinusoliu (laxeroliu) og metanóls án þess að til kaupanna þurfi sérstök leyfi eins og gert er ráð fyrir i reglugerð nr. 131/1971. Magn ricinusoliu i þessum blöndum skal minnst vera 20%. Leyfi þessi eru bundin nánari skilyrðum um ilát, merkingar, varðveislu o.fl., er eiturefnanefnd ákveður. Framangreint auglýsist hér með skv. 21. gr. laga nr. 85/1968. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 5. júni 1981 Frá h.: Herborg Guðjónsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, Guð- mundur Egilsson og Vigfús Hallgrimsson, en þeir skipa sýningarnefndina. — Mynd: —eik. Þróun rakin í 114 ár: Sýning Félags heyraarlausra Þá rekur Félag heyrnarlausra, i samstarfi við Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra, skrifstofu i Félagsmiðstöðinni að Skólavörðustig 21. Er þar veitt þjónusta við heyrnarlausa eftir þvi sem unnt er hverju sinni. Framkvæmdir við endurbætur á húsnæðinu hafa veriö kostnað- arsamar, en fjármögnun þess byggist að lang mestu leyti á happdrætti. Nýlega er sala hafin á happdrættismiöum og treystir félagið á stuðning samborgar- anna nú sem fyrr. Núverandi for- maður félagsins er Hervör Guð- jónsdóttir. Sýningin, „Þróun i málum heyrnarlausra i 114 ár” er fram- lag félagsins i tilefni ALFA-árs- ins. Hún verður opin næstu fjórar vikur alla daga frá kl. 14—16.30. —mhg ( gær var opnuð á vegum Félags heyrnarlausra sýn- ingin „Þróun í málum heyrnarlausra í 114 ár'Vog er hún í húsakynnum fé- lagsins að Skólavörðustíg 21. Það var borgarstjórinn í Reykjavík, Egill Skúli Ingibergsson, sem opnaði sýninguna, með ávarpi. Sá, sem fyrstur beitti sér fyrir þvi að farið væri að sinna málum heyrnarskertra var sr. Páll Páls- son i Þingmúla, og var það árið 1867. Þróun skólans og saga er rakin á sýningunni i máli og myndum, allt frá upphafi til þessa dags. Mánuðum saman hefur verið unniö aö undirbúningi sýningarinnar, enda er það ekk- ert smáræðis starf, sem að baki henni býr. Félag heyrnarlausra var stofn- aö 11. febr. 1960. Starfsemi þess hefur farið sivaxandi og aldrei veriö meiri en nú. Arið 1977 festi þaö kaup á húsnæöi við Skóla- vöröustig 21, efri hæö og er þaö nú i standsetningu. Félagiö tekur þátt i norrænu samstarfi og hefur það oröiö þvi mikil lyftistöng. Gefin hefur veriö út Táknmálsbók meö tæpum 1550 táknum. Unniö er at ikrásetningu fleiri tákna og er að þvi keppt, að standa jafn- fætis Norðurlöndunum á þessu sviöi. Félagiö hefur áhuga á aö tiltækir verði hérlendis táknmáls- túlkar svo aö heyrnarlaust fólk geti tekið þátt i fundum og ráð- stefnum á jafnréttisgrundvelli viö heyrandi fólk. A meðan félagiö vantar túlka er þaö ekki hægt. i > Alþýðusamband íslands hvetur allt launafólk til þess I ImI SÞCII ■ 153^ M**H*mi d Cií I fatlaðra með þatttoku i útifundi Sjálfsbjargar á Lækjartorgi 13. júníkl. 13.30

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.