Þjóðviljinn - 25.06.1981, Qupperneq 3
Fimmtudagur 25. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Loðnuveiðarnar hefjast 10. ágúst
617.200 lestum
skipt á 52 skip
Sjávarútvegsráöuneytið hefur
skipt 617.200 lesta loðnukvóta
næstu vertíðar milli 52 loðnu-
veiðiskipa, samkvæmt reglugerð
sem gefin hefur verið út um veið-
ar á loðnu á haustvertið 1981 og
vetrarvertið 1982. Heildaraflan-
um erlfktog á siðustu vertið skipt
eftir stærð loðnubáta samkvæmt
tiilögum Landssambands is-
lenskra útvegsmanna.
I samráði við Hafrannsóknar-
stofnun, LttJ, samtök sjómanna
og verksmiðjueigenda hefur
sjávarútvegsráðuneytið ákveðið
að leyfa loðnuveiðarnar frá og
með 10. ágúst n.k.
í reglugerð fyrir veiðarnar eru
loðnuskipum nú heimilt að veiða
82.615 lestir af loönu i fiskveiði-,
lögsögu Jan Mayen. Allar loðnun
veiðar eru bannaðar utan fisk-
veiðilögsögu Islands og Jan
Mayen og á tímabilinu frá 10.
ágúst til og með 14. september
eru allar loðnuveiðar bannaðar
sunnan 68. gráðu n.br. og vestan
21. gráðu v.lgd. Sjávarútvegs-
ráðuneytið mun ákveöa siðar
hvenær veiðum lýkur á Jan
Mayensvæðinu, og afli fenginn
eftir þann tima við Jan Mayen
verður gerður upptækur sam-
kvæmt lögum. Þá áskilur ráöu-
neytiðsérþann réttað getastöðv-
að allar veiðar á ákveðnum svæð-
um tiltekinn tima þyki ástæða til
m.a. vegna verndunarsjónar-
miöa.'Einnig getur ráðuneytið
ákveðið hækkun eða lækkun á
leyfilegu veiðimagni loðnuskip-
anna, komi til breytinga á leyfi-
legu heildarveiöimagni, en haf-
rannsóknarstofnun mun ekki
leggja fram endanlegar tillögur
um hámarksafla fyrr en eftir
bergmálsmælingar á miðunum i
kringum næstu áramót.
Mestan loðnuafla 18.800 lestir,
má lfkt og i' fyrra Eldborgin Ur
Hafnarfirði veiða, en Sigurður
RE fylgir fast á eftir með 17.300
lestir.
Hin loðnuveiðiskipin 50 mega
veiða sem hér segir:
Tveir þátttakendur lesa málfræðilegar upplýsingar af tölvuskerm-
inum. — Ljósm: Eik
Norrænt námskeið við H.I.:
,Máltölvun’
Nú stendur yfir I húsnæði Raun-
visindastofnunar Háskólans
harla óvenjulegt námskeið. Þar
er fjallaö um það cfni sem á is-
lensku hefur verið kallað „mál-
tölvun,” og fjallar eins og heitið
gefur til kynna um notkun tölva
við málvisindaleg úrlausnarefni.
Námskeiðsstjóri er Baldur Jóns-
son ddsent við Háskdlann en hann
verður að teljast frumkvööull
töl vunotkunar i þessum visindum
hér á landi. Þátttakcndur eru 20,
þar af einn frá islandi.
Námskeið á þessu sviði hafa
verið haldin áður á Norðurlönd-
um en þetta er hið fyrsta sem
haldið er hér á landi. Baldur
Jónsson sagði við blaðamann
Þjóðviljans i gær að hann teldi
það mikinn heiður fyrir Háskól-
ann að fá aö halda þetta nám-
skeið, hér héldu fyrirlestra hinir
þekktustu menn á þessu sviði og
nefndi til Jerry R. Hobbs frá
Stanford Research Inst. i
Kali'forni'u, Maurice Gross
prófessor við Parisarháskóla og
Sture Allén frá Gautaborg. Allén
er þar prófessor og forstöðumað-
ur sænskrar stofnunar sem unnið
hefur brautryöjendastarf i notkun
tölvu i málvisindum.
Helsta viðfangsefnið á þessari
ráöstefnu verður á sviöi svokall-
aðrar merkingarfræöi, en hingað
til hafa tölvur einkum verið not-
aöar til að finna tíðni orða og
orðasambanda i texta en Baldur
Jónsson hefur einmitt unniö slika
rannsókn, hina fyrstu á Islandi.
Þar var skáldsagan „Hreiðrið”
eftir Olaf Jóhann Sigurðsson lögð
til grundvallar. Slikar athuganir
á tiðni orða eru hagnýttar i
kennslu tungumála fyrir Utlend-
inga, m.a. i þvi að finna hvaða
orðaforða ber að leggja mesta
áherslu á i upphafi námsins.
Námskeiðinu lýkur þriðja júli.
Lánskjaravísitalan:
Hækkar um 6 stig
Samkvæmt tilkynningu frá
Seðlabanki islands er láns-
kjaravisitala fyrir júnimánuð 251
stig. Við töluðum við Eirik
Guðnason hagfræðing hjá Seðla-
baukanum ogspurðum hann hvað
þetta þýddi.
Eirikur sagði að lánskjaravisi-
tala væri reiknuð út frá visitölu
framfærslukostnaöar og bygg-
ingavisitölu þannig að sú fyrr
talda vegur 2/3 og sú siðar talda
1/3 i útreikningi. Verðtryggð inn-
ogútlán hækka siðan eftir þessari
visitölu, sömuleiðis spariskirteini
og skyldusparnaður.
Siðustu tólf mánuði nam
hækkunin samkvæmt lánskjara-
visitölu 50.3% en hækkunin sið-
ustu þrjá mánuði svarar til 37.0%
hækkunar á 12 mánuðum. Ef að-
eins er tekinn júnimánuður, en þá
var lánskjaravisitalan i 245 stig-
um svarar það til 33.7% hækk-
unará tólf mánuðum. Lánskjara-
visitalan er reiknuð út mánaðar-
lega. — í
Albert GK . .. 10.800
ArsællKE ... 9.400
BeitirNK ... 16.800 Gullberg VE .. 10.800
BergurVE ... 10.000 Hafrún IS .. 11.000
Bjarni Ólafsson AK .... . . . 14.800 Haförn RE .. 11.400
BörkurNK ... 15.100 Harpa RE .. 11.100
Dagfari ÞH . .. 10.200 Hákon ÞH .. 12.400
FffillGK ... 11.000 HeimaeyVE . 10.200
GigjaRE .. HelgalÍRE . . 10.300
GIsíi Arni RE ... 11.000 Helga Guðmundsd. BA .. .. 11.900
Grindvíkingur GK ... 14.800 HilmirSU .. 16.500
GuðmundurRE ... 13.300 Hilmir II SU .. 10.500
HrafnGK ............. 11.300
HuginnVE ............... 10.800
HUnaröstAR .......... 11.000
Isleifur VE........... 9.400
Jón Finnsson RE ..... 10.800
Jón Kjartansson SU.... 14.800
JUpiterRE............ 16.500
KapIIVE.............. 11.400
Keflvikingur KE...... 10.100
KrossanesSU ......... 10.600
Ljósfari RE.......... 10.400
MagnUsNK ............ 10.200
Óskar Halldórsson RE .... 9.400
Pétur JónssonRE ..... 12.500
Rauðsey AK........... 10.500
Seley SU ............. 9.400
Sigurfari AK......... 12.900
SkarðsvikSH.......... 10.800
SkímirAk.............. 9.500
SUlan EA............. 12.400
SvanurRE............. 11.400
SæbergSU ............ 10.700
SæbjörgVE ........... 10.900
VikingurAK........... 16.800
VikurbergGK.......... 10.200
Þórður Jónasson EA.... 9.900
ÞórshamarGK.......... 10.700
örnKE................ 10.600
r
Fyrsti viðkomustaður:
Gunnarshólmi
<
Q
►—»
%
&
r4Rt
Fyrsti viðkomustaður ferðalang-
anna i Sumarferð ABR verður sá
frægi Gunnarshólmi. Þar ílytur
formaður ABR ávarp og aðalfarar-
stjórinn, Jón Böðvarsson lýsa stað-
háttum. Gunnarshólmi er eins og
allir vita vettvangur eins hins
dramatiskasta atburðar i Njálu og
er ekki að efa að Jón sem er einn
frægasti leiðsögumanna um Njálu-
slóðir hafi fróðlega hluti i poka-
horninu þegar i hólmann kemur.
Þorleifur Hauksson mun siðan
flytja kvæði Jónasar, Gunnars-
hólma.
Þorleifur Hauksson les
Gunnarshólma Jónas-
Þorbjörn Guðmundsson
flytur ávarp.
Stakkholtsgjá —Iimstihaus
Eitt af sérstæðustu náttúrufyrirbærum sem
verða á vegi manna á leið i Þórsmörk er Stakk-
holtsgjáin. Þar verður að sjálfsögðu numið stað-
ar og geta menn valið á milli þess að skoða gjána
eða fræðast af Siguröi G. Tómassyni jarðfræð-
ingi um þau undur sem uröu árið 1967 er hluti af
svokölluðum Innstahaus hrundi ofan á Stein-
holtsjökul. Sigurður mun ganga með mönnum
þar nærsvæðis og lýsa atburðum fyrir fylgdar-
mönnum sinum.
Haldið inn í Þórsmörk
Rett áður en komið verður að
Krossá verður numið staðar og
Jón Böðvarsson mun enn á ný
fræða viðstadda og nú um sögu
og staðhætti i Mörkinni sjálfri
sem mun blasa við úr áningar-
staðnum. Siðan veröur haldið
yfir Krossá og inn i Þórsmörk
og komið i Litlaenda sem verður
áningarstaður þeirra sem dvelj-
ast I Mörkinni yfir nóttina. Það-
an verða svo skipulagðar skoð-
unarferðir um Þórsmörk báða
dagana og reynt að stilla svo til
að allir fái eitthvað við sitt hæfi.
Tjaldbúðir verða reistar i Litla-
enda og verður gjald fyrir hvert
tjald kr. 6 og 3 krónúr fyrir
hvern tjaldbúa.
Þeir sem aðeins ætla i eins
dags ferð fara aftur til Reykja-
vikurkl. 17.00 en hinir sem eítir
verða munu aö likindum efna til
kvöldvöku um kvöldið og hagir
menn á hljóðíæri hvattir til að
láta ekki sitt eftir liggja, né þeir
sem að hafa raddböndin að leika
á.
A morgun munum við kynna
nánar þær skoðunarferðir sem
fyrirhugaðar eru meðan á Þór-
merkurdvölinni stendur.
Arni
Björn
Guðmundur
Siguröur
Þorbjörn
Valinn maður í hverri rútu
i Þórsnierkurfcrðinni um helgina verða valin-
kunnir fararstjórar i hverri rútu, auk aðalfarar-
stjórans, Jóns Böðvarssonar sem heldur öllum
þráðum I hendi sér. Aðrir fararstjórar verða
þessir: Arni Björnsson þjóðháttafræðingur, dr.
Björn Þorsteinsson, Guðmundur Magnússon
verkfræðingur, Þorbjörn Broddason lektor og
Sigurður G. Tómasson jarðfræðingur.
SKRANINGU LYKUR A HADEGI A MORGUN