Þjóðviljinn - 29.07.1981, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mibvikudagur 29. júli 1981
T ónlis t arkennara
vantar i byrjun næsta skólaárs að nýstofn-
uðum tónlistarskóla i Vogum, Vatnsleysu-
strönd.
Aðal kennslugreinar: Pianó og blokk-
flauta.
Ráðið verður til eins árs. íbúðarhúsnæði
fyrir hendi.
Allar upplýsingar veittar hjá Ragnheiði
Guðmundsdóttur, i sima 92-6651.
Sandgerðingar athugið!
Þjóðviljann vantar umboðsmann i
Sandgerði frá næstu mánaðamótum að
telja. Þeir sem áhuga hafa á starfinu snúi
sér vinsamlega til framkvæmdastjóra
Þjóðviljans i sima 81333.
Siðumúla 6
s. 81333
Frá Sjálfsbjörg — félagi
fatlaðra i Reykjavik
Kveðjusamsæti með Norðmönnunum sem
eru hér i heimsókn verður haldið i Sjálfs-
bjargarhúsinu, Hátúni 12, 1. hæð, föstu-
daginn 31. júli kl. 21.30.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins i
sima 17868.
Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar
óskar að ráða starfsmann i eftirtaldar
stöður sem fyrst:
A. Pöntunaríulltrúa til starfa i pöntunar-
deild. Verslunarmenntun æskileg.
Enskukunnátta nauðsynleg.
B. Ritara til starfa við verðútreikninga,
reikningsútskrift, telex og fleira. Vélrit-
unar- og enskukunnátta nauðsynleg.
Laun skv. kjarasamningi starfsmanna-
félags Reykjavikurborgar.
Umsóknir er greini upplýsingar um fyrri
störf, menntun og fleira, skulu sendar for-
stjóra Innkaupastofnunarinnar fyrir
föstudaginn 7. ágúst n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Þjóðviljann vantar blaðbera!
Oss vantar blaðbera sem fyrst!
Granaskjól — Sörlaskjól (1. ágúst)
Efstasund — Skipasund (1. ágúst)
Brúnastekkur og nágr. (Afleysing i ágúst)
UOBUUINN
Síðumúla 6 — Slmi 81-333
Eiginmaður minn,
Magnús Kjartansson,
fyrrverandi ritstjóri, er látínn.
Kristrún Agústsdóttir.
Skákþing Norðurlanda:
Eirai v inningur sldhir að
efcía og tkmda mann
5. umferð i úrvalsflokki á Skák-
þingi Norðurlanda var tefld á
mánudagskvöld. Baráttugleðin
virðist nú nokkuð tekin að glæðast
hjá keppendum. þvi að fimm
skákum lauk með sigri, en aðeins
einni með jafntefli. Slagurinn um
efsta sætið jafnaðist einnig mikið.
Aðeins einn vinningur skilur nú
að efsta og tiunda mann og þvf er
ógjörningur að spá nokkru ennþá
um hverjir muni standa uppi með
pálmann i höndunum. Af islend-
ingunum virðist Guömundur nú
liklegastur til aö blanda sér i
toppbaráttuna en hann deilir nú
efsta sætinu með Norðmanninum
Hclmers og Svianum Ornstein
með 3 1/2 vinning.
Staðan er nú þessi:
1.—3. Guðmundur 3 1/2
Ornstein (S) 3 1/2
Helmers (N) 3 1/2
4.—5. SchiissIer(S) 3
Kristiansen (D) 3
6.—10. Hcim (N) 2 1/2
Helgi 2 1/2
Hdi (D) 2 1/2
Raastc (Fi) 2 1/2
Rantancn (Fi) 2 1/2
11. Margeir 1
12. Hansen(Fær) 0
Hetja okkar frá þvi i gær, Helgi
Ólafsson, virtist alveg heillum
horfum i skák sinni gegn Danan-
um Kristiansen. Helgi beitti Sikil-
eyjarvörn og voru eitthvað mis-
lagðar hendur i byrjuninni. Dan-
inn náði kröftugri kóngssókn sem
Helgi réði ekkert við og lagði
hann þvi niður vopnin eftir 29
leiki.
Helmers
Ekki blés heldur byrlega hjá
Margeiri gegn Raaste frá Finn-
landi, sem valdi sjaldséð afbrigði
gegn Sikileyjarvörn Margeirs.
Finninn vann peð i miðtaflinu og
siðan annað og þegar Margeir sá
fram að Raaste fengi sér nýja
drottningu gafst hann upp.
Hansen tefldi einnig Sikileyjar-
vörn gegn Guðmundi. Guð-
mundur gaf Færeyingnum aldrei
minnstu færi og innbyrti vinning-
inn af öryggi stórmeistarans.
Með þessum sigri skaust Guð-
mundur upp i efsta sætið.
Sviinn SchDssler var enn við
sama heygarðshornið og kom
jafntefli i höfn eins og venjulega
gegn Hcri frá Danmörku sem nú
hefur gert jafntefli I öllum skák-
um sinum á mótinu. Ekki er þó
hægt að sakast við Danann sem
barist hefur vel í öllum skákun-
um.Sama verður þó ekki sagt um
Schiissler sem nú hefur teflt 18
skákirá íslandi og gert jafntefli i
16 þeirra. Vonandi gefst honum
senn tækifæri til þess að komast
upp fyrir 20 leiki áður en hann
semur jafntefli.
Rantanen stöðvaði sigurgöngu
Ornsteins sem tefldi opna af-
brigðið fspænska leiknum en það
var mjög til umræðu i einvigi
þeirra Karpovs og Kortsnojs á
Filippseyjum. Sviinn fór með
drottningu sina i sannkallað
feigðarflan inn fyrir viggirðingar
Finnans, sem ekici var lengi á sér
að króa hana inni og gafst Orn-
stein þá upp.
Skák umferðarinnar var tvi-
mælalaust skák Norðmannanna
Heim og Helmers sem tefldi
kóngsindverska vörn. Helmers
fórnaði riddara i tólfta leik fyrir
tvö peð og fékk upp mjög öfluga
miðborðsstöðu. Skömmufyrir bið
lék hann litillega af sér og gaf
Heim kost að fórna riddaranum
til baka. Biðstaðan virtist jafn-
teflisleg en möguleikar Helmers
voru þó i'við betri. Heim tefldi
vörnina vel eftir bið og i þann
mund sem hann var að koma
jafntefli ihöfn lék hann skákinni i
tap. Þetta var þvi sannkölluð
baráttuskák þótt ekki gæti hún
talist galialaus. Með sigrinum er
Helmers kominn i efsta sætið
ásamt Guðmundi og Ornstein.
Hvitt: Svcrre Heim (N)
Svart: Knul J. Helmers (N)
Kúngsindversk vörn.
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. Rc:$-Bg7
4. g3-0-0
5. Bg2-d6
6. Rf3-Rc6
7. ()-0-a(>
8. h3-Hb8
9. e4-b5
10. ef.-Rd7
11. cxb5-axb5
12. Rg5?!
Heim sem hefur teflt byrjunina
heldur varfærnislega gefur nú
Helmers tækif æri á að hleypa öllu
i bál og brand. Svarleikur
Helmers er stórskemmtilegur.
12. ...dxe5!
13. Bxc6-exd4
14. Rc2
Ekkigekk aðleika 14. Rxb5vegna
14. -Re5. Svartur hefur nú öll tök á
miðborðinu fyrir manninn.
14. —h6
15. Rf3-e5
16. Rel-Rc5
17. h4 ?
Slæmur leikur. Hviturskiiur nú
eftir holu fyrir svart á c3. Betra
var 17. Rd3 með óljósri stöðu eða
17. Bg2.
17. —Ra4
18. Rd3-Bxh3
19. IIel-Bf5
20. f3-Hb6
21. Bc4-Bc8
22. Itc5-f5
23. Bd3-Kh7
24. Kg2-Dd5!
25. Bd2-Rxc5
26. bxc5-Bb7
Hrókurinn á b6 er aö sjálfsögðu
friðhelgur vegna 27. -Dxf3+
27. Rgi-Dxc5
28. Hcl-Dd6
29. Ba5-Hc6
30. Bxb5-Hxc 1
31. Dxcl-c5
32. Bc4-e4?
Hér var eflaust betra að leika
32. -f4.
33. Rh3-Bd5
34. Rf4-Bxc4
35. Dxc4-Hc8
36. fxe4-fxc4
37. Rh3-De5
38. Bb6!-e3
39. Bxc5-Hc8
40. Dxd4-Dxd4
41. Bxd4-Bxd4
Hér fór skákini'bið. Heim tókst
á siðustu stundu að fórna til baka
og hefur nú góða jafnteflismögu-
leika.
42. Rf4-g5
43. Rd5-Hc2 +
44. Kf3-Hxa2
45. Rxe3-Ha3
( 46. Ke4-Bc5
47. R f5- K gö
48. Hfl-hS
49. Kd5-Ha2
50. Hf3-Ha8
51. Kxc5-Ha5+
52. Kd4-Hxf5
53. Ke4-Hxf3
54. Kxf3-Ke6
55. Ke4? ?
Hér varð hvitur að leika 55. Kf2
og heldur þá andspæninu og jafn-
teflinu þar með. T.d. 55. -Kf7 56.
Kfl! o.s.frv. eða 55. -Ke6 þá 56.
Ke2! o.s.frv.
55. —Kd5!
rNú nær svartur hins vegar and-
spæninu.
56. Kf3-Kd5
57. Ke3-Ke5
58. Kf3-Kd4
59. Kf2-Kd3
60. Kf3-g4+
Hvitur gafst upp. Framhaldið
gæti orðið 61. Kf4-Ke2 62. Kg5-Kf3
63. Kxh5-Kxg3 og svartur vinnur.
Kvennaflokkur
Þremur umferðum er nú lokið i
kvennaflokki. Islensku stúlk-
urnar raða sér i efstu sætin þegar
og sýnt virðist að Norðurlanda-
meistari kvenna falli Islending-
um i' hlut eins og i þrjú siðustu
skipti.
Staðan er nú þessi:
1. Aslaug 2 v. af 2
2.—3. Sigurlaug 1 1/2 af 2
Ólöf 1 1/2 af 2
4.—5. Stewart (D) 1 1/2 af 3
Assmundsson (S) 1 1/2 af 3
6.-7. Ebba 1/2 af 3
Grahm (S) 1/2 af 3
Fyrirlestrar
Suetins
Sovéski stórmeistarinn Suetin,
sem þjálfað hefur islenska skák-
menn að undanförnu heldur tvo
fyrirlestra um skák fyrir almenn-
íng i Menntaskólanum i Hamra-
hlið. Verður sá fyrri á fimmtu-
dagskvöldið kl. 20 og fjaliar um
skákathuganir. Seinni fyrir-
lesturinn verður á laugardag kl.
14 og fjallar hann um iistina að
sundurgreina. Skákáhugamenn
i2ru eindregið hvattir til aö mæta.
Bra gi Halldórsson