Þjóðviljinn - 02.09.1981, Qupperneq 8
8 síÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 2. september 1981
Mibvikudagur 2. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA
Likanið af Alhambra höllinni.
Samúel Jónsson á tali við Guðrúnu Þórðardóttur frá Skeiði I Selárdal. Myndin er tekin I júli 1962, og er fengin hjá Bergljótu Björnsdóttur. Aðrar myndir teknar af — vh.
Lítill pistill í tilefni mistaka við myndbirtingu
Myndbirting I Þjóðviljanum
nýlega meöan undirrituð var i
sumarfrii, rifjaði upp gamlar,
óljósar minningar. Birt var mynd
af altaristöflu, sem nú er til sýnis
á Listasafni ASl og er vel viö
hæfi, þvi hún er eftir einn af þess-
um gengnu alþýöulistamönnum,
sem þráðu svo heitt, en máttu sin
svo litils I krefjandi lifsbaráttu
heimsins, Samúel Jónsson I Sel-
árdal, sem reyndar var alltaf
kallaður Sammi gamli I Krossa-
dal i minni sveit.
Við þessar óljósu minningar
hefði setið ef ekki hefðu komiö til
mistök viö myndbirtinguna, til-
komin af skiljanlegri vanþekk-
ingu, með altaristöflunni var
semsé birt mynd af leifum ibúð-
arhúss Samúels á Brautarholti I
Selárdal og sagt, að þarna væri
komin kirkjan sem Sammi gamli
byggöi utanum altaristöfluna.
Vökulir lesendur sem til þekktu,
bentu ritstjórn á þetta og þá rifj-
aðist upp, að einhverntima, ekki
alllöngu eftir fráfall listamanns-
ins hafði ég komið þarna, skoðað
og ekki getað látið vera að smella
af nokkrum myndum. Filmunnar
var leitað og ákveðið aö leyfa
fleirum að sjá.
Sitthvað var skrifaö um
Samma gamla einsog aðra og
áreiðanlega þótti hann smáskrýt-
inn að vera að fást við svona alls-
konar dútl sem engar voru tekj-
urnar af. En vel séður gestur var
hann ÍTálknafiröinum og smiöaöi
sitthvað smálegt fyrir heimasæt-
ur og húsmæöur, svosem hillur
undir puntuhandklæði sem þá
voru f tisku í eldhúsum, og fleira
þessháttar, og útsaumsmynstur
og stafi dró hann upp marga.
Fyrirsjómennina gerði hann skil-
iri af bátunum þeirra og prýða
margar slikar myndir stofuveggi
þar vestra. Sjálf á ég einn hlut
sem Sammi smiðaði, smokköng-
ul, sem ég læt kertin min hanga i.
Þaö var ekki fyrr en ég kom i
Selárdal, að þaö rann upp fyrir
mér hver ævi þessa manns heföi
raunverulega verið. En eftir aö
hann fluttist þangað og fór aö fá
fyrstu föstu tekjurnar, ellistyrk-
in.i, gat hann leyft sér að kaupa
léreft og liti, byggingarefni og
fleira, og ekki sist gat hann leyft
sér að gefa hugðarefnunum allan
sinn tima. Nú skyldi byggt og
mótað.jhúsiö átti að vera i hallar-
liki, — þar átti aö koir.a listasafn,
altaristaflan i tilheyrandi kirkju,
myndastyttur i garöinn. Stytturn-
ar eru úr steypu, —- sjómaður,
selur rostungur, svanur...., slðast
en ekki sist eftirmynd ljónagos-
brunnsins við Alhambra höllina á
Spáni. Þvi Samúel dáði fagra
byggingarlist og inni listasafninu
sem verða átti voru líkön sem
hann hafði smiðað af tveim feg-
urstu byggingum i heimi að hans
áliti: Alhambra höllinni og Pét-
urskirkjunni i Róm.
Amboðin og annað sem Sammi
hafði notað við styttusteypuna og
hallarsmiðina lá enn þarna i
kring, vaskaföt, dollur allskonar,
gróf mót smiðuð úr tré....
Það var með kökk i háls sem ég
yfirgaf staðinn og hugsaði um
ófullnægða feguröar- og sköpun-
arþrána, menntunarmöguleika
sem ekki gáfust, vanmáttinn, en
fyrst og siðast drauminn, —
drauminn stóra. — vh
Cr húsi Samma. A boröinu er Ilkan Péturskirkjunnar.
Tvö Alhambra ljónanna.
Rjstungurinn freistar ungra...
Sjómaður horfir til hafs.
Listasafniðáttiaðvera I hallarliki, með hvolfþökum, súlum og skreytingum.
Cr listaverkagarðinum iSelárdal — fjærstljónagosbrunnurinn.
Kirkjan var smiðuð utan um altaristöfluna.