Þjóðviljinn - 03.09.1981, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. september 1981
Kannað-
ar fóður-
blrgðfr
Vegna hins mikla kals sem
varö i túnum viöa um land og
þess hve tíöarfar hefur viöa veriö
erfitt, svo aö Iskyggilega horfir
sumstaöar meö fóöuröfiun, hef
ur landbúnaðarráöherra nú skip-
að nefnd „til þess aö kanna
ástand þessara mála, gera ráöu-
neytinu grein fyrir þeim og gera
tillögur um aögeröir, sé þeirra
talin þörf”.
I nefndina voru skipaðir: Gisli
Hjörleifsson, bóndi Unnarholts-
koti að tillögu Stéttarsambands
bænda, Jónas Jónasson, búnaðar-
málastjóri að tillögu stjórnar
Búnaöarfélags tslands,og Stefán
A. Jónsson, bóndi Kagaðarhóli,
sem er formaður.
Nefndin hefur tekið til starfa og
skrifaö öllum sveitarstjórnum
með beiðni um að kannaðir veröi
hið fyrsta.eðastrax og séð verður
fyrir lok heyskapar, hvort um
verulegan fóðurskort veröi að
ræða i sveitarfélaginu eða hjá
einstökum bændum.
Reiknað er með þvi, að siðar
verði boðaö til funda meö oddvit-
um á þeim svæðum þar sem horf-
ur eru taldar alvarlegar.
Bændur eru jafnframt hvattir
til aö hafa samband við sveitar-
stjórnir og greina frá þvi hvort
þeir þurfiaðkaupa hey eða annað
fóður umfram venju, eða hvort
þeir telji sig hafa hey til sölu.
Þá er vakin athygli á þvi, að
sveitarstjórnir hafa heimild til að
stöðva heysölu út fyrir sveitarfé-
lagið, ef heyskortur er talinn yfir-
vofandi innan þess.
Nefndin leggur áherslu á að
könnun þessi fari hvarvetna fram
svo fljótt sem tök eru á og að
henni berist umbeönar upplýsing-
ar fyrir 20. sept.
Er þetta gert með það fyrir
augum að yfirlit fáist yfir þessi
mál og hægt verði að skila hugs-
anlegum tillögum og taka afstööu
til þeirra fyrir lok sláturtiðar.
—mhg
Kryolit
frá
Græn-
landi
Að sögn Axels Gislasonar,
framkvstj. hefur Skipadeild SÍS
gertsamning um flutning á miklu
magni af kryoliti frá Ivigtut á
Grænlandi til Kaupmannahafnar.
Kryolit er steintegund, sem unnin
er i grænlenskum námum. Þegar
hafa tvöskip, Hvassafell og Mæli-
fell, farið með fullfermi, samtals
5000 tonn. Næsti farmur verður
lestaður nú upp úr mánaðamót-
um.
Flutningar þessir hafa gengið
mjög vei, en þeir byrjuðu raunar i
fyrra. Þá flutti Skipadeildin 7.500
tonn þessa leið en i ár verða að
likindum flutt um 12.500 tonn.
____________—mhg
Búvörudeild SÍS:
25%
yeltu-
aukning
Á fyrra helmingi þessa árs
jókst útflutningur Búvörudeildar
SIS um 23,6% frá sama tima i
fyrra og varð 101 milj. kr. Innan-
landssalan jókst um 22,9% og<
varð 81 milj. kr. Sala kjötiðnaðar-
stöðvar jókst um 56,4% og varö 15
milj. kr. Varð heildarsala deild-
arinnar þannig 197 milj. kr., sem
er 25,2% aukning frá fyrra helm-
ingi ársins 1980. —mhg
Goða
réttlr
renna út
Tilbúnu Goðaréttunum i neyt-
endaumbúðunum frá Kjötiðn-
aðarstöð Sambandsins hefur ver-
ið tekið mjög vel. Þeir komu á
markaðinn viku af júli og það,
sem eftir var mánaðarins seldust
13.300 skammtar. Framleiðslan
hefur jafnharðan flogið út og
vafalaust verið hægt að selja
meira ef haft hefði verið undan
með tilbúninginn. Þvi hefur enn-
þá ekki verið unnt að fara með
kynningar út um land og salan þvi
til þessa mesta á Reykjavlkur-
svæðinu.
—mhg
Þessi mynd af hjúkrunarheimili frá nokkuö óvanalegu sjónar- innar sem rokiö hefur upp á
aldraöra viö Snorrabraut er tekin horni, —ofanaf þaki byggingar- undanförnum mánuöum.
Ljósm.—gel.
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri hjá
Amarflugi
Gunnar Þorvaldsson flugstjóri
hefur tekið við stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Arnarflugi en
Magnús Gunnarsson lætur nú af
störfum að eigin ósk eftir rúm-
lega fimm ára starf.
Gunnar Þorvaldsson er einn af
stofnendum Arnarflugs og hóf
störf þarsem flugmaður, en varð
siðan flugstjóri, flugrekstrar-
stjóri og nú siðast aðstoðarfram-
kvæmdastjóri, áður en hann tók
viö starfi framkvæmdastjóra.
Verðlauna-
garðar í
Garðabæ
Rotaryklúbburinn Görðum hef-
ur veitt viðurkenningu fyrir fagra
skrúðgarða i Garðabæ. Viður-
kenningu hlutu hjónin Kristin
Guömundsdóttir og Ingibjartur
Þorsteinsson fyrir vel skipulagð-
an og framúrskarandi vel hirtan
skrúðgarð að Espilundi 1 og hjón-
in Asrún Guðbergsdóttir og Krist-
ján P. Vilhelmsson fyrir fagran
skrúðgarð með óvenju f jölbreytt-
um gróöri að Breiðási 1.
Söluaukning
hjá ISC
Guöjón B. Ólafsson, framkvstj.
Iceland Seafood Corporation i
Bandarikjunum, segir rekstur
fyrirtækisins ganga vonum fram-
ar, miöaö viö markaösaöstæöur.
Fyrstu 7 mánuöi ársins varö 7%
söluaukning hjá fyrirtækinu, taliö
i doliurum. Sala á fiskréttum
framleiddum I fyrirtækinu jókst
um 2% aö magni og i fiakasölu
varö 14% magnaukning. Til sam-
anburöar má geta þess, aö fyrstu
mánuöi ársins er taliö aö 8% sam-
dráttur hafi oröiö i neyslu fisk-
rétta i Bandarikjunum i heild.
Guðjón sagði markaðinn hafa
verið erfiðan undanfarið, sam-
keppni hörð og verð á þorsk- og
ýsublokk lækkandi. I mailok
hækkuðu þorskflök hinsvegar um
12,5%. Samkeppnin við Kana'da
menn hefur verið mjög erfið þvi
þeirra flök hafa ekki hækkað
heldur öfugt. Guðjón taldi ekki
breytinga að vænta á markaðnum
fyrr en breyting til hins betra yrði
á efnahagsástandi i Bandarikjun-
um, sem naumast yrði fyrr en á
næsta ári.
—mhg
Ge*'***'
Málefni fanga koma öllum við
Fjöldi ógæfusamra íslendinga lendir í fang-
elsi árlega. Félagasamtökin Vemd vinna að
því að hjálpa þessu fólki til að hefja nýtt og
betra líf. Einn af þáttum h jálparinnar felst í
útgáfu tímarits Verndar, sem fjallar um það
sem verið er að gera í fangahjálpinni.
Kynntu þér fangahjálpina í riti Verndar.
Meðal efnis í ritinu:
• Heimsókn í kvennafangelsiö á Akureyri
• Fylgst meö starfi Skilorðseftirlitsins
• Afdrif geösjúkra manna í fangelsum
- ráöstefna Verndar um mál þeirra
• Sagtfrá starfi Verndar
Fæst á blaðsöhistöðum
í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfírði
T Fangahjálpin
\ Félagasamtökin
VCJ. 1 ÍUL Vernd
Gimli v/Lækjargötu, sími 21458