Þjóðviljinn - 12.09.1981, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 12.09.1981, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.—13. september 1981 leiklist Leitlistamannsins aöfegurö — Raimo Grönberg I Jumala on Kauneus. Hinn 18. ágúst siöastliöinn var sett i Tampere i þrettánda sinn hin árlega leiklistarhátiö Finna sem ber nafníö Tampereen Teatt- erikesa, leiklistarsumar i Tampere. Þaö var litt sumarlegt viö þessa setningarathöfn sem fór fram undir berum himni i rign- ingu og kulda. Menn sátu þó þolinmóöir undir regnhlifum og hlustuöu á ræöur um stööu finnska leikhússins. Kunnugir sögöu mér aö þetta væri i fyrsta skipti sem veöriö brygöist á þess- ari hátiö. Hingaö til heföi ævin- lega veriö unaöslegt bliöviöri. En þaö fór litiö fyrir þvi þessa fimm daga sem ég dvaldist i Tampere. r Anægjuleg lífsmörk Viö opnunina voru auövitaö fluttar ræöur. Fyrst taiaöi maöur frá menntamálaráöuneytinu og sagöi aö þaö væri lítiö af pen- ingum. Þaö þóttuengar sérstakar fréttir. Reyndar er öllu menn- ingarlifi I Finnlandi haldiö uppi af rikishappdrættinu og iþróttunum reyndar lika. Finnar viröast hneigjast nokkuö til fjárhættu- spils. Siöan talaöi Jukka Kajava, sem er aöalgagnrýnandi Helsingin Sanomat og einna virtastur manna i sinni stétt I Finnlandi. Hann velti fyrir sér þeirri spurn- ingu hvort endurnýjun væri i gangi i finnsku leikhúsi og sagöi aö tvennt væri aö minnsta kosti til marks um að enn væri i þvi nokkurt líf. I fyrsta lagi sýna deil- urnar milli leikhúsanna og yfir- valda aö leikhúsin hafa eitthvað að segja sem máli skiptir. i ööru lagi hefur orðiö mikil og gleöileg endurnýjun i leikhúsunum utan hinna heföbundnu miöstööva. Þaö sem er aö gerast markverkt I finnsku leikhúsi gerist ekki aöeins i Helsinki, Tampere og Turkku, heldur einnig i Lappeenranta, Kajaana og Vasa. Þessi útkjáíka- leikhús hafa skyndilega breyst úr þvi aö vera nánast daufur endur- hljómur af stóru leikhúsunum i það aö veröa forystuliö kraftmik- illa nýjunga. Þrjár sýningar frá Lappeenranta Lappeenranta er borg i Suður Kareliu. Þar búa tæplega 60.000 manns. Leikhúsiö þar er af svip- aöri stærö og Leikfélag Reykja- vikur, hefur á aö skipa fimmtán fastráönum leikurum og fær um 40—50,000 sýningargesti á ári hverju. Frumsýningar eru venju- lega 6 á ári. Þaö heyrði til nýj- unga á þessari Tamperehátiö aö leikhúsinu i Lappeenranta var boöiö aö koma meö þrjár sýn- ingar á hátiöina. Þessar sýningar voru þaö skemmtilegasta sem ég sá i Tampere. Þær voru fluttar fram af miklum krafti og eldmóöi, þær höföu sterka skirskotun til mál- efna sem eru hvaö efst á baugi um þessar mundir, en þær slökuðu hvergi á listrænum kröf- um til þess aö koma boðskap áleiöis, þær voru fyrst og fremst gott leikhús. Verkin sem um er aö ræöa voru R.U.R. eftir Karel Capek (skrifaö 1921), Tohvelis- ankarin rouva (Kona kúgaös eiginmanns) eftir finnska höfund- inn Maria Jotuni (skrifað 1924) og Armotin idylli eftir Jukka Kivistö og Kai Lippanen (skrifaö 1980). Grunntónninn i þessum verkum er i fyrsta tilvikinu enda- lok mannkynsins, I ööru staða kvenna og samskipti kynjanna og i hinu þriöja örvænting ungs fólks sem velferöarrikið býöur ekki upp á annaö en atvinnuleysi og vonleysi. Capek og Jutuni Karel Capek (sá sem skrifaöi Salam öndrustriöiö) samdi R.U.R: Rossum’s Universal Robots.árið 1921 og varö heims- frægur fyrir. Þaö fjallar um iön- jöfra og visindamenn sem hafa framleitt gervimenn sem eru nánast alveg eins og venjulegt fólk. Græögi þeirra og skamm- sýni veröur til þess aö vélmennin taka völdin og mannkyniö ferst. Aðeins er eftir einn liffræöingur sem heyr vonlitla leit að lifsneist- anum. Mannkyniö er glatað, en þá gerist undriö i lokin: tvö vél- mennanna veröa ástfangin hvort af öðru. Ný von glæðist. Boöskapur þessa verks er mjög timabær um þessar mundir þegar mannkynið viröist staöráöiö i að tortima sjálfu sér. Sýningin, undir stjórn Kari Paukkunen, var á köflum mjög sterk sjónrænt séö þar sem hún stillti upp ráðvilltum mönnunum annars vegar og ógn- andi vélmennunum hins vegar, en leikrit Capeks er gallaö og leikur- inn var misjafn þannig aö i heild skorti á aö þessi sýning tækist til fullnustu. Þaö geröi hins vegar uppsetn- ing Juha Malmivaara á klassisku leikriti Mariu Jotuni frá 1924, Tohvelisankarin rouva, sem mundi útleggjast Kona kúgaös eiginmanns. Þetta er gleðileikur um ástina og sambönd kynjanna margvisieg og gert stólpagrin aö allri væmni og vellu i þeim efn- um. Kvenréttindaboöskapur verksins er mjög sterkur, án þess aö höfundur láti hann nokkurn timann hefta kimnigáfu sina eöa skarpskyggni, og heföbundnar hugmyndir karlmanna um eigiö ágæti og mikilvægi fá óspart á baukinn. Þetta var töluvert mikið stil- færö uppsetning og leikiö mjög sterkt til áhorfenda, en hún var beinskeytt og uppáfinningasöm i leikrænum lausnum og tókst aö koma þessu gamla verki hressi- lega til skila, gera þaö virkt i nú- timanum. Miskunnarlaus velferð Þriöja sýningin frá Lappeen- ranta var jafnframt sú forvitni- legasta. Splunkunýr pönkrokk- söngleikur sem ber nafniö Armoton idylli, sem mætti út- leggjast Miskunnarlaus velferö. Höfundur textans er Jukka Kvistö en tónlistin er eftir Karl Litmanen. Verkiö er miskunnar- laus afhjúpun á rotnum innviöum velferöarrikisins séö meö augum ungs atvinnulauss skálds, sem horfist i augu viö þá niöurlægingu sem ungt fólk viröist óhjákvæmi- lega þurfa aö þola, og rifur vægöarlaust niöur innantóm gildi eldri kynslóöarinnar og eftirsókn hennar eftir efnalegum verömæt- um. Skáldiö gefur aö lokum skit i þaö sem hann kallar Disneyland sósialdemókratanna, hann neitar að vinna eða ieita sér aö vinnu þar til þessi heimskulega eftir- sókn eftir hlutum tekur enda. Þetta var misjöfn og stundum skipulagslaus sýning og verkið vafalaust gallaö á marga lund, en þaö verkaöi óhemjulega sterkt sem örvæntingaróp ungs fólks og átakanleg lýsing á nöturlegum Skáldiö á leiö út úr velferðarrlkinu — Armoton Idylli.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.