Þjóðviljinn - 08.10.1981, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 08.10.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. október 1981 — Það skiptir held ég miklu máli að talað sé við krakkana af hreinskilni og cinlægni. Og þeir vilja láta tala við sig eins og þeir væru fullorðið fólk, þvi sjálfir lita þeir ekki lengur á sig sem börn. Eitthvað á þessa leið mælti Gylfi Pálsson, skólastjóri við Varmárskólann i' Mosfellssveit, er við Gunnar ljósmyndari sátum inni i kenna rastofunni hjá honum sl. föstudag, ásamt þeim ómari Ægissyniog Jóhanni Emi Héðins- syni. Þeir félagar, ómar og Jóhann, gegna fræðslufulltrúastörfum hjá SAÁ og voru nú að enda við aö rabba við krakkana. Komið var að fundarlokum er blaðamann og ljósmyndara Þjóðviljans bar að garði. Krakkarnir sátu hvar sem auðan blett var að finna nema á ofurlitilli kringlu, þar sem þeir stóðu Ómar og Jóhann, töluðu til skiptis við hina ungu áheyrendur og gáfu þeim þessá milli færi á að bera fram athugasemdir og spurningar. Að lokum sagði svo Gylfi skólastjóri nokkur orð. Ennú var fundi slitiöog við sát- um með kaffibolla inni á kenn- arastofu. Við spurðum Gylfa fyrst hvort þetta væri fyrsta heimsókn- in, sem hann fengi, þessarar teg- undar. — Nei, þetta er i þriöja sinn, sem menn frá SÁÁ koma hingaö þessara erinda. Fræðsla þeirra félaga er ekki hvað sist i þvi fólg- in, að skýra afleiðingar ofdrykkj- unnar i ljósi þeirrar reynslu, sem þeir hafa sjálfir orðiö fyrir. Þeir fara ekki með utanaðlærða ópersónulega lexiu, þeir segja sina eigin sögu, skýra frá eigin reynslu. Og mér finnst að þeir hafi náð vel til krakkanna. — Og Ómar og Jóhann, þið eruð fræðslufulltrúar SÁÁ. Starfið þið mikiö i skólunum? — Já, við gefum öllum grunn- skólum á landinu kost á að fá okk- ur i heimsókn. Og við höfum nóg að gera. Viðerum nýkomnirvest- an af Snæfellsnesi, nú erum viö hér og á næstunni förum við til Isafjarðar. — Er langt siðan SAA-menn byrjuðu á þessum skólaheim- sóknum? — Þetta er þriðja árið, sem unnið er skipulega að þessari starfsemi. Forráðamenn skól- anna hafa tekiðokkur mjög vel og sýna þessari starfsemi mikinn skilning. Megintilgangur okkar er að upplýsa unglingana um vanda- málin, sem ofdrykkjunni fylgja, svo þeir eigi auðveldara með að bregöast rétt við þeim, verði þau á vegi þeirra sjálfra. — Og hvernig bregðast krakk- arnir við boðskap ykkar? — Sjálfsagt misjafnlega en oft gerist það, að á eftir koma krakk- artilokkar og vilja vita meira um það, sem við höfum verið aö ræða við þá um. — Hver kostar þessa starf- semi? — Við erum sjálfboðaliðar en bæði sveitarfélög og verkalýðsfé- lög hafa lagt fram fjármuni til stuðnings starfsemi SAA. Kainsla er hafin. Gylfi skóla- stjóri leyfir okkur að lita inn i einn bekkinn. Þar er verið að kenna dönsku. Viö spyrjum krakkana hvernig þeim hafi likað þessi heimsókn og hvað þeir haldi um áhrif hennar. Svörin voru ósamhljóða: Mjög gott og fræð- andi. Hundleiðinlegt. Oft er gam- an að gera það, sem er bannað. Maður trúir varla þvi', sem þeir eru að segja, getur þetta virki- lega verið svona? Það er nú þannig, að þegar sáð er i stóran akur með misjöfnum jarðvegi þá verður uppskeran ekki allsstaðar á eina lund. En menn hætta ekki að sá þó að rækt- unarstarfið geti verið sein- unniö. —mhg „Mér fínnst að þeir nái vel til krakkanna” Ómar Ægisson ræö:r við áhugasaman fundarmann. A bak við þá standa þeir Gylfi Pálsson, skóiastjóri og Jóhannes örn iféðinsson. Mynd: —gel. Krakkarnir sátu hvar, sem auöan blett var að finna. Hér ræðast þeir við I kaffistofunni Gylfi Pálsson, skólastjóri og Ómar Ægisson. Mynd: — gel. Með SÁÁ-mönnum í Varmárskóla Fimmtudagur 8. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 . Hlustað af athygli. Mynd: — gel. Það voru skiptar skoðanir 19. bekknum, eins og gengur og gerist I þjóðfélaginu Engir hlývindar, blésu þennan haustdag en þó sátu þau fyrir dyrum úti i fundarhléinu. Frá v.: Anna Silfa Þorsteinsdóttir, Þórunn Sverrisdóttir, Guðmundur Hreinsson og Kjartan Valdimarsson. Mynd: —gei. Ritgerðir um mannleg fræði Mál og túlkun heitir safn rit- gerða um mannleg fræðimeð for- spjalli eftir próf. Pál Skiilason, sem Hið islenska bókmenntafélag gefur út. I ritgerðinni Textafræöi eftir Jakob Benediktsson er fjallað um þá fræöigrein sem margir telja helstu uppsprettu rannsókna i sagnfræði, bókmenntafræði og málfræöí. Tvær ritgerðir fjalla um túlkun sögunnar. 1 Sagnfræði og sögu- speki eftir Inga Sigurösson er efnið rætt i viðu samhengi, en i ritgerðinni Orsakaskýringar i sagnfræðiræðirGunnar Karlsson um efnið meö hliðsjón af einu grundvallaratriði i sagnfræði. Þrjár ritgerðir fjalla hver með sinum hætti um túlkun texta. ter- indinu Bókmenntir og bók- menntatúlkun fjallar Vésteinn Ólason um efnið á breiðum grunni og veitir yfirlit yfir svið bók- menntafræðinnar. 1 ritgerðinni Ritskýring og túlkun Bibliunnar ræðir Gunnar Kristjánsson um efnið I tengslum við það rit sem er undirstaða kristinnar trúar. t Nokkur hugtök og úrlausnarefni i túlkunarfræði leitast Páll Skúla- son við.að skýra fáein mikilvæg atriði i fræðigrein sem staðið hefur i nánum tengslum við textafræði, ritskýringu, sagn- fræði og bókmenntafræöi. Að siðustu fjailar Halldór Halldórsson um það efni sem öllum ber að sinna og ekki sist þeim sem við visindi og fræði fást. Fyrirlestur hans nefnist Um málvöndun. Kennslu - bókí veður- fræði Út er komin á vegum IÐUNNAR ný og endurskoðuð út- gáfa Veðurfræði eftir Markús A. Einarsson. Bókin er kennslubók ætluð framhaldsskólum . Er fjallaö um almenn undirstööuat- riði veðurfræðinnar og reynt að gera það á svo auöskilinn hátt aö lesa megi bókiua án verulegrar eðlisfræðiþekkingar, segir i formála höfundar. Bókin skiptist i tlu kafla: Veöurfræði, Loft- hjúpurinn; Geislun og orkuskipti; Hitafar; Loftþrýstingur og viudar; Raki, ský og úrkoma; Loftmassar; Skil og lægöir; Veðurskeyti, veðurkort og veður- spár; Veðurfar. 1 bókinni er fjöldi skýringarmynda. I þessari nýju útgáfu hefur siðustu köfjlunum tveimur veriö breytt talávert. Bætt er við efni um tæknileg hjálpartæki og veöurlag á Islandi. I siöasta kafla er aukið við efni um hitabreyt- ingar á tslandi frá landnámi og um þætti sem móta veðurfar landsins. — Veðurfræði er 108 blaðsiður, Oddi f»-entaði Stjómmála samband við Kólombíu Rikisstjórnir Islands og Kól- ombiu hafa tekiö upp stjórn- málasamband. Ekki hefur verið ákveöið hvenær skipst veröur á sendiherrum, aö þvi er segir i frétt frá utanrlkisráöuneytinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.