Þjóðviljinn - 13.11.1981, Side 5

Þjóðviljinn - 13.11.1981, Side 5
Föstudagur 13. nóvember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Ólafur Jónsson, formaður stjórnar Húsnæðisstofnunar Húsby gg j endur í vanda Grein Jóns Hjartarsonar á Kirkjubæjarklaustri varþörf áminning Þaö hefur lengi verið ljóst að ein mikilvæg orsök verðbólgunn- ar hér á landi er vanræksla stjórnvalda við að framkvæma raunhæfar aðgerðir i húsnæðis- málum. A þessa staðreynd hefur verkalýðshreyfingin minnt stjórnvöld við hverja kjarasamn- inga i tvo áratugi. Stundum hafa tekist samningar um einstakar framkvæmdir i húsnæðismálum en ekkert lánakerfi hefur verið til hér á landi sem valdið hefur þvi verkefni að fjármagna ibúða- byggingar með viðunandi hætti. Hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa um áratugi búið við viðtækt fé'- lagslegt lánakerfi til ibúðabygg- inga og telja það mikilvæga for- sendu fyrir góðum lifskjörum og jafnvægi i efnahagsmálum. Nú þegar kjarasamningar eru aðhefjasthjá öllum launastéttum landsins erum við alvarlega minnt á þennan v^nda með grein Jóns Hjartarsnar skólastj- sem birtist hér i blaðinu á þriðjudag- inn. Hann skýrir þar á hressileg- an hátt frá vanda sinum sem hús- byggjanda og setur upp dæmi um fjárhagsstöðu sem margir kann- ast við sem staðið hafa i húsbygg- ingum. Fyrir nokkrum árum var fjármáladæmi Jóns Hjartarsonar auðleyst og ekkert áhyggjuefni. Verðbólgan leysti vandann, laun- in hækkuðu en vixlarnir ekki. Lánin voru raunverulega afskrif- uð hjá lántakanda á kostnað þeirra sem lögðu fjármagnið inn á banka. Við sem byggðum okkur ibúðarhús fyrir einum eða tveim áratugum eignuðumst okkar hús með þessum hætti. Margir gera sér grein fyrir þessu fjármála- ævintýri og eru svolitið feimnir þegar þeir eru að greiða broslega lágar fjárhæðir i afborganir af sinum húsnæðislánum. Þessi mismunandi aðstaða fólks i hús- næðismálum skapar i dag meira misrétti i þjóðfélaginu en nokkuð annað. Mismunur á launaflokk- um er aukaatriði i samanburði við það misrétti sem skapast af misjöfnum fjármagnskostnaði á eigin ibúð. Grein Jóns er þvi þörf og rétt- mæt áminning til stjórnvalda og þá sérstaklega til þeirra sem nú eru að setjast að samningaborði tilþessaðsemjaum betri og jafn- ari lifskjör launastéttanna. Þeir sem i fullri alvöru vilja jafna lifskjörin i landinu eiga nú að ganga beint að þvi verkefni að jafna húsnæðiskostnaðinn. Við sem fengum ibúðir okkar að verulegu leyti á kostnað þjóðfé - lagsins þolum hærri skatta. Þeir sem lentu i vitahring vaxtaauka- lánaog verðtryggingar með sinar ibúðir þurfa ótvirætt bráða fyrir- greiðslu. Okkur sem störfum að húsnæðismálum nú um skeið hef- ur verið ljóst að vaxtahækkun og verðtrygging lána skapar mikinn vanda hjá húsbyggjendum. Við höfum leitast við að skýra það fyrir þeim sem stjórna fjármál- um þjóðarinnar. Ekki er raunhæft að leggja til að taka upp fyrri hætti i lánamál- um. Verðtrygging sparifjár og út- lána er óhjákvæmileg i einhverri mynd við núverandi aðstæður, en þeirri kerfisbreytingu verða að fylgja aðrar ráðstafanir. Fjár- festingarlán til ibúðabygginga og fleiri framkvæmda verður að hækka verulega og lengja láns- timann. A þeirri nauðsyn er litill skilningur hjá stjórnendum bank- anna. Þaðkom berlega i ljós þeg- ar tekist var á um breytingar á lausaskuldum húsbyggjenda á liðnu sumri. Þar þarf aftur að taka upp bar- áttu fyrir bættum lánakjörum og taka fastar á en gert var þá. Um allt það sem hér hefur verið sagt erum við Jón Hjartarson væntan- lega sammála og ég er einnig sammála mörgu sem fram kem- ur i greinhans,en um annað er ég ekki sammála og vil ég þar sér- staklega nefna tvö atriði. Jón virðist telja það einhverja lausn á vanda húsbyggjenda að standa fast á kröfunni um grunn- kaupshækkun. Hækkun launa get- ur átt rétt á sér af m örgum ástæð- um, en hún bætir i engu stöðu hús- byggjenda sem nú eru i mestum vanda. Verðtryggðu lánin hækka samkvæmt sömu visitölu og laun- in svo að staðan verður óbreytt. Okkar staða sem erum með ó- verðtryggð lán batna hinsvegar við hvert heljarstökk visitölunn- Ég vil einnig mótmæla eindreg- ið þvi áliti sem fram kemur i grein Jóns að núverandi rikis- stjórn hafi litið gert fyrir hús- byggjendur. Eitt af fyrstu verk- efnum rikisstjórnarinnar var að fásamþykkta á alþingi löggjöf serr eftir mörgum leiðum opnar möguleika til lausnar á þvi öng- þveiti sem hér hefur rikt i hús- næðismálum. Samþykkt laganna hefur verið fylgt eftir með þvi að stórauka fjármagn til lánasjóða húsnæðismálastjórnar. Ráðstöf- unarfé lánasjóðanna var aukið um 70% á milli áranna 1980 og 1981 og aftur verður það aukið um að minnsta kosti 60% á næsta ári. Er þarna um 20% til 30% aukn- ingu að ræða umfram verðhækk- anir. Slikt átak hefur ekki áður verið gert i húsnæðismálum. Mikið vantar á að allur vandi verði leystur með þessu átaki og Or ieikriti Kópavogsleikhússins „Aldrei er friður”. Sigriöur Ey- þórsdóttir og Baldur Hólmgeirsson I hlutverkum sinum ólafur Jónsson enn hefur ekki verið tekið á vanda þeirra sem verst urðu úti þegar kerfisbreytingin var að ganga yfir. Vanræksla liðinna áratuga i húsnæðismálum verður ekki bætt með einu átaki. en mestu máli skiptir að nú er af festu og einurð á málunum tekið. Að lokum vil ég segja það að ó- maklegt er að áminna verkalýðs- hreyfinguna um skilningsleysi á gildi húsnæðismála. Það sem hér hefur vel verið gert i húsnæðis- málum er meira að þakka verka- lýðshreyfingunni en nokkrum öðrum aðila i þjóðfélaginu. Ólafur Jónsson. Kópavogsleikhúsið sýnir „Aldrei er fridur eftir Andrés Indriðason 55 Leikfélag Kópavogs hóf sitt 25. leikár með sýningu á nýju leikriti eftir Andrés Indriöa- son, cr heitir „Aldrei er friður” og er hann jafnframt leikstjóri. Leikritið er gamanleikur i þremur þáttum og fjallar um fjölskyldu hjónanna Guðrúnar Sigurpálsdóttur og Haraldar Sveinbiörnssonar, sem búa ásamt tveim börnum sinum i Kópavogi. Þrettán manns koma fram i sýningunni en frumsýning var i Kópavogsleikhúsinu á fimmtudagskvöld. sýning er á sunnudag kl. 15.00. Leikritið verður siðan sýnt á laugar- dags- og fimmtudagskvöldum og kl. 15.00 á sunnudögum. í tilefni aö ársafmœli J.L. Matvörumarkaöarins bjóöum viö: VÖRUKYNNINGAR KL. 2-8 í dag föstudaginn 13. nóvember 1. Hangikjöt frá Kaupfélagi Borgfirðinga 2. Hangikjöt frá Kaupfélagi Eyfirðinga 3. Kaffikynningu frá O. Johnson og Kaaber h/f 4. Nýbakaðar pönnukökur með kaffinu Heppnir viðskiptavinir fá lukkumiða frá eftirtöldum fyrirtækjum, föstudag og laugardag: Halldór Jónsson h/f, Sigurver s/f, Opalh/f, Móna h/f, Plastprent h/f, Vifilfell h/f, ölgerðin Egill Skallagrímsson h/f, Skipholt h/f, Guðmundur Pálsson og Co, Blindravinnustofan, Rydens—kaffi, Síld og Fiskur, Lakkrísgerðin Krummi, Halti Haninn, Máttur h/f, islensk Ameriska h/f, Eggert Kristjánsson h/f, O. Johnson og Kaaber h/f, H. Ben og Co. h/f, Asgeir Sigurðsson h/f, Natan og Olsen h/f, John Lindsay h/f, Kaffibrennsla Akureyrar Sápugerðin Sjöfn, Kexverksmiðjan Holt, Nói, Sirius og Hreinn, Kexverksmiðjan Frón h/f, Ásbjörn ólafsson h/f, Kaupfélag Borgfirðinga, kjötiðnaðarstöð, Kaupfélag Eyfirðinga kjötiðnaöarstöð, Orah/f, Sanitas h/f, Faxafell, Húnf jörð Blönduósi, Jón Gunnarsson og Co., Sápugerðin Mjöll, Sápugerðin Frigg, Veislumiðstöðin, Mjólkursamsalan, Myllanh/f, Grensásbakarí, Bakarinn Leirubakka, Smjörliki h/f, Sól h/f, Osta- og Smjörsalan s/f, Bananar h/f, Síldarréttir s/f, Plastosh/f, S. óskarsson og Co., Duni-umboðiö h/f, Markland, Afurðasala SIS, Jón Hjartarson& Co., Islensk Matvæli, H. ólafsson og Bernhöft, Dreifing h/f, isfískur s/f, Plastos h/f, Ingvar Herbertsson, Kaupsel s/f, Daníel ólafsson h/ fí Kristján ó. Skagf jörð, Gunnar Kvaran h/f, I. Bryn jólfsson & Co., Lindu-umboðið í Reykjavík. J. L. Matvörumarkaður J.L. Rafdeild. ’ u ' * Opið í dag til kl. 22 Opið laugardag 9-16 Jón Loftsson hf C □ l_i Cj CE ~] OU:]j □□□D□□ - riuuLn"i:i J! SflTl1! ’ri 1 ,;ij Hringbraut 121 Sími 2 86 01

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.