Þjóðviljinn - 26.11.1981, Page 2
2 SIÐA_ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. nóvember 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ VÍðtalíd
Rætt við
Huldu Steinsdóttur
frá Siglufirði
,,Stefnir
allt í
rétta átt”
Hér hefur komiö fram ósk,
sem mér finnst ákaflega mikils
virði — sem sé sú, að ALFA-
nefndirnar fái að halda áfram
sinum störfum þegar ári
fatiaðra lýkur. Okkur finnst, að
þessu starfi megi alls ekki ljúka
um áramótin, það er svo margt
óunnið enn. Kostnaðinn við
nefndirnar þurfa viðkomandi
sveitarfélög hins vegar að
greiða, og þvi er alls óvist um
framhald þessa starfs.”
— Það kom fram á ráðstefn-
unni, aö mjög litill hluti opin- .
berra bygginga er aðgengilegur
fötluðum. Hvernig er þessum
málum háttað á Siglufiröi?
,,Að bæjarskrifstofunni á
Siglufirði eru hvorki meira né
minna en 50 tröppur. Upp þær
kemst að sjálfsögðu enginn
fatlaður maður. Þaö var sett
gott handriö með tröppunum i
sumar, og þaö hefur komið
fram fullur vilji hjá bæjarráðs-
mönnum að setja lyftu i húsið,
þannigað þetta stendur vonandi
tilbóta. Húsið var tekið i notkun
i vor, en var hins vegar 12 ár i w
smiðum og þess vegna ná lögin
um byggingar á vegum hins
opinbera ekki yfir það.”
— Hvað heldur þú, að fötluðu
fólki veröi efst i huga þegar
þetta ár er að baki?
„Hinir fötluðu þegnar þessa
þjóðfélags eru afskaplega þakk-
látir fyrir allt, sem gert hefur
verið. Mörg sveitarfélög hafa
sýnt fullan vilja og skilning á
vankvæðum okkar og gert
ýmsar úrbætur. Siglufjarðar-
bær gerði t.d. Sjálfsbjörgu kleift
að eignast félagsheimili og við
eigum marga góða málsvara i
bæjarfélaginu.
A þessu ári hefur farið fram
geysimikil kynning á högum
fatlaðra og fólk hefur vaknað til
vitundar um, að fatlaðir eiga að
vera með á hinum almennu
félagsmálasviðum. Þetta
stefnir allt i rétta átt, og þvi
höfum við fyllstu ástæðu til að
vera vongóð um framtiðina.
Starfinu verður hins vegar að
halda áfram.”
Helga leikur tónlist eftir Kuhnau á sembal.
Á Háskólatónleikum á morgun:
Helga leikur forvera Bach
Enn birtum við spakmæli eftir
Francois de la Rochefoucauld,
en hann var spakvitur bölsýnis-
maður af aöalsdættum, er lifði i
Frakklandi á 17. öld.
— Það er jafn auövelt aö blekkja
sjálfan sig án þess aö taka eftir
þvi, eins og þaö er erfitt að
blekkja aöra án þess þeir finni
fyrir þvi.
— Tilviljunin leiðir okkur úr
fleiri villum en skynsemin heföi
getaö leitt okkur úr.
6. Háskólatónleikar vetrarins
veröa i Norræna húsinu i hádeg-
inu á föstudaginn 27. nóv. Helga
Ingólfsdóttir leikur á sembal
verkiö „Andlát og útför Jakobs”
eftir Jóhann Kuhnau, sem var
fyrirrennari J.S. Bachs við
Tómasarkirkjuna i Leipzig og
liklega fyrstur manna i heimin-
um til aö semja sónötur fyrir
hljómborö.
Ollum er heimill aögangur
Vá, maður! Ofsalega bakarðu flotta klessu.
Hvernig á að titla rétt?
Sigurbjörn er biskup
Ekki „fyrrverandi biskup”
Bernharður Guðmundsson
fréttafulltrúi biskupsstofu hefur
skrifað fjölmiölum i framhaldi
af fyrirspurnum fréttamanna
hvernig titla beri Sigurbjörn
Einarsson biskup eftir að hann
hefur látið af störfum. I tilskrifi
Bernharðs kemur fram að
vigslur til kirkjulegrar þjónustu
eru ekki timabundnar. Sá sem
hefur vigst til preststarfa eða
biskups heldur vigslu sinni, þótt
hann hverfi til annarrar at-
vinnu. Rétt er þvi að titla Sigur-
björn biskup sem slikan, en ekki
sem „fyrrverandi biskup”, seg-
ir þar.
Forseti og biskup hafa einir
boriö titilinn herra framan viö
skírnarnafn sitt. Dr. Kristján
Eldjárn og dr. Sigurbjörn bisk-
up voru þó gjarnan ávarpaöir
meö doktorstitli. Nú er komin
upp ný staða, segir i bréfi Bern-
harös. Forsetinn veröur af
augljósum ástæöum ekki
„herrðaöur”, og skrifstofa hans
notar ekki frúartitil, heldur:
Forseti tslands Vigdis Finn-
bogadóttir. Hins vegar er öllum
i sjálfsvald sett hvort þeir árpa
forseta meö frúartitli.
Hinn opinberi titill Péturs
biskups er: Biskup íslands
herra Pétur Sigurgeirsson. Hins
vegar skrifar dóms- og kirkju-
málaráöuneytiö samkvæmt
hefð: ,,Háæruverðugi herra
biskup.”
Og þá vitum við það.
Dagana 11.-12. nóv. sl. var
haldin ráöstefna um fertimál
fatlaðra að tilstuölan AFLA-
nefndar félagsmálaráðuneytis-
ins. Einn þeirra fulltrúa, er ráö-
stefnuna sóttu, var Hulda
Steinsdóttir frá Siglufiröi, en
hún er stjórnaraðili Sjálfs-
bjargar i sinum heimabæ og
situr i ALFA-nefnd Siglu-
fjarðar. Viö spurðum hana hvað
henni hefði fundist merkast af
þvi sem fram kom á ráðstefn-
unni.
„Ráðstefnan hefur mér þótt i
alla staði mjög upplýsandi.
Einkanlega held ég að þetta
gildi fyrir fólk utan af lands-
byggðinni — hér hefur margt
markvert borið á góma og mikil
kynning átt sér stað milli
Hulda Steinsdóttir frá Siglufiröi.
manna af öllu landinu. Það er
auðvitað ómissandi að kynnast
starfinu annars staðar en i sinu
eigin sveitarfélagi og geta
skipt á upplýsingum.
— Það er auöveldara að látast
veröugur þeirra verkefna, sem
okkur er ekki faliö aö vinna,
heldur en hinna, sem viö eigum
aö vinna.
— Þótt ekkert annað en letin ein
eða veikleiki bindi okkur við
skyldurnar, fær dyggðin samt
oftast heiöurinn.
— Lestirnir mynda hluta dyggð-
anna á sama hátt og eitrið er
hluti læknislyfsins. Skynsemin
hendir reiöur á þeim og notar þá
meö árangri gegn böli lifsins.
— Hræsnin er hylling lastarins
til dyggöarinnar.