Þjóðviljinn - 02.12.1981, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. desember 1981.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Akureyri
Fundur um stefnumótun i fjölskyldumálum veröur haldinn i
Lárusarhúsi miðvikudaginn 2. desember kl. 20.30. Að þessu sinni
verður fjallað um dagvistun og skólamál. Allt áhugafólk velkomið, fjöl-
mennið og takið þátt i skemmtilegu starfi.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Fundur veröur i Rein fimmtudagskvöldið 3. desember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. UndirbUningur forvals og framboðsmál
2. Kjör uppstillingarnefndar
3. önnur mál.
Stjórnin.
Alþýðubandalag Borgarness og nærsveita:
Félagsfundur verður haldinn föstudaginn 4. desember kl. 20.00 að
KveldUlfsgötu 25.
Fundarefni: 1. Fréttir af flokksráðsfundi. 2. Kynming á drögum að sam
komulagi um sameiginlegt prófkjör stjornmálaflokkanna vegna
sveitarstjórnarkosninganna. 3. önnur mdl. — Mætið vel og stundvis-
lega! — Stjórnin.
Alþýðubandalagsfólk Akureyri!
Félagsfundur laugardaginn 5. des. klukkan 15.30 i LárusarhUsi.
Fjallað um forval til bæjarstjórnar og fleira.
Stjórnin
Egilsstaöir — Reyöarfjöröur — Eskifjöröur:
Almennir fundir
Hjörleifur Guttormsson, iönaðarráðherra,
hefur framsögu um orku- og iðnaðarmá) á al-
mennum fundum sem hér segir:
Egilsstöðum, Valaskjálf, laugardaginn 5.
desember kl. 14.
Reyðarfirði.Félagslundi, sunnudag 6. desember
kl. 13.
Eskifiröi, Valhöll, sunnudag 6. desember kl.
16.30.
Einnig koma á fundina Helgi Seljan og Sveinn
Jónsson.
Allir velkomnir.
Alþýöubandalagiö.
Hjörleifur.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
i Suðurlandskjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi
verðurhaldinn i ölfusborgum um helgina 5.—6. desember n.k. Fundur-
inn verður settur kl. 13.30 laugardaginn 5. desember. — Stjórn kjör-
dæmisráösins.
Innheimta félagsgjalda
Alþýðubandalagsfélagar i Reykjavik! LjUkið greiðslu félagsgjalda
fyrir árið 1981 fyrir áramót. — Stjórn ABR.
Til innheimtumanna Happdrættis
Þjóðviljans i Reykjavík.
NU eru siðustu forvöð aö gera skil i happdrætti Þjóðviljans. Hafið sam-
band við skrifstofu félagsins og athugið, hverjir hafa borgað á skrif-
stofunni — þaðsparar sporin. 1 dag verður opið til kl. 19.30 og simarnir
eru 17500 tilkl. 17.00 og 17.504 frákl. 17.00—19.30.
Gátubók
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Vöku bók, sem ber nafnið 444
GÁTUR. HUn er eins og nafnið
gefur til kynna uppfull af gátum
og þrautum sem ætlaðar eru
bömum og unglingum.
Gátubókin er ættuð frá Politik-
en-forlaginu í Ðanmörku, en Sig-
urveig Jónsdóttir, fréttamaður,
hefur þýtt bókina og staðfært
þannig að hún henti islenskum
lesendum.
A bókarkápu segir meöal ann-
ars: Þessi bok hentarhvarsemer
og efni hennar lifgar alls staðar
upp á tilveruna. Hún er tilvalin
heima eða i skólanum, i bflnum
eða sumarbústaðnum, i garðinum
eða á ferðalaginu.
444 GATUR er ekki eingöngu
bók til þess að lesa, heldur er hún
af hálfu útgefenda hugsuð sem
gottinnlegg i leiki barna og ungl-
inga og getiþannigorðið hvatning
til þroskandi keppni i þeirra hópi.
Tíugátureru birtar i hverri opnu
bókarinnar og svör við þeim neð-
anmáls.
• Blikkiðjan
Asgaröi 7. Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SIMI 53468
fþróttir
Framhald af bls. 11.
5. desember: ísland — llolland
6. desember: ísland —Sovét-
rikin
Komist fslendingar i sterkari
milliriðilinn, þ.e. þann sem leikur
um efstu sætin lenda þeir með
tveim liðum Ur D-riðli, en þar bit-
ast um sætin tvö, Sviar, Frakkar
og V-Þjóðverjar. Argentinumenn
eru einnig með i' D-riðli en þykja
eigi liklegir til afreka. Þess má
geta að Urslitin Ur undanrásunum
gildai milliriðli.
Leikirnir tveir i milliriðli fara
fram dagana 8—10 desember en
12 og 13 desember verður svo
leikiö um lokaniðurstööuna allt
frá 1. til 16 sætis. Efstu liðin i
milliriðlunum leika til Urslita, lið
nr. 2 og 3. sætiö og þannig koll af
kolli. tslensku leikmennirnir sem
þátt taka f keppninni eru þessir:
Markveröir: Sverrir Kristinsson,
FH. Gísli F. Bjarnason, KR. Sig-
mar Þ. Óskarsson, Þór. Aörir
leikmenn: Þorgils Ó. Mathisen,
FH. Brynjar Harðarson, Val.
Valgarð Valgarðsson, FH. Guð-
mundur Guðmundsson, Víking.
Gunnar Gunnarsson, Þrótti.
Gunnar Gislason, KR. Dagur
Jónasson, Fram. Brynjar Stef-
ánsson, 1R Páll ölafsson, Þrótt.
Ragnar Hermannsson, KR.
Kristján Arason, FH. Erlendur
Daviðsson, Þór Heimir Karlsson,
Viking.
Furðuleg skrif
Framhald af bls. 3
honum, en mér sýnist hann fyrst
og fremst vera gerður i þeim til-
gangi að rifja upp þær miklu deil-
ur sem kaup vagnanna ollu á sin-
um tima. Slikt getur alls ekki tal-
ist jákvætt fyrir starfsemi Stræt-
isvagna Reykjavikur. Þarna er-
um við komin með þrjá ódýra til-
raunavagna og ég sé enga ástæðu
til þess að dæma þá óhæfa á þessu
stigi málsins, sagði GuðrUn
AgUstsdóttir að lokum.
-ðlg.
Prófkjör
Framhald af 16. siðu.
Einungis ein kona, Ingibjörg
Rafnar, náði öruggu sæti, en hún
varð fimmta i röðinni, og náði
bindandi kosningu. Næsta kona
varð i tiunda sæti, sú þriðja L
tólfta. Meðal þeirra sem ekki
náðu 12 efstu sætunum, en tölur
hafa ekki verið birtar um fleiri,
eru Margrét S. Einarsdóttir og
Erna Ragnarsdóttir sem starfað
hafa i borgarstjórnarflokki Sjálf-
stæðisflokksins á yfirstandandi
kjörtimabili, Anders Hansen
blaðamaður á Morgunblaðinu og
JUlius Hafstein formaður Hand-
knattleikssambands tslands og
Sveinn Björnsson forseti íþrótta-
sambands Islands. —ekh
Opna
Framhald af bls. 9.
ir, bæöi komið á stofn heimilum
fyrir fanga sem lokið hafa afplán-
un, og i menntunarmálum þeirra.
— Það er hart til þess að vita að
skólastjórar skuli þurfa að beita
hörku til að fangar fái að taka
próf i skólum hjá þeim. — Ég full-
yrði, að margir þessara fanga eru
fúsir til menntunar, ef tækifæri og
aðstaða gæfust. Við skulum muna
að það er fátt dýrara þjóöfélaginu
en að ala fjölda ungra manna upp
i fangelsum.
Það þarf að athuga með fanga-
veröina. Þar eru fjölmargir góöir
og gegnir menn, sem ekki mega
vamm sitt vita og starfa viö erfið-
ar aöstæöur. En I þessum störfum
eru lika menn sem ættu aldrei
nærri föngum að koma.
Þjóðviljinn
Askriftarverð Þjóöviljans
verður frá 1. desember kr.
100 á mánuði. Lausasöluverö
verður kr. 6.00 pr. eintak, en
Sunnudagsblaöiö kostar kr.
9.00 pr. eintak.
Grunnverð auglýsinga
veröur kr. 60.00 pr. dálk-
sentimetra.
Ég vil minna á reynsluna af
fangelsisrefsingunni, og ég vil
minna á þau ummæli forstöðu-
manns Litla-Hrauns, aö hann viti
ekki um nokkurn mann sem orðið
hafi betri maöur á fangelsisvist.
Ég skal fyrstur manna viöur-
kenna aö þessi mál eru ákaflega
vandmeöfarin og vandasöm og
vonbrigöi eru fylginautar þeirra.
Ég skal líka viðurkenna að ýmis
óhæfuverk, — og jafnvel nfðings-
verk, — veröur erfitt aö afnema
fangavist við. En ég vil leggja
áherslu á að ég held að það sé
hægt aö fækka i fangelsum, ég
held þaö eigi ekki að dæma þessa
ungu menn sem lent hafa á refil-
stigum eins titt i fangelsi og gert
hefur verið.
Þaö er skoðun min að breyta
þurfi lögum þannig, að þegar
ungt fólk á i hlut, þá verði dómur-
um gert skylt að afla sér stað-
góðra upplýsinga um persónuleg-
ar og uppeldislegar aðstæöur
þeirra sem i hlut eiga, og auka
skilorösbundna dóma frá þvi sem
nú tiðkast. Einnig þyrfti að efla
Skiloröseftirlit rikisins og gera
þvi fært aö auka eftirlit og aðstoð
við þettta ólánssama fólk. Þá
væri athugandi að fela viöur-
kenndum mönnum umsjónarað-
ild með viökomandi ungmenni i
ákveðinn tima, og fleiri leiðir
mætti athuga. — Færibandadóm-
ar sem senda ungt fólk til
Litla-Hrauns-dvalar, eru ekki til
velfarnaðar.
Getum lagt
fangelsin niður
Að snúa lykli I skrá og gefa
manni pillu er oft það auðveld-
asta, en sjaldan þaö farsælasta.
Skiloröseftirlit rikisins vinnur
gott starf, en öxin og jörðin
geyma best Fullnustumatsnefnd
dómsmálaráðuneytisins.
Herra forseti.
Ég skal fara að ljdka máli
minu, en á þó margt ósagt. Ég
skal viðurkenna að fikniefnaflóð-
iðsem hrjáir nágrannalönd okkar
og er að steypast yfir okkur,
skapar gifurlegan vanda. En ég
er sannfærður um að nefnd, þar
sem allir stjórnmálaflokkarnir
ættu fulltrúa, þar sem félagasam-
tökin Vernd ættu einnig fulltrUa,
og dómsmálaráðuneytið for-
manninn, myndi án efa skila
mörgum athyglisveröum tillög-
um.
Fangelsismál hjá okkur eru i
það slæmu ástandi, að Alþingi
getur ekki horft lengur aögerðar-
laust þar á. Ég hef þá trú að
vegna margs konar sérstöðu okk-
ar þjóðfélags höfum við Islend-
ingar möguleika á að leggja að
mestu niður fangelsi. En til þess
þarf mikið átak, — frjóa hugsun
og ný, jakvæö úrræði, þar sem
hagnýtt sé það besta frá öðrum
löndum, en forðast það sem
versta raun hefur gefið erlendis.
Þrátt fyrir allt skapar fámennið
okkur þennan möguleika.
Ég skal viðurkenna að þessi
vandi er ekki sök núverandi hæst-
virts dómsmálaráöherra en — ég
saka hann um úrræðaleysi og ég
saka hann um sljóa og dauða em-
bættismennsku, sem gengur van-
ans veg og er þræll bókstafsins og
núverandi kerfis. — En ég hef þá
trú að meirihluti háttvirtra al-
þingismanna vilji þarna leggja
hönd á plóginn til nýrra úrræða og
nýrra vinnubragöa, sem hefjist á
nefndarstarfi sem alþingismenn
fari sjálfir I.
Herra forseti.
Ég hef lokið máli minu.
NATO
Framhald af 6. siðu. ,
sér fjárhagsgrundvöll banda-
risku verkalýðshreyfingarinn-
ar.
Liklega hefur það átt að sýna
fram á frjálslyndi USICA i slik-
um boðum, en það svaraði ekki
spurningu Þjóðviljans um mál-
iö.
Loðin svör um „aðrar
ferðir”
Um aðrar ferðir sem USICA
kæmi nálægt eða hefði milli-
göngu um sagði Thomas Martin
að hann vildi flokka þær undir
„fyrirgreiðslu” við hópa sem
vildu kynnast sérstökum svið-
um bandariskrar reynslu og
amerisks lifsstils. „Við pöntum
fyrir þessa hópa og greiðum
fyrir þeim, og þarna hefur verið
um að ræða skólastjóra, hóp af
verkalýðsleiðtogum (Sjálfstæð-
isflokksins athugs. Þjv.), stúd-
enta, iðnrekendur o.s.frv. Þess-
ir hópar greiða venjulega fyrir
sig sjálfir, og það er okkar verk
að aðstoða þá, og auðvitað ýta
undir ferðalög til Bandarikj-
anna.” Þetta verður að teljast
loðið svar, svo ekki sé meira
sagt, og gengur ekki fram af þvi
hvort Bandarikjamenn hafa
borgað fyrir verkalýðsleiðtoga
Sjálfstæðisflokksins, fulltrúa á
öryggismálaráðstefnu i Tromsö
o.s.frv.
Enn neitun
Fleira barst i tal á fundi Þjóð-
viljans með forstöðumanni
USICA, en það verður ekki ti-
undað að sinni. Niðurstaðan
varð sú að ekkert yfirlit er að
hafa þaðan um ferðir Islendinga
á vegum USICA siðustu 5-6 ár,
þrátt fyrir yfirlýsingar um að
„ekkertsé að fela” og að enginn
þurfi að skammast sin fyrir
slikar ferðir. En i lokin er rétt
að geta þess, að Þjóðviljinn fór
þess á leit að fá afrit af Islands-
áætlunum USICA sl. 5-6 ár, en
fékk enn neitun. Þegar vitnað
var til þess að Arni Gunnarsson
alþingismaður og Magnús Guð-
mundsson f réttastofustjóri
hefðu fengið slik afrit, var svar-
ið, að þeir hefðu ekki fengið það
frá Menningarstofnun Banda-
rikjanna.
Einar Karl
Afgreidum
einangrunar
plast a Stór
Reykjavikur,
svœðió frá
mánudegi
föstudags.
Afhendum
vöruna á
byggingarst
viöskipta 4
mönnum að
kostnaðar
lausu.
Hagkvœmt verð
og greiðsJuskií
máfar við flestra
hœfi.
einangrunat
^^■plasttð
Aftrar
framteiö&luvorur
__ pipueinangrun
"Sog skruftH/tar
Bofgarneiil iimí9i rm
kvöld og hctgammi 93 7355
ffl
FREEPORTKLÚBBURINN
heldur fund í safnaðarheimili Bústáða-
kirkju fimmtudaginn 3. desember nk.
Gestur fundarins og frummælandi verður
Ólafur Ólafsson landlæknir.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórnin.