Þjóðviljinn - 02.12.1981, Page 15
Hringið í síma 81333 kl. 9-5
alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
fra
lesendum
Sigurgeir Sigurðsson ráöinn i
hans stað.
Mætur maður i verkstjóra-
Sambúðar-
erfiðleikar
á Seltjamar-
nesi
Gegnum árin,sem núver-
andi meirihluti Sjálfstæöisfl.
litt breyttur, hefur ráðið með
. núverandi bæjarstjóra i
broddi fylkingar, hafa sam-
felld sambúðarvandamál
hrjáð þetta sveitarfélag, sam-
búðarvandamál milli bæjar-
stjórnar annarsvegar og
starfsmanna sveitarfélagsins
hinsvegar.
Upphafið að vandanum var
það, að mjög nýtur maður, er
var sveitarstjóri,var af núver-
andi meirihluta, hrakinn Ur
starfi fyrir engar sakir og
stöðu var hrakinn úr starfi.
Tveir bæjarverkfræðingar
hafa verið hraktir Ur starfi og
hefur annar þeirra staðið i
málaferlum við sveitarfélagið
vegna þess. Ritari tónlistar-
skólans var flæmdur Ur starfi.
Tveir forstöðum«in félags-
heimilisins voru hraktir úr
starfi. Endalausar erjur hafa
verið milli bæjarstjórnar og
fólks þess er vinnur við ræst-
ingu og gangavörslu i Val-
húsaskóla um vinnutilhögun
og kjör. Alls hafa þrjár for-
stöðukonur barnaheimilinna
ýmist verið hraktar úr starfi
eða gert ófært að starfa, og nú
kórónast allt með þvi aö allar
fóstrur á hinu nýja barna-
heimili, er tók til starfa s.l.
haust, hafa sagt upp störfum
og hætta fyrir áramót.
Búast má við þvi að mörg
fleiri leiöindarmál hafi komið
upp en ekki orðiö opinber,
vegna þess að fólk tjáir sig
ógjarnan um slik mál.
Þar semljóstviröist vera að
einn maður aðallega veldur
þessum sambúðarerf ið-
leikum,hlýtur þaðað vera rök-
rétt að taka þessi völd af
honum (bæjarstjóranum) og
fá einhverjum öðrum þau, ein-
staklingi eða nefnd.
Ef þetta næðist fram' mundi
margt vinnast. Þau eilifu
sambúðarvandamál milli
stjómenda sveitarfélagsins og
starfsmanna þess myndi að
öllum likindum hverfa ásamt
mörgum öðrum hnútum, er
núverandi bæjarstjóri hefur
ekki getað leyst.
Ég er sannfærður um að ef
þetta yrði gert myndi sá vandi
sem fyrir hendi er leysast og
allar þær fóstrur er sagt hafa
upp störfum verða fúsar að
taka aftur upp störf við barna-
heimili bæjarins, en ekki tekin
sú ákvöröun af hálfu bæjar-
stjóra og bæjarstjórnar að
ráða ófaglært fólk til þessara
starfa, en það gaf bæjarstjóri i
skyn á bæjarstjórnarfundi s.l.
miðvikudag. H.E.
Á Mokka. Ljósm. — gel.
Þessa mynd sendi Laufey okkur. Hún er 7 ára og
f innst skemmtilegast að teikna kisur og prinsessur.
Barnahornid
Leggðu krónu í annan
lófa þinn, réttu síðan úr
fingrunum, eins og sýnt
er á myndinni, þannig
að peningurinn liggur
þarna alveg óvarinn.
Síðan býður þú einhverj-
um viðstöddum, að hann
megi eiga peninginn, ef
hann geti burstað hann
af lófanum, með venju-
legum fatabursta eða
hárbursta. Hann má
ekki þrýsta burstanum
niður í lóf ann og ekki slá
með honum á peninginn,
heldur aðeins strjúka
honum eftir lófanum á
eðlilegan hátt. Sér til
undrunar kemst hann að
raun um, að hann getur
ekki hreyft peninginn,
hvernig sem hann
„burstar" lófann.
Miövikudagur 2. desember 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
BOLLA - BOLLA:
Hressir krakkar í Árseli
i þættinum i kvöld ætia þau
Sólveig Halldórsdóttir og Eð-
varð lngólfsson að kynna
starfsemina i félagsmiðstöð-
inni Arseli i Árbænum i
Reykjavik.
Þar eru hressir krakkar á
ferð og heilmikiö starf. Þau
Sóiveig og Eðvarð eru nú að
safna efni fyrir jólin af fullum
krafti og i kvöld fáum við dá-
litið brot af afrakstrinum.
1 þættinum verða einnig hin-
ir föstu liðir á dagskrá: fram-
haldssagan, popplögin og
maöur vikunnar.
Útvarp
kl. 20,40
Fræg mynd í kvöld
^ \ Sjónvarp
kl. 18.30
Fólk að leik
á Filipps-
eyjum
1 sjónvarpi i dag er þáttur-
inn Fólk að leik á dagskrá.
Fjallar þessi þáttur um
Filippseyjar.
Filippseyjar er klasi meira
en sjöþúsund eyja í Vestur-
Kyrrahafi um það bil 700
mílur austur af Indónesiu-
skaganum. Aöeins um 2500
eyjanna bera nöfn og 462
þeirra eru stærri en ein fer-
mila. Stærsta eyjan heitir
Luson og fiatarmál hennar er
68% af samanlögðu flatarmáli
allra eyjanna.
Meginhluti Filippseyja er
hálendur og eru þar yfir tutt-
ugu virk eldfjöll. Veðurlag er
mjög mismunandi eftir eyj-
um, á austurhlutanum rignir á
öllum árstiðum en þó sérstak-
lega á timabilinu frá október
til april. A þessum tima er
hins vegar þurrviðrasamt á
vesturhluta eyjaklasans, ai
á timabilinu frá april til októ-
berrikja þar suðvestan vindar
sem bera með sér mikla úr-
komu.
Vegna legu eyjanna þá
byggja þær margir ætt-
Markos forseti Filippseyja og
kona hans. Þau ástunda bilifi,
almúginn lýtur harðstjórn.
flokkar fólks, en meginhluti
þess telst til Malasiumanna.
Aðalfæða eyjaskeggja er hris-
grjón, sætar kartöflur, korn og
sagogrjón. Hús i sveitum eru
reist úr viði og bambus.
A siðustu árum hefir rikt
mikil harðstjórn á Filipps-
eyjum. Markos forseti
stjórnar þar með tilskipunum .
NU um nokkurra ára skeið
hefur skæruhernaður gegn
stjórn Markosar verið stund-
aður, en stjórnarherinn sýnir
mikla hörku i viöureign sinni
við skæruliða. En hvernig
fólkið leikur sér þrátt fyrir
þetta fáum við að sjá i sjón-
varpsþættinum.
,,Cr skelinni” er hrifandi verk um getu vangefinna einstaklinga.
Sjónvarp
Tf kl. 22.20
1 kvöld sýnir sjónvarpið
myndina Or skeiinni („Stepp-
ing out), ástralska fræðslu-
mynd um kennslu og þjálfun
vangefinna. Myndin hefur
unnið til verölauna og verið
sýnd i mörgum löndum.
Hér er á ferðinni einstæð
mynd, sem óhætt er aö mæla
með fyrir alla. Maðurinn á
bak við myndina heitir Aldo
Gennari og var svokallaður
„art þerapisti” á heimili fyrir
vangefna. A þessu heimili
bjuggu fjörutiu vangefnir ein-
staklingar og i nóvember áriö
1979 sté þetta fólk á sviöið i
óperuhúsinu i Sydney i Ástra-
liu. Fólk þetta hafði verið
stimplaö sem vangefið og
dvalið á stofnunum frá
bernsku, en á þessari sýningu
tókstþviaðná slikum tökum á
áhorfendum,aö fáu verður við
jafnað. Myndin segir sögu
þessa atburðar — vonum og
þrám þessara einstaklinga og
umfram allt, mennsku þeirra,
sem sumir neita að viður-
kenna.