Þjóðviljinn - 12.12.1981, Side 1

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Side 1
44 SÍÐUR Helgin 12.—13. desember 1981 271.—272. tbl. 46. árg. Tvö blöð BLAÐ II Verð kr. 9.00 Vitjað selalagna á Jónsmessunótt 1974. — Ljósm.:GFr — Jæja, þá er ég nú kom- inn. Og er þá ekki best að við byrjum bara strax úr því að þú vilt endilega fara í geitarhús að leita ullar? Sá, sem svo mælir, er Kristinn Jónsson, hlunn- indabóndi norðan úr Ár- neshreppi á Ströndum „þar sem ég hef alltaf átt heima og mun aldrei eiga annarsstaðar heima". Blaðamanni bárust þær fregnir, að Kristinn væri hér staddur í „kaupstaðar- ferð" og mæltist til viðtals við hann. Kristni fundust þetta fáránleg tilmæli en lofaði þó að líta inn áður en hann færi „úr bænum", — og nú var hann kominn. Strandamaður og Húnvetningur — Ert þú Strandamaður að ætt og uppruna, Kristinn? — Strandamaður já og Hún- vetningur. Foreldrar minir voru Jón Guðmundsson frá Eyri i Ing- ólfsfirði en móðir min Sólveig Benjaminsdóttir frá Krossnesi. En fæddur er ég i Litlu-Ávik i Ar- neshreppi 8. sept. 1912, elstur af sjö systkinum. — Bjuggu foreldrar þinir i Litlu-Avik? — Nei, þeir voru nú i hús- mennsku þar þegar ég sá fyrst framan i veröldina. Jarðir lágu ekki á lausu á þessum árum, — öðru visi en nú til dags, —- og þau voru þvi nokkuð viða, ýmist i hús- mennsku eða búandi en tókst loks að fá hálft Seljanes til ábúðar. Ég ólst svo upp með foreldrum min- um. Þar var engin auðsæld og stundum þröng i búi en við sultum þó aldrei. Og bernskuárin voru skemmtileg en annars er svo sem ekkert um þau að segja. — Hvernig var námi barna háttað þarna fyrir fermingu? — Já, þar hittirðu nú heldur betur naglann á höfuðið. Jú, það var farskóli þarna i sveitinni og ég gekk svo sem i hann, liklega einar 6 eða 8 vikur alls. Tveggja mánaða barnaskólanám það þætti nú ekki hossa hátt núna. En svo var það sr. Sveinn Guð- mundsson i Arnesi. Hann rak unglingaskóla og hjá honum var ég nokkrar vikur eftir að ég fermdist. Meiri var nú fræðslan ekki sem fjöldi barna og unglinga mhg ræöir við Kristin Jónsson á Seljanesi í Árneshreppi. um hlunnindabúskap ogfleira Kristinn Jónsson: Við erum flokkaðir með melrökkum, vargfugli og minkum. Mynd-eik Sjá næstu siðu naut i þá daga en hún dugði mörg- um býsna vel. Leiðin lá á sjóinn — Þú ert elstur af sjö systkin- um, segirðu. Fdrstu þá ekki snemma að vinna að búi foreldra þinna? — Jú, ég vann þeim auðvitað eins og orkan leyfði og það var nú svo með okkur þessa stráklinga, sem þarna ólumst upp að leiðin lá á sjóinn þegar við fórum að geta eitthvað. Flestir stunduðu þarna sjóinn og auðvitað á árabátum og með færi. Ég mun hafa verið 15 eða 16 ára þegar ég byrjaði að stunda færafiskiriið. Siðan komst ég á mótorbát hjá Guðjóni föður- bróður minum og var báturinn geröur út frá Ingólfsfirði. Á þess- um báti var ég i tvö sumur og fiskuðum við á færi og linu. Svo fikraöi maður sig áfram og næst voru £að útilegubátar. Það fannst manni mikill munur að hafa þá skýli yfir hausinn. Fyrst réöist ég á bát, sem hét Gunnar Ólafsson. Siðan á Hermóð með Guömundi Magnússyni. Mig minnir að það hafi veriö 40 tonna bátur. A honum var ég 8 vetrar- vertiðir og tvö sumur á sildveið- um. Hermóður var geröur út frá Reykjavik. Fyrri part vetrar stunduðum við veiðarnar aðal- lega i Faxaflóa en er á leiö vestur undir Jökli. — Hvernig voru ráðningarkjör- in? — Við vorum ráðnir upp á hlut

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.