Þjóðviljinn - 12.12.1981, Qupperneq 5
Helgin 12,— 13. desember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Thor Vilhjálmsson skrifar
Canetti og heims-
meistaraflokkur Nóbels
Margir urðu hissa þegar til-
kynnt var um Nóbelsverðlaun i
ár, eins og stundum fyrr. A ymsu
hefur gengið um þessi laun, og
stundum harkalega deilt vegna
þeirra. Seinni árin hefur tekizt
stundum ágætlega að vekja með
þeim athygli á höfundum sem ella
hefði áfram verið hljóðara um en
áttu skilið. — Ég nefni bara
skáldin MMoscz og Elytis. Þó fer
ekki hjá þvi sem segir i Njálu að
flest orkar tvimælis þá gert er.
HELGARSYRPA
Aður hef ég talið hér i þessum
pistlum einn höfuðkost verðlauna
að vekja umtal, jafnvel deilur,
koma rótiá hugina. Verst er væri
öllum sama.
Stærstu bókaútgáfufyrirtæki
álfunnar tóku sig saman fyrir
mörgum árum, og stofnuðu til
nýrra verðlauna, eitt forlag i
hverju landi, og voru meðal
þeirra Gallimard i Frakklandi og
Einaudi á Italiu. Og nefndust
Formentorverðlaunin. Þau voru i
tvennu lagi, önnur að hylla og
heimta gaum gefinn skáldi sem
hefði ekki notið frægðar eins og
verðskuldaði, hin handa frá-
bærum nýliða. 1 fyrri flokknum
voru heiðraðir Samuel Beckett og
Natalie Sarraute, i þeim seinni
þýzki höfundurinn Uwe Johnson
sem þótti fágætlega efnilegur
eftir fyrstu bækur sinar Mass-
mutung Ober Jacob og Das dritte
Buch Ober Achim. Og þykir siðan
hafa risið undir þvi. Brátt kom á
daginn að ekki var næði að halda
fundina til að finna verðlauna-
skáldin á hinni spönsku eyju fyrir
frekju sakir og smekkleysis fas-
ista, enda lifði Franco enn þá;
kallaður el cabrón, geithafurinn.
Og urðu bókmenntadómararnir
að flýja út á griska eyju, og kann
ég ekki þá sögu lengri. Kannski
framtakið hafi týnzt i flutning-
unum, hrakningum um Mið-
jarðarhafið þótt ekki sé úthafs-
öldum að mæta, nema væri i póli-
tiskum skilningi; kannski duttu
þau upp fyrir eða oni gjótu þegar
fasistar náðu lika völdum á
Grikklandi, samkvæmt Natóáætl-
uninni Prómóþeus.
Eins og endranær komu fleiri til
álitanna vegna Nóbelslauna en
Canetti i ár. Þar voru fremstir
Garcia Marquez, Vargas Llosa
Suðuramerikumenn; Ottavio Paz
frá Mexico, og landi hans Carlos
Fuentes; Claude Simon frá Franz
fulltrúi Noveau Roman, Nýju
skáldsögunnar. Marguerite
Yourcenar sem nýskeð var fyrst
kvenna kosin i frönsku akademi-
una, og töldu sumir gömlu skarf-
anna með mosa i augabrúnum og
á bringu að þá yrði heimsendir.
Þó eiga Frakkar ágætar konur
utandyra þar einsog til að mynda
Marguerite Duras og Natalie
Sarraute, og reyndar karla lika
eins og sjálfan Beckett. Gilnter
Grass var lika i Nóbelskeppninni,
Ungverjarnir ljóðskáldin Sandór
Weöres og Gyula Illés (marg-
. nefndur þar), Graham Greene
rétt enn einu sinni, og hinn af-
kastamikli landi hans og fjölhæfi
Anthony Burghess höfundur
Clockwork Orange; og nýjasta
saga hans doðrantur Earthly
Powers, saga rithöfundar svo vel
skrifuð að maður fær samúð með
karlgreyinu i einsemdinni sem
verður að kaupa sér fylgd og
hæfileg atlot, og alltaf einsamall i
reynd, og mun vera byggt á ævi
Somersets Maugham. Og loks var
nefndur til 77 ára gamall kin-
verskur höfundur Ba Jin, ekki
kann ég margt af honum að segja.
Vetrarferð
Um vetur, snjór, — ég var aö
fara norður i land með áætlunar-
bfi. Til að flytja tvo fyrirlestra á
vegum nemenda I menntaskól-
anum á Akureyri fyrir mörgum
árum. Ungur maður sneri sér að
mér við miðasöluna, spyr á ensku
hvar skip sitt muni vera; fimm
þúsund tonna oliuflutningaskip,
fimmtiu kilómetra frá Reykjavik.
Kauptu þér farmiða upp i Hval-
fjörð, sagði ég: að Langasandi.
Og settist við glugga, hugsaði um
efnið sem ég átti að tala um.
Annar fyrirlesturinn átti að vera
um Samuel Beckett sem var þá
nýbúinn að fá Nóbelsverðlaun.
Hinn um japanska höfundinn
Kawabata
Yasunari Kawabata sem haföi
lika nýfengið þau, og fleiri jap-
anska höfunda sem ég hafði
kynnzt, að sjálfsögðu eingöngu i
þýðingum. Afsakaðu, segir ungi
maðurinn aftur: er ég að ónáða
þig með þvi að setjast hérna hjá
þér. Við sátum þöglir horfðum út
á snælandið. Fyrsta b'ókin sem ég
las eftir Kawabata var á sænsku,
nefndist t riki snævarins, ellegar
Snjóriki. Svo fórum við að tala
saman. Hann var með enska bók
milli handa: Audo-da-fé eftir
Elias Canetti (Die Blendung á
frummálinu, þýzku). Smám
saman kom upp úr kafinu að hann
hafði gegnt svokallaðri skyldu við
fósturjörð sina eða þá sem henni
töldust ráða, hermaður i Viet-
nam. Honum varð svo mikið um
það að hann gat ekki horfið aftur
heim, til sins fyrra lifs; fjöl-
skyldu, vina. Heldur réð hann sig
á 5000 tonna oliuskipið. Og hafði
ekki sálufélag við neinn skipsfé-
laganna, utan hvað hann gat teflt
við annan stýrimann. Hann haföi
meðferðis heildarriteftir Jonathan
Swift, og tónlist á bandi eftir
Johan Sebastian Bach, það var
hans viðurværi. Þegar dró að
skilnaði á slóðum Harðar Hólm-
verjakappa, gaf hann mér bókina
eftir Canetti, sagðist vera hvorteð
búinn að lesa hana, og sagði hann
væri snjall, mikill höfundur ...
frábær. En nú sáum við skip sigla
út Hvalfjörð, i stærra lagi. Þarna
siglir dallurinn þinn. Honum brá.
Biddu hægur, segi ég. Við skulum
vita hvort þú kemst ekki með
lóðsbátnum við Gróttu, þegar
hann sækir hafnsögumanninn.
Við sjoppuna var rútufarþegum
gefið tækifæri til að fá sér pylsu
meðýmsueða öllu og pilsner með
eða pepsi og prinspólð, og tala
þannig hið fornfræga p-mál
bernskunnar. Við fórum i kamp-
inn, fundum oliuafgreiðsluna.
Rauðbirkinn maður og gómaber
allþrekinn talaði i simann. Upp-
flosnaður bóndi tók okkur skap-
lega fyrir framan, og benti okkur
á hinn þegar við höfðum lýst er-
indi okkar. Rauður hló og flissaði
berum gómi i simann: Það er ein-
hver útlenzkur aumingi hérna
Sigurður Karlsson
strandaglópur ho ho. Við ætlum
að láta hann ho ho ganga til
Reykjavikur. Ho ho ho ho. Loks-
ins hættihann aðtalaog hneggja i
tólið. Ég skammast min fyrir þig
landi, sagði ég: ég hélt það væri
fremur háttur tslendinga að
hjálpa vegalausum mönnum. Svo
fór að ungi maðurinn fékk far
með bil sem var að fara til
Reykjavikur, gegn gjaldi. Ég
þóttist eiga hönk upp i bakið á
skipamiðlaranum sem annaðist
meðalgönguna fyrir skipseigend-
urna, og sendi honum miða með
strandaglópnum og beiddi hann
þess að koma pilti með lóös-
bátnum út i skip sitt.
Löngu seinna fékk ég böggul i
pósti. Styttu úr steini i Aku-Aku
stil sem Thor Heyerdal lýsir i bók
sinni um Kontiki. Brjóstmynd úr
léttum steini, langteygt höfuð og
uppmjótt, siðnefjað með þung
augnalok og þunnar varir, stall-
enni. Bréf fylgdi: Þetta er Bartle-
by minn nánasti förunautur um
langa hrið og sálufélagi. Nú eru
hagir minir þannig að ég get
naumast veitt honum það atlæti
sem honum ber. Má ég senda þér
hann til halds og trausts? Audrey
Scott III; og heimilisfang ein-
hvers staöar i Virginiafylki.
Þannig kynntist ég Canetti.
Moral Majority
Um það leyti sem tilkynnt var
um Nóbelsverðlaunin fjallaði
Dagens Nyheter um vaxandi
áhrif þeirrar skuggalegu aftur-
haldshreyfingar sem hefur verið
kölluð Moral Majority, i Banda-
rikjunum. Þessi samsærishópur
svarthausa lætur æ meira að sér
kveða og beitir þrýstingi hvar-
vetna og hótar ofbeldi og fremur
það gagnvart stofnunum og ein-
staklingum, og þykist þekkja sinn
vitjunartima nú eftir kjör Reag-
ans forseta. Það er ekki eingöngu
að fjárveitingar til nauðþurfta i
mannúðarmálum séu skornar
niður, heldur lika allt til menn-
ingarmála og menntunar sparað
sem ekki verði sannað að hægt sé
að græða á i dollurum eða dráps-
tækjum. Og guð sem á landið eins
og allir vita hjálpar þeim sem
hjálpar sér sjálfur. Er það
kannski Frank Sinatra the hady
shapy pal of the president Rea-
gan? Hver ætli hafi hjálpað
honum mest?
Hið frjálsa framtak, frelsið.
Landið þar sem allir geta orðið
forseti. Hinir ótakmörkuðu
möguleikar. Humm.
Skyldu menn vita að þar er
bókum brennt? Eða að það er
bannað að hafa bækur eftir Her-
mann Hesse i opinberum söfnum i
32 fylkjum, Og jafnvel Hucle-
berry Finn eftir Mark Twain,
ennfremur Catch-22 eftir Joseph
Heller og Catcher in the rye eftir
Salinger, svo eitthvað sé nefnt?
Alls munu um 150 bækur bann-
aðar i þessum fylkjum.
í videó vanda
Bravó Sigurður’Karlsson. Þökk
sé þér að þú rakst slyðruorðið af
listamönnum sem stóð næst að
mótmæla þvi þegar horfið er
aftur á ræningjaöld þegar Jifði
Charles Dickens,þá var hægt að
stela öllum verkum höfunda án
þess að þeir kæmu nokkrum
vörnum við. Undanfarið hafa gilt
alþjóðalög sem gera ráð fyrir þvi
að höfundar fái nokkra umbun
fyrir verk sitt samkvæmt svo-
nefndum Bernarsáttmála sem
Islendingar hafa undirritað fyrir
löngu. Videóforkólfar eru ekki
bara þjófar samkvæmt islenzkum
lögum heldur lika sakamenn
samkvæmt alþjóðalögum sem
þjóð okkar hefur lofað að heiðra.
Það nægir ekki stjórnvöldum og
hugsjónam önnum um eigin
frama aöbreyta islenzkum lögum
til að hreinsa þessi óhreinu börn
sin. Ef við brjótum lögin er ekki
spurt að þvi hvort lögin séu rétt
eða röng, eins og dæmin sanna i
málaferlunum þegar menn sögðu
hug sinn um VL-menn (sem er
ekki skammstöfun fyrir Vesa-
Linga eins og ætla mætti). Þá var
ætlazt til að fógeti rifi menn útúr
húsum sinum.færði i fangelsi og
seldi helzt húsin þeirra sem höfðu
hugdirfsku og þjóðhollustu til að
segja hug sinn, og treystu þvi að
það væri eitthvað að marka sem
stendur i stjórnarskránni um
frelsi til að hugsa og tala. Nú er
bara skipuð nefnd til þess að
athuga hvort það eigi að fara eftir
lögum. Eða hvort á að biða eftir
þvi að lögunum verði breytt eftir
hentugleikum brotamanna.
Skyldi nú saksóknari fara eftir
bendingu Sigurðar og halda aftur
af þessum videómönnum sem
hafa leikið lausum hala og grafa'
sem óðast i sundur það land sem ;
er i byggð.eins og hefði hlaupið of-!
vöxtur i eitthvert moldvörpukyn
með filasótt sökum geislavirkni':
frá rússneskum kafbátum i felum
eða ameriskum sprengjum á
Keflavikurflugvelli? Þessi skæða
plága sem herjar byggðir lands-
ins með þrálátri afslöppun hefur
fært æ fleiri heimili i herkvi sina
og er að gera þjóðina blinda af
videö ef ekki heyrnarlausa með
svo menn hafa varla þrótt til að
sinna brennivini eða bókum og
eru að missa náttúruna af kiámi,
og stór hluti þjóðarinnar verður
fölur og fár og nær ekki svefni
fyrir afþreyingaráþján. Hnipin
þjóð i vanda.
Menningarverðlaun
Dagblaðsins
Ég auglýsti eftir menningar-
verðlaunum um daginn, og vakti
fyrir mér meðfram öðru að ögra
auðmönnum okkar til að gefa
fyrir sálu sinni, og láta ögn renna
til menningarþurfta. Ég nefndi
ekki ánægjulega undantekningu i
tómlætinu sem rikir. Og lengist
biðin eftir þvi að minnt sé á
menningarverðlaun þau sem
Dagblaðið veitir árlega með
rausn og gestrisni. Þar eru sér-
stakar dómnefndir nýskipaðar
hverju sinni sem fjalla um helztu
viðburði ársins undanfarins á
hverju listsviði og velja siðan
þann sem þeim virðist ágætastur
á tilteknu sviði um þá lengd
timans frá þvi siðast var glaðzt af
þvi mæta efni. Og efnt til nýrrar
veizlu. Ég hef notið þeirrar
ánægju að vera gestur I þeim
veizlum sem haldnar hafa verið
við afhendingu verðlauna Dag-
blaðsins, að visu ekki til að þiggja
verðlaun, sem varla var heldur
von, heldur hinn ágætasta kost i
mat og drykk, göfug vin og hæfi-
legan mat hugvitsamlega út-
metinn, enda gestgjafinn einn
frægasti sérfræðingur landsins i
þeirri lyst, sjálfur ritstjórinn. Að
öðru leyti hefur framkvæmdin
verið undir skellegri og
skilmerkilegri stjórn menn-
ingarritstóra dagblaðsins, Aðal-
steins Ingðlfssonar. Þessi gesta-
boð hafa verið með menningar-
blæ, glaðlegar samkomur með
nytsamlegum samræöum,þarsem
liðsoddar listamanna auk verð-
launafólksins hafa i hlýlegum sal
og andrúmslofti getað skipzt á
hugmyndum innbyrðis og við
áhrifafólk á vettvangi fjölmiðla;
og hefur enda oft tekizt vel valið á
þeim sem verðlaunin hlutu og at-
hygli. Þessi verðlaun eru miðuð
við verðleika að álitum dóm-
kvaddra matsmanna. En ekki
einsog svonefnd bókmenntaverð-
laun sem eru afhent á siðasta degi
ársins úr sjóðum útvarpsins, og
virðist ætlunin að þau fái einu
sinni á ævinni hver einasti maður
sem hefur sloppiö inn i rithöf-
undafélag,- þar eru einhverjar
viðustu inngöngudyr i samvirki á
tslandi.
Um daginn var ég að finna að
þvi að ekki væru menningarverð-
laun á hverju strái með svo gáf-
aðri þjóð. öllu hægara er um alls-
kyns skvisuprisa og diskódjásn
handa fegurðardrottningum,
með stórgjöfum, glæsibilum fyrir
iturleika á dansvelli, langferðum
fyrir snotra snoppu og umsamið
vaxtarlag og limaburð taminn við
tizkufatasýningar og sundfata i
vatnslausum gleðibólum, eða til-
gerðum i menntastofnunum sem
kenna sig tizlRi. Supermiss Sony,
Super-duper-doll Dairy Queen,
Miss Beirut Bomb, Miss Bangkok
Bang-bang, Bombay Bom,
Búrúndi boom.