Þjóðviljinn - 08.01.1982, Qupperneq 1
UOmiUINN
Föstudagur 8. janúar 1982 — 4. tbl. 47. árg.
■ Fjárhagsáætlun borgarinnar samþykkt:
53% hækkun i
Frá upphafi formanna- ogfulltrúafundar sjómannaí gær. Mikil spenna
vac i loftinu, og talað um að samstaða sjómanna væri ekki jafn mikil og
af er látið. (Ljósm. —gel)
Sj ómannafimdurinn í gær:
Vinnuveitenda-
sambandið:
Kosningaskjálfti kominn í íhaldið
Fjárhagsáætlun Reykjavlk-
urborgar var samþykkt i borg-
arstjórn i gærkvöldi og hækkar
áætlun um 53.24% á milli ára.
Er gert ráð fyrir sömu tekju-
stofnum og á siðast ári og voru
tillögur Sjálfstæðisflokksins um
tekjulækkun borgarinnar allar
felldar.
I áætluninni er gert ráð fyrir
120 miljónum króna til bygg-
ingaframkvæmda og eru
stærstu liðirnir stofnaöir i þágu
aldraðra, B-álmu Borgarspital-
ans, bygging leiguibúða, dag-
heimila og leikskóla ásamt
skólabyggingum og iþrótta-
mannvirkjum.
1 umræðum um áætlunina
sem stóðu klukkutimum saman
mátti fá kenna aö kosninga-
skjálfti hefur gripið um sig
meðal Sjálfstæðisflokksmanna
sem fluttu hver á fætur öðrum
langar framboðsræður sem
fjölluðu næsta litið um fjárhags-
áætlunina sjálfa. Þ>ó flestum sé
kunnugt um aö framkvæmdafé
borgarinnar er af skornum
skammti er eins og sú staðreynd
hafi farið gjörsamlega framhjá
borgarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins sem höfðu það eitt til
málanna aö leggja að lækka
þyrfti tekjur borgarinnar um 75
miljónir króna. Við fyrri um-
ræðu lögðu þeir til að tekjurnar
yrðu lækkaðar um 65 miljónir en
höfðu ekki fyrir þvi þá að benda
á hvað ætti að skera niöur á
móti. Hafði þeim farið nokkuö
fram að þessu leyti því i gær
fylgdu niðurskurðartillögur
m.a. um aö aðgangseyrir að
sundlaugum yrði hækkaður,
áhaldakaup Borgarspitalans
skorin viö trog og framlag til
BÚR og SVR yrði lækkaö um 12
miljónir. Þá vildu þeir leggja
framkvæmdaráð borgarinnar
niður og draga úr starfsemi
Borgarskipulagsins til hálfs.
Taldi oddviti Sjálfstæöis-
flokksins að fjárhagsáætlunin
væri „óráðsiuáællun” sem ekki
myndi endast nema nokkra
mánuði en bar hins vegar ekki
fram neinar breytingatillögur
né ályktunartillögur. Kristján .
Benediktsson haföi orð fyrir ,
meirihlutanum og sagði hann
m.a. að engin ástæða væri til að
ætla að þessi fjárhagsáætlun
yrði skorin niður á miöju ári
fremur en aðrar áætlanir sem
vinstri meirihlutinn hefði unnið
og samþykkt. Minnti hann á að
það hefði hins vegar veriö regla
siðustu 12 árin sem ihaldið
stjórnaði borginni að fjárhags-
áætlun væri tekin upp á miðju
sumri en slikt hefur ekki gerst
siöan núverandi meirihluti tók
við. — AI
OK I
d
Spáir
nú 55%
verð-
bólgu
en spáði 85%
fyrir ári!
Svokölluð hagdeild Vinnuveit-
endasambands lslands hefur sent
frá sér ,,spá” um þróun verðlags
á árinu 1982. Eins og menn muna
spáöi hagdeild Vinnuveitenda-
sambandsins fyrir ári siöan 85%
verðbólgu á árinu 1981. Þessi spá
reyndist hins vegar ekki mark-
tækari en svo, aö i stað þess að
verðlag hækkaði um 85% frá upp-
hafi til loka árs þá varð hækkunin
42%, eða réttur helmingur þess
sem spáð var af hagdeild V.S.l.
Nú spáir þessi sama hagdeild
Vinnuveitendasambandsins 55%
verðbólgu á árinu 1982, og hefur
þannig lækkaö sig frá spánni i
fyrra um fullan þriðjung, og má
segja að sú lækkun sé i takt við
lækkun verðbólgunnar i raun á
siðasta ári.
Nú er hinsvegar eftir að vita
hvort spáin reynist i ár jafn viðs
fjarri veruleikanum og i fyrra!
Langur fundur
Fundur formanna og fulltrúa
sjómannafélaganna hófst um
fimmleytiö i gæ'r. Sjómannasam-
bandiö boöaöi til fundarins og
rikti mikjl spenna i upphafi
fundar þegar Ijósmyndari kom á
vettvang. Fréttamönnum var
meinaöur aðgangur aö fundinum,
Fundinum var ekki lokið um miö-
nætli þegar blaöið fór i prentun.
Hækkun verð-
lags og launa
A tveggja ára timabili fyrir
kjarasamninga Alþýöusam-
bandsins i nóvembermánuöi s.l.
höföu kauptaxtar verkafólks og
iönaöarmanna hækkaö um 125,1%
i krónutölu. A sama tima haföi
framfærslukostnaöur hækkaö um
123,2%, verö á neysiuvörum um
122,3% byggingarkostnaöur uin
128,5% og lánskjaravisitala um
124,5%.
Þessar upplýsingar koma fram
i desemberheftinu af Hagtölum
mánaðarins, timariti Seðlabank-
ans.
Ef aöeins eru teknir siðustu 12
mánuðurnir sem yfirlit Seðla-
bankans nær yfir, þá hafa kaup-
taxtarnirhækkað um 54,0% (fyrir
nýja kjarasamninga), fram-
færslukostnaðurinn um 47,9%,
neysluvöruverðið um 47,5% bygg-
ingarkóstnaðurinn um 50,5% og
lánskjaravisitalan um 48,2%.
Samkvæmt þessum upplysing
um Seðlabankans hefur kaup-
máttur taxtakaupsins farið vax-
andi á siðasta ári, hvaða viðmið-
un sem notuð er. Sé hins vegar lit-
ið yfir tveggja ára timabil frá
haustinu 1979 til hausts 1981, þá
hefur kaupmáttur taxtakaupsins
einnig vaxið litið eitt á flesta
mælikvarða, en rýrnað þó aðeins
sé byggingarkostnaður notaður
sem viðmiðun.
Enda þótt fariö væri aö draga nokkuö úr Skaftárhlaupinu.siödegis i gær, er þaö enn mjög mikiö, eins og þessi mynd sem Ijósmyndari Þjóöviljans
— eik — tók i gær af brúnni yfir Eldvatn. Brúarstöpullinn t.h. á mynd inni, er talinn i mikilli hættu I hverju Skaftarhlaupi, enda stendur hann á
móbergsklöpp og vatniö nagar úr honum.
Skaftárhlaupið í rénun
sagði Guðlaug Þorbergsdóttir húsfreyja á Skaftárdal
Ef marka má vatnshæöina hér
viö brýrnar, þá er hlaupiö heldur ■
tekiö að rcna, sagöi Guölaug Þor-
bcrgsdóttir, húsfrcyja á Skaftár-
dal, þcgar Þjóðviljinn ræddi við
hana siödegis i gær og spuröist
frétta af hlaupinu.
Guðlaug sagði að dálltið erfitt
væri að átta sig á þessu hlaupi
vegna þess að allt er á is og áin
flæðir þvi viðar en ella. Um það
hvort þau á Skaftárdal heföu orð-
ið fyrir tjóni iþessu hlaupi, sagði
Guðlaug að beinu tjóni hefðu þau
ekki orðið fyrir, en i' hverju
Skaftárhlaupi væri það svo, aö
bithagar í hrauninu, þar sem áin
flæðir yfir, færu afar illa þegar
sandur og leir legðist yfir þá.
Vegurinn heim að Skaftárdal
fór undir vatn i hlaupinu, eins og
skýrt var frá i Þjóðviljanum i
gær, en ekki sagðist Guðlaugur
eiga von á þvi að skemmdir yrðu
á honum, þar sem mikið frost
væri i jörtU.
Sigurjón Einarsson, sóknar-
prestur á Klaustri sagði að mjög
litið bæri á hlaupinu i Skaftá við
Klaustur, hlaupið færi alltaf i
Eldvatnið að mestum hluta og
færi vaxandi frá fyrri árum. Að
þessu sinni var sára litið vart við
hlaupið á Klaustri. Hinsvegar
sagði Sigurjón að ljóst væri að
þetta væri með stærri hlaupum i
ánni. Einnig væri ail mikið um
klakastiflur sem yrðu til þess að
vatnsborðiö hækkar viða meira
en ella.
Sigurjón benti á að hjá Asum
væri gamall kirkjugaröur sem
ævinlega væri ihættu þegar hlaup
er i Skaftá. Staðið hefur til að
gera varnargarð fyrir framan
kirkjugarðinn, en heföi fé verið
veitttil þessá fjárlögum, en bara
svo litlu að hvergi nægði. Hann
sagöi brýna nauðsyn að fara að
gera eitthvað i málinu, þvi sjálf-
sagt vildu menn ekki sjá likkistur
fljóta niður ána. —S.dór