Þjóðviljinn - 08.01.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 08.01.1982, Blaðsíða 16
DJÚÐVHUNN Föstudagur 8. janúar 1982 Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn hlaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 8iZ85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaðsins i slma 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Deilan í Myndlista- oghandíðaskólanum: Mlkill hiti í nem- endum Fjölmennur nemendafundur i Myndlista- og handiðaskóla Is- lands var haldinn i Félagsstofnun stúdenta i gær og fékkst hann ekki haldinn i húsnæði skólans. Mikill hiti var i nemendum vegna sam- skiptaerfiðleika við skólastjórann Einar Hákonarson og var gerö samhljóða áiyktun á nemenda- fundinum sem kynnt verður á skólastjórnarfundi i dag, en þangað hafa fulltrúar nemenda verið boöaðir. Deila stendur i Myndlista- og handíöaskóianum vegna afstöðu skólastjóra og ný- listadeildar og samkomuhalds fyrir jólin. Skólahaldi hefur verið frestað til mánudags vegna deiln- anna sem uppi eru. Styrkveitingar borgarstjórnar: Borgarlelk- hús og Ör- yrkjabanda- lag fá hæsta styrki Fjölmörg félagasamtök i Reykjavik njóta styrkja frá borginni vegna starfsemi sinnar að félags-, menningar- eða liknarmáium. t gær var i borgarstjórn gengiö frá styrk- veitingum ársins 1982. Lang- hæstir eru styrkir til bygg- ingar Borgarleikhúss, 3,5 miljónir króna og.1.5 til byggingar verndaðs vinnu- staöar öryrkjabandalagsins, Af öðrum styrkjum má nefna: Fákur, v. reiðskóla 14 þús., Skátasamband Reykjavikur 70 þús. v. byggingar við Olf- ljótsvatn, KFUM og K 140 þús., Pólýfónkórinn 35 þús., Leikbrúðuland 10 þús., Mynd- höggvarafélagið 84 þús., Alþýðuleikhúsiö 240 þús., þar af 100 þús. v. endurbóta á Hafnarbiói, Nýlistasafnið 20 þús., Safn Ásmundar Sveins- sonar 95 þús., þar af 50 þús. til að skrá verk Á.S., Taflfélag Reykjavikur 167 þús., þar af 75 þús. byggingastyrkur og 12 þús. v. Norðurlandamóts grunnskóla, Reykjavikur- mótið i skák 50 þús., Iþrótta- félag fatlaðra 28 þús., Skóg- ræktarfélag Reykjavikur 84 þús., Farfugladeild Reykja- vikur v. byggingar 175 þús., Blindrafélagið 100 þús. til að auðvelda aðgang fatlaðra að húsnæði félagsins, Krabba- meinsfélag Reykjavikur 98 Framhald á 14. siðu Alþýðubandalagið: Forval í Reykjavík Fyrri umferð 15. og 16. janúar — Seinni umferð 29. og 30. jan. Frá fundi nemenda Myndlistarskólans I gær. Björn Björnsson formaður nemendfélagsins er i ræðustól. Um 120 manns voru á fundinum (Ljósmynd Gunnar Elisson). Köirnun á hagkvæmni íslenskrar áliðju Samningar hafa nú verið undir- ritaðir við norska álfyrirtækið Árdal og Sunndal Verk a/s og Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen hf. um hagkvæmni- athugun á Islenskri áliðju fyrir iðnaöarráðuneytið. Samningur- inn við ASV beinist að könnun á hagkvæmni nýrrar álverksmiöju og felur hann ekki i sér neinar skuldbindingar af hálfu samn- ingsaöila um samstarf á sviði ál- framleiðslu siðar. A vegum ráðu- neytisins munu einnig verða kannaðir möguleikar á úrvinnslu- iðnaði i tengslurn við álfram- leiðslu. Er áætlað að athuguninni Ijúki I september 1982 en hún er liður i viötækri könnun á þeim kostum sem völ er á i orkufrekum iðnaði, i samræmi við markaða stefnu rikisstjórnarinnar. 1 frétt frá iðnaðarráðuneytinu kemur fram að á undanförnum mánuðum hafa ýmis erlend fyrir- tæki sýnt áhuga á samstarfi við Islendinga um ýmsa þætti i ál- vinnslu, m.a. vegna kaupa á áli, sölu á súráli og öðrum hráefnum svo og áhugaaðilar um eignaraö- ild i samvinnu við islenska rikið. Auk ráðuneytisins munu full- trúar úr Orkustefnunefnd rikis- stjórnarinnar hafa umsjón með gerð hagkvæmniathugunarinnar. Árdal og Sunndal Verk er stærsta fyrirtæki i áliönaði i Noregi og er það eingöngu eign norska rikisins. Fyrirtækið rekur 3 álverksmiður i Noregi, og er samanlögð framleiöslugeta þeirra um 350 þúsund tonn af áli á ári. Auk þess rekur fyrirtækið fjölþættan úrvinnsluiönað i tengslum við álframleiðsluna. ASV hefur þróað eigin tækni til ál- framleiðslu og er það eina fyrir- tækið á Norðurlöndum sem það hefur gert. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen h.f. er elsta og stærsta ráðgjafaverkfræðistofa hérlendis og hefur haft með hönd- um hönnun og framkvæmdaeftir- lit með hvers konar meiriháttar mannvirkjum hér á landi. Ráðu- neytið telur mjög mikilvægt að ■tslendingar taki virkan þátt i sem flestum þáttum hagkvæmniat- hugana á orkufrekum iðnaði hér á landi i þvi skyni að byggja upp þekkingu i landinu á sviði orku- nýtingar. Er það stefna ráðuneyt- isins að hér eigi sér stað svipuð þróun og átt hefur sér staö á sviði virkjana, þ.e.a.s. að áætlanagerð og hönnunarvinna færist i vax- andi mæli inn i landið. Alþýðubandalagið i Reykjavik viðhefur forval til undirbúnings röðun á lista flokksins við borgar- stjórnarkosningar i vor, eins og fram hefur komið áður f blaðinu. Fyrri umferðin fer fram næst- komandi föstudag og laugardag, þann 15. og 16. janúar en seinni umferðin fer fram 29. og 30. janúar. Kosið verður á Grettis- götu 3 og verður skrifstofan opin til þessa föstudagana frá kl. 18.00 — 23.00 en laugardagana frá kl. 10.00 — 23.00. Fyrri umferð forvalsins gegnir þvi hlutverki aö tilnefna menn til þátttöku i seinni umferð. Fer hún þannig fram að félagsmenn rita fimm nöfn á sérstakan kjörseðil og skiptir röð nafna ekki máli. Ekki má tilnefna kjörna borgar- fulltrúa i fyrri umferðinni, en heimilt er að tilnefna utanfélags- menn, enda eigi þeir heima i Reykjavík. f seinni umferð eru þeir sem skipa 21 efsta sæti i tilnefningar- röð og þeir borgarfulltrúar, sem gefa kost á sér skráðir á kjörseðla og skal kjósandi i þeirri umferð setja tölurnar 1—10 við nöfn á list- anum eftir þvi hvernig hann vill raða á framboðslistann. Kjörnefndin telur siðan atkvæði úr siðari umferöinni og birtir niðurstööur félagsmönnum. Niðurstööurnar eru ekki bindandi fyrir kjörnefnd, en niöurstaöa hennar skal lögð fyrir fulltrúaráð og almennan félagsfund til endanlegrar samþykktar. Svkr. Leikhúsaðsókn haustið 1981: FJÓRÐI HVER ÍSLENDINGUR Þaö er ekki ofsögum sagt af leikhúsáhuga tslendinga. Gestir i atvinnuleikhúsunum þremur i Reykjavik voru hvorki fleiri né færri en 66.408 frá þvi aö þau hófu sýningar i september s.l. þar til 13. desember. Gestir hjá Leikfélagi Reykja- vikur á þessu timabili voru 31.872, þar af 17.042 i Iðnó, 10.730 i Aust- urbæjarbiói og 4100 i skólum borgarinnar. Gestir Þjóðleik- hússins voru 26.189, þar af 24.691 á stóra sviöinu og 1498 á litla svið- inu. Gestir Alþýðuleikhússins voru 8.347 þar með þeir sem sóttu 3 sýningar á Egilsstöðum. —GRr r« Svæðamót í skák hefst í Danmörku á morgun: — ; Þrír Islendíngar meðal þátttakenda Mótið er liður í fyrsta áfanga j næstu heimsmeistarakeppni Á morgun hefst i Randers i Danmörku svæðamót i skák og eru þrir islenskir skákmenn meðal þátttakenda, þeir Guð- mundur Sigurjónsson, stór- meistari og alþjóðlegu meistar- arnir Heigi Ólafsson og Jón L. Arnason. Svæðamótin eru fyrsti áfangi i næstu keppni um réttinn til að skora á heimsmeistarann i skák. Þvl næst koma milli- svæöamót og loks keppni 8 manna um réttinn til að skora á Anatoly Karpov, heimsmeist- ara. Þetta svæðamót f Randers, er ekki mjög sterkt og ættu is- lensku skákmennirnir að eiga all góða möguleika á að komast áfram. Keppt er i 2 riðlum. Meöal þátttakenda á svæöa- mótinu má nefna Karlson og Wetberg frá Sviþjóð, Hoi og Mortensen frá Danmörku, Ratanen og Hurme frá Finn- landi, Hoen og Helmers frá Noregi, Borik og Freuster og Lobren frá V-Þýskalandi, Grun- feld og Liberzon og Birbou frá Israel, Herzog frá Austurriki. Helgi Ólafsson mun segja fréttir af mótinu i Þjóðviljanum en keppnin hefst sem áður segir á morgun. —S.dór „Vinningurinn var eins og sending af himnum ofanjj Kom okkur yfir erfióasta hjallann í húsbyggingunni” Vinningshafi íHHI r •••••••• •••••••• • ••• ■ ••• • ••• • •••• • •••• • ••• • ••• ■••■ ■••• ■■■■• • •••• •■•* L •••• ••••• ■ •••■ J, HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS hefur vinninginn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.