Þjóðviljinn - 08.01.1982, Page 8

Þjóðviljinn - 08.01.1982, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVIL.JIN -r 1982 Föstudagur 8. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Breytingar á Gamla bíói: „Langt framúr áætlun” 55 Höfum samstarfsandann Rœtt vid Ólöfu Harðardóttur, söngkonu ólöf Haröardóttir syngur eitt aðalhlutverk- anna í óperunni ,,Sígauna- baróninn", sem frumsýnd verðurn.k. laugardag. Hún er einnig einn af frum- kvöðlum Islensku óper- unnar. Við báðum hana að segja okkur undan og ofan af starfinu. „Viö vorum ákaflega stórhuga i byrjun og bjartsýn, þvi er ekki aö leyna. Viö, sem stofnuöum þenn- an félagsskap, vildum láta á þaö reyna i alvöru, hvort slik starf- semi sem þessi gæti gengiö hér. Og þetta gengur auövitaö ekki án samstarfsanda. Þann anda höfum viö i rikum mæli.” Valinn maður í hverju rúmi „Viö fengum Gamlabió i hendur þann 5. október sl. Við byrjuðum músikæfingar þegar þann 20. október og fengum þá leikstjóra erlendis frá. Hann var hér aöeins i þrjár vikur, en þá kom i ljós, aö hann gat ekki lokið þessu verki. Viö urðum þvi aö fara á stúfana og leita aö öðrum leikstjóra, og sú sem fyrir valinu varö, var Þórhildur. Þorleifs- dóttir. Við erum öll ánægö meö það að hafa fengið hana. Hún vinnur mjög vel úr efninu. Efniviðurinn i „Sigaunabaróninum” er kannski ekki ýkja merkilegur, fremur en gerist i óperum yfirleitt. Söngurinn heldur leiknum uppi. En þaö er hreint ekki sama hvernig unniö er úr efninu, og Þórhildur vinnur mjög vel úr þvi. Yfirleitt má segja, aö hér sé valinn maður i hverju rúmi. Iðnaöarmennirnir hafa unniö hér baki brotnu og lagt sig i lima viö aö uppfylla allar okkar óskir. Framkvæmdastjórinn, Arni Reynisson, hefur einnig unnið ákaflega vel. Hiö sama gildir raunar um alla, sem einhverja hönd hafe lagt á plóginn.” Reynum að skapa söngvurum atvinnugrundvöll „Við byrjuðum raunar á þess- ari starfsemi fyrir tveimur árum i Háskólabiói. Þaö gekk auövitað ekki mjög vel — bæöi er þaö hús óhentugt til þess arna og svo höfðum við hreinlega ekki neinn fjárhagsgrundvöll. Arfurinn frá Sigurliða Kristjánssyni og Helgu konu hans hratt þessu raunar af stað. Þá stofnuöum viö einnig styrktarfélag, sem á þetta hús og starfsemina raunar alla. I þvi félagi eru nú um 1.500 manns.” Framhald fyrri baráttu „Söngvarar hafa alla tiö veriö aö reyna aö gera eitthvaö svipað og þaö sem viö erum aö gera nú, þ.e.a.s. að skapa sér einhvern at- vinnugrundvöll. Ég lit á þessa starfsemi hér sem framhald þeirrar baráttu. Söngvararnir i þessari óperu eru allir söngkennarar. Sum okk- ar eru við tónlistarskóla, önnur viö menntaskóla og enn önnur i barnaskólum. Það er fremur ó- skemmtilegt aö hugsa til þess aö við séum að kenna fólki að syngja, sem siöan getur ekkert notaö þetta nám. Þaö situr þvi einna helst á okkur aö finna at- vinnu handa söngvurum. Vonandi tekst þaö með þessari óperu.” Gamla bíó gott hús „Gamla bió tekur um 500 manns i sæti. Þaö tel ég vera góöa stærö fyrir óperur. Uppfærsla ópera er til muna dýrari en venjulegt leikhús og þvi mun húsiö ekki rúma nógu marga til aö bera kostnaðinn aö öllu leyti uppi. Viö stefnum þó aö þvi aö aösóknin beri a.m.k. kostnaö viö hverja sýningu, þ.e. launin. Fjár- magn til annarra hluta verður aö koma annars staöar frá. Viö munum reka kvikmyndastarf- semi hér áfram, og einnig vonum við, að fólk hafi áhuga á aö fá hér inni meö hljómleikahald. Þetta hús hefur einstakiega góöan hljómburö — liklega þann besta sem finnst i nokkru húsi hérlend- is. Húsiö er i rauninni byggt eins og hljóöfæri. Hér uppi er steinþak en viðarioft og holrúm þar á milli. Hið sama má segja um gólfið. Það er fyrst steypt, en siöan lagt á það viðargólf — raunar eru viöargólfin oröin tvö, þvi þegar sætin voru hækkuö núna var þaö gert meö þvi að leggja nýtt gólf ofan á þaö gamla. Þá má einnig nefna, aö stór hluti sviðsins er inni i sjálfum salnum, en ekki utan hans eins og er i flestum leikhúsum. Þetta allt saman skapar þennan einstaka hljóm- burö.” Bjartsýn á framhaldið „Auðvitaö erum viö bjartsýn á aö allt gangi vel. Viö erum öll byrjendur I óperurekstri og höfum þurft aö reka okkur á ýmislegt. Viö lærum hins vegar margt af þvi og komum vonandi sterkari út. Aösókn befur alla tiö veriö góö aö óperum og óperettum sem hér hafa verið sýndar. Hvi skyldi þá ekki vera góö aösókn núna? Viö erum sannfærð um aö svo veröi.” ast Stefán Benediktsson, arkitekt Gamlabiós.' Ljósm. — gel. Dóra Einarsdóttir, búningsmeistari lagar búning Elisabetar Erlings- Séö yfir sviöið. I forgrunni er stjórnborðið fyrir nýja ljósabúnaöinn. Ljósm. — gel. dóttur. Gamla bió hefur tekið nokkrum stakkaskipum undanfarið vegna tiltekta Islensku óperunnar í húsinu. Breytingarnar eru þó ekki eins miklar og álíta mætti að óséðu — fyrrum bíógestir munu fyllilega kannast við sig innandyra og minnast gamalla popp- kornsslagsmála með til- heyrandi hvii inni i þessu virðulega húsi. Arkitekt hússins i dag heitir Stefán Benediktsson og okkur tókst aö króa hann af örstutta stund og láta hann segja okkur af helstu breytingum hússins. Þetta hús var byggt árið 1926 og þá i þeirri mynd, sem nú er, sagði Stefán. Þaö sem við höfum gert nú er i fyrsta lagi aö stækka sviöiö til muna, i ööru lagi smiöa hljóm- sveitargryfju og i þriöja lagi aö hækka gólfiö i sal og sömuleiöis uppi á svölunum. Söngvarar og annaö starfsfólk hafa enn ekki fengiö starfsaðstööu, en fyrir- hugaö er aö hún veröi hér i kjall- aranum. Þar til hún ris veröa menn að gjöra svo vel aö fara svona aö. Og Stefán bendir á Gunnar Guttormsson þar sem hann sprangar um berlæraður og biöur þess aö saumastúlkurnar ljúki viö brókina hans. Kostnaðaráætlun vegna breyt- inganna hljóöaöi uppá ca. 2 milj- ónir en Stefán segir ljóst, aö farið veröi fram úr þeirri áætlun. Ljósaútbúnaöurinn er dýrasta stykkið og hleypir verðinu upp. Ekki treysti Stefán sér til aö slá á neina tölu um kostnaöinn — sagöi aö hann yröi mun hærri en gert var ráð fyrir. —,ast Ráðgast við pianóleikarann. Æfingar fara fram innan um allt smiðadótið og málninguna. Ólöf Harðardóttir Á morgun, laugardaginn 9, janúar 1982, mun draumur margra söngvara og óperuunnenda loksins rætast: Klukkan átta stundvislega mun tjöld- unum veröa svipt frá sviði Gamlabíós og hinir lán- sömu frumsýningargestir munu líta augum hið kunna verk Jósefs Strauss, ,,Sígaunabaróninn". Mikiö verk liggur að baki þessari sýningu, eins og kemur fram i viðtali viö Ólöfu Haröar- dóttur, söngkonu, hér i opn- unni. Svo má heita, aö flestir að- standendur sýningar innar hafi unniö dag og nótt i hartnær þrjá mánuöi, eöa siöan 5. október að islenska óperan fékk húsiö af- hent. Siöan hefur mikiö vatn runnið til sjávar, og húsið tekið miklum breytingum. „Sigaunabaróninn” á að gerast á árunum 1740-50. Þetta er i raun óperetta, en gengur yfirleitt undir nafninu ópera. Efnisþráðurinn er ekki ýkja merkilegri en gengur og gerist i óperum: Þaö er söngurinn sem blifur. I „Sigaunabarón- inum” ber það helst til tiöinda, aö Barenkai snýr til fööurleifðar sinnar, sem er litið annað en rústir einar. Svinabóndi nokkur, sem haföi nýtt land ættarinnar, býöur Barenkai dóttur sina til aö missa ekki landiö alfarið úr höndum sér. Sígauna- baróninn En dóttir svinabóndans er skotin i öörum, sem er lika skot- inn i henni: Barenkai verður skotinn i sigigaunastúlku, sem verður lika skotin i honum. Leyndur fjársjóöur finnst i kastalarústunum, sem sigaunar hafa lagt undir sig, og Barenkai veröúr sigaunabarón. Siðan kemur striö... Hvað skeður meira i leiknum viljum við ekki láta uppi, enda helber óþarfi. Söngvarnir eru til þess að njóta þeirra og óþarfi að velta vöngum yfir heimspek- inni i leiknum. Njótiö bara heil. Hér má sjá tvo af aðalsöngvurunum i stykkinu, þá Kristin Sigmunds son og Garöar Cortes auk leikstjórans Þórhildar Þorleifsdóttur. Bók til heiðurs Sigurði Þórarinssyni: Galdrað í gjósku 47 ritgerðir um fjölbreytileg efni 1 tilefni af sjötugsafmæli dr. Siguröar Þórarinssonar jarð- fræðings, sem er i dag 8. janúar, hafa eftirtalin félög ákveðiö að gangast fyrir afmælisriti honum til heiðurs: Hið islenska nátt- úrufræðifélag, Hið islenska fornleifafélag, Jarðfræðafélag tslands, Jöklarannsóknafélag tslands, Landfræöifélagið. Nor- ræna félagið, Sögufélag, Vis- indafélag tslendinga. Landfræöifélagið haföi for- göngu að verkinu en útgefandi er Sögufélag. I ritnefnd eru Helga Þórarinsdóttir, Ólafur H. Óskarsson, Sigurður Steinþórs- son og Þorleifur Einarsson. Bókin á að koma út I mars og hefur a.m.k. til bráðabirgða hlotið nafniö „Galdraö i gjósku”. 1 bókinni verða eftirtaldar 47 ritgeröir: Bjarni Reynarsson: Verslun- armynstur Reykjavikur. Einar H. Einarsson: Súra gjóskulagið á Sólheimum og viöar i Mýrdal. Eysteinn Tryggvason: Nokkrar hugleiöingar um Grimsvötn, mesta jaröhita- svæði jarðar. Guðmundur E. Sigvaldason: öskjugosið 1875. Guðrún Larsen: Gjóskutima- bil Jökuldals og nágrennis. Guörún Sveinbjarnardóttir: Byggðaleifar viö Einhyrnings- flatir i Fljótshliö. Guttormur Sigbjarnarson: Alpajöklar og öldubrjótar. Gylfi Már Guöbergsson: Um landnýtingarkort. Ilákon Bjarnason: Mælingar á árhringum trjáa. Halldór Laxness: Sögur meö visum á sjötugsafmæli Siguröar Þórarinssonar. Ilaraldur Sigurðsson fyrrv. bókavöröur: Olaus Magnus seg- ir frá íslandi. Haraldur Sigurðsson jarð- fræðingur: Otbreiösla islenskra gjóskulaga á botni Atiantshafs. Haukur Jóhannesson: Kvart- er eldvirkni á Vesturlandi. Hclgi Björnsson: Varmamæl- irinn i Grimsvötnum, eldvirkni, orsakir og eöli jaröhita. Hélgi Hallgrimsson: Um Gæsadal viö Gæsafjöll og upp- runa hans. Hjálmar Ólafsson: Nokkur orð um norræna stefnu. Hreggviður Nordahl: Ljós vikurlög frá seinni hluta siöasta jökulskeiös i Fnjóskadal. Jakob Benediktsson: Carmen Sapphicum. Jón Benjaminsson: Gjóskulag „a” á Norð-Austurlandi. Jón Helgason: Greifi úr Svi- þjóö og bragsmiöir af Islandi. Jón Jónsson: Um ögmundar- hraun og aldur þess. Karl Grönvold: Liparitstap- inn Höttur i Kerlingarfjöllum. Kristján Eldjárn: Aö setjast i aflgröf. Kristján Sæmundsson: öskj- ur á virkum eldfjallasvæöum á lslandi. Kristinn Albertsson & Þorleif- ur Einarsson: Aldursgreining- ar. Leifur A. Simonarson: Surt- arbrandsgil hjá Brjánslæk. Magnús ólafsson: Nokkur at- riöi um bergfræðitilraunir. Margrét Hallsdóttir: Frjó- greining tveggja jarövegssniöa úr Hrafnkelsdal — áhrif ábúðar á gróðurfar dalsins. Markús A. Einarsson: Veöur- farið og athafnir manna. Niels Óskarsson: Um efna- hvörf i gosgufu. Páll Bergþórsson: Ahrif lofts- lags á búfjárstofn og þjóöarhag. Páll Einarsson og Jón Eiriks- son: Jarðskjálftasprungur i Rangárvallasýslu. Páll Imsland: Um flotjafn- vægi — tengsl þess viö eldvirkni og gerð jaröskorpu, og áhrif á landnýtingu. Páll Lindal: Striö og friöur — saga náttúruverndarmála. Sigfús Jónsson: Landfræði- legar breytingar á útgerö 1900 — 1940. Sigurður Björnsson: „Liföi engin kvik kind eftir?”. Siguröur Steinþórsson: Gjóskulög á Báröarbungu. Sigurjón Hist: Flóö og flóða- hætta. Sigurjón Sindrason og Halldór ólafsson: Siritandi hallamælar. Stefán Arnórsson: ölkeldur. Stefán Aðalsteinsson: Upp- runi islenskra húsdýra. Sturla Friðriksson: Linakrar á Bergþórshvoli. Sveinbjörn Kafnsson: Um aldur ögmundarhrauns. Valdimar Kristinsson: Hug- leiöingar um mannfjölda á Is- landi og dreifingu hans. Þór Jakobsson: Sagt frá leiö- öngrum. Þorleil'ur Einarsson: Saga Hvitárgljúfursog Gullfoss i ljósi öskulagarannsókna. Þorbjörn Sigurgeirsson: Hag- nýting hraunhita. Auk ritgerðanna verða birtar myndir úr ævi Sigurðar, rita- skrá hans, æviágrip eftir Þorleif Einarsson og „Tabula gratulat- oria”, — nöfn þeirra sem heiöra vilja Sigurö á sjötugsafmælinu með þvi að gerast áskrifendur aö bókinni. Bókin veröur seid áskrifend- um á 350 krónur. Giróseðlar veröa sendir félögum i Sögufé- lagi, Náttúrufræöifélagi, Vis- indafélagi, Jöklarannsóknafé- lagi, Jaröfræöafélagi, Land- fræðafélagi og Fornleifafélagi. Aðrir, sem vilja gerast áskrif- endur, snúi sér til Sögufélags, Garöastræti 13b, simi 14620. SPRELLIGOSI Þióðleikhúsið sýnir GOSA eftir Brynju Bcnediktsdóttur /C. Collodi Leikstjórn: Brynja Benedikts- dóttir Leikmynd: Birgir Engilberts Tónlist: Sigurður Rúnar Jónsson Italska sagan um spýtustrákinn Pinocchio, eða Gosa, sem varð aö lifandi strák eftir margvislegar raunir,hefurreynst furðu lifseig i margvislegum myndum, m.a. gerði Disney upp úr henni eina af sinum áhrifamiklu teikni- myndum, sem enn stendur mér lifandi fyrirhugskotssjónum eftir nær þrjátiu ár. Saga þessi er mjög i stil nitjándu aldar barna- sögu þar sem mikil áhersla er lögö áboðskap. Barnið á að ganga i skóla og veröa nýtur maöur en ekki sækjast eftir auðfengnum frama ellegar fánýtum lifs- gæðum. Og að lokum öölast Gosi garmurinn lifiö meö þvi aö fórna þvi. En af hverju liíir þessi saga meðan þúsundir annarra sagna meö svipaöan boðskap innbyrðis eru löngu sundurmalaðar af timans tönn? Liklega vegna þess aö hún byggir á heillandi hug- mynd,lifandi sprellikarl sem loks veröur aö manneskju, og er auk þess full af spennandi atvikum. Aherslan er ekki á siöapredikun- inni heldur á frasögninni, sögunni sjálfri, eins og vera ber. Brynj.u Benediktsdóttur hefur tekist mjög vel aö koma þessari sögu á sviö. Texti hennar er viðast lipur, þótt hann hefði mátt vera litrikari og hnitmiöaöri á stöku stað. En Brynja hefur greinilega litiö á hann fyrst og fremst sem hjálpartæki kringum Sverrir Hólmarsson skrrfar um I I sýninguna sjálfa, þaö sem fram fer á sviðinu. Og það er einmitt vegna þess hve leikgerb Brynju er greinilega sjónrænt hugsuð sem hún skilar sér eins vel og raun ber vitni. 1 leikstjórn sinni hefur Brynja ævinlega sýnt aö hún býr yfir mjög sterku leikrænu imyndunarafli, hún á mjög auð- velt með aö láta sér detta i hug uppákomur og gjörninga sem verka á svibi. Næg eru dæminum slikt i þessari sýningu, eins og t.d. þegar Flökkujói ýmist styttist eöa lengist, ferðin niöur á hafsbotn og dýralifiö þar, allt umstangið i kringum ferðaleikhúsiö. Þar vakti reyndar sérstaka athygli einkanlega vel útfæröur smáleik- þáttur byggöur á hinni sigildu itölsku commedia dell’arte hefö meö þeim Harlekin, Kólumbinu, Pantalon og Pierrot i hefö bundnum hlutverkum. Þessi sér- lega stilhreini leikþáttur sam einar þokka, skemmtun og upp- lýsinguá einstaklega smekklegan hátt. Sýning þessi gengur greiölega áfram, það eru engir dauðir púnktar, skiptingar eru snöggar, þaö er alltaf eitthvaö nýtt að gerast og hún virðist halda at- hygli barna óskiptri. Leikmynd og búningar Birgis Engilberts eru vandaö verk og skemmtilegt, t.d. er kofi Láka alveg ekta ævintýra- kofi og gerfi Flökkujóa er sér- stakt afbragð. Tónlist Sigurðar Rúnars er fjörleg og skemmtileg eins og hann á vanda til (minnis- stæðar veröa linurnar sem eru einkunnarorð Loga leikhússtjóra: við lifum á óförum annarra /ekkert listform er sannara), en sumir textarnir eru einum of flóknir fyrir börn, t.d. er ég hræddur um aö söngur Refs og Kisu með viölagi úr dánarljóöi Hadrianúsar keisara hljóti aö fara fyrir ofan garð og neðan hjá flestum börnum. Leikur er yfirleitt jafn og góöur. Arni Blandon nær einkar vel hreyfingum söguhetjunnar, er mjög sannfærandi spýtulegur. Siguröur Sigurjónsson veröur einskonarandstæöa hans i hreyf- ingum, kattliöugur og næstum eins og úr engu efni. Arni Tryggvason er sannur og ein- lægur i hlutverki Láka. Þá koma fram Hákon Waage og Anna Kristfn Arngrimsdóttir i skemmtilegum gervum og með ágætt látbragð og söng i hlut- verkum Refsog Kisu.Flosi Ólafs- son er grófur og óheflaður leik- hússtjóri og veröur sannfærandi illmenni, en Andri Orn Clausen náöi hins vegar ekki aö veröa verulega ógnvekjandi i hlutverki Ara ökumanns á undralifsvagn- inum. Margrét Akadóttir lék Huldu heilladis og var einhvern veginn utangátta. Kannski var þaö ekkertgóö hugmynd eftir allt saman aö láta hana vera svona hávaxna. 1 heild er þetta hugmyndarik og hressileg sýning, gott leikhús, og þarafleiðandi ætti hún aö geta skemmt fullorönum engu siður en börnum. Sverrir Hólmarsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.