Þjóðviljinn - 02.03.1982, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 2. mars 1982
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Otgefandi: Útgáiufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjart^n
Ólafsson. -1
Fréttastjóri: Alfheiöur Ingadóttir.
'Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdóltir, Magnús H. Gislason, Óskar
Guömundsson,,Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
iþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi Óiafsson.
útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriöur Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guörún Guovaröardóttir, Jóhannes Harbarson.
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Ólöl Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son. i
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
útkevrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Heykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Samningal—annars
einhliða aðgerðir
• Á fundi sínum s.l. föstudag gerði miðstjórn
Alþýðubandalagsins einróma samþykkt, þar sem
hvatt er til einhliða aðgerða af (slands hálf u gagnvart
Alusuisse, fáist auðhringurinn ekki til að fallast á
endurskoðun gömlu álsamninganna. Þar segir m.a.:
• „Alþýðubandalagið telur að gera verði eftir-
farandi kröf ur á hendur Alusuisse:
1. Að raforkuverð verði hækkað þannig, að það nemi
ríflega kostnaðarverði frá nýjum virkjunum.
2. Að skattgreiðslur fyrirtækisins verði tryggðar bet-
ur en nú er gert með því að taka mið af veltu og
hagnaði meðótvíræðum hætti.
3. Að bókhald og rekstur fyrirtækisins verði undir
stöðugu eftirliti íslenskra stjórnvalda.
4. Að íslensk stjórnvöld fái betri aðstöðu til þess að
fylgjast með mengun og öðrum umhverfisáhrifum
af starfsemi fyrirtækisins.
5. Að íslendingar eignist meirihluta í fyrirtækinu á
grundvelli nýs samnings, þannig að landsmenn haf i
forræöi á eignarhaldi, hráefnisöflun og afurðasölu
og að fyrirtækið lúti i einu og öllu íslenskri lögsögu,
þar á meöal íslenskum dómstólum."
• I samþykkt Alþýðubandalagsins segir ennf remur:
„Þolinmæði landsmanna er á þrotum. Alusuisse
hefur tregðast við að svara sanngirniskröfum
íslensku ríkisstjórnarinnar um endurskoðun samn-
inga á annað ár. Þess vegna er nauðsynlegt að knýja á
um úrslit málsins. Neiti forráðamenn fyrirtækisins
enn að viðurkenna nauðsyn á endurskoðun samninga
hljóta einhliða aðgerðir að vera á dagskrá.
• Fáist fulltrúar Alusuisse ekki til þess að koma til
móts við sanngjarnar kröfur íslensku ríkisstjórnar-
innar, ber að setja fram kröfu um yfirtöku fyrirtækis-
ins að fullu."
• Hér er talað tæpitungulaust svo allir megi skilja,
og sagt það sem segja þarf.
• Fáist Alusuisseekki til að ganga til samninga,
hvorki um deilumálin frá liðinni tíð, né um stór-
hækkað raforkuverð og endurskoðun fyrri samninga,
þá hljótum við fslendingar að grípa til einhliða
aðgerða.
• l þá rösklega 14 mánuði, sem deilan hefur nú
staðið hefur alls ekkert heyrst frá Alusuisse nema
vífilengjur. Þannig geta málin ekki gengið til mikið
lengur.
• Morgunblaðið lætur að því iiggja í frásögn sinni
af samþykkt Alþýðubandalagsins, að nú hafi verið
fallið frá kröf um um bætur vegna yf irverðs á súr-
áli og rafskautum til verksmiðjunnar á árunum
1975—1980. Svo er ekki, og hafa um 23 miljónir ný-
króna af þessu fé, vegna ársins 1980, reyndar þegar
verið innheimtar með lækkun á hinni furðulegu
skattainnistæðu Alusuisse, sem hér hefði hlaðist upp á
biðreikningi.
• Frá því var hins vegar greint í sameiginlegri
fréttatilkynningu íslensku álviðræðunefndarinnar og
fulltrúa Alusuisse þann 4. des. s.l., að aðilar hefðu
orðiðásáttir um að leggja hin eldri deilumál „til hliðar
í bili" meðan kannað væri hvort unnt reyndist að ná
samkomulagi um endurskoðun samninga.
• Það er þessi endurskoðun, sem Alusuisse er nú að
reyna að skjóta sér undan, en þeir hafa áður neitað
öllum bótagreiðslum vegna vanefnda á fyrri árum.
Þeir vilja áfram fá að kaupa hér raforku fyrir aðeins
einn þriðja af kostnaði við að framleiða orkuna og
þeir vilja áf ram geta hækkað súrálið og önnur aðföng
„i hafi" aðeigin geðþótta til að sleppa við skatta.
• Krafan um einhliða aðgerðir af okkar hálfu er þvi
í alla staði timabær nú, — biðtíminn er að renna út.
útibússtjóri Alusuisse á islandi sem samtök kaup-
sýslumanna sýnast vilja gera að landstjóra hér, sagði
í sjónvarpinu á föstudag að það væri reikningsvilla í
tölum ríkisstjórnarinnar um yfirverðá rafskautum.
• Við ráðleggjum útibússtjóranum að draga þessa
fullyrðingu til baka, því tölur ríkisstjórnarinnar eru
ekki aðeins staðfestar af hinu virta endurskoðunar-
fyrirtæki Coopers & Lybrand í London, heldur einnig
af færustu sérfræðingum, sem íslensk stjórnvöld
fengu til liðsinnis fyrir milligöngu Sameinuðu þjóð-
anna. —k.
Klippt
og óstytt
Hér á siöunni til hliöar er
rætt um blaöaherferöina
gegn Alþýöubandalaginu.
Menn taka gjarnan miö af
sinu umhverfi og eitthvaö
viröist hún hafa smitaö af
sér inn á rikisfjölmiölana.
Siöastliöið föstudagskvöld
var til aö mynda birt viötöl
viö Hjörleif Guttormsson
iönaðarráöherra og Ragnar
Halldórsson starfsmann Alu-
suisse. Viötaliö viö ráöherr-
ann var kiippt bak og fyrir,
og meira að segja teknar út
setningar eins og sú aö sam-
staöa væri i rikisstjórn um
málsmeröferöina. Hinsveg-
ar var viötaliö viö talsmann
Alusuisse aö sjálfsögöu birt
óstytt. Geöleysið gagnvart
auöhringnum riöur ekki viö
einteyming.
Frjáls hœkkun
í hafi
En vanmetakenndin gagn-
vart voldugum erlendum aö-
ila fyrirfinnst ekki aöeins á
fjölmiölunum Islensku. Sú
ákvöröun Verslunarráös Is-
Iands aö kjósa Alusuisse-for-
stjórann sem formann sinn
hefur mörgum komiö'
spánskt fyrir sjónir. Eina
skýringin sem virðist liggja i
augum uppi er aö viöskipta-
jöfrum Islands hafi legiö á að
fá staögóöa leiöbeiningu i aö
koma upp svikamyllum eins
og Alusuisse I aöflutnings-
málum. Þvi segja menn að
helsta baráttumál Verslun--
arráösins undir formennsku
Alusuisse-forstjórans veröi
frjáls hækkun i hafi.
IH meðferð á Quðrúnu
.SðrtW W*<0 4 «*,kl aó W(* «!M4tttm ’ GwíxúB tUtgwktt-
v. og bwotfMtnX, I vWf»8 vio Þjóiviijann,
hún t*r» i>*ð. v»on* Nin ww Hutt út þrWÍ* i títunto t
8W» HctkKt 5v)ð Hvw, vcQO* vw
GuOn*, «É> 9«,« kcm « w, i t*no mMwppnað* kwa* AjpýíK>.
twnúa(agwo? Hún mw nfi fyAnts* vép. S«mn
ó«t«ww, tlokkilomam*. tmvúcM. «v>u «** *«}*< I fokki
#x*n. 9v*v»r a* *vo fyrtrnwM um að &jón*t Nwt I áuureja *•*»>
Skemmtiefni
Sú var tiöin aö Morgun-
blaðiö birti nákvæmar fréttir
af innri málum Alþýöu-
bandalagsins. Þaö var á tim-
um kosningabandalagsins
sem stóö til 1968, og var þessi
vandaöa fréttamennska
gjarnan rakin til Marbakka-
ættarinnar. Fréttum Morg-
unblaðsins af gangi mála i
Alþýöubandalaginu hefur
mjög hrakaö á siöustu árum
og keyrir þó um þverbak siö-
ustu daga. Er engu likara en
skriffinnar Moggans spinni
upp úr sjálfum sér delluna.
En sé svo aö þeir hafi heim-
ildarmann skal Morgunblaö-
inu I fullri vinsemd ráölagt
aö skipta um fréttaritara.
Mönnum getur þótt vænt um
andstæöinga sina en er þaö
ekki of langt gengiö aö út-
vega þeim skemmtiefni til
upplestrar á fundum?
klippt
— og litiiþæga afstööu þeirra
andspænis auöhringnum ”. Á
sinn sérkennilega hátt hefur
Tíminn tekiö fullan þátt i
þessari rógsherferö.
Útnefndur
andstæöingur
Það er afar fróölegt að iita
yfir dagblööin þessa dagana.
Þaö ersama hvort litiö er i Dag-
blaðiö, Morgunblaöið, Alþyöu-
blaðiö eöa Timann. öll eru þau
upöfuD af rætnum árásum á Al-
þýðubandalagiö, og teygja sig
býsna langt i rangfærslum og
útúrsnúningum. Kosningar eru
að nálgast og þetta ,,forval”á
andstæðingi sýnir svo ekki
verður um vilist aö vænta má
mikilla umskiptai stjórnmálum
á næstu mánuðum. Athyglisvert
er aö forysta Alþýöuflokksins
hefur hvarvetna, þar sem áöur
voru samdgínleg vinstri fram-
boö, komiö þvi til leiöar aö upp
úr þeim slitnaði. Kratarætia aö
hafa óbundnar hendur að
loknum kosningum og formaöur
flokksins Kjartan Jóhannsson
rær aö þvi öllum árum að
myndaðir veröi meirihlutar i
bæjarstjórnum gegn Alþýöu-
bandalaginu.
Alusuisse dekur
Tímans
Meðan ihaldsafla i Frám-
sóknar- og Alþýöuflokknum eru
uppi ákaflega hörð sókn fyrir
tilraunum til einangrunar á Al-
þýöubandalaginu. 1 stjórnar-
málgagninu Timanum kemur
þessi viðleitni fram með afar
sérkennilegum hætti. Þar eru
birtar nær daglega allskonar
skitapillur á forystumenn Al-
þýöubandalagsins. Dæmi um
það er nær linnulaus lágkúru-
áróöur á Hjörleif Guttormsson.
A sama tíma hampar Timinn
Alusuisse-forst jóranu m á
tslandi og viröist hafa meiri
áhuga á að koma málflutningi
hins erlenda auöhrings til skila
en sanngirniskröfum islenskra
stjórnvalda, sem Alþýöubanda-
lagið hefur þrýst Framsóknar-
mönnum til aö setja fram.
Þannig ferTiminn aö þviað fela
vonda samvisku.
Lítilþœgur rógur
Um þetta segir Svavar Gests-
son i Sunnudagsblaöi Þjóö-
viljans:
„Meðferö álmálsins af hálfu
iönaðarráöherra Hjörleifs
Guttormssonar, hefur vakið at-
hygli hvarvetna þar sem menn
velta þvi fyrir sér hversu litil
þjób kemst af i viöskiptum
sinum viö erlend stórfyrirtæki.
þaö er engin tilviljun aö Hjör-
leifur Guttormsson er rægöur
meira en nokkur annar
ísienskur ráöherra um þessar
mundir — og er þá langt til
jafnaö. Astæöan er einfaldlega
sú, aö ákveöin öfi I iandinu
óttast aö það komist upp um þau
Lokun D og V
Þegar Dagblaöiö og Visir
runnu saman íeittvar þvi spáö
hér i Þjóöviljanum að þegar
fram i' sækti myndi það vera
„litli-Moggi” og ldca dyrum til
vinstri. I Sunnudagsblaði Þjóö-
viljans gerir Guömundur Arni
Stefánsson grein fyrir hug-
myndum um nýtt siödegisblað
og segir þar m.a. um þetta efni:
„Þegar fréttin um hið sam-
einaða D og V var opinberuð
landslýð fór um ýmsa áhuga-
menn um fjölmiölun. Sam-
keppni þessara blaða á
siðdegismarkaöinum hafði sett
báum þessum blöðum af-
markaðar skoröur i fréttafiutn-
ingi. Blöðin gátu ekki leyft sér
aö túlka einhliöa skoöanir eig-
enda sinna, 'þótt oft og einatt
skinu þær i gegn. Siðdegisbiöðin
uröuaöreyna aö sýna lesendum
aö þau væru traustsins verö.
Annars yröi annaö þeirra undir I
samkeppninni. Þaö var þvi' ótt-
inn viö, að þegar samkeppnin
yröi fyrir bi, myndi þinn ein- r
litaöi hópur, sem fer með völdin
á þessum blööum, sameinast
um hugðarefni sin. Blöö meö
slika einokunaraöstööu gætu
leyft sér að túlka fréttir, birta
eöa birta ekki fréttir aö vild, án
nokkurs aöhalds, vegna ein-
okunaraöstööu sinnar á
siðdegism arkaönum.”
Skerptar
andstœður
Einmitt þettta hefur gerst
með skjótari og ósvifnari hætti
en flestir hugöu. Dæmigert er
Dagblaðið frá þvi i gær þar sem
bæði Svarthöfði og leiðarahöf-
undurinn Ellert Schram lepja
upp útúrsnúninga Morgunblaðs-
ins á samþykkt miðstjórnar
Alþýöublaðsins i Alusuissemál-
inu. Á sama tlma er lokað á
birtingu samþykkta frá !
Alþýðugandalaginu i Dag-
blaöinu.
Um Alþýðublaðiö undir rit-
stjórn Jóns Baldvins Hannibals-
sonar þetta kjörtimabil þarf
ekki að ræöa, þaö hefur verið
einn linnulaus hamagangur
gegn Alþýöubandalaginu á
meöan ekki hefur falliö
hnjóösyröi um ihaldiö á siöum
þess allan timann. Og af
Morgunblaöinu eru þau helst
tiöindi aö i viöbót viö áróöur
gegn Alþýöubandalaginu er
blaðiö tekið aö birta upplognar
fréttir úr starfi flokksins.
Aliur þessi atgangur i garö
Alþýöubandalagsins er kær-
kominn. Hann mun hjálpa til
þess aögera almenningi ljósara
en áöur hverskonar barátta þaö
er sem Alþýöubandalagiö hefur
verið aöheyja á vettvangi rikis-
valdsins sl. ár. —ekh
09 skorið