Þjóðviljinn - 02.03.1982, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 2. mars 1982
W
-z-
c
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA
Tilboð óskast i að smiða þak á Þjóðarbók-
hlöðuhús við Birkimel.
Húsið er 4 hæðir, um 2600 ferm. að flatar-
máli.
Mestur hluti þaksins er álklætt timburþak
ofan á steyptri plötu.
Hluta verksins skal lokið 1. ágúst, en öllu
verkinu að fullu 15. október 1982.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 1000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 23. mars, 1982 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
lárniðnaðarmenn
óskast
Verkefni eru fólgin i smiði á nýjum fisk-
vinnsluvélum.
Þægilegur vinnutimi.
Upplýsingar hjá verkstjóra, simi 78120 og
á skrifstofu, simi 26155.
□
TRAUST hf
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
’aslverh
REYKJAVIKURVEGI 25 Hafnarfirði simi 50473
Ibúð óskast
Kona með tvo drengi óskar eftir ibúð sem
fyrst.
Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar i sima
66901 eftir kl. 5.
Blikkiðjan
Asgarði 7/ Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmfði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
ÍSLANDSDEILD
amnesty
international
Pósthólf 7124, 127 Reykjavík
Hækkun
á hita og
rafmagni
Stjórn veitustofnana samþykkti
á fundi sinum i gær breytingar á
gjaldskrám Hitaveitu Reykjavik-
ur og Rafmagnsveitu Reykjavik-
ur. Þetta mun leiða til 20%
hækkunar gjalda Rafmagnsveit-
unnar og 13.5% hækkun gjalda
Hita veitunnar.
Þessi samþykkt er gerö vegna
þess aö um sl. áramót féllu úr
gildi lög sem bönnuðu slíkar
hækkanir nema meö samþykki
verölagsnefndar. Nú þarf hins
vegar aöeins staöfestingu
iönaöarráöherra á gjaldskrám
orkufyrirtækja.
Þessar breytingar stjórnar
veitustofnana á gjaldskrám taka
mið af þeim hækkunum sem
iönaöarráðuneytiö var búiö aö
mæla meö viö gjaldskrárnefnd.
Borgarráö fjallar um þetta mál I
dag.
Hækkun á
vörum og
þjónustu
t gær tóku gildi ýmsar hækkan-
ir á vörum og þjónustu. Útseld
vinna iðnaðarmanna hækkaöi um
7,51% og vinnuvélataxti um 14%.
Flutningstaxtar vörubila hækk-
uöu um 15% aö meöaltali og nýr
fiskur um 7,5%. Þá hækkaöi
steypa og sement þann 25. fyrra
mánaðar um 12%.
Landbúnaðarvörur hækkuöu
einnig i veröi, en almennur verö-
lagsgrundvöllur hækkaöi um
9,16%. 1 þeirri hækkun felst hækk-
un á kaupgjaldi bænda um 7,5% 1.
mars eins og annarra lands-
manna og hækkun á rekstrarlið-
um búa og gætir þar aðallega
gengisbreytingarinnar og verö-
bólgunnar.
Ekki tókst i gær aö fá uppgefiö
hve mikil hækkun varö á einstök-
um vöruflokkum landbúnaöar-
afurða, enda misjöfn eftir niöur-
greiöslum.
Þá hækkaöi áfengi og tóbak um
10%.
Svkr.
Prófkjör
krata á Akureyri:
Aðefns 1
kona í 6
efstu
sætum
Miklar sviptingar urðu i próf-
kjöri Alþýðuflokksins á Akureyri
um helgina. Efstur varð Freyr
Ófeigsson en hann hlaut 262 at-
kvæöi i fyrsta sæti en samtals 323
atkvæöi. 390 manns kusu en svo
vildi til að 03 atkvæöi voru ógild
og munu prófkjörsreglur hafa
veriðilla kynntar.
Orrustan um 2. sætiö varð hörö-
ust. Þar bárust á spjót þeir
Ingólfur Árnason, bæjarfulltrúi
Samtakanna, en hann hefur lagt
lag sitt við Alþýðuflokkinn og
Tryggvi Gunnarsson verkamað-
ur. Hafði sá siðarnefndi sigur að
lokum og fékk hann 129 atkvæði i
2. sætið en Ingólfur aðeins 117.
Næst komu Jórunn Sæmunds-
dóttir, Snælaugur Stefánsson,
Birgir Marinósson og svo Alfreð
Ó. Alfreðsson, en hann er sá eini
sem fékk bindandi kosningu.
Virðist sem kvennaframboðið á
Akureyri hafi rúið borgaraflokk-
ana þar öllum kvennablóma.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Árshátíð Alþýðubanda-
lagsins í Suðurlands-
kjördæmi
Arshátið Alþýðubandalagsins i
Suðurlandskjördæmi verður
haldin i Aratungu, föstudaginn 5.
mars n.k. og hefst kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Margrét Frimannsdóttir,
ávarp.
2. Visnavinir syngja.
3. Garðar Sigurðsson alþm.,
ávarp.
4. Helgi Seljan alþm., skemmti-
atriði.
5. Sigurgeir Hilmar, grin og gleði.
Hljómsveit Stefáns P. leikur
fyrir dansi til kl. 2 um nóttina. Og
það er aldrei að vita nema Jónas
Arnason komi i heimsókn..
AB í uppsveitum Árnes-
sýsiu og Kjördæmisráð.
Margrét
Sigurgeir
Bragi
Páll
Þorbjörg
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði
Fundur um atvinnumál
Opinn fundur verður i Góðtemplarahúsinu
fimmtudaginn 4. mars kl. 20.30.
Stuttar f ramsögur flytja:
1. Bragi Guðbrandsson. Staðarval og félagsáhrif
orkufreks iðnaðar.
2. Páll Arnason. Fiskiðnaður i Hafnarfirði.
3. Þorbjörg Samúelsdóttir. Vinnuvernd.
4. Þórður Vigfússon. Atvinnuþróun á
breytingatímum.
Þórður.
Eftir framsöguræður verður skipt i umræðuhópa.
Umræðustjórar: Lúðvik Geirsson, Bragi V. Björnsson, Sigurbjörg
Sveinsdóttir, og Hallgrimur Hróðmarsson.
Fundarstjóri verður Rannveig Traustadóttir.
Hafnfirðingar —fjölmennið og takið þátt i að móta stefnuna. — Stjórn-
in.
Alþýðubandalagið Akureyri
Auglýsir almennan félagsfund fimmtudaginn 4. mars kl. 20.30
Fundarefni: 1. Gengið frá framboðslista. 2. Fréttir frá nýliðnum fundi
miðstjórnar og ráðstefnu um sveitarstjórnarmál. 3. Kosningastarfið. —
Stjórnin.
Orðsending til Kópavogsbúa
vegna prófkjörs 6. mars n.k.
1) Kosningarétt hafa þeir sem verða 18 ára einhvern tima á þessu ári,
eða eru eldri og eru búsettir i Kópavogi skv. skráningu bæjar-
stjóra/Hagstofu 28. febrúar 1982.
2) Nöfnum á lista Alþýðubandalagsins verður raðað eftir hendingu —
ekki stafrófsröð.
3) A lista Alþýöubandalagsins skal setja sex krossa, 3 viö kvennanöfn
og 3 við karlanöfn.
Stuðningsfólk! Veljum sjálf á G-listann, lista Alþýðu-
bandalagsins. Tökum f ullan þátt í prófkjörinu 6. mars.
Stjórn og uppstillingarnefnd
Alþýðubandalagsfélagar á Selfossi
Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 6. mars n.k. kl. 14.00 að
Kirkjuvegi 7 Sellossi.
Dagskrá: 1) Framboðsmál 2) önnur mál. — Uppstillingarnefnd.
Kratar
Framhald af bls. 6
fótum troðib, svosem i Griklandi
og Portúgal áður en Tyrklandi nú.
Þetta hlyti að vera þingmönnum
umhugsunarefni.
Ekki var það nú að sjá á
Halldóri Blöndal sem var mjög
vanstilltur I sæti sinu á meðan á
málflutningi ólafs stóö, og reyndi
að gera gamanmál úr þessari
Nató-abildarbeiöni. Hlaut það
daufar undirtektir hjá samþing-
mönnum.
ólafur Ragnar sagði að ekki
væri borið brigður á lagalegt rétt-
mæti beiðninnar, en eðli málsins
vegna myndi Alþýðubandalagiö
sitja hjá við atkvæðagreiöslu. Fór
hann fram á nafnakall við at-
kvæðagreiðslu, sem fór einsog
áður sagöi þannig aö 28 þingmenn
samþykktu aðildarbeiðni Nató en
þingflokkur Alþýðubandalagsins
sat hjá ásamt Guðmundi Bjarna-
syniog Páli Péturssyniúr Fram-
sóknarflokknum. Albert
Guömundsson geröi sérstaklega
grein fyrir atkvæði slnu og sagði
m.a. að aðild Spánar aö Nató væri
til að styrkja „vestræna sam-
vinnu”. Hún færist stöðugt suöurá
bóginn.
-óg
Ekki óvænt
Framhald af bls. 16.
Um helgina fór fram prófkjör
allra flokka á Siglufiröi. A-listi
fékk 96 atkvæði og i efsta sæti
lenti Jón Dýrfjörð meö 38 atkvæði
i það sæti. B-listi fékk 118 atkvæði
og i efsta sæti varð Bogi Sigur-
björnsson með 96 atkvæöi I það
sæti. D-listi fékk 194 atkvæöi og
varð Björn Jónasson efstur með
93 atkvæði i þaö sæti. G-listi fékk
svo 121 atkvæði alls og varð Kol-
beinn Friðbjarnarson efstur með
78 atkvæði i 1. sætien 108 alls.
„Nýsköpunarstjórn” hefur
veriö á Siglufirði undanfarið
kjörtimabil, þe. samstjórn Sjálf-
stæðisflokks (2), Alþýðuflokks (2)
og Alþýöubandalags (3).
—v