Þjóðviljinn - 19.03.1982, Page 3

Þjóðviljinn - 19.03.1982, Page 3
Föstudagur 19. mars 1982 ÞJóÖVILJINN — SÍÐA 3 „Við ætlum auðvitaö að yfirtaka félagið!” Talið frá vinstri: Sölvi ólafsson, Guðrún Guðnadóttir, Jóna Einarsdóttir, Asdls Jóhannes dóttir, Rannveig Friöriksdóttir, Stella Gunnarsdóttir og Sigrún Karlsdóttir. (Ljósm. — eik —) Konur á félagsmálanámskeiði bókagerðarmanna: ,Viljum hrista af okkur feimnina ’ Þegar blaöamenn Þjóð- viljans bar að garði í hús- næði Félags bókagerðar- manna að Hverfisgötu 21 eitt kvöldið í síðustu viku voru þar mættar 7 konur galvaskar og tilbúnar að hlíta leiðsögn þeirra Sölva ólafssonar og Jas- onar Steinþórssonar í einu og öllu. Þeir Sölvi og Jason tóku það með glöðu geði að sér að leiðbeina stéttarsystrum sínum fyrstu sporin á braut ræðumennskunnar. Við lögðum þá spurningu fyrir konurnar hvers vegna þær væru mættar hér. „Til þess að yíir- taka félagið, hvað helduröu?” gullu þær við einum rómi skelli- hlæjandi. „Grinlaust — þá komum viö auðvitað hér til þess aö reyna aö hrista af okkur feimnina,” sagöi Guðrún Guönadóttir, og hinar tóku undir þaö. „Við erum for- vitnar og viljum kynna okkur prógrammið og kynnast hvor annarri.” „Ég mæti oft á fundi i félaginu minu og annars staðar, en ég steinþegi alltaf,” segir Þórunn Elva Björnsdóttir. Hinar kinka kolli. „Ég kem hingað vegna þess að ég vil breiða úr mér sem víðast.” Þetta siöasta segir hún brosandi. Asdis Jóhannesdóttir segist hafa komið af forvitni og ekki vera vön félagsstarfi. Það væri hins vegar mjög áriðandi að fleiri konur kæmust i stjórn félagsins, en þar er nú ein kona i sjö manna stjórn. Þaö var samdóma álit þess- ara vösku kvenna, að ástæðan fyrir þvi aö konur sæktu fundi verr en karlar væri einkum fundartiminn, konur gætu alls ekki mætt á fundi klukkan fjögur eða fimm á daginn en þaö er vinsælasti stjórnar- og trúnaðarmannaráösfundartimi velflestra félaga. Oframfærn- inni væri uppeldinu um að kenna. „En nú hristum við þetta af okkur, stelpur!” ast Formaður FBM um félagsmálanámskeið fyrir konur: , Ganúa tíöin ekki tíðin * „Félag bókageröarmanna hefur haft jafnrétti allra félags- manna á stefnuskrá sinni allt frá stofnun. Einnig er það stefnuskráratriði að virkja kon- ur til félagsstarfa, en þær eru nú ■ um 30% félagsmanna. Þátttaka þeirra i starfi félagsins er hins vegar i engu samræmi viö fjöld- , ann, við fórum út i það m.a. þess • vegna að halda þetta námskeið.” Félag bókagerðarmanna tók , upp á þvi i siðustu viku að efna ■ til félagsmálanámskeiðs fyrir | félagsmenn sina. Nú er það aö sjálfsögðu ekki i frásögur fær- , andi þótt eitt félag efni til sliks | námskeiðahalds. Nýbreytnin við þetta námskeiö var hins vegar allmikil — auglýst var , eftir konum og körlum þar meö Imeinaður aðgangur. Við spuröum Magnús E. Sigurðs- • son, formann Félags bóka- gerðarmanna, hverju þetta sætti og svaraði hann þvi til, sem hér að ofan er skráö. „Við viljum líka endilega drifa konur út f kjarabarátt- una,” hélt Magnús áfram. „Reynsla þeirra af vinnumark- aðnum er dálitið önnur en reynsla okkar karla, og i raun- inni er ófært að karlar séu hér að semja fyrir konur. Svo er gamla tiðin hreint ekki liðin, það eru enn gerðar tilraunir til þess aö halda konum niöri og við verðum vör við slikt hér i okkar félagi. Gegn þessu viljum við sporna á allan hátt.” — En hvers vegna að hafa konur i aöskildum hópi? „Það hefur sýnt sig alls stað- ar, að konur eiga miklu erfiðara um vik með aö starfa að félags- málum en karlar,” svarar Magnús. „Þeirra biða einatt heimilisstörf að loknum vinnu- „Ef þetta er leiðin til að ná til fleiri kvenna þá viljum við a.m.k. prófa hana,” segir Magnús Einar Sigurbsson, for- maður Félags bókagerðar- manna, um félagsmálanám- skeibið fyrir konur. degi og þar viö bætist minni- máttarkennd og óframfærni á hærra stigi en meðal karla. Ef þetta er leiðin til að ná til fleiri kvenna, þá viljum við a.m.k. prófa hana.” „i félagsblaðinu ykkar, Prentaranum er sérdálkur helgaður jafnréttismálum, er ekki svo?” „Jú, við hötum eitthvað um jafnréttismál i hverju blaði. Við höfum einnig haldið einn fund um jafnrétti innan félagsins þar sem ályktaö var um jafnrétti kynjanna. Þá kom til tals aö stofna einhvers konar jafnrétt- isráð innan félagsins. Þá má að lokum geta þess, að viö eigum mikið og gott sam- starf við okkar stéttarsystkini á Norðurlöndum, en þar er þess- um málum einmitt mikill gaumur gefinn. Það hefur sfðan sin áhrif á starfshætti okkar hér.” „Hvert verður svo framhaid- iö?” „Við viljum auövitað engu spá um það — það fer eftir þátt- tökunni hér. Við munum þó halda ámóta námskeið á Akur- eyri á næstunni en töluveröur áhugi hefur veriö látinn i ljós þar á sliku námskeiöi.” ast Fyrsti fundur ASÍ og VSÍ með sáttasemjara: Biðstaða fram í næstu viku Fyrsti funaur ASl og atvinnu- rekenda með sáttasemjara var haldinn i morgun. Að sögn As- mundar Stefánssonar gerðist fátt á fundinum, en ASÍ lagði á það áherslu, að hið snarasta yrði komið á raunhæfum viðræðum deiluaöila, m.a. við hin einstöku landssambönd ASÍ. Asmundur sagði að Vinnuveitendasamband- iö héldi aöalfund sinn i næstu viku, og að þeir myndu vart kjósa undirnefndir fyrr en ný fram- kvæmdastjórn sambandsins hefði verið kosin. Þvi væri tiðinda vart að vænta fyrr en i næstu viku. Samkvæmt tilkynningu frá VSÍ hefur sambandið farið fram á þaö við rikissáttasemjara að Þjóð- hagsstofnun verði falið aö kanna horfur á þjóðartekjum á mann á þessu ári og næsta, og hver áhrif það hefði á verölagsþróun og at- vinnustig, ef gengiö yröi að kröf- um ASI og landssambands þess og i þriðja lagi hver kostnaðar- þróunin yröi i innlendri fram- leiðslustarfsemi á þessu ári mið- aö við erlenda samkeppnisaðila. Þorskveiði- bann um páskana Hefst þó tveimur dögum síðar en áður var gert ráð fyrir Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að þorskveiðibann um páskana hefjist 5. apríl I staö 3. april eins og ráö var fyrir gert, þegar fiskveiðistefnan var ákveð- in i byrjun ársins. Stafar þessi breyting af sjómannaverkfailinu I janúar, sem dró verulega úr afla. Þorskveiöibannið gildir frá kl. 18mánudaginn 5. april til hádegis 13. apríl. Þetta gildir um alla báta sem ekki falla undir hið svo- nefnda skrapdaga kerfi. Þorsk- veiðibannið þýöir að hlutfall þorsks I afla þessa daga má ekki fara yfir 15%. —S.dór Æskulýðssamband / Islands: Ráðstefna um hús- næðismál Æskulýðssamband tslands gengst fyrir ráðstefnu um helgina i Munaðarnesi i Borgarfiröi. Veröur þar fjallað um húsnæðis- mál ungs fólks. Ráðstefnan var haldin i sam- vinnu viö Húsnæðisstofnun rikis- ins og verður sett að kvöldi föstu- dagsins 19. mars meö ávarpi for- manns Æskulýössambandsins Guðmundar Bjarnasonar. Laugardag og sunnudag veröa svo haldin framsöguerindi um hina ýmsu þætti húsnæðismála. Þá fara fram umræður i hópum og almennar umræöur. A undanförnum árum hefur starfsemi Æskulýðssambands tslands veriö fyrst og fremst fólgin i þvi að halda uppi sam- starfi við svipuð samtök i öðrum löndum. t þvi augnamiði hefur ÆSt einnig veriö i tvihliða sam- skiptum við sovéska æskulýðs- sambandið o.fl. Lögsaga „varnar- svæðanna” i hverra lögsögu eru „varnar- svæði” utan girðinga á Suður- nesjurn og viðar, spurði Ólafur Kagnar Grimsson á alþingi i gær. Tilefnið var það, að Böðvar Bragason mælti fyrir þingsálykt- unartiilögu um að skipuð veröi nefnd tii að gera nákvæmari grcin fyrir mörkum lögsagnar- umdæma á tslandi. ólafur Ragnar Grimsson mælti sérstaklega með þessari tillögu Böövars og benti á hversu undar- lega væri komið lögsögu viö svo- kölluö „varnarsvæöi”, einsog til dæmis viö Stokksnes þarsem lög- reglustjórinn á Keflavlkurflug- velli heföi lögsögu fyrir „varnar- máladeild” utanrikisráðu- neytisins. Við Keflavikurher- stöðina eru einnig öll mörk lög- sögunnar mjög óljós einsog menn hafa rekið sig illilega á uppá sið- kastiö. Það þarf, sagöi ólafur Ragnar, að vera skýrt hvaða land er undir yfirráöum tslendinga og hvað ekki. „Varnarsvæöin” væru i einhvers konar ólögum, enda hefðu þessi mál ekki komiö fyrir alþingi eða gerð opinber þegar sum svæðanna voru gerð að sér- stökum „varnarsvæöum”. —

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.