Þjóðviljinn - 19.03.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 19. mars 1982 ÞJODVILJINN — SIÐA 15
IWI Hringiö í síma 81333 kl. 9-5 alla
lr. virka daga, eöa skrifiö Þjóöviljanum
frá
lesendum
Pétur Sveinbjarnason:
Mikill munur á kjúklingum frá
Ask-borgaranum og frá Laugaási
ii)ýrir kjáklingar í Aski
Ls«v«o:»io» r.cojK » | PíMXtl-Xtn nf r :lr> :. L xv é '»<*»:«»• •• ... 1 Mstt&xMí: v**n**9* .m**9*r- 1 SíjllKW «:«»! 1 þtów:r< tóavn. I V«íi»41 *>• *■:* F .»tó- fSffÁtVMY. 9« | ;••••«» K xtffcösjc*! '*«nú.Si «•£?
Tveir af ritstjiSrn Þjóöviljans, þeir Einar Karl Haraldsson og Val- Dýrir kjúklingar.
þór Hlöðversson, gera samanburö á kjúklingaréttum Laugaáss og
Ask-borgarans. — Ljósmynd.: —gel.
Pétur Sveinbjarnarson veit-
ingamaður hjá Aski hringdi og
vildi koma boðskap mergjuðum
á framfæri.
Hann vildi að menn gerðu
skýran greinarmun á Aski og
Askborgaranum, þvi þó þessi
fyrirtæki væru af einum og
sama meiðinum, þá væri
þjónustuhlulverk þeirra af
ólikum toga spunnið. Það sem
vakti þó aðallega fyrir Pétri var
þó að koma óánægju sinni á
framfæri vegna lesendabréfs
sem birtist i Þjóðviljanum 12.
mars siðastliðinn og birtist hér
til hliðar. Pétur sagði mikinn
mun á kjúklingum frá Ask-
borgaranum og Laugaási. Til
þess að renna stoðum undir mál
sitt gerði hann út leiðangur og
sendi hann prufur upp á rit-
stjórn Þjóðviljans. Kjúklinga
frá Ask-borgaranum annars-
vegar og frá Laugaási hins-
vegar. Ennfremur meðlæti i
formi franskra kartaflna, sósu
og hrásalats.
Þessu var svo deilt meðal
nokkurra af ritstjórn Þjóð-
viljans og niðurstaðan:
Franskar kartöflur verða seint
annað en franskar kartöflur og
það sama gildir um kjúklinga.
Sósan var að flestra dómi marg-
slungnari á bragðið frá Lauga-
ási enda mætti Pétur hressa
eitthvað uppá hina klassisku
kokteilsósu sina. Salatið var
prýöilegt frá báðum stöðum, en
hvaðkjúklinginn áhrærir þá var
kjúklingurinn frá Aski dokunar-
litið þyngri (reyndar sendi
Pétur vigt). Að öllu samanlögðu
þá má telja það eðlilegt að
kjúklingaskammturinn frá
Pétri sé i hærra verðflokki en
fráLaugaási. Hitt er svo annað
mál að 130 krónur fyrir kjúkl-
ingaskammt er allt of hátt verð
og gerir þá fullyrðingu Péturs
og fleiri, þess efnis aö ódýrara
sé að borða úti á sunnudögum en
malla ofan i sig sjálfur, hlægi-
lega.
Finnið fimm atriði sem ekki eru eins á þessum tveim myndum.
Barnahornid
Hvað má
fá fyrir
peningana?
Þessa áqætu kiausu
rákumst vid á í nýjasta
tölublaði Húsfreyjunnar.
Rúm en ekki svefn.
Bækur en ekki vit.
Mat en ekki matarlyst.
Skraut en ekki fegurð.
Hús en ekki heimili.
Lyf en ekki heilsu.
Munað en ekki menningu.
Skemmtanir en ekki
hamingju.
Óvanalegast
í heimi
Á dögum Rómaveld-
isins var oft erfitt að fá
góða sápu. Þá fengu f ínar
frúr sér 10 kíló af jarðar-
berjum og 1 af hindberj-
um og pressuðu þau í
mauk, sem þær notuðu
fyrir sápu. Vill einhver
reyna?
Kirk Douglas fer með eitt aðalhlutverkið I föstudagsmyndinni
The Arrangement”.
Föstudagsmyndin:
Fyrirkomulagið
Stórstirnin Kirk Douglas og
Faye Dunaway fara meðaðal-
hlutverkin i föstudagsmynd
sjónvarpsins, The Arrange-
ment.
Myndin fjallar um mann
sem hefur þann starfa að aug-
lýsa ákveðna sigrarettuteg-
und. Honum hefur gengið vel i
þeim bransa en flest annaö
þvælist fyrir honum. Sam-
skiptin viðeiginkonusina eru i
stirðara lagi svo ekki sé meira
sagt og hjákonan út i bæ á
heldur ekki sjö dagana sæla.
Svo fer að áhugi hans á þvi að
auglýsa sigarettuna dofnar og
þá eru góð ráð dýr.
Kvikmyndahandbókin gefur
þessari mynd tvær störnur.
Þýðandi er Kristmann Eiðs-
Sjónvarp
O kl. 21.55
Aðalmálið
í Fréttaspegli:
■ JÉÉí Útvarp
kl. 20.40
Rvöld-
váka
A dagskrá útvarpsins I
kvöld veröur aö vanda Kvöld-
vaka og hefst hún kl. 20.40.
Þar kennir margra grasa og
skulu nú helstu liðir taldir upp.
Þórunn Olafsdóttir syngur is-
lensk lög við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar, Sigurður
Kristinsson segir frá búsetu i
Stafafellsfjöllum, Sigurður Öli
Sigurðsson I Flatey segir frá
Afskipti
Bandaríkj-
anna af mál-
efnum Mið-
Ameríku
„Með þeim fyrirvara að
ekki komi upp eitthvað alveg
sérstakt þá verða þrjú aðal-
málin i Fréttaspegli afskipti
Bandarikjanna af málefnum
Miö-Ameriku, stöðvun loðnu-
veiða og áhrif stöðvunarinnar
á islenskt efnahagslif og svo
verður aðeins l'arið ofan i
saumana á ýmsu þvi sem er
að gerast hjá Kremlverjum,”
sagði Bogi Agústsson frétta-
maður Sjönvarps, en hann sér
um Frcttaspegil sem er á dag-
skrá kl. 21.20 i kvöld.
Bogi verður með Mið-Amer-
ikumálin á sinni könnu, en
Guðjón Einarsson mun siöan
fjalla um loðnuveiðarnar og
Gylfi Þ. ólafur Vignir
skoplegum atburði vestur þar
fyrir sjö áratugum síöan,
Þórarinn Björnsson frá
Austurgörðum i Kelduhverfi
talar við Andreu Pálinu Jóns-
dóttur i Leirhöfn á Melrakka-
sléttu, en konan sú mun hafa
iðkað glimu i gamla daga og
að lokum syngja Fóstbræður
lög eftir Gylfa Þ. Gisiason
undir stjórn Jóns Þórarins-
sonar.
allt sem við kemur þeim.
Siðan el að likum lætur, mun
Bogi beina athyglinni að
Kreml. „Sérlræðingar i mál-
efnum Sovétrikjanna og þá
ekki sist i málum háu herr-
anna i Kreml telja að ýmislegt
óvenjulegtkunniað skjóta upp
kollinum þar eystra og
þykjast sjá íyrir hatramma
valdabaráttu,” sagði Bogi.
Fréttaspegill tekur 35 minútur
i ílutningi.
Bogi Agústsson hefur umsjón
með Fréttaspegli sem er á dag
skrá Sjónvarps kl. 21.20