Þjóðviljinn - 25.03.1982, Page 14
14 SÍÐA ■— ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. mars 1982
ALI»VÐUBANDALAGIÐ
betta er nýja kosningamiöstöðin, Siöumúla 27.
Kvennafundur um kosningastarfið
I kvöld kl. 20.30 verður fundur i Siðumúla 27 (nýju kosningamið-
stöðinni).
Til umfjöllunar verður: „Lifandi kosningastarf”. Námskeið i félags-
málum, fundartækni, ræðumennsku. A fundinum veröur starfað i hóp-
um og skipulagi komið á viðfangsefnin framundan.
Miöstöö kvenna
P.s. Kvennabréfið 5 er komið á prent. beir sem hafa áhuga á að sjá
innihald þess, en fá það ekki heimsent, geta fengið eintak á skrifstof-
unni að Grettisgötu 3.
Miöstöö
Alþýðubandalagið i Hveragerði
Opinn stjórnmálafundur verður haldinn i Hótel Hveragerði laugardag-
inn 27. mars kl. 14.00.
Garðar Sigurðsson alþingismaður og Svavar Gestsson ráðherra koma
á fundinn og ræða um stjórnmálaviðhorf og fleira.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fólk hvatt til að íjölmenna.
Stjórnin.
Vorfagnaður Alþýðubandalagsins
i A-Skaftafellssýslu
Vorfagnaður Alþýðubandalagsins i
A-Skaftafellssýslu verður haldinn i
Holti á Mýrum laugardaginn 27.
mars og hefst með borðhaldi kl.
20.30 Gestir kvöldsins verða Helgi
Seljan alþingismaður og Baldur
óskarsson.Skemmtiatriðiog dans.
— Rútuferð frá Höfn á iagnaöinn
kl. 19.30. Þátttaka tilkynnist til
Þorbjargar i Suðursveit, Hannesar
á Mýrum eða Hauks á Höfn i sima
8293 Og 8185.
Batdur
Helgi
Alþýðubandalagið á Akureyri
Fimmtudaginn, 25. mars kl. 8.30 ætlum við að koma saman að Eiðs-
vallagötu 18og vinna að stefnuskránni. Félagar eruhvattir til að mæta.
Aðalfundur 1. deildar Alþýðubandalagsins i
Reykjavík (vesturbæjardeild)
Aðalfundur 1. deildar Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður haldinn
fimmtudaginn 1. april kl. 20:30 að Grettisgötu 3.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf
2) Undirbúningur borgarstjórnarkosninga. ÍJlfar Þormóðsson
kosningastjóri ABR
Mætum öll.
Stjórn 1. deildar ABR
Alþýðubandalagið á Akranesi
Félagsfundur verður i Rein mánudaginn 29. mars kl. 20.30. Fundar-
efni: Framboðslistinn lagður fram tii samþykktar. 2. önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Fulltrúaráð Alþýðubandalagsins i Reykjavik
Fulltrúaráð ABR er boðað til fundar mánudaginn 29. mars nk. klukkan
20:30 i kosningamiðstöð að Siðumúla 27.
Fundarefni:
Stefnuskrá fyrir borgarstjórnarkosningarnar 22. mai nk.
Stjórnin
Nýr stefnuskrárhópur
Enn einn starfshópur hefur verið stofnaður til að undirbúa borgar-
stjórnarstefnuskrá ABR og mun fjalla um framkvæmdaráðsmál, veit-
u.stofnanamál. hafnarmál og húsnæðismál. Hópstjóri er Helgi G.
Samúelsson. Fyrsti fundur verður auglýstur siöar.
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU -
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
'vSrk
REYKJAVIKURVEGI 25 Hafnarfirði sími 50473
V erkalýðsf élagið
Þór Selfossi:
Atelur
ákvörðun
um stein-
ullar-
verksmiðju
„Fundur i stjórn og trúnaðar-
mannaráði Verkalýðsfél. Þór
haldinná Selfossi mánudaginn 22.
mars 1982 átelur harðlega þá
ákvörðun iðnaðarráðherra, að
ákveða steinullarverksmiðju staö
á Sauðárkróki, þar sem öli rök
sýna að hagkvæmara væri að
reisa verksmiðjuna i Þorláks-
höfn.”
Þessi tillaga var samþykkt
samhljóða.
Innrás?
Framhald af bls. 3
ihlutun Bandaríkjanna
Stjórnin i E1 Salvador er rúin
stuðningi fólksins og lifir nú ein-
göngu á efnahags- og hernaðar-
aðstoð Bandarikjanna. Og nú er
svo komið málum, aö það eina
sem virðist geta bjargað stjórn-
inni sé bein hernaðarleg Ihlutun
Bandarikjanna, sem þau hafa
þegar hótað.
Ayala sagði að hugmyndir
þjóðfrelsisaflanna um friðsam-
lega lausn nytu mikils stuðnings.
Þannig hefði Alþjóðasamband
jafnaöarmanna boðist til þess að
skipa Willy Brandt sem sátta-
semjara i fyrirhuguðum samn-
ingum, en þvi boði hefði verið
hafnað af Bandarikjastjórn og
stjórn Duartes. Þá sagði hann að
tilraunir stjórnar Mexikó og
Frakklands til þess að finna frið-
samlega lausn á deilunni hefðu
einnig skipt miklu máli. Hann
sagði að Mexikó ætti mikilla við-
skiptahagsmuna að gæta á þessu
svæöi og þeim væri mikill akkur i
þvi að pólitlskt jafnvægi kæmist á
I Miðameriku.
Aöspurður sagði Ayala að
valdaránið I Guatemala I gær
heföi litla þýðingu fyrir gang
mála I E1 Salvador; þaö endur-
speglaði valdabaráttu innan
hersins og yfirstéttarinnar i land-
inu og sýndi óhæfni hannar til
þess að stjórna. Hann sagöi að
sama væri upp á teningnum i E1
Salvador, og likur bentu til að enn
hægrisinnaðri öfl myndu „sigra”
Duarte i þeim kosningaskripaleik
sem nú stæði fyrir dyrum i E1
Salvador.
Ayala sagöi að lokum að and-
spyrnuöflin gætu unnið hernaðar-
legan sigur i E1 Salvador, þvi
þjóöin stæði einhuga að baki
þeim. Hins vegar vildu þau kom-
ast hjá frekari blóðsúthellingum i
lengstu lög.
E1 Salvadornefndin gengst fyrir
almennum fundi I Félagsstofnun
stúdenta i kvöld kl. 20.30.
Þar mun Raul Flores Ayala
gera grein fyrir ástandi mála i E1
Salvador. Þá verður sýnd ný
kvikmynd frá E1 Salvador, en
fundarstjóri verður BöðVar Guð-
mundsson.
-ólg.
, Er
sjonvarpió
bilaó?
Skjarinn
Sjónvarpsverbtói
Begstaðastrati 38
simi
2-1940
Sambýli þroskaheftra á Selfossi.
Þroskaheftir
Sambýli á Selfossi
A Selfossi var opnað 1. mars s.l.
sambýli fyrir fullorðna þroska-
hefta einstaklinga. Sambýlið er
rekið á vegum Svæðisstjórnar
Suðurlands. Stofnkostnaður var
fjármagnaður af Framkvæmda-
sjóöi öryrkja og Þroskaheftra. A
þessu heimili geta dvalið 6 ein-
staklingar, og er nú verið að
koma upp vinnuaöstöðu fyrir ibú-
ana. Sigrún Jensey Sigurðardótt-
ir þroskaþjálfi er ráðin til að
vera i.forsvari fyrir sambýlið.
Purrktónleikar
á Hótel-Borg
Hljómsveitin Purrkur Pillnikk
heldur tónleika á Hótel Borg nú i
kvöld, fimmtudag. Purrkurinn
hefur lokið við upptökur á nýrri
plötu, sem væntanlega kemur út
snemma i april. Kynnir hljóm-
sveitin þetta kvöld töluvert af þvi
efni, sem hún hljóðritaði seint i
febrúar.
Sveinbjörn Beinteinsson alls-
herjargoði kemur frá Draghálsi
og kveður m.a. Eddukvæði.
Eddukvæði eru einmitt viðfangs-
efni Sveinbjarnar á væntanlegri
LP plötu allsherjargoðans, sem
kemur út um likt leyti og plata
Purrksins.
Hálfvegis má kalla kvöldið,
hina óþekktu stærð, þegar tvær
hljómsveitir, sem aldrei áður
hafa spilað á Borginni koma þar
fram. Þetta eru Keflavikurhljóm-
sveitirnar Vébandið og Negatif.
Þetta fara ab verða siðustu tón-
leikar Purrks Pillnikks hér á Is-
landi áður en hljómsveitin heldur
til Englands i boði hljómsveitar-
innar The Fall.
Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 og
standa þeir fram til 01.00. Verð
aðgöngumiða verður kr. 55.
Helgarskákmót
á Siglufirði
13. helgarskákmót Timaritsins
Skákar og Skáksambands Islands
verður haldiö á Siglufirði um
næstu helgi. Búist er við þátt-
töku flestra bestu skákmanna
þjóöarinnar s.s. Friðriks Ölafs-
sonar, Helga Ólafssonar, Jóns L.
Arnasonar, Margeirs Pétursson-
ar og Jóhanns Hjartarsonar.
1. verðlaun á mótinu verða 5
þús. krónur, 2. verðlaun 3 þúsund
og 3. verðlaun 2 þúsund krónur.
Þá verða veitt verðlaun i kvenna-
flokki, öldungaflokki og unglinga-
flokki.
Herstödvaandstæðingar
Herstöðvaandstæðingar Akureyri
Árshátið og baráttusamkoma
Herstöðvaandstæðingar á Akureyri efna til árs-
hátiðar föstudagskvöldið 26. mars i Alþýðuhús-
inu. Nútimatónlist og gömlu dansarnir.
Laugardaginn 27, mars kl. 14 halda herstöðva-
andstæðingar á Akureyri baráttusamkomu að
Hótel KEA. Ræðumaður Böðvar Guðmundsson,
sem einnig flytur samkomugestum nokkra
söngva. Samlestur úr bókmenntúm. Happdrætti.
Herstöðvaandstæðingará Akureyri
Böðvar
Herstöðvaandstæðingar i Þingeyjarsýslu
Baráttusamkoma á Breiðumýri
Herstöðvaandstæðingar i Þingeyjarsýslu efna til baráttusamkomu á
Breiðumýri kl. 21 sunnudagskvöldið 28. mars. Ræðumaður Böðvar
Guðmundsson. Samlestur úr bókmenntum á vegum Akureyringa.
Heimamenn sjá um önnur dagskráratriði.
Herstöðvaandstæðingar I Þingeyjarsýslu
FRAMLEIÐUM BRAUÐKÆLA
ÖL- OG GOSDRYKKJAKÆLA
og önnur frysti- og kælitæki
simi 50473
ífrá.
sivBrh
Reykjavíkurvegi 25 Hafnarfirði