Þjóðviljinn - 16.04.1982, Síða 19

Þjóðviljinn - 16.04.1982, Síða 19
ISI Hringiö í síma 81333 kl 9-5 alla virka daga> eða skrifið Þjóðviljanum Þýðingar og málfar í sjónvarpi íslenskuunnandi hringdi: Mig hefur oft langað til að gera athugasemdir við það mál- far.sem sjónvarps og dtvarps- menn hafa tileinkað sér og tvinóna ekki við aö reiða fram á skjáinn fyrir alþjóð. En þar er af svo mörgu að taka, að allur Þjóðviljinn nægöi ekki. Ég ætla þvi í þetta sinn að halda mér við aöeins eitt atriöi — en þar blöskraði mér aldeilis sérlega. 1 leikriti Eugene O’Neills, sem sjónvarpið sýndi á föstu- daginn langa— ísmaðurinn kemur var þrástagast á orðinu pipudraumur. Það orö kannast ég hreint ekki við og þekki engan sem það gerir. Ég fór að lesendum Or tsmanninum. — O’Neill hefði lfldega ekki verið ánægður meö ýmislegt i tcxtanum sem birtist á skjánum sl. laugardag. leggja við eyrun og viti menn: þýðandinn tók enska orðið „pipedream” og þýddi svona. Einstaka sinnum var „pipe- dream” svo þýtt sem ópium- draumur! Að ööru leyti vil ég ekki tjá mig um þýðingu þessa og mál- farið, en gæti gert margar athugasemdir. Þaö er svo sem sök sér þótt sé illa þýtt og við- haft rangt málfar í myndum, sem sjálfar eru lélegar, þótt slik vinnubrögð eigi auövitað ekki að viðgangast. En þegar farið er svona með listaverk á borö við þetta, þá hljóta menn auðvitaö að mótmæla. Um þjónustu Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar HjÖrtur Geirsson hringdi og sagði sinar farir ekki sléttar af viðskiptum við Félagsmála- stofnun Reykjavikurborgar — eða öllu heldur framkomu starfsfólksins. Hann segist fyrir skemmstu hafa misst húsnæði sitt, verið 'nýkominn í bæinn Ur vinnu úti á landi og verið algjörlega pen- ingalaus. Hann leitaði þá til Félagsmálastofnunar Reykja- vikurborgar i vandræðum sinum til að fleyta sér yfir verstu erfiðleikana þar til úr rættist með hdsnæði og vinnu. Honum var visað á félagsráð- gjafa, sem reyndist mjög vel. Sá útvegaöi Hirti sem svaraði tveggja vikna uppihaldi, en visaði honum siðan á annan, þar sem hann sjálfur væri að fara i smáfri. „Þessi annar” er ekki enn farinn að mæta, að þvi er Hirti skilst: am.k. hefði sér reynst ómögulegt að ná i hann. Fyrri félagsráögjafinn hafði lofað sér aðstoð áfram, en slðan náöist ekki i staðgengilinn og ekki nokkur maður vissi hvar hann var að finna eða hvað ætti að gera við málið. Hjörtur sagði, að Ur sinum málum hefði ræst sökum greið- vikni gjaldkera. Sér væri spum hvers konar stofnun þetta væri. Fólkiö sýndi af sér þvilika framkomu, að ekki myndi nokkrum manni liðast annars staöar. Þarna kæmi fólk, sem væri misjafnlega á vegi statt en þyrfti nauðsynlega á hjálp að halda i flestum tilvikum. Það væri hins vegar algjörlega undir hælinn lagt hvort þaö hlyti viötal eftir viku eða tiu daga. Það gæti svo soltið á meöan Barnahornid Myndina teiknaði Hálf- dán, 6 ára, en hann á heima á Bolungarvik Föstudagur 16. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 • Útvarp kl. 23.00 Kvöldgestir í útvarpi Þáttur Jónasar Jónassonar „Kvöldgestir” er á dagskrá útvarpsins klukkan 23.00 i kvöld og stendur nokkuð fram yfir miðnætti, en þaö þóttu mikil nýmæli hjá stofnuninni á sinum tima. Næsta skref rikis- útvarpsins á þessu sviði er popp-rokkþáttur sem mun verða sendur út á laugardags- nóttum i sumar — 1 tilrauna- skyni til aö byrja með. Hvað um það. 1 þátt Jónasar i kvöld mæta hjónin Stella Guðmundsdóttir og Róbert Arnfinnsson og munu þau rabba við Jónas um hvaðeina Jónas Jónasson verður með Kvöldgesti I útvarpssal i þriðja siðasta sinn i kvöld. sem upp kann aö koma. Aðeins eru tveir þættir aðrir eftir af „Kvöldgestunum” — Jónas Jónasson mun siöan < hætta i bili. Slónvarp kl. 20.55 Skon- rokk Skonrokkið er á sinum stað á dagskrá sjónvarpsins i kvöld klukkan 20.55. Það hefur ekki farið framhjá neinum, væntanlega, að Edda Andrés- dóttir hefur tekið viö stjórninni af Þorgeiri Ast- valdssyni? Charles Denner leikur aðalhlutverkið i kvikmynd Truffauts náunga sem elskaði bara konur. Maðurittn sem elskaði konur (eða B.A. mynd af flóknustu gerð) „Maðurinn sem elskaði kon- ur” er nafnið á kvikmyndinni, sem sjónvarpið sýnir i kvöld klukkan 22.05. Leikstjóri er Franciois Truffaut, hvorki meira né minna, og hún var gerð árið 1977. Efnisþráöur: Bertrand Morane var fertugur að aldri og bjó í Montpellier. Hann var verkfræðingur og hafði unun af starfi sinu. Hann sinnti þvi þó ekkert utan vinnutimans — ekki sökum önnum kafins fjöl- skyldulifs, þvi hann var pipar- sveinn. Bertrand var haldinn einni ástriðu, og aðeins einni — konur áttu hug hans allan. Hann forðaöist samskipti við karlmenn, en var þeim mun meira gefinn fyrir félags- skap kvenna. Og útlit kon- unnar skipti engu máli; hann elskaöi allar, jafnt þær rauðhærðu vegna hinnar góðu lyktar, sem þær bera með sér; þær ljóshærðu vegna gervi- mennskunnar; þær eldri sökum daðurs; þær ungu vegna sjálfselskunnar o.s.frv., segir i kynningu sem fylgir myndinni. Það segir lika i kynning- unni, að Bertrand þessi hafi hvorki verið kvennagull né daðrari. Er þá nema von viö spyrjum: hvað i ósköpunum gekk manninum til? Væntan- lega verðum við einhvers vis- ari eftir sýningu myndarinnar i kvöld en þetta er örugglega B.A. mynd af floknustu gerð! Francois Truffaut er leikstjóri föstudagsmyndinnar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.