Þjóðviljinn - 16.04.1982, Qupperneq 20
Abalslmi Þjóðviljans er 81333 ki. 9-20 mánudag til fóstudaga.
Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
hlaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiðslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími
81333 81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Laugavegurínn göngugata?
“l
Mér líst vel á hugmyndina
segir Siguröur
Haröarson
formaöur
skipulagsnefndar
Reykjavíkur
Tillögur þær og hug-
myndir sem fulltrúar
hinnar dönsku teiknistof u
Anders Nyvig hafa kynnt
á undanförnum dögum
hafa aö vonum vakið
mikla athygli. Tillögur
teiknistof unnar gera ráð
fyrir mjög róttækum
breytingum á skipulagi
umferðarmála í gamla
miðbænum. Þær gera
m.a. ráð fyrir að Lauga-
vegurinn verði lagður
undir göngugötu og
Hverfisgatan fari undir
umferð strætisvagna ein-
göngu.
Þess má þó geta að þetta er
aðeins hluti af tillögum teikni-
stofunnar, margar aðrar lausn-
ir fyrirfinnast og ýmis afbrigði
þar að iútandi. >ær miðá þó all-
ar að þvi að losa gamla miðbæ-
„Það er óhætt að segja að
þetta er mjög i þeim anda sem
ég hef imyndað mér. Það má
taka það fram, að Nyvig og fé-
lagar benda á margar aðrar
lausnir i svipuðum dúr, t.d. að
Laugavegurinn verði gerður aö
göngugötu aðeins að hluta. Um-
ferðin sem nú fer um Hverfis-
götu og Laugaveg yrði þá hleypt
um Sætún og Skúlagötu, Miklu-
braut og Hringbraut. Þá eru
uppi ýmsar hugmyndir um að
hleypa hluta umferðarinnar
gegnum Þingholtin.”
„Hvað með verslunareig-
endur á Laugaveginum?”
„1 tillögum dönsku teiknistof-
unnar er gert ráö fyrir nægum
bilastæðum i tengslum við
Laugaveginn. Þeim yrði komið
fyrir i jöðrum Skulagötu, svo ein
umferðargatan sé tekin sem
dæmi. Það er svo sem ekkert
hægt að fullyrða um viðbrögð
verslunareigenda en ég sé ekki
að vegið sé að þeim með þessum
hugmyndum.”
„Bílageymsluhús?”
„Allar hugmyndir sem miða
að þvi að losna við gegnum-
traffíkina ef nota má svo slæmt
orð, eru góðar hugmyndir. í
þeim hugmyndum sem fram
hafa komið um byggingu bila-
geymsluhúss er margs að gæta
t.d. hvar slíkt mannvirki ætti að
vera staðsett, hvort það raski
svipmóti gamla bæjarins
o.s.frv.” sagði Sigurður.
—hól
Margt gæti breyst....
inn við hina miklu umferð
örkutækja sem i raun hafa
þangað ekkert að sækja. Þjóð-
viljinn bað Sigurð Harðarson
formann skipulagsnefndar
Reykjavikurborgar um að segja
álit sitt á hugmyndum þeim sem
Nyvig hefur borið fram:
I
J
Sameining leigubílastöðva 1 Reykjavík:
Spara má 11 miljónir á ári
og fá betri þjónustu, segir Sverrír Benediktsson
Ef leigubifreiðastöðv-
arnar í Reykjavík samein-
uöust undir einn hatt
mundi sparnaður stéttar-
innar í heild nema rúmlega
11 miljónum króna á ári,
en leigubílstjórar í borg-
inni eru rúmlega 500 tals-
ins.
Þetta kemur fram i könnun sem
Bifreiðastjórafélagið Frami lét
Skráningu 6 ára barna sem eiga
að byrja i skóla næsta haust lýkur
i dag. Það eru sem sagt siðustu
forvöð i dag aðmæta með börnin i
skólana og láta skrá þau fyrir
næsta vetur. Þau sem eru að
nýlega gera og sagt hefur verið
frá i fjölmiðlum. I þessari könnun
kemur einnig fram að stöðvar-
gjald bilstjóranna mundi lækka
um 40.5% við sameiningu, eða úr
1200 krónum á mánuði i rúmlega
700 krónur á bilstjóra.
Fyrir nokkru hélt Frami al-
mennan félagsfund þar sem nið-
urstöður þessarar hagkvæmnis-
könnunar voru kynntar. Við sner-
um okkur til eins fundarmanna,
Sverris Benediktssonar á Bæjar-
flytjast á milli hverfa og skóla
eru skráð á Fræðsluskrifstofunni
og lýkur þeirri skráningu einnig i
dag. 6ára börnin eruskráð á milli
15-17 i dag en önnur frá 10-15
leiðum og spurðum hann fyrst
hvort sameining stöövanna væri i
bigerð:
„Það er ekki gott að segja.
Leigubifreiöastjórar almennt eru
þvi fylgjandi en forstjórar Bæjar-
leiða og BSR hafa látið hafa eftir
sér, að visu áður en þessi könnun
var birt, að ekki borgaði sig að
sameina stöðvarnar. Þeir bentu
þar á að samkeppni þeirra i milli
þýddi betri þjónustu”.
„En hefur ekki sameining áhrif
á verðlag ykkar þjónustu, til
lækkunar?”
„Það er alveg augljóst þegar
t.d. bara stöðvargjaldið hjá okkur
gæti lækkað um rúm 40%. Svo er
á hitt að lita að ef hér væri ein stór
leigubilastöð væri hægt að bjóða
upp á ódýrari varahlutaþjónustu,
ekki sist ef innkaupum á bilum
væri betur stjórnaö.Stéttin skiptir
um ca. 120—200 bila á ári og það
gefur auga leið að ef við ækjum á
t.d. einni eða tveimur tegundum,
mundu bifreiöaumboðin sjá sér
hag i þvi að lækka verð bifreið-
anna. Sameining mundi eflaust
lækka verð á hjólbörðum
þvi við gætum svo vel flutt þá
sjálfir inn og fengið fram lægra
verð. Kostnaður við rekstur bil-
anna mundi semsagt lækka og
það gefur auga leið aö slikt kæmi
út i lægra verði fyrir neytendur
okkar þjónustu”.
„Hvað með skipulag keyrsl-
unnar, Sverrir?”
„Það kemur i ljós i þessari at-
hugun sem Frami lét gera, að
dauð keyrsla hjá okkur er um 30%
af allri keyrslu, þe. akstur milli
stöðva, til viðskiptavinanna o.fl.
Með betra skipulagi væri hægt að
minnka hana amk. um helming.
Einnig fer um það bil helmingur
okkar vinnutima i bið, nema auð-
vitað þessa tvo tima á föstudags-
Sverrir Benediktsson bilstjóri: ef
eigendur ekki sameina stöðvarn-
ar eiga stjórnvöld að gera það.
og laugardagsnóttum. Ef við
sameinum stöðvarnar er hægt að
skipuleggja vaktir og útrýma
með öllu þvi ófremdarástandi
sem skapast i borginni þessar
nætur. Virka daga þyrftu leigu-
bifreiðastjórar ekki að hanga að-
gerðarlausir heldur nýttist vinnu-
timinn mun betur.”
„Hvað teljið þið sem eruð með-
mæltir sameiningu stöðvanna að
beri að gera ef eigendur þeirra
standa gegn breytingum á rekstr-
inum?”
„Mér persónulega finnst að ef
þær fjölskyldur sem eiga Bæjar-
leiðir, og BSR geta ekki rekið
þessi fyrirtæki eins og menn, eigi
stjórnvöld hiklaust að gripa i
taumana og sameina allan leigu-
akstur i borginni undir einn hatt.
Það er alltaf verið að tala um að
opinber fyrirtæki sem og önnur
eigi að reka af einhverju viti og
þessi athugun, sem er unnin af
ráðgjafafyrirtæki hér i borginni,
sýnir svo ekki er um að deila, að
sameining stöðvanna er bæði
hagsmunamál okkar sem vinnum
þar en auðvitað fyrst og fremst
viðskiptavinanna”, sagði Sverrir
að lokum. _v
Prentvilla leiðrétt:
Kaupmáttur 25 % hœrri
Á forsiðu Þjóðviljans f gær var greint frá nýjum upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar um þróun kaupmáttar og fleiri þátta i okkar
efnahagsmálum.
Þar varð sú ljóta prentvilla að sagt var, að kaupmáttur ráð-
stöfunartekna á mann hafi á síðasta ári verið 2.5% hærri en
fimm árum fyrr. Hiö rétta er að samkvæmt upplýsingum Þjóö-
hagsstofnunar varkaupmáttur ráðstöfunarteknanna 25% hærrii
fyrra heldur en árið 1976 og leiðréttum við þetta hér með, en biðj-
um lesendur afsökunar á prentvillunni.
! Félagsfundur ABR að Síðumúla 27
! Kosningastefnuskrá
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til félagsfundar i kosn-
ingamiðstöð félagsins að Siðumúla 27 á morgun, föstudaginn 16.
april kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosin kjörnefnd vegna stjórnar ABR
2. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins i Reykjavik við borgarstjórn-
arkosningar lögð fram til samþykktar. Framsögu hefur Sigur-
jón Pétursson.
3. önnur mál.
Kosningastjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik.
Forskólarnir:
Skráningu 6 ára
barna lýkur í dag