Þjóðviljinn - 22.04.1982, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.04.1982, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. april 1982 Vistheimili aldraðra Snorrabraut 58 Óskum eftir að ráða starfsfólk i eftirtaldar stöður: A. stöðuhjúkrunardeildarstjóra, B. stöðu hjúkrunarfræðinga, C. stöður sjúkraliða, D. stöðu iðjuþjálfa, E. stöðu sjúkraþjálfara F. stöðu starfsfólks i eldhús, G. stöðu starfsfólks til aðstoðar ibúum, H. stöður ræstingarfólks, I. stöður skrifstofufólks. Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf, vaktavinnu eða fastan vinnutima. Nánri upplýsingar gefa Sigrún Óskars- dóttir og ólafur Reynisson i Þjónustuibúð- um aldraðra, Dalbraut 27, föstudag og mánudag kl. 2—5, eða i sima 85377. Aðalfundur Málara- félags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 29. april kl. 20 i húsnæði félagsins að Lágmúla 5. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Verkfallsheimild. 4. Önnur mál. Stjórn Málarafélags Reykjavikur Samtök sveitarfélaga í vesturlandskjördæmi óska eftir að ráða ferðamálafulltrúa i sumar. Hér er um að ræða fjölbreytt starf sem snertir flesta þætti ferðamálaþjónustu. Umsóknir sendist Samtökum sveitarfé- laga i Vesturlandskjördæmi, pósthólf 32, Borgarnesi, fyrir 3. mai n.k. Nánari upp- lýsingar eru gefnar i sima 93-7318. Utankj örf undar- atkvæðagreiðsla i Reykjavik vegna sveitarstjórnarkosn- inga 1982 hefst laugardaginn 24. april kl. 14.00—18.00. Kosið verður að Frikirkjuvegi 11 (kjall- ara) alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22, en sunnudaga og aðra almenna fri- daga kl. 14—18. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Frá Garðyrkjuskóla ríkisins Umsóknarfrestur um inngöngu i skólann 1982 rennur út 1. mai næstkomandi. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, simi 99-4340 eða 99-4262. Skólastjóri Úr salarkynnum rlkisins Borgartúnie Samband Veitinga- og gistihúsa: Ríkið með eigin sam- komustað í sam- keppni við veitingahús ,,í höfuðborginni hefur enn einn veitingastaðurinn séð dagsins ljós. Er sá meö þeim glæsilegri og stærri sem um getur og er þó langt til jafnað. Opnun þessa staðar hefur gengið hljóðlega fyr- ir sig, enda húsbændur ekki hald- ið hcnni á lofti. Tökum við hjá Sambandi veitinga- og gistihúsa okkur þvi bessaleyfi aö kynna staöinn fyrir þeirra hönd. Teljum við rétt og skylt að landsmenn fái um hann fulla vitneskju, enda reistur fyrir þeirra fé — og ekki litiö af þvi”. Þannig hljóðar upphaf orðsend- ingar sem talsmenn Sambands veitinga- og gistihúsa kynntu á blaöamannafundi i gær og var þar verið aðf jalla um veitinga- og ráðstefnusali sem Rikissjóður hefur innréttað á tveimur efstu hæðum Rúgbrauðsgerðarinnar við Borgartún 6 i Reykjavik. Talsmenn veitingamanna voru argir út i þetta ráðslag. Töldu þeir að hér væru opinberar stofn- anir að heyja óheiðarlega sam- keppni við löggilda veitingamenn og að ekki væri á bætandi þá skattheimtu sem lægi á veitinga- rekstrinum i landinu eins og mara. Hólmfríður Arnadóttir fram- kvæmdastjóri Sambands veit- inga- og gistihúsa kvað þessa skatta ekki vera innheimta, hvorki af skemmtana- eða sam- komuhaldi á efri hæöum Rúg- brauðsgerðarinnar né af þeim fjölmörgu litlu samkomusölum sem blómstruðu út um allan bæ. Veitingamenn hefðu margsinnis haft samband við fjármálaráðu- neyti og kvartað yfir þeirri aug- ljósu mismunun sem i þessu fæl- ist, en litið verið um svör. Nú hefði mælirinn endanlega fyllst þegar rikissjóður sjálfur hefði hafið rekstur sinna eigin salar- kynna i samkeppni við veitinga- menn. Veitingamenn greiða sjálfir þann kostnað sem leiðir af eftirliti með þeirra eigin rekstri. 4 menn eru i fullu starfi hjá embætti lög- reglustjóra við þetta eftirlit sem einungis er haft á löggildu stöðun- um, þ.e. þeim sem hafa vinveit- inga-og rekstursleyfi. Aðrir stað- ir eins og „bilskúraeldhús” og „átthagasalir” gangast ekki und- ir neitt eftirlit, hvorki að þvi er varðar matvæli né lokunartima salarkynna. Einn talsmanna veit- ingamanna likti þessu við það ef Landssamband islenskra útvegs- manna þyrfti að bera allan kostn- að af rekstri Landhelgisgæslunn- ar! Vissulega allrar athygli verð hugmynd. — v. „Adstödu til funda og skemmtana vantaði” — segir Höskuldur Jónasson ráöuneytisstjóri í fjámálaráðu- neytinu Við litum inn í ráðstefnu- og veislusali þá sem rikið hefur innréttað að Borgar- túni 6. Þar hefur verið komið fyrir smekklegum innréttingum á þriðju og fiórðu hæð hússins ásamt turni. Þarna geta amk. 300 manns setið í aðalsal við borðhald. Þarna er og dansgólf/ diskótek, bar og setustofa. A sömu hæð er fullbúið eldhús, að auki nokkur samkomuher- bergi sem rúma allmarga til viö- bótar. Þá komum við inn I gufu- bað meö tilheyrandi baöaöstöðu, afslöppunar og búningsherbergj- um. Höskuldur Jónsson ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu kvað reglur um þessi salarkynni hafa tekiö gildi um miðjan mars sl. En við spuröum hann hvert hafi veriö Höskuldur Jónsson ráöuneytis- stjóri: Allar framkvæmdir viö Borgartún 6 greiddar af fjárlög- um. upphaf þess að þessi aðstaða var byggð upp: „Upphafið má rekja til þess að þegar Rikissáttasemjaraembætt- ið var stofnað fyrir nokkrum ár- um vantaði tilfinnanlega aöstöðu. Menn fengu augastað á efri hæð- um Borgartúns 6 en þegar til kom var annar póll tekinn I hæðina og sáttasemjari fékk húsnæði i Borgartúni 22 undir samninga- fundi og þess háttar. Hins vegar var okkur alla tið ljóst að rikis- starfsemina sjáifa vantaði til finnanlega aðstöðu, t.d. eru i samninganefnd BSRB 70 manns og fjölmörgir fundir eru þarna haldnir á vegum ráöuneytanna. Okkur hafði veriö bannað aö vera með stærri samkvæmi i Ráð- herrabústaðnum og þess vegna var afráöið aö koma einnig upp samkomuaðstööu á þessum stað”. Hver borgar? „Þessar framkvæmdir eru undir liðnum Borgartún 6 á fjár- lögum og svo hefur verið frá upp- hafi, en farið var að nota hluta salarkynnanna 1979”. Nú er þarna dansgólf og gufu- bað? „Já, þaö er alveg rétt. Varö- andi dansgólfið höfum við alla tið litið svo á að nauðsynlegt væri að efla félagslif meðal okkar starfs- manna og þvi þótti hagkvæmt þegar salurinn var hannaöur, að gera ráð fyrir samkomuaðstöðu utan vinnutimans. Gufubaðiö hins vegar er notað af starfsfólki þessa húss, bæði starfsmönnum Lyfjaverslunarinnar á neðri hæð- inni svo og þeirra sem sjá um rekstur salarkynna ráðuneyt- anna”. — v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.