Þjóðviljinn - 22.05.1982, Side 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. maí 1982
i
Skemmtum okkur saman
að Laugarvatni í sumar
Nýjung í f lokksstarfinu
Vilfu dvelja i viku að Laugarvatni í júlí?
Sumarfrí
og samvera
að Laugarvatni
r • r -i r
i juh
Alþýðubandalagið býöur þeim sem geta tekiö sumarfrf I
júli til dvalar og samveru á Laugarvatni. Giidir þetta
jafnt um fjöiskyldur sem einstaklinga. Gisting, matur og
öll aðstaða verður I Héraösskölanum.
Nd gefst kostur á að panta vikudvöl að Laugarvatni á
skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3. Slminn er
17 50ð. Þar eru veittar allar nánari upplýsingar.
Um er að ræða vikuna 19. tii 25. júli, eða vikuna 26. júli til
1. ágúst.
HVAÐ KOSTAR DVÖLIN?
Kostnaður við vikudvöl að Laugarvatni f sumar er kr. 1725
fyrir fullorðinn, kr. 1000 fyrir börn sex til tölf ára, og kr.
200 fyrir börn yngri en sex ára.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
lnnifalið I verðinu er gisting i tveggja til þriggja manna
herbergjum, fullt fæði, fjölbreytt dagskrá, barnagæsla og
afnot af ýmiskonar aðstöðu að Laugarvatni.
HVAÐ VERÐUR UM AÐ VERA?
• Lögð veröur áhersla á útivist og náttúruskoðun undir
leiðsögn kunnugra.
^ Efnt verður til menningarvöku nokkur kvöld meö þátt-
töku listamanna.
• Flutt verða fræðsluerindi, haldin námskeið I framsögn
og félagsstörfum ef áhugi er fyrir hendi, og starfað I
umræðuhöpum.
• Og svo er ötaliö það sem mest er um vert aö eiga sam-
verustundir og sumarfrl á fögrum stað I góðum félags-
skap
HVAÐ KOMAST MARGIR AÐ?
Þaö rúmast mest nlutlu manns hvora vikuna I þvi húsnæði
sem Alþýöubandalagiö hefur til umráöa I Héraðsskólan-
um. Við leggjum áhersiu á að fá til Laugarvatns fólk á öll-
um aldri og sem viðast að af landinu. Þátttaka er öllum
heimil.
HVERJIR SJA UM UNDiRBÚNING?
Þegar þátttökutilkynningar taka að berast munum viö
mynda hópa til að útfæra dagskrá I einstökum atriðum.
Baldur óskarsson og Einar Karl Haraldsson stjórna
undirbúningnum. Staðarhaldari á Laugarvatni af hálfu
Alþýðubandalagsins verður Baldur óskarsson, og ráðinn
veröur starfsmaöur til þess aö annast barnagæslu á staön-
um.
HVAÐ BER AÐ GERA?
Pantið pláss á Laugarvatni sem allra fyrst til þess að
auðvelda skipulagningu. Við munum svo láta frá okkur
heyra meö auglýsingum I Þjóðviljanum og samtölum.
PANTAÐU STRAX i SIMA 17 500
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Blikkiöjan
Asgarði 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboð
SIMI 53468
Höfuölykill Hjúkrunarheimilis aldraðra I Kópavogi — Sunnuhllöar, afhentur framkvæmdastjóra heim-
ilisins. Ljósm. gel.
Hjúkrunarheimilið í Kópavogi tekið í notkun:
60% byggingarkostnaðar
sjálfboðavinna og
Hjúkrunarheimili aldraöra i
Kópavogi var vigt á uppstign-
ingardag og formlega tekiö I
notkun. Var heimilinu gefiö
nafnið Sunnuhlið enda staðsett
mót suðri i brekkunni upp af
Kópavoginum.
Múgur og margmenni var við
vigsluathöfnina og var heil-
brigðisráöherra Svavar Gestsson
á meðal gesta. Byggingarsaga
hússins var rakin og kom fram I
máli Asgeirs Jóhannessonar for-
manns undirbúningsnefndar að
bygging hafi byrjað I janúar 1980
og að kostnaður við bygginguna
sé orðinn um 13 milljónir króna.
Þar af hafa 60% safnast gegnum
sjálfboöavinnu ýmis konar og
fjársafnanir á meðal Kópavogs-
búa.
Sunnuhlið kemur til með að
hýsa 38 vistmenn og eru 22 þeir
fyrstu þegar byrjaöir að flytja
inn. Síöari hluti hússins veröur
svo tekinn I notkun 1. júli I sumar,
gjafafé
en húsið allt er um 1450 fermetrar
auk 750 fermetra I kjallara þar
sem aðstaða veröur fyrir tóm-
stundavinnu vistmanna og fleira.
Snorri S. Konráðsson forseti
bæjarstjórnar flutti ávarp við
vlgslu Sunnuhllðar og tilkynnti þá
ákvörðun bæjarstjórnar að hún
myndi kosta stækkun eins af
verkum Gerðar Helgadóttur og
koma upp við anddyri hjúkrunar-
heimilisins.
sKráargatiö
Nú
er aðeins ein vika til þess aö nýr
forseti veröi kosinn hjá Skáksam-
bandi íslands. Eins og kunnugt er
þá mun Ingimar Jónsson hætta en
enn er allt óráðiö með hver veröi
eftirmaður hans. Hin aðskiljan-
legustu nöfn hafa þó heyrst nefnd.
Guðmundur Pálmason hjá Orku-
stofnun og einn af sterkari skák-
mönnum landsins, og Pétur
Eirlkssonhjá Alafossi, munu eftir
nokkra yfirlegu hafa hætt við all-
ar framboöshugleiöingar. Björn
Theódórsson hjá Flugleiöum gaf
sér einnig góðan tíma til að ihuga
framboð en hætti svo við. Fylgis-
menn Einar S. Einarssonar blða
spenntir eftir þvi hvernig fram-
vinda mála verður og er alls ekki
talið óliklegt að Einar gefi sig út i
slaginn á ný og þá aö sjálfsögöu i
samfloti meö félaga sinum og
samverkamanni Högna Torfa-
syni. Halldór Biöndal hefur sést
talsvert að tafii I kringlu Alþingis
og hafa getspakir menn verið
með vangaveltur um það hvort
stjómunareðli Halldórs lendi ekki
á Skáksambandinu. Þá veit eng-
inn hvað bróðir hans Haraldur
Blöndal hugsar þessa dagana.
Altént bauð hann sig fram gegn
Ingimar Jónssyni á þinginu i
fyrra en tapaði örugglega.
Er þá komiö að þeim sem hvað
liklegastir eru til aö hljóta em-
bætti Ingimars: þeim Sverri
Bergmann lækni og Stefáni
Þormar Guðmundssyni
bankastjóra
Spurningunni um hver verður
eftirmaöur Ingimars veröur aö
sönnu svarað i næsta þætti skák-
málanna, þingi Skáksambandsins
næsta laugardag.
Skrýtin
uppákoma varð I sundlaugunum i
Laugardal I gærkvöldi. Magnús
nokkur Olafsson (Þorlákur
Magnús: Var hent I laugina
þreytti) og fleiri voru meö ein-
hvert sprell þar hvort sem það
var nú á vegum Dagblaösins eða
einhverra annarra aöila. Þeir
voru með kosningar i laugunum
og áróður og voru iklæddir kjól-
fötum. Þetta fór eitthvað I taug-
arnar á sumum sundlaugargest-
um og tóku þeir sig til og hentu
köppunum i laugarnar og kosn-
ingasneplunum á eftir þeim. Þar
með lauk þeirri kosninga-
baráttu...
Dagblaöiö
var óháð og frjálst að vissu
marki, og þar voru menn slegnir
sitt undir hvorn meöan Jónas var
og hét. Svona miklast allir hlutir i
minningunni. En eftir samslátt
siðdegisblaöanna hefur Visissvip-
urinn gerst æ meira ráöandi undir
flokkspólitiskri Ihaldslinu Ellerts
B Schram meöan Jónas sinnir
væntanlegu videoveldi og kætist
yfir krásum. Þetta hefur haft þær
afleiöingar aö lesendur og allur
almenningur er farinn aö lita á
Dagblaöiö og Vlsir sem flokks-
pólitiskt auka-málgagn Sjálf-
stæöisflokksins. Af þessum sök-
um er DV nú aö dæmast úr leik
sem tæki til þess aö gera skoö-
anakannanir á fylgi flokkanna.
Þetta sést best á þvi aö meöan
Dagblaöiö var og hét var
prósenta þeirra sem ekki svör-
uöu, höföu ekki afstööu eöa voru
óvissir um 20%, en hefur veriö 40
til 50% eftir samsláttinn. Þetta
hafa DV-menn túlkaö sem aö
sífellt stærri hópur kjósenda væri
meö reikandi afstööu og magnaö-
an pólitiskan leiöa, en þar gæti
allt eins veriö um aö ræöa að
sifellt stækkandi hluti kjósenda
kæröi sig ekki um aö DV væri með
nefið niöri i þeirra pólitisku skoö-
unum. Vegna flokkslinusvipsins á
DV hlýtur aö koma til álita að
reynt veröi aö fá einhvern óháöan
aöila til þess aö annast skoðana-
kannanir um stjórnmál. DV gæti
haldið sig viö bjórinn og annaö
sem ekki heyrir til I flokkapólitfk.
EUert: DV fylgir nú flokkspóli-
tfskri ihaldslfnu.
Talsvert
hefur verið rætt um frumleika og
ferskleika kvennaframboðs og er
margt til I þvi. En á kosninga-
karnevali kvennaframboös I
Laugardalshöll var ekki leitað á
ný miö heldur tekin upp kynning á
ýmiskonar góökynjuöum félags-
skap á svipaöan hátt og Sjálf-
stæöisflokkurinn hefur a.m.k
tvisvar efnt til I Valhöll. Viröist
þar hafa verið lagt inn á þá sömu
braut og kvennaframboöiö hefur
gagnrýnt stjórnmálaflokkana
fyrir aö eigna sér ýmiskonar
þjóðþrifafyrirbæri.