Þjóðviljinn - 27.05.1982, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN F'mmtudagur 27. mal 1982
UOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
(Jtgefandi: Útgáfufelag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
úmsjónarmaður sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdó'tir, Helgi Ólafsson
Magnús H. Gislason, Ólafur Gislason, Óskar Guömundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
iþróttafréttaritari: Viöir Sigurösson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson.
I,jósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prólarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglysingar: ilildur Kagnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar
Sigúrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
Útkeyrsla. afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Reykjavik, simi 81223
Prentun: Blaöaprent hf.
Vinstri eining
• Að loknum kosningum þeim sem fram fóru á
laugardaginn var, ber brýna nauðsyn til þess, að allt
vinstra fólk á ísiandi íhugi vel og vandlega hvernig
mæta skuli sókn hægri aflanna, sem fram komu í
kosningunum. Og ekki má láta nægja þaðeitt að hugsa
um málin, athafnir þurfa að fylgja og miklu fleiri en
áður að taka virkan og öf lugan þátt í því stjórnmála-
starfi sem tengist kjara- og réttindabaráttu verka-
lýðshreyfingarinnar, jafnréttisbaráttunni á öllum
sviðum og íslenskri þjóðfrelsisbaráttu gegn erlendu
hervaldi og erlendu auðvaldi.
• f stjórnmálum vinnst aldrei neitt, nema menn
kunni að skipa sér þétt saman, láta ágreining um hin
smærri mál víkja fyrir samstöðu um hin stærstu mál,
samstöðu sem byggir á sameiginlegum grundvallar-
viðhorf um.
• öf lug vinstri eining — það er svarið við kosninga-
sigri Sjálfstæðisf lokksins, segir Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalagsins í viðtali, sem Þjóðviljinn
birti í gær. Þessa einingu þurf um við mörg að hjálpast
advið að skapa, einingu um meginmál, einingu sem
byggir á hreinskilnum umræðum — líka um það sem
miður fer — og lifandi skoðanaskiptum frá degi til
daas.
• Sjálfstæðisflokkurinn er sundurleitt afl, en þeir
sem þar skipa sér í sveit hafa löngum kunnað að koma
fram undir einu merki í kosningum. Ekki síst þess
vegna er flokkurinn það stórveldi, sem hann er í
íslenskum stjórnmálum.
• Vinstri menn á fslandi geta ekki vænst þess, að
vinna kosningasigra út á sundrungu í röðum hægri
aflanna, heldur eingöngu með þrotlausu eigin starfi,
— og okkur ber að biðja um það eitt að vera dæmd af
eigin verkum, og eigin málabúnaði. Hvortsá dómur er
alltaf sanngjarn eða réttlátur er annað mál, en hann
verðum við að þola, því sem betur fer, þá er þjóðin
æðsti dómarinn.
• Hitt ætti fáum að dyljast, að vart er hægt að
greiða götu þeirra öfgafullu afla, sem mestu ráða f
Sjálfstæðisf lokknum, betur með öðrum hætti en þeim,
að vinstri menn og jafnréttissinnar skipti sér upp í
margar smærri fylkingar vegna minniháttar ágrein-
ings um þetta eða hitt, ellegar þá eftir kynferði, aldri
eða búsetu. Enga ósk eiga ráðamenn Sjálfstæðis-
flokksins, Vinnuveitendasambandsins og Verslunar-
ráðsins heitari en þá, að sjá slíka þróun meðal vinstri
manna og félagshyggjuvólks. Það er samstaðan ein,
sem færa mun sigur á komandi árum.
• A vinstri væng íslenskra stjórnmála er Alþýðu-
bandalagið eina aflið, sem nokkurs er um vert.
Alþýðuflokkurinn er löngu glataður sem vopn í
baráttu verkalýðshreyfingarinnar og fyrir hug-
sjónum jafnaðarstefnunnar. Og í þjóðfrelsismálum
okkar fslendinga, baráttunni gegn erlendum her-
stöðvum og erlendu auðvaldi í landi okkar, — þar er
Alþýðuf lokkurinn aumastur allra. Það er innsta eðli
Framsóknarflokksins að haga seglum eftir vindi í
hverju máli, — sjálfstæðstefna er þar í rauninni engin
til. Þegar vinstri bylgja gengur yf ir í þjóðfélaginu, þá
lætur Framsókn reka til vinstri og fylgir straumnum.
Þegar hægri byigja rís í stjórnmálunum, þá hefur
Framsókn jafnan verið fljót að hallast til hægri. Er
þar skammt að minnast þess, er Ölaf ur Jóhannesson
myndaði ríkisstjórn fyrir Geir Hallgrímsson árið 1974.
Ekki fór heldur milli mála í ummælum þeirra Stein-
gríms Hermannssonar og Tómasar Árnasonar í rfkis-
útvarpinu á fyrstu klukkustundunum eftir að kosn-
ingaúrslit lágu fyrir nú, að þar var kominn á loft
hnefi, sem snéri að verkalýðshreyf ingunni og launa-
kjörum almennings i landinu. Þeir skilja hvað klukk-
an slær, ekki síður en Geir Hallgrímsson og ráðamenn
Vinnuveitendasambandsins.
• Það er í Ijósi þessarar stöðu, sem nú er meiri þörf
en nokkru sinni fyrir sterkan og öf lugan vinstri f lokk,
flokk sem getur sameinað alla jafnréttissinna, allt
félagshyggjufólk á íslandi í eina volduga fylkingu.
Við þurfum betra Alþýðubandalag. Við þurfum
sterkara Alþýðubandalag.
— k.
j hreyfingin
I Ameriska friöarhreyfingin I
, hefur verið kölluö Vietnam- *
Ihreyfing þessa áratugar. I
Þeir sem fylgjast með I
bandariskum hræringum I
, telja hana þö frábrugðna aö *
Iþvi leyti að innan hennar sé I
millistéttarfólk meira áber- I
andi heldur en háskólanem- I
, ar og menntamenn eins og i *
IVietnamhreyfingunni. Nú er I
það „hvitflibbafólkið” sem
ris upp gegn vopnabrjálæð- I
t inu sem það telur ógna sér, 1
Ien ekki i eins rikum mæli I
„gallabuxnafólkiö” sem I
mótmælti Vietnamstriðinu '
, af krafti. J
IBandariska friðar- I
hreyfingin er mjög marg- I
brotin og litrik eins og '
, bandariskt þjóðfélag. Stund- !
Ium er sagt að innan hennar
séu fjórir meginstraumar. I
: Trúarhóparnir j
Hinir friðarsinnuðu
| kvekarar eru áberandi, en J
• einnig kaþólikkar, lúthers- .
Itrúarfólk og mormónskir I
hópar eru virkir i baráttunni.
Það voru tam. Mormónar ]
• sem tókufyrstupp baráttuna .
| gegn MX-áætluninni i Utah. |
■ Lœknarnir j
„Læknar með félagslega |
• ábyrgð” heita samtök sem ■
I' eru áhrifamikil i friðar- I
hreyfingunni og hafa aðal- I
bækistöðvar i Massachu- |
settes Institute of Techno- ■
I* logy. Þau hafa m.a. sýnt I
fram á hversu hjálparvana I
samfélagið getur orðið eftir |
atómstrið. •
* I
Frystingar-
■ hreyfingin
Þessi hreyfing hefur barist I
I fyrir þvi að kjarnorkuvopna- *
, búr stórveldanna verði fryst !
Iá núverandi stigi meöan leit- I
að sé leiöa til afvopnunar. I
Þessi krafa nýtur nú stuðn- ■
, ings 170 þingmanna og J
Iöldungadeildarmanna á
Bandarikjaþingi, og hefur I
verið samþykkt i fjölda '
, bæjarfélaga af meirihluta, !
Iog nýtur stuðnings nokkurra
fylkisþinga.
j Ground-Zero
Þessi hreyfing hefur það I
I aömarkmiði að vekja til um- J
■ hugsunar og kenna. Fóik á ■
Ihennar snærum fæst við að I
gera mönnum skiljanlegt að I
kjarnorkuógnunin er til stað- J
■ ar.ogsiðanaðhvetja til þess ■
að menn leiti sér 'þekkingar I
um málin, og verði að lokum I
virkir i baráttu fyrir kjarn- J
■ orkuafvopnun.
klippl
„Núll-
punkturinn”
Roger Molander heitir maður
og er einn af leiðtogum banda-
risku hreyfingarinnar Ground
Zero, sem hefur það að mark-
miöi að veita upplýsingar um
kjarnorkuvopn og kjarnorku-
striö. Nafn hreyfingarinnar er
dregið af tæknilegu orðfari
þeirra sem atómsprengjum
stýra, en i munni þeirra heitir
lendingarstaöurinn við skot-
markið „núllpunkturinn”. Mol-
ander þessi hefur veriö öryggis-
málaráðgjafi þriggja forseta i
Hvita húsinu, og fáck sig fúll-
saddan.
Hann tókhattinn sinn og sagði
bless, þegar hann dag einn
ræddi striö og friö viö háttsettan
herforingja og sá siöarnefndi -
hafi hátt um ónauðsynlegan ótta
Bandarikjamanna og Evórpu-
manna viö atómstríð. „Fólk er
sifelltaðkjafta um aðatómstrið
þýði endalok heimsins, en stað-
reyndin er sú að bara 500
milljónir manna munu drep-
ast.”
öryggisráði Bandarikjanna og
var sem slikur hernaðarráð-
gjafi þriggja forseta. Þaö er
aðeins eitt ár liöiö frá þvi að
hann fékk nóg. Siöan hefur hann
skrifaö bókina: Atómstrið —
hvað er á þvi aö græða fyrir
Þ'g?
Það sem vakti efasemdir hjá
honum var sú staöreynd að
sumar af tillögum hans sjálfis
gengu óbreyttar gegnum
ákvöröunarferil Hvita hússins
að samningaborði i Genf.
„Mér varð um og ó. Fólkið
sem var kjöriö til þess að hugsa
um „Stóra málið”, þaðtreysti á
mig. Ég var þátttakandi I
ákvörðunum um atómstriðið, en
ekki einungis fræðimaður sem
stakk allavega litum titu-
prjónum á kort til þess að tákna
hundruöir milljóna dauðra í
hugsuöu atómstriði. Ég byrjaði
að hugsa um þá staöreynd að
enginn i Hvita húsinu virtist
skilja vandamál atómstriðs
mikið betur en ég sjálfur. Og
þegar ég leiddi hugann að þvi
hve min þekking er takmörkuð
varð mér ekki um sel.”
Roger Molander
Þetta „bara”
Þaö var þetta „bara” sem
réöi úrslitum og Molander snéri
sér aö þvi að skipuleggja
Ground Zero sem er i hópi mörg
hundruð bandariskra samtaka
er til saman mynda bandarisku
friðar hr eyfin gun a.
Siðustu vikurnar I april tóku
mörg hundruð þúsund manns I
meir en 600 bandariskum
bæjum þátt i upplýsingaherferö
á vegum Ground Zero.Þar voru
margar uppákomurnar: Til að
mynda voru afmörkuð með
plakötum svæöi yfir sennilegan
núllpunkt atómsprengju, giga-
myndun og geislunarradlus, og
efnt til kapphlaups, þar sem fólk
gat reynt á sjálfu sér hversu
langt það kæmistfrá núllpunkti
á þeim tfma sem það tekur eld-
flaug með atómsprengju að
svifa frá Sovétrikjunum að
skotmarki i Bandarikjunum, en
þaö mun vera um hálf klukku-
stund.
Hernaóarráö-
gjafi þriggja
forseta
Molander er sagöur góður
fulltrúi hins almenna og út-
breidda ótta sem Bandarikja-
menn eru nú haldnir, og m.a.
hefur sprottiö af atómvopna-
skaki Reagan-stjórnarinnar. En
hann hefur það umfram hinn
bandariska meðal-jðri, aö hann
hefur verið þátttakandi i brjál-
æöinu i innsta kjarna þeirra
sem ráða. Molander átti sæti i
Hœttan allt
of mikil
Þá bætti það ekki úr skák i
augum Molanders að jafnaðar-
geöinu var ekki fyrir að fara
meðalstjórnmálamanna i Hvita
húsinu, og vanþekkingin áber-
andi i hermálanefndum þings-
ins. Aö hans mati er hættan
alltof mikil á þvi aö tæknileg
mistök, mannleg mistök eöa
rangt mat á aðstæðum geti
komið atómstriði af staö. Þessi
hætta sé miklu meiri en ráða-
menn i Hvita húsinu og á
Bandarikjaþingi geri sér grein
fyrir.
Og þvi var það að um leið og
Molander gat annaö barn við
konu sinni hellti hann sér
út i baráttu fýrir öruggari fram-
tiö. Velgengni hreyfingar hans
og annarra sambærilegra má
hann þó þakka Relagan forseta
fyrst og fremst. "Stríðsskrum
hans og yfirlýsingar um mögu-
leika á takmörkuðu atómstriöi
hafa opnað augu margra.
Sömuleiðis gegndarlaus
áróðurslygi um sovéska yfir-
burði á kjarnorkuvopnasviöinu.
Almenningi i Bandarikjunum
þykir annaðhvort lftiö til þeirra
koma meðan stórveldin geta
hvort eö er eytt hvort öðru
mörgum sinnum. Eða fólk
svarar meöorðum Roger’s Mol-
ander:
— Ég á ennþá eftir að hitta
þann bandariska hershöfðingja
sem er reiðubdinn að skipta á
kjar nork u vopnabú ri Sovétrikj-
anna og Bandarikjanna.
— ekh
oa slcoríð