Þjóðviljinn - 27.05.1982, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN
Fimmtudagur 27. mal 1982
AbaUimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins iþessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins 1 slma 81663. Blaðaprent hefur slma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsimi 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
j Blindum
i kennd
meðferð
! Hvíta
stafsins
Nýlega veitti UNESCO
Hlindrafclaginu styrk til að
fá hingað til lands erlendan
umferliskennara i 6 vikur til
að kenna blindum notkun
Hvita stafsins. Fyrir valinu
varð breskur kennari, Brian
J. Andrew, en hann var áður
kennari við endurhæfingar-
skóla bresku blindrasamtak-
anna f Torquai I S-Englandi.
Hér á landi munu um 15
manns njóta leiðsagnar
Brians J. Andrew um lengri
eða skemmri tima.
HVITI STAFURINN er eitt
mikilvægasta hjálpartæki
blindra og sjónskertra. Hann
gerir þeim kleift að komast
um á eigin spýtur i þekktu
umhverfi.
Blindir þurfa þó oft á
aðstoð annarra vegfarenda
að halda, einkum yfir fjöl-
farnar umferöargötur. Þvi
verður aldrei nægilega brýnt
fyrir ökumönnum og gang-
andi vegfarendum að sýna
þeim sem nota HVITA STAF
fyllstu tillitssemi og að bjóða
fram aðstoð sina þegar þurfa
þykir.
5000 manns
hjóluðu
Talið er að yfir 5000 manns hafi
tekið þátt i hjólreiðadeginum er
það mun nteira en á sams konar
degi i fyrra. Alls söfnuðust 500
þúsund krónur. Veður var ágætt
s.l. sunnudag er söfnunin fór
frarn, en það cr Sjálfsbjörg sem
stendur fyrir hjólreiðadeginum i
ár cins og i fyrra.
Kosningahappdrættið:
Kosnlngastarf
kostar stórfé
Kosningar kosta mikið
té. Tugþúsundir króna og
gott ef ekki meira. Alþýðu-
bandalagið hefur ekkert til
að reiða sig á annað en
félagsmenn og velunnara#
ekkert peningaauðvald
stendur að baki þvi.
Ein fjáröflunarleið Alþýðu-
bandalagsins er happdrætti.
Alþýðubandalagið sendi út giró-
seöla til féiagsmanna og velunn-
ara nokkru fyrir kosningar. Til
þess að standa undir öllum þeim
reikningum og kosningavixlum,
sem nú fara aö streyma inn, þarf
happdrættiö aö takast vel.
Það eru þvi vinsamleg tilmæli
til allra, sem fengu slika seðla, aö
greiða þá sem fyrst og eigi siðar
en 1. júni þvi þá er dregið. Vinn-
ingar eru að vanda glæsilegir.
Stærsti vinningurinn er Súsúkl-
bifreiðin, sem þeir Kristján
Þeir Kristján Valdimarsson og Olfar Þormóðsson stýrðu kosninga-
vinnunni I Reykjavik og höfðu gát á happdrættisbilnum — rauðum og
glæsilegumSúsúki. Hinn 2. júni veröur ljóst hver hreppir gripinn en þá
er dregið i kosningahappdrættinu.
Valdimarsson og Olfar Þormóðs- anum. En brátt hverfur hann
son hafa haft I hlaðinu hjá sér I þeim af braut — til hins heppna/-
kosningamiöstöðinni i Siðumúl- hinnar heppnu! ast
Gunnar
Gunnarsson
gefur kost
á sér
Gunnar Gunnarsson fyrr-
verandi forseti Skáksam-
bands isiands 1974 —1976,
hefur tilkynnt að hann gefi
kosl á sér til forystu i Skák-
sambandinu að nýju, cftir að
Stjórn Taflfélags Reykja-
vfkur fór fram á þaö við
hann.
I gær var ekki vitáö um
mótframboð, en aðalfundur
Skáksambandsins verður á
laugardaginn kemur.
Viðskipta-
jöfnuðurinn
óhagstæður
um 82,9
miljónir 1
apríl
í aprilmánuði var vöruskipta-
jöfnuður okkar islendinga óhag-
stæöur um 82,9 miljónir króna. Út
var flutt fyrir 748,2 miljónir
króna, en inn fyrir 821,1 miljón
króna.
A fyrstu fjórum mánuðum
þessa árs er vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um 647.1 miljón
króna, en var óhagstæður um
211,1 miljón króna á sama tima i
fyrra.
Meðalgengi erlends gjaldeyris
á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs er talið hafa verið 40,1%
hærra en i sömu mánuöum árið
1981.
Jón Ásgeirsson hjá RKÍ:
26 Pólverjar eru
að koma hingað
Vantar frambúðarhúsnæði
— Það eru i a llt 26 pólsk-
ir flóttamenn sem koma
hingaö frá Austurríki,
sagöi Jón Ásgeirsson
framkvæmdastjóri Rauða
krossins i viðtali við blaðið
í gær. Þar af eru þrír þegar
komnir en hínir 23 koma á
föstudaginn. Um þrjátiu
þúsund pólskir flóttamenn
eru nú i Austurriki og bíða
þess yfirleitt að komast til
einhverra annarra landa
og hefja nýtt líf.
— Fólkið sem kemur til okkar
er yfirleitt á miðjum aldri og
meðal þeirra eru átta börn á aldr-
inum eins til sex ára. Þetta fólk er
yfirleitt vel menntað, svo dæmi
séu tekin eru þarna verk-
fræðingur, erfðafræðingur,
hjúkrunarfræðingur, land-
búnaðarfræðingur, rafvélavirki,
bifvélavirki, sjúkraliði, læknir og
tannlæknír. Við höfum þegar út-
vegað mörgum þeirra atvinnu og
hjá öðrum höfum við eitthvað i
sigtinu.
— Ég óttast helst erfiðleikana
með að útvega leiguhúsnæði.
Okkur vantar nú 5 leiguibúðir og
einar tvær einstaklingsibúðir.
Þetta fólk kann að sjálfsögðu litið
i öðrum tungumálum en pólsku.
Strax eftir helgina byrjar fólkið á
tungumálanámskeiði þarsem
þeim verður einnig sagt frá
Islandi og islenskum samfélags-
háttum. Okkur Rauðakross-
mönnum til aðstoðar verða einnig
Pólverjar sem búsettir eru hér á
landi.
— Allir hafa reynst mjög já-
kvæðir i garð þessa fólks hingað
til og ég á ekki von á öðru en
þannig verði áfram. Fólkið er að
breyta gjörsamlega um umhverfi
og lifshætti og það reynir mikið á
það við umskiptin. Vonandi verða
allir reiðubúnir til að auðvelda
þeim þessar breytingar.
— óg
* UNESCO veitti Blindra-
Ifélaginu styrk til þess að fá
hingað til lands erlendan
inann sem kennir blindum að
j nota Hvita stafinn. Hér sést
kennarinn, Brian J. Andrew,
I með nemanda. (Ljósm. gel).
Gunnar Gunnarsson
Nýr forseti
Skáksambandsins
kosinná laugardag
Kuldakastið:
segir búnaðarmálastjóri
,,Gróður var viðast hvar
nokkuð vel kominn af stað
undan vetri en þetta kulda-
kast á Norðurlandi, sem
ætlar að reynast nokkuð
langvarandi, hefur auð-
vitað stöövað vöxtinn
undanfarna daga", sagöi
Jónas Jónsson búnaðar-
málastjóri þegar við
spurðum hvaða áhrif hann
teldi kuldakastið á Norður-
landi hafa á grassprettu og
búnað til sveita.
— Þrátt fyrir þennan afturkipp
i vorinu er nú viðast hvar hægt að
hafa fé úti við en þó eru staðir
eins og i útsveitum á Norð-
Austurlandi þar sem fé er enn á
gjöf og ef ekki bregður til hlýinda
og sprettu alveg á næstu dögum
fer að þrengjast um fóður, sagði
Jónas.
— Og sauðburður gengur sinn
vanagang?
— Já, ég held að hann gangi
yfirleitt nokkuð vel og það á ekki
að fara illa um lömbin nema þetta
dragist á langinn.
— En hvernig keinur ræktun
undan vctri?
— Horfur eru sæmilegar á að
bændur losni við kal að mestu
leyti en of snemmt er að spá
endanlega um það. Gróðurinn
verður að ná sér betur á strik til
aö hægt sé að sjá hver endanleg
niðurstaða verður i þeim efnum,
sagði Jónas Jónsson búnaðar-
málastjóri að siðustu.
— v.
Jónas Jónsson búnaðarmála-
stjóri: ef ekki fer að bregða til
hlýinda i uppsveitum N-Austur-
lands er hætt við að fóðurbirgðir
gangi til þurrðar.
Grasspretta hefur
nú stöðvast í bili