Þjóðviljinn - 27.05.1982, Side 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Fimmtudagur 27. mai 1982
Hafnarfjörður
AÐVÖRUN
Samkvæmt heimild i heilbrigðisreglugerð
og lögreglusamþykkt Hafnarf.iarðarkaup-
staðar munu nú og framvegis allar núm-
erlausar bifreiðar sem standa á götum,
bilastæðum og óbyggðum lóðum, fluttar i
port Vöku hf. Stórhöfða 3 Reykjavik. Hafi
eigendur ekki vitjað þeirra innan tveggja
mánaða frá tökudegi, verða þær teknar til
greiðslu áfallins kostnaðar.
Heilbrigðiseftirlitið.
B
félag
bókagerðar-
manna
Félagsfundur
verður haldinn i dag kl. 17 aðHótel Esju
annarri hæð.
Dagskrá: 1. Samningamálin
2. Önnur mál
Stjórn FBM
UTBOÐ
Hitaveita Akraness og Eorgarfjarðar
óskar eftir tilboðum i lagningu 8. áfanga
dreifikerfis á Akranesi. í kerfinu eru ein-
angraðar stálpipur 020—050 mm.
Heildarpipulengd er tæpir 4,8 km.
Útboðsgögn verða afhent gegn 1000 kr.
skilatryggingu á eftirtöldum stöðum:
Fjarhitun h.f. Borgartúni 17 Reykjavik.
Verkfræði- og teiknistofunni s.f. Kirkju-
braut 40, Akranesi.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
Eerugötu 12, Borgarnesi.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, þriðjudaginn
15. júni 1982 kl. 11,30.
FERÐAVÖRUR
Húst jöld 4ra manna 2.800,-
Tjöld m/tvöfaldri þekju 1,050,-
Bakpokar m/grind 535,-
Sólstólar frá 99,-
Sólbeddar frá 250,-
Garðborð 145-608,-
Göngutjald m/aukaþekju 1.853,-
Svefnpokar 7 gerðir frá 522,-
Bilryksugur 12 volt 220,-
Iþróttatöskur 198,-
Reiðhjólatöskur 369,-
Grill 445,-
Strandmottur 23,-
Dyratjöld 278,-
Ferðatöskur 80-200,-
Dyramottur, kaðall 37,-
Gönguskór, strigaskór, gúmmistigvél
DOMUS
KAUPFÉLAG REYKJAVIKUR 0G NÁGRENNIS
Kennari meöhóp nemenda i bókasafni sérhæföa eölisfræöi-og stæröfræöiskólans
Skóli fyrir stærð-
fræðisnillinga
og skrifleg próf i eölisfræði og
stærðfræði.
Spurning: Hve mikið greiða
foreldrar fyrir námsdvöl barns i
skólanum?
Skólaf römuðir hafa
lengi deilt um réttmæti
þess að stofna sérstaka
skóla fyrir börn sem þykja
sýna sérstaklega mikla
hæfileika á tilteknum svið-
um. Sovétmenn eru meðal
þeirra sem hafa gert all-
margar tilraunir í þá veru,
og er þekktastur slíkra
skóla fyrir „úrvalsnem-
endur" stærðfræði- og
eðlisfræðiskólinn í Novosí-
birsk. Frá honum segir í
eftirfarandi grein frá
APN.
Ivan Sjestakov, sem fæddist og
ólst upp i litlu siberisku þorpi i
grennd við Baikalvatn, lauk
doktorsprófi i stærðfræði um þri-
tugt. Auk þess hefur hann ritað
margar og langar visindaritgerð-
ir. Sjestakov segir, að hann eigi
árangursrikan visindamannsferil
sinn að þakka sérhæfðum eðlis-
fræöi- og stæröfræðiheimavistar-
skóla, sem starfræktur er i
tengslum við háskólann i Novosi-
birsk, sem hann stundaöi nám
við.
„A yfirstandandi námsári eru
550 nemendur skráðir i skólann
okkar, þ.á m. um hundrað stúlk-
ur,” sagði Alexei Bogatsjev
skólastjóri.
„Nemendurnir eru valdir af fé-
lögum i Slberiudeild sovésku vis-
indaakademiunnar, sem ferðast
til hinna ýmsu borga og halda
samkeppnispróf I stærðfræði,
eðlisfræöi, efnafræði og liffræði.
Að jafnaöi taka þátt I keppninni
14-18 þúsund drengir og stúlkur i
7.-9. bekk. Hin gáfuðustu þeirra
eru innrituð i „visinda”skólann
okkar, eins og við köllum hann.
Eina skilyrðið til skráningar i
skólann eru hæfileikar nemend-
anna á sviði raunvisinda, sem við
þroskum frekar i skólanum okk-
Spurning: Hverjir kenna við
skólann og hvernig er námið
skipulagt?
Svar: Meðal kennara hjá okkur
eru fimm doktorar og 32, sem
hafa lokið meistaraprófi I visind-
um.
Kennsluhættir likjast þvi sem
gerist i æðri menntastofnunum.
Nemendurnir sækja tima fimm
daga i viku, fyrirlestra, sam-
æfingar og umræðufundi, en
sjötta dag vikunnar vinna þeir
sjálfstætt á háskóladeildum,
bókasöfnum, o.s.frv. Háskólaárið
skiptist i tvö misseri með prófum
i lok hvers misseris. Gangast
nemendurnir undir bæði munnleg
Svar: Foreldrarnir greiða að-
eins um 40 rúblur á mánuði fyrir
húsnæði, þar sem þetta er heima-
vistarskóli. Það skal tekið fram,
að fjölskyldur með litlar tekjur
þurfa ekkert að greiða. En al-
mennt talaö eru útgjöldin hjá
okkur sexf öld miðað við venjuleg-
an skóla.
Spurning: Borga þessi útgjöld
sig?
Svar: 1 þessu sambandi vil ég
vitna i visindamanninn Lavrent-
jev, einn af stofnendum siberisku
visindamiðstöðvarinnar, en hann
sagði: „...Jafnvel þótt Sjestakov
væri sá eini, sem skólinn hefði
menntað frá þvi hann var
stofnaður, þá væri tilkostnaður-
inn vel réttlætanlegur...”
Spurning: En nú útskrifast
menn eins og Sjestakov ekki frá
skólanum á hverju ári?
Svar: Að sjálfsögðu ekki. Engu
að siður hafa hundruð visinda-
manna, sem nú starfa i hinum
ýmsu visindamiðstöðvum um
gervöll Sovétrikin, hlotið undir-
stöðu visindamenntun sina i
skólanum hjá okkur. Það er að
visu rétt, að einn af drengjunum
okkar ákvað aö loknu brottfarar-
prófi úr skólanum að gerast trúð-
ur, og hann varö það. Og ég held
ég megi segja, að hann sé mjög
góður trúður.
Nikolai Plotnikov. —APN.
Mörkin lokuð um hvítasunnu
Gróðurinnhefur
ekki náð sér enn
Um hvitasunnuhelgina i fyrra
var Þórsmörkin aðalstaðurinn.
Hún bar þess enda merki á eftir
og ber enn. Það fólk, sem flykkt-.
ist þangað til að „lyfta sér upp”
gekk þannig frá eftir sig, að
gróðurinn er ekki enn búinn aö ná
sér.
Þetta er ástæðan fyrir þvi, að
Þórsmörkin verður lokuð hvita-
sunnuhelgina. Lögreglan á Hvols-
velli mun vera við Markarfljóts-
brúna og beina þeim frá, sem
vilja tjalda i Mörkinni. Þeir sem
koma með langferðabilum og
ætla að gista i skálunum fá hins
vegar að fara, enda annað I huga
þeirra en sletta úr klaufunum.
„Ennþá geymist það mér i minni/að það var fagurt í Þórsmörkinni...”
orti þjóðskáldið. Þar verður nú lokað um hvitasunnuna þvi gróðurinn
hefur enn ekki náð sér eftir lætin I fyrra.