Þjóðviljinn - 10.06.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 10.06.1982, Síða 3
Fimmtudagur 10. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Forseti borgarstjórnar, Albert Guðmundsson, bauö þingmönnum Evr ópuráftsins til hádegisveröar aö Kjarvalsstöðum I gær og er myndin tekin þegar gestirnir voru aökoma. Ljósm. —eik. Evrópuráðsmenn 1 Reykjavík Tvær nefndir Evrópuráðsins, landbúnaðar- og visindanefnd, hófu fundi sina hér á landi i gær. Um 65evrópskir þingmenn ásamt starfsliði Evrópuráðsins sitja fundina sem haldnir eru i Borgar- túni 6, Reykjavik. 1 gær voru nefndarfundir og sameiginlegur fundur eftir há- degið þar sem sérfræðingar kynntu orku- og efnahagsmál á íslandi en þingmenn i visinda- nefnd skoðuðu einnig Svartsengi i gær. 1 dag verður skroppiö ilt fyr- ir bæinn en fundum nefndanna lýkur á föstudag. Tveir islenskir þingmenn eiga sæti i þessum nefndum Evrópu- ráðsins, Kjartan Jóhannsson i Landbúnaðarnefnd og Guðmund- ur G. Þórarinsson i visindanefnd. Þorvaldur Garðar Kristjánsson og ólafur Ragnar Grimsson sem eiga sæti i sendinefnd lsland hjá Evrópuráðinu hafa undirbúið þessi fundarhöld hér i Reykjavik. —AI Þing BSRB: 6 mánaða fæðingar- orlof verði tryggt Þing Bandalags starfs- manna rikis og bæja sam- þykkti einróma að fæðingar- orlof skuli vera 6 mánuðir og að réttur foreldra til að skipta þvi á milli sin verði tryggður. I ályktun frá jafnréttis- nefnd þingsins er lögð á- hersla á að launamisrétti karla og kvenna verði leið- rétt með þvi að fullt tillit veröi tekið til náms og á- byrgðar i svokölluöum kvennastörfum og að hætt verði að greiða konum lægri laun en körlum fyrir sam- bærileg störf i skjóli ólikra starfsheita. Þingið krefst þess að full- nægt verði eftirspurn eftir dagvistunarrými, aö sam- felldum skóladegi og mötu- neyti fyrir nemendur verði komið á, að f jarvistunarrétt- ur vegna veikinda barna, foreldra og maka verði tryggöur, að gætt veröi hags- muna öryrkja vaðandi launakjör og að jafnréttis- lögin verði haldin að fullu og jöfnuður til starfa í anda lag- anna verði tryggður. Kjartan Helgason sextugur Kjartan Helgason forstjóri, Langholtsvegi 184, Reykjavík er sextuguridag. Hann er fæddur I Reykjavik 10. júnl 1922 sonur Helga Þorkelsson- ar, klæðskera og Guðrlöar Sigur- björnsdóttur konu hans. Kjartan lauk kennaraprófi 1942 og kenndi fá ár á Siglufirði og I Hafnarfirði. Kjartan hóf störf hjá Samein- ingarflokki alþýðu — Sósialista- flokknum árið 1944 og var fastur starfsmaður flokksins næstu 20 ár. Verkefni Kjartans voru marg- vlsleg á þeim árum og m.a. vann hann lengi að verkalýðsmálum á vegum flokksins. Kjartan Helgason A slðari árum hefur Kjartan Helgason unnið að ferðamálum og er nú framkvæmdastjóri Feröaskrifstofu Kjartans Helga- sonar h.f. Þjóðviljinn árnar Kjartani heilla á sextugsafmælinu. Fjórðungssamband Norðlendinga: Ráðstefna um landbúnað 1 tilefni af 100 ára afmæli Bændaskólans á Hólum I Hjalta- dal efnir Fjórðungssamband Norðlendinga til ráðstefnu um stöðu landbúnaöar, nýjar leiðir I landbúnaði, búnaðarfræöslu og tækniþjónustu I landbúnaði. Er ráöstefnan haldin i samráði við forráðamenn Hólaskóla og for- ystumcnn bændasamtakanna. Verður hún sett kl. 12 á hádegi föstudaginn 11. þ.m. 1 félagsheim- ilinu Miðgarði við Varmahllö og lýkur samdægurs. Ráðstefnan tekur fyrir þrjú meginumræðuefni. Um stöðu landbúnaðarins, um nýjar leiöir I landbúnaöi, ennfremur um búnaðarfræðslu og tækniþjónustu I landbúnaöi. Að loknum fram- söguerindum um hvert umræðu- efni verða um það sérstakar pall- borðsumræður. Egill Bjarnason búnaðarráöunautur stýrir um- ræöu um stöðu landbúnaðar, en framsögumenn eru: Pálmi Jóns- son, landbúnaöarráðherra og Ingi Tryggvason, formaður Stéttar- sambands bænda. Ari Teitsson, ráðunautur stýrir umræðu um nýjar leiðir i land- búnaði. Framsögur flytja Arni Isaksson, fiskifræöingur, Sigur- jón Bláfeld, loödýraræktarráöu- nautur og Árni Pétursson, hlunn- indaráðunautur. Jóhannes Sig- valdason, framleiðslustjóri stýrir umræöum um búnaðarfræðslu og tækniþjónustu i landbúnaði. Framsögumenn veröa Jónas Jónsson, búnaöarmálastjóri, Björn Sigurbjörnsson, forstjóri Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins, Jón Bjarnason, skólastjóri og Jón Arnason, til- raunastjóri. Megintilgangur ráðstefnunnar er aö varpa sem skýrustu ljósi á stöðu landbúnaðarins I þjóöfélag- inu, markaösaðstööu og nýjar leiöir til aö auka fjölbreytni i landbúnaöi. Svo og aö vekja at- hygli á gildi búnaöarfræöslu, upp- byggingu búmenntunar á Hólum I Hjaltadal, leiöbeiningastarfsemi og tilraunastarfsemi sérstaklega á Norðurlandi. Ráöstefnan er öll- um opin. i Ný bæjarstjóm á Selfossi ■ sóknarflokkur og Sjálfstæðis- Iflokkur myndi meirihluta i bæj- arstjórn Selfoss. Viðræður þess- ara flokka hafa gengið alla vik- ■ una og eftir þvi sem næst verður Ikomist þá er samkomulag alvcg á næstu grösum. ■ Framsóknarflokkurinn hafði áður átt i viðræðum við Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokk og hafði tekist að ná samkomulagi um öll meginmál og lá málefna- samningur fyrir til undirritunar á sunnudagskvöldið. Virtist allt klappað og klárt þegar Fram- sóknarmenn slitu viðræðum, en fulltrúar þeirra höfðu fengið umboð til að ráða einn bæjar- stjóra af sjö umsækjendum. Gengu Framsóknarmenn þó út úr viðræðunum án þess að hin- ■ um tveim flokkunum væri gef- I inn kostur á að hafna þeim um- I sækjanda. Þá lá fyrir að þrir J umsækjendanna komu ekki til j greina af hálfu Framsóknar- I flokksins og virtist ekki önnur I sýnilega ástæða fyrir þvi en að 1 þeir eru heimamenn. Hvað snertir ráðningu nýs I bæjarstjóra Selfoss en þá er út- I litfyrir að Stefán Ömar Jónsson ' tplri \rif\ Koii’rí cfaKii Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks AUt útlit er nú fyrir að Fram- í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 11. júni og laugardaginn 12. júni kl 20.00. Miðasala i Gimli við Lækjargötu frá kl. 14.00 til kl. 19.30. Simi: 29055. RAJATABLA- leikhúsið frá Venezuelá sýnir leikritið LIVAR —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.