Þjóðviljinn - 10.06.1982, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÖÐVILJINN
Heldur lltiö hefur farið fyrir
suöur-amerfskri leiklist hér á
iandi, ef undan eru skildar fáar
sýningar eftir höfunda þar I
álfu, minna má m.a. á Fröken
Margréti, sem hér náði miklum
vinsældum. A undanförnum ár-
um hefur sprottiö upp i Suður-
Ameriku gróskumikiö leikhús,
þrátt fyrir einræðisstjórnir, rit-
skoðun og annað það sem er al-
þýðu og listamönnum til bölvun-
ar og ógagns.
isumum rikjum Suður-Amer-
Iku hafa oröiö til stórgóð neðan-
jarðarleikhús, m.a. aö þvf er
áreiðanlegar fregnir herma I
Brasiliu — og að öðrum leikhús-
um ólöstuöum, hefur trúlega
Arena-leikhúsið I Sao Paulo öðl-
ast mesta frægð suður-amer-
Iskra leikhúsa undir stjórn leik-
húsmannsins Augusto Boal.
En á Listahátið nú gefst kost-
ur á að lita rjómann úr suður-
amerisku leikhúsi, þar sem er
Rajatabla-leikhúsið frá Venesú-
ela. Það var stofnað árið 1971
undir forystu leikstjóra beggja
þeirra sýninga, sem leikhúsið
sýnir. Sá er Carlos Giménez, en
hann átti upptökin að þvi að
þetta tilraunaleikhús var stofn-
að undir verndarvæng Teatro
Úr sýningu Rajatabla á Forseti lýöveldisins. Leikritið er frjáisleg útlegging á skáldsögu Miguel Asturi-
as, sem hefur komiö út i islenskri þýðingu Hannesar Sigfússonar.
Heimsókn Rajatabla-leikhússins frá Venesúela
mörgum löndum Evrópu.
A morgun, föstudag, leikur
Rajatabla leikritið Bólivar eftir
José Antonio Rial. Þessi sýning
er sú nýjasta frá hendi Raja-
tabla, en kveikjan að verkinu er
barátta Simon Bolivar fyrir
frelsun Spönsku Ameriku og
ástandið i þessum rikjum árið
1981,150 árum eftir dauða frels-
ishetjunnar.
Forseti lýðveldisins er frjáls-
leg útlegging leikhópsins og höf-
undarins, Hugo Carillo, á sam-
nefndri skáldsögu Miguel Angel
Asturias — sem hefur, vel að
merkja, komið út á islensku i
þýðingu Hannesar Sigfússonar
árið 1964.
Forseti lýðveldisins lýsir
heimi suður-amerisks stétta-
veldis, sem i sýningunni þróast
yfir i martröð. Um sýninguna
hefur verið sagt, að hún væri
formfagurt sjónarspil, sem tæk-
ist á frábæran hátt að sameina
nýsköpun og rótgróna fag-
mennsku.
Og það er vissulega ástæða til
þess að hvetja alla, sem vett-
lingi valda, að berja þessar sýn-
ingar Rajatabla augum — ekki
þarf að óttast tungumálið, þvi
ýtarleg atburðarás verður birt á
prenti i leikskrám sýninganna.
Rajatabla sýnir Bólivar sem
fyrr segir á morgun, föstudag
og laugardag i Þjóðleikhúsinu,
og hefst sýning kl. 20.00 báða
Rjómiim úr Suður-Amerískri leiklist
del Ateneo de Caracas. Raja-
tabla var tryggður lifvænlegur
grundvöllur, þannig að hópur-
inn getur undirbúið sýningar
sinarmjög velogá löngum tima
og unniö á leiksmiðju visu, og
hópurinn nýtur auk þess fulls
listræns frelsis, sem hefur ekki
litið að segja.
Rajatabla lék fýrst eingöngu
fyrir suður-ameriska áhorfend-
ur, en frá árinu 1975 má segja að
leikhópurinn hafi verið á ferð og
flugi og gist allar meiri háttar
leikíistarhátiðir og leikið i fjöl-
dagana. Forseti lýðveldisins
veröur svo sýnd á mánudags-
kvöld og þriðjudagskvöld, einn-
ig kl. 20.00.
— jsj.
Þar er
líf sem
mætast
vatn og
klettur
John Rud sýnir
steinhöggmyndir
í Norræna húsinu
Að undanförnu hefur
staðið yf ir sýning danska
skúlptúrlistamannsins
John Rud á steinhögg-
myndum í Norræna hús-
inu í anddyri þess og
einnig utanhúss, en högg-
myndir þessar eru unnar
i granít og aðrar steinteg-
undir.
John Rud er sjálflærður i list
sinni, en hefur þegar öðlast
frægð fyrir verk sln og sýnt á
Vor- og Haustsýningunum i
Charlottenborg meira eða
minna frá árinu 1975, auk þess
sem hann hefur sýnt vlða ann-
ars staöar.
Listamaðurinn var á siðasta
ári hér á landi i kynnisferö, og
varö þá sú hugmynd til, aö hann
kæmi hingað til lands með verk
sin og ynni auk þess hér á landi.
Það er nú orðið aö veruleika, og
aö því er segir i sýningar-
skrá, mun hann bæta smám
saman við sýninguna verkum,
sem hann mun vinna úr is-
lenskum steinum.
í hugleiöingum sinum um
höggmyndina fjallar John Rud
m.a. um gildi höggmynda. Kon-
kretstefnan svonefnda kom til
Þar er lif sem mætast vatn og
klettur. Klofið Granit eftir
J ohn Rud
sögunnar fyrir nokkrum árum,
og átti að vera uppgjör viö allar
aðrar stefnur. Gildi höggmynda
skyldi felast i eigin verðleikum
án sérstaks táknmáls eða utan-
aðkomandi útskýringa.
Þannig átti höggmyndin að
fjalla um sjálfá sig, ef þannig
má aö orði komast, án skir-
skotunar til annars en þeirra
andstæðna, sem búa i efninu
þyngd — léttleika, mýkt —
harka o.s.frv.
Og John Rud segir: „Aö vinna
ýmist meö eða móti eiginleikum
efnisins — þar er ég vel heima”.
John Rud myndhöggvari við
vinnu sina
Sýning John Rud á granit-
höggmyndum hans stendur til
20. júni i anddyri Norræna húss-
ins, en sýningin utandyra
veröur fram i ágústmánuð.
A morgun föstudag mun svo
John Rud kynna sýninguna og
list sina sérstaklega, og verður
það kl. 17.00 i Norræna húsinu,
en sunnudaginn 13. júni kl. 17.00
mun hann flytja fyrirlestur um
vinnuaöferöir sinar. —jsj
Tónlelkar að
Kjarvalsstöðum
John Speight næstur í röð
ungra íslenskra tónskálda
t kvöld kiukkan nlu verða
þriðju tónleikarnir af þeim sex,
sem fyrirhugaðir eru i tónleika-
röðinni, sem Þorgerður Ingóifs-
dóttir hefur sett saman og til
kynningar á ungum, isienskum
tónskáldum. Það kann kannski
að koma skrýtilega fyrir sjónir,
að sjá nafnið John Speight i
sllku samhengi, en til skýringar
skal þess getið, að John er is-
lenskur rikisborgari og talar
bráðgóða Islensku, og þvi ekkert
eðlilegra en að hann skipi sinn
sess i kynningu á borð við þá,
sem nú fer fram að Kjarvals-
stöðum i tilefni Listahátiðar.
En hvað sem nöfnum og rikis-
borgararétti liður — um John
Speight hefur verið sagt, að
hann sé afskaplega efnilegur
músikant: tónskáld og söngv-
ari. Hann söng m.a. i bæði Sig-
aunabaróninum og La Boheme,
eins og þeir sem þær sýningar
sáu, muna eftir.
En á tónleikunum i kvöld fá
áheyrendur að heyra tónsmiðar
John Speight. Verkin, sem flutt
veröa, eru tvö: Verses and Cad-
enzasog Strengjakvartett nr. 2.
Verses og Cadenzas þýðir ein-
faldlega samspilskaflar og ein-
leikskaflar, og er þetta verk,
sérstaklega samið fyrir hina
þrjá flytjendur þess, sem eru:
Einar Jóhannsson (klarinett),
Hafsteinn Guðmundsson (fag-
ott) og Sveinbjörgu Vilhjálms-
dóttur (pianó). Verses og Cad-
enzas er grundvallað á fyrsta
samspilskaflanum, eins og segir
i tónleikaskrá, en siðan koma
einleikskaflar fyrir hvert hinna
þriggja hljóðfæra og samspils-
kaflar á milli. 1 lok verksins
leika svo öll hljóðfærin einleik
samtimis. John Speight samdi
Verses og Cadenzas árið 1979.
John Speight hefur samið þau
tvö verk, sem verða leikin á
þriðju kammertónleikunum að
Kjarvaisstöðum — en þessi
kammertónleikaröð er m.a. til
þess að kynna ung, islensk tón-
skáid.
Siðara verkið á tónleikunum,
Strengjakvartett nr. 2, er i ein-
um kafla, sem skiptist i tólf
hluta, en niu þeirra byggjast á
pedalnótunni „E”. Þeir þrir
hlutar, sem ekki byggjast á ped-
alnótunni „E”, eru aftur á móti
byggöir á hömðfóniskum og
hrynfrjálsum pólýfóniskum
hugmyndum, eins og segir i tón-
leikaskrá.
Strengjakvartettinn er fluttur
af Rut Ingólfsdóttur (fiðla),
Helgu Hauksdóttur (fiöla) Sess-
eljuHalldórsdóttur (lágfiðla) og
Pétri Þorvaldssyni (celló), en
verkið samdi John Speight árið
1974 og tileinkaði þaö Þorkatli
Sigurbjörnssyni.
Tónleikarnir verða sem fyrr
segir að Kjarvalsstöðum i kvöld
og hefjast þeir kl. 21.00.
— jsj.