Þjóðviljinn - 10.06.1982, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. júni 1982
DílolllíláS flíllic1^1*íl Socialistisk Pagblad
JSBK ÆWk ■■ jSm fl| HB BW BH Wjá dWWm fl| |fl Ww Tirxtag 19 januar 1962_13 árgang nr, 11_Lessalosp--. ^5
o " "
sósíalista hefur
lagt upp laupana
Hafði þó á bak við sig tvo flokka
með 400 þúsund kjósendum
Eitt af þeim dagblöðum
sem við höfum tekið
nokkurt mið af hér á Þjóð-
viljanum, Socialistisk dag-
blad í Kaupmannahöf n,
hefur gefist upp. Verður
blaðið vinstrisinnum
harmdauði, því oft var þar
ágætt efni að finna.
Socialistisk dagblad varð til á
vegum Sósialiska alþýðuflokksins
danska, SF, flokks sem hefur
reynt að verða að raunverulegu
pólitisku afli til vinstri við sósial-
demókrata og tekist það að
mörgu leyti. En blaðið leitaðist
einnig við að verða „opið öllum
vinstriarminum” — m.ö.o. þar
gaf að lita ýmislegar greinar frá
róttæku fólki sem ekki var á linu
Þessa nöturlegu teikningu af jólatréi I hungruðum heimi gerði hinn
ágæti teiknari SoDa. Klaus Aibrechtsen.
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i eftiríarandi:
RARlK-82021. SUÐURLINA — Upphengi-
búnaður úr stáli (Hardware)
Opnunardagur: Föstudagur 6. ágúst 1982
kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik fyrir opnunartima, og verða
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, frá og með fimmtudeginum 10.
júni 1982 og kosta kr. 50,- hvert eintak.
Umboðsmönnum aðila sem ætla sér að
bjóða i oíangreint efni er bent á hugsan-
lega stöðvun póstsamgangna við útlönd
þann 18. þ.m.
Eteykjavik 9. júni 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
SF. Og eftir að blaðið komst í
erfiðleika i fyrra og hætti um
tima að koma út, hefur flokkur
Vinstrisósialista, VS, tekið nokk -
urn þátt i útgáfu blaös-
ins — einnig aö þvi er fjárhag
varðar.
Sannkallað vinstriblað
Ekki er langt siöan Þjóðvilja-
menn fengu nokkur bréf frá ung-
um námsmönnum sem hér voru
birt: þar var blaöið gagnrýnt
fyrir að hafa ekki nægilega skýrt
markaða vinstrisérstööu sem
dagblað. Þar komu fram ráðlegg-
ingar til Þjóðviljamanna i þá
veru, að það tæki þvi ekki að elt-
ast við almennar fréttir, sem svo
margir væru aö vasast i. Aðalat-
riöið væri að sinna rækilega
verkalýðsmálum, umræðu um
sósialisma, kynningu á félags-
legum vandamálum, þriðja
heiminum og þar fram eftir
götum.
Ég man ekki lengur öll með-
mælin, enda skiptir það ekki
höfuðmáli. En hitt er vist, að
Sosialistisk dagblad var að
mörgu leyti i anda þeirra með-
mæla sem Þjóöviljinn fékk i
ádrepum þessum. Það væri synd
að segja að blaðið sparaði við sig
umræðu um kreppu kapitalism-
ans, atlöguna gegn velferðarrik-
inu, vandamál sósialismans,
þjóðfrelsishreyfingar og friðar-
mál. Vel má segja að matreiðslan
á þvi efni hafi verið full þung-
lamaleg i Socialistisk dagblad, en
margt var i þessum efnum vel
gert og vandaö. Og ágætur póli-
tiskur teiknari iagði blaðinu liö,
Klaus Albrechtsen.
Sorglegt og skrýtið
Og nú gefst þetta blað upp
vegna þess aö ekki tekst að safna
tveim miljónum danskra króna til
að tryggja þvi lengra Ilf. Og þetta
gerist skömmu eftir að Sósialiski
alþýðuflokkurinn, SF, vinnur
mikinn kosningasigur og fær 21
þingsæti, helmingi fleiri en hann
áöur haföi. Þetta gerist á timum
harðnandi átaka um velferðar-
rikið danska i miöri kreppu og
miklu atvinnuleysi.
Þetta er bæði sorglegt og
skrýtið. Það er skrýtiö að blað
skuli gefast upp sem hefur að
baki sér stuðning tveggja flokka,
þar sem ætla mætti aö fleiri ósér-
plægna hugsjónamenn væri aö
finna en i flestum flokkum öðrum,
skuli ekki geta komið út lengur.
Menn gleymi þvi ekki, að þessir
tveir flokkar, SF og VS hafa að
baki sér fjögur hundruð þúsund
kjósendur. Samt sem áður gat
þetta blað ekki komist upp fyrir
6000 eintaka upplag! Samt var
það miklu minna en Þjóöviljinn
er. Ef að Þjóðviljinn hefði svip-
aöan kaupendafjölda (hlutfalls-
legan) og Socialistisk dagblad, þá
væri upplag hans innan við 500
eintök. En ef að Socialistisk dag-
blad heföi tiltölulega jafn mikla
útbreiðslu og Þjóðviljinn þá hefði
það átt að koma út i ca 200 þúsund
eintökum.
Aðstæður allar
Nú munu þeir segja, sem
þekkja til danskra blaða, að
Socialistisk dagblad hafi átt erfitt
vegna þess aö það keppti um hylli
sama fólks og eldra blað og
stærra, Information. Infor-
mation er menntamannablaö,
óflokksbundiö, en róttækt i
mörgum greinum. Það blað er
stundum haft i huga þegar menn
'eru að gagnrýna Þjóðvilj-
ann — en þá eru færri sem veita
þvi athygli, aö Information er i
fyrsta lagi mjög hreinræktað
menntamannablað — Þjóðviljinn
Danmark med til at
legíthnere et af
verdens Modigste
mHitærdiktaturer
Kfatd Otesen er mod til at anbetmte, at trofipor tra fíra
EHanda aamarbafdar mad tortur-bodhr tra Uruguay
FORÆLDREBETAUNGEN:
Vuggestueptads koster
1000 kroner mere I
Lemvlg end i Redovre
Tte W,
Brodnin9-
i pwlin<i h»rdlin(p.pl»n. d,n tn<Vn •>
ALTMANN:
•t mmrkt Itixrrnt »1 rn »1
viinlng »1 Mmarbrtdrt. u«
drtrr |o iklir lorkrrt. hv»d
chlRl W
dnei w** T^tödiNi»um
sÆgHsrr i
„ Omfaktureríngeme
$at i system i
Afcorg-svindeten
m byoimdr opt
'Su'p*? Benzinforhandler bmgt som mellemle
-Altmann- •■««
faktura-fodalskninger
Drt farrtr •/ 4.1 vidnrr l
Alhnrif ikandalrn lorklan-
Samariwjde med SF
bwde vare muHgt
SF vil ti ansvaret for borgerfig regering
Dæmigerðar forsíöufregnir I Socialistisk dagblad: Danmörk tekur þátt
I að réttlæta eitt blóðugasta hernaðareinræði heims. — Grciðslur for-
eldra: Vöggustofupláss kosta 1000 krónum meira i Lemvig en i Röd -
lOvre. — Þrjú tonn af efnum sem valda mengun leka út árlega frá
Cheminova...
er alþýðleikinn sjálfur I saman-
burði viö það. Og auk þess kemur
Information út i liklega 37 þús-
undum eintaka (ef ég man rétt)
og það samsvarar þvi að menn
væru að reyna að gefa út dagblað
i svona 1800 eintökum hér á landi.
Liklega yrði það ekki beysið blað.
Vitanlega eru aðstæður mis-
jafnar i löndum. Vitanlega er það
svo, aö fjárskortur sýnist enn
skeinuhættari blööum i grann-
löndum okkar en okkur sjálfum.
Vitanlega eiga fleiri dönsk blöð i
erfiðleikum en hið unga sósial-
istablað — það þurfti ekki alls
fyrir löngu að safna 163 miljónum
króna danskra til að bjarga Det
Berlingske Hus, sem gefur út hið
hægrisinnaða stórblaö Berling-
inn. Og þar sést enn hve miklu
peningar ráða um málfrelsi: það
reyndist unnt að slá þá peninga á
tiltölulega skömmum tima.
Viövörun
En samt: dauði Sosialistisk
dagblad er viðvörun sem menn
skulu tala alvarlega. Lika vegna
þess, að miklu fleiri blöö sem
tengjast verkalýðsflokkum hafa
verið aö gefast upp á Norðurlönd-
um eða hanga á horriminni.
Einnig þau blöð sem beint eða
óbeint tengjast hinum öflugu
sósialdemókrataflokkum, sem
hafa 30—45% atkvæða. Ef að
vinstrisinnar eru ekki reiðubúnir
til að leggja nokkuð á sig fyrir
þau blöðsem standa þeim næst, þá
munu þeir fyrr eða siðar standa
uppi með borgarapressuna
eina — sem vitanlega kallar sig
óháða og frjálsa, en er hvorugt
þegar betur er skoðað.
En I lokin skulum við senda
bestu kveðjur þeim sem unnu á
Socialistisk dagblad. Þess má og
vel geta, að þeir kvöddu með
húmor — partur af honum var sá
að i siöasta tölublaðinu sem út
kom var blaðið ekki lengur „dag-
blað opið öllum vinstriarminum”
heldur „vinstriarmsins lokaða
dagblað”. Eða eins og i málshætt-
inum segir: best að hafa músik
með ef maður á að deyja hvort
sem er... AB
Orkustofnun
Orkustoínun óskar að ráða:
1. Sérfræðing i straumfræði jarðhitakerfa,
til að starfa við rannsóknir á rennsliseig-
inleikum jarðhitageyma (reservoir engin-
eering). Nánari uppiýsingar veitir Val-
garður Steíansson, deildarstjóri i sima
83600.
2. Jarðeðlisfræðing, eða eðlisfræðing með
reynslu i jarðeðlisfræði, til starfa við
verkefni á sviði jarðeðlisfræðilegra yfir-
borðsrannsókna á jarðhitasvæðum, frá 1.
september. Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Flóvenz, deildarstjóri i sima 83600.
Umsóknir ásamt upplýsingum um náms-
feril og fyrri störf, sendist starfsmanna-
stjóra Orkustofnunar fyrir 1. júli n.k.
I
_1 ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVÍK
Tónlistarskóli Eskifjarðar
og Reyðarf jarðar
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðar-
fjarðar óskar að ráða kennara á pianó og
orgel. Fleiri kennslugreinar koma til
greina.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist i póst-
hólf 24 Eskifirði. Upplýsingar i sima 97-
6324.
Skólanefnd