Þjóðviljinn - 09.07.1982, Qupperneq 3
________________________________________________________Föstudagur 9. júll 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins um efnahagsmálin
Hlaupum ekki frá vandanum
Munum leggja áherslu á aðgerðir sem byggjast á félagslegum viðhorfum flokksmanna okkar
„Ég vil leggja áherslu á
að þau vandamál sem við
er að etja i efnahagsmál-
um eru þannig vaxin að
þau krefjast heildarað-
gerða. Engin ástæða er til
þess að mikla fyrir sér
vandann eða láta hann
telja úr sér kjark, en það
verður að horfast í augu
við ástandið eins og það
er", sagði Svavar Gestsson
formaður Alþýðubanda-
lagsins, í samtali við blaðið
igær.
,,Viö höfum haldið marga fundi
i stofnunum flokksins og það er
ljóst að Alþýðubandalagið hefur
ekki lagt það i vana sinn að
hlaupa frá vandamálunum eins
og sumir aðrir og þegar mál
hafa skýrst enn frekar á efna-
hagssviðinu munum við leggja
áherslu á aögerðir sem byggjast
á félagslegum viðhorfum flokks-
manna okkar.”
Jafnaðarkrafa
Svavar tók fram að hann boöaði
engar galdraformúlur, enda væru
þær ekki til, og hættulegt væri að
einfalda hlutina um of fyrir sér.
Megináhersla Alþýðubandalags-
ins væri á jöfnuð, og vonandi næð-
ist samstaða um að gripa á efna-
hagsmálunum á þann veg að þeir
þjóðfélagshópar sem háar hefðu
tekjur og sterka stöðu legðu
meira að mörkum en lágtekjufólk
og þeir sem standa höllum fæti 1
þjóðfélaginu. „Kjör þeirra sem
verst standa mega ekki versna,
og það mun reyna á siðferðisstyrk
þeirra sem betur mega sin, ef svo
á ekki að fara. Og þá gengur ekki
fyrir hálaunahópa og gróðaaöila
að skjóta sér undan jafnaðar-
kröfunni með metingi gagnvart
öðrum sambærilegum hópum.”
Full atvinna
Formaöur Alþýðubandalagsins
kvaðst vona að innan rikisstjórn-
arinnar væri áhugi á að leysa
vandamálin sem væri forsenda
þess að hægt væri að komast fyrir
erfiöleika I bráð og búa um leið i
haginn fyrir betra þjóðfélag i
lengd. Alþýðubandalagið væri
reiðubúiö að taka þátt I efnahags-
aðgerðum svo fremi sem þær
væru i samræmi við grundvallar-
sjónarmiö þess um jafnari skipti i
þjóðfélaginu og fyrirheit stjórn-
arsamnings um fulla atvinnu.
Staðan á þingi
„Það kom aö visu fram á
Alþingi i vetur aö þeir sem höfðu
meö beinum eöa óbeinum hætti
stutt rikisstjórnina virtust hafa
losað um tengsl sin við Sjálf-
stæöismennina i stjórninni. Það
verður aö koma i ljós hvað þeir
hugsa sér að gera i framhaldinu.
En það sér hver maöur aðstjórnin
vinnur sig ekki fram úr vandan-
um né veitir þá leiðsögn sem
nauösynleg er nema að staða
hennar sé traust á Alþingi.”
1,5 miljarður
í tekjumissi?
Aöspurður hverja hann teldi
helstu erfiöleikana sem við væri
að glima sagði Svavar að það
væri einkum framleiðslusam-
drátturinn i sjávarútvegi, stór-
felldur vandi i peningamálum, of-
framleiöslan i landbúnaðinum og
verðbólgan.
„Það hefur oröið verulegur
samdráttur i framleiðslu þjóðar-
búsins og minnkandi þjóöartekjur
i fyrsta sinn um árabil. Menn
greiniráumhversusamdrátturinn
er mikill, enda ekki fullljóst, fyrr
en i lok ársins þegar öllu verður
til skila haldið. En það er vitað
mál að 6% samdráttur þjóðar-
tekna eins og Þjóðhagsstofnun
spáir þýðir tekjumissi uppá einn
og hálfan milljarð króna. Til
Svavar Gestsson: Ef ekki veröur
að gert er augljóst mál að erfitt
verður að halda uppi fullri at-
vinnu.
samanburðar má nefna aö ráö-
stöfunarfé Hfeyrissjóðanna allra
er áætlað einn komma þrir
milljarðar króna. Flestum eru
kunn þau ótiðindi sem yfir hafa
duniö i sjávarútvegi, og fari allt á
versta veg, munu þau koma fram
i stórminnkandi tekjum útgerðar,
sjómanna og fiskvinnslufólks.
Siðan mun slikt áfall hafa áhrif á
allt þjóðarbúiö og á afleiðingum
þessa verður að taka á ákveðinn
hátt. Að öðrum kosti safnast fyrir
óviöráðanleg vandamál.
sérstakra aðgerða. En það at-
hyglisverða er að lánsfjárþorst-
inn er hrikalegri nú en nokkru
sinni fyrr. Það kemur m.a. fram
hjá lifeyrissjóðunum og I við-
skiptabönkunum, en bankarnir
eru nú neikvæðir gagnvart Seöla-
bankanum um mörg hundruð
milljónir króna.
f”Leikflokkur frá Leik-
J félagi Reykjavikur er
I nýkominn heim frá
I Búlgariu, þar sem
j félagið sýndi SÖLKU
VÖLKU e f t ir
■ Halldór Laxness á
I alþjóðlegu leiklistar-
I hátiðinni „Leikhúsi
• þjóðanna”, sem haidin
I var i Sofia 20. júni til 6.
I júli.
Það er Alþjóðaleikhúsmála-
I stofnunin og Unesco sem standa
J að hátiðinni en hún er haldin ár-
• lega i einhverju aðildarland-
| anna. Leikfélagið sýndi tvær
sýningar á Sölku, 29. og 30. júni.
Var leikið i einu stærsta leikhúsi
borgarinnar, sem tekur um 650
manns i sæti og var leikhúsið
fullsetið á báðum sýningum og
Samdráttur
í sauðfjárbúskap
1 þriðja lagi vil ég nefna aö
þrátt fyrir verulegar aögeröir til
að draga saman framleiðslu i
landbúnaði þá hafa nú fallið niður
um sinn markaðir fyrir sauðfjár-
afuröir, sem auövitaö voru mjög
óhagstæöir. Nauösynlegt er
vegna þess aö draga stórlega úr
framleiöslu sauðfjárafurða eins
og bændasamtökin hafa reyndar
bent á. Þessi samdráttur I sauö-
fjárbúskap landsmanna verður
Framhald á 14. siðu
Þaö var heitt að leika f siðum ullarnærbuxum og ullarpeysum fyrir
islendingana i Búlgariu, en tvo fyrstu dagana var mesti hiti sem
komiðhefur þar ilandiiheila öld. Hitinn fór upp i 40 gráður og hér á
myndinni er hárgreiðslumeistari LR. Guðrún Þorvaröardóttir,
fáklædd að þurrka hárið á Sölku i hléi á seinni sýningunni. Guðrún
Gisladóttir teikur Sölku, en bakviö má sjá i Margréti Helgu
Jóhannsdóttur, kófsveitta.
Salka Valka komin heim
Búlgarska sjónvarpið tók sýninguna upp
Verðtryggingar-
stefna og
lánsfjárþorsti
1 öðru lagi vil ég nefna að verð-
tryggingarstefnan sem hér er
fylgt hefur ekki leyst vandamál á
þann hátt sem fullyrt var af tals-
mönnum Seðlabankans utan
þings og innan. Þvert á móti hef-
ur hún skapað stórfellda erfið-
leika fyrir einstaklinga og at-
vinnufyrirtæki, fyrst og fremst
húsbyggjendur og þá útgerðar-
menn sem gera út nýleg skip.
Lausnin getur ekki verið sú að
lækka vexti i þeirri verðbólgu
sem hér er. Hinsvegar þarf að
lengja lán og gripa til annarra
voru leikendur ákaft hylltir i
leikslok og barst þeim fjöldi
blómvanda. Fyrri sýningin var
tekin upp af búlgarska sjón-
varpinu og atriði úr henni flutt i
sjónvarpsþætti kvöldið eftir. A
blaðamanna- og umræðufundi i
kjölfar sýninganna, lýstu ýmsir
gagnrýnendur og leikhúsmenn
ánægju sinni með sýninguna.
Höfðusumir þeirra átt þess kost
að sjá fyrri sýningar Islendinga
á hliðstæðum leiklistarhátiðum,
þ.e. INÚK og Stundarfriö og
höfðu orð á þvi að á lslandi væri
greinilega mikil gróska i leik-
húslifinuog fjölbreytni eftir þvi.
Leikflokknum var boðið i ýmsar
skoðunarferðir meðan á hátið-
inni stóð og voru móttökur allar
hinar veglegustu. Auk þess
gafst kostur á að sjá nokkrar af
öðrum sýningum hátiðarinnar,
en alls tóku rúmlega 30 leikhús
og leikflokkar viðsvegar að úr
heiminum þátt i hátiöinni og
buöu upp á 50 leikrit og sýn- I
ingar.
Samhliða leiksýningunum '
voru haldnar ýmsar sýningar
aðrar tengdar leiklist svo og J'
umrteðuþing Alþjóðaleikhús- ’
málastofnunarinnarum „Rætur !
leikhússins”.
Þetta er i fyrsta skipti sem I
Leikfélag Reykjavikur tekur ■
þátt i alþjóðlegri leiklistarhátið |
og naut félagið styrks mennta- I
mála- og fjármálaráðuneytisins I
til fararinnar. •
--------------------------------1
Opið
ALLAN
*
HREYFILL
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^X
0C